Morgunblaðið - 04.08.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.08.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978 19 halda þeim á þeim farmgjöldum, sem verða hverju sinni hóflega áætluð. A því er varðar aðra Ameríku- flutninga Bífrastar er réttilega frá því greint af forystumönnum félagsins, að eftir að Ameríkusigl- ingar þess hófust bauð það nokkra lækkun þeim innflytjendum, sem vildu hverju sinni flytja talsvert magn bifreiða með Bifröst. Eim- skipafélagið taldi, rétt eftir að lækkun þessi var boðin, að bjóða ætti öllum innflytjendum sömu kjör, hvort sem um væri að ræða eina bifreið eða fleiri hverju sinni. Forráðamenn Bifrastar stað- hæfa, að á sl. ári hafi orðið fyrir þeirra tilstilli 610 milljóna króna sparnaður á kaupverði þeirra bifreiða, sem fluttar voru þá frá Evrópulöndum. Skylt er í þessu sambandi að vekja á því athygli, að skipafélagið Bifröst var ekki stofnað fyrr en 12. janúar árið 1977. Hálfu öðru ári fyrr, hinn 31. júlí 1975, ákváðu þrjú íslenzk skipafélög, Skipadeild SÍS, Haf- skip og Eimskipafélag Islands, að lækka öll farmgjöld vegna bifreiða til íslands um 25%. Ef hinar umræddu 610 milljónir eru árang- ur þeirrar ákvörðunar er væntan- lega rétt, að telja hann fremur þeim skipafélögum til ágætis sem fluttu bifreiðirnar en Bifröst, sem enga bifreið flutti árið 1977 milli íslands og annarra Evrópulanda. Þegar rétt reikningsskil eru gerð vegna starfsemi Bifrastar stendur það eitt eftir, að keypt er skip undir því yfirskyni að það eigi að annast flutninga á ísuðum fiski frá íslandi til meginlands Evrópu og bifreiðar til íslands. Þegar þetta skip kemur svo loksins tómt til landsins eftir leiguferðir er- lendis er það sent í Ameríkuferðir fyrst og fremst til samkeppni við Eimskipafélagið um flutninga fyrir varnarliðið, og er það gert með svo miklu ofurkappi, að strax er boðin 10% verðlækkun frá gildandi töxtum Eimskipafélags- ins. Þegar Eimskipafélagið sam- ræmir verðskrár sínar breyttum flutningaþörfum góðs viðskiptaað- ila taka forráðamenn Bifrastar til við að tala um verðstríð í stað þess að reyna að halda sér við þau fyrirheit, sem upphaflega voru gefin þegar skipið var keypt. Eimskipafélagið hefur aldrei skorazt undan að taka þátt í samkeppni við erlenda eða inn- lenda keppinauta. En félagið á þær skyldur að rækja við eigendur sína, 13 þúsund hluthafa, og 900 starfsmenn, að það láti ekki mönnum haldast átölulaust uppi að ófrægja félagið með blekking- um. Þess vegna hefur nú verið frá því skýrt, sem hingað til hefur ekki verið talið rétt að tala um opinberlega, að forráðamenn Bif- rastar hófu samkeppnisferil sinn um varnarliðsflutningana með undirboðum á töxtum Eimskipafé- lagsins. Hvaða boð önnur þeir kunna síðar að hafa gefið skiptir ekki öllu. Af frásögnum þeirra til fjölmiðla er auðsætt, að þeir gera nú allt sem þeim er unnt til þess að gera Eimskipafélagið tortryggi- legt í augum viðskiptavina þess. Hugsanlegt er, að það geti orðið eigendum Bifrastar til stundar- hagnaðar. En það er afar ótrúlegt að slík framkoma verði nokkurn tíma talin ábatasamleg íslenzka þjóðarbúinu. AUGLÝSIIMGATEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Adalstræti 6 sími 25810 Fjölskylda Shcharanskys vantrúuð á fangaskiptin Moskva — 3. ágúst. Reuter. FJÖLSKYLDA sovézka andófs- mannsins Anatolys Shcharanskys lýsti sig í dag vantarúaða á, að hann yrði látinn laus í skiptum fyrir fanga í V-Evrópu. að því er haft var eftir talsmanni fjölskyld- unnar í dag, eldri bróður hans, Leonid. Hann var nýkominn úr heim- sókn í fangelsi því sem Shcharansky er nú í, en þar var þeim leyft að ræðast við í tvær klukkustundir. Leonid sagðist ekki trúa slíkum orðrómi, en mundi auðvitað gleðjast, ef hann hefði við rök að styðjast. Leonid sagðist ekki hafa minnzt á þetta einu orði við Anatoly meðan þeir ræddust við né heldur þá athygli sem þessi orðrómur hefði vakið víða um heim, og bætti við að bróðir sinn hefði ekki minnstu hugmynd um hvað gerðist utan fangelsisveggjanna. Shcharansky hafði verið krúnu- rakaður í fangelsinu og var í FJÓRÐA árásin á írakskan stjórn- arerindreka erlendis á tæpri viku átti sér stað í Beirút í nótt. Hin opinbera fréttastofa íraks skýrði frá þessu í morgun og sagði að árásarmaðurinn hefði komizt und- an óséður. Það var sendiherra svörtum fangabúningi eins og aðrir sovézkir fangar. Hann er ekki farinn að vinna ennþá, og virtist í góðu sálarástandi, sagði Leonid bróðir hans. íraks í Líbanon sem að þessu sinni varð fyrir árás. Sendiherrann slapp ómeiddur að því er segir í yfirlýsingu fréttastofunnar, en árásin átti sér stað í námunda við Sabra-flóttamannabúðirnar í Beírút, en þar eru jafnframt bækistöðvar A1 Fatah-skæruliða- samtakanna. Enn ein árásin á erindreka Iraks Beirút — 3. ágúst — AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.