Morgunblaðið - 04.08.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.08.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978 23 Jónl.Bjarnason blaðaf. Kaupm.samtakanna: Álagningin var lækkuð VEGNA prentvillu í blaðinu í gær er eftirfarandi tilkynning birt aftur í heild: NÝKJÖRINN alþingismaður Al- þýðubandalagsins, Kjartan Ólafs- son, skrifar leiðara í Þjóðviljann Tónleikar í Norræna húsinu í KVÖLD, föstudaginn 4. ágúst, hefjast tónleikar í Norræna hús- inu kl. 9 á vegum Fél. ísl. einsöngvara. Á tónleikunum verða flutt íslenzk þjóðlög og sönglög eftir íslenzk tónskáld. Einnig koma fram kvæðamenn frá kvæða- mannafél. Iðunni og kveða stemm- ur. Á tónleikunum í kvöld koma fram söngvararnir Ingveldur Hjaltested, Ólafur Magnússon frá Mosfelli og Ragnheiður Guð- mundsdóttir. Undirleikarar verða þær Jónína Gísladóttir og Málfríð- ur Konráðsdóttir. Kvæðamennirn- ir eru þeir Njáll Sigurðsson og Magnús Jóhannsson. Þetta eru fjórðu tónleikar fé- lagsins á þessu sumri sem eru sérstaklega ætlaðir fyrir erlenda ferðamenn. Hvar ertu? Sönglagasafn eftir Oliver Guðmundsson ÚT ER komin bók með 30 danslög- um, mörsum, einsöngslögum og kórlögum eftir Oliver Guðmunds- son. Oliver Guðmundsson fæddist í Ólafsvík, en hann starfaði sem vélsetjari í Reykjavík um 50 ára skeið. Hann hefur nú haett því starfi vegna aldurs. Oliver varð snemma þekkt tónskáld einkum af danslögum sínum, sem urðu mjög vinsæl. Mörg af lögum Olivers voru á sínum tíma gefin út á nótum og síðar á plötum og þá flutt af þekktu listafólki. Bókin, sem nú er komin út, er fyrsta lagasafn hans, en þar í eru lög eins og Hvar ertu?, Við mánans milda ljós, Nætur- kyrrð, Hljóðlega gegnum Hljóm- skálagarð, Tvö leitandi hjörtu og mörg fleiri sem of langt mál yrði að telja upp. Umsjón með útgáfunni hafði Einar Egilsson; útsetningar ásamt höfundi gerði Carl Billich, nótur teiknaði Páll Halldórsson og texta skrifaði Arngrímur Sigurðsson, Káputeikningu gerði Brynhildur Ósk Gísladóttir, en bókin er að öðru leyti unnin hjá Myndamót- um, Prenttækni og Félagsbók- bandinu. Sönglagasafn Olivers Guð- mundssonar verður til sölu í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar og í hljóðfæraverslunum. 29. júlí s.l., þar sem segir m.a. orðrétt um vinstri stjórnar við- ræðurnar: „Alþý*ubandalagið lagði til, aö í stað gengislækkunar krónunnar, þá yrði nú hafizt handa um niðurfærslu verðlags, m.a. með lækkun söluskatts og verzlunarálagningar, sem fráfar- andi ríkisstjórn hefur nýlega hækkað." Hér er um fölsun að ræða hjá alþingismanninum, og er það illa farið að hann skuli gera sig sekan um slíkt. Verzlunarálagning var lækkuð í byrjun ársins, fyrir atbeina frá- farandi ríkisstjórnar. Tilkynning Verðlagsnefndar varðandi lækk- unina er númer 10, 1978, og er frá 21. febrúar. Með henni er felld úr gildi tilkynning númer 33, frá 24. 'nóvember 1977, og verzlunarálagn- ingin þar með lækkuð. Lækkunin var nokkuð misjöfn, eða frá 8,4—10%, eftir því um hvaða vöruflokk var að ræða. Nú er verzlunarálagning lægri hér en hjá flestum nágrannaþjóð- um okkar, og á sumum vöruflokk- um er hún helmingi lægri en í nágrannalöndunum. Kaupmannasamtök íslands mótmæla harðlega fölsunum af þessu tagi, sem settar eru fram í viðkvæmum pólitískum viðræðum. Það er skoðun Kaupmannasam- takanna að verzlunarálagning verði ekki með nokkru móti skert frekar en orðið er. BRITTAKXA /\ustursthrti 10 itftÍAOf S./28155-19490. Besti leikur Þinn í hvaöa stööu sem þú ert er að eignast án tafar eintak af hinni splunkunýju plötu Fjörefnis „Dansaö á Dekki“. Því „Dansað á Dekki“ tryggir stuð og skemmtileg- heit hvar sem er og hvenær sem er. Auövitað er miklu betra að tryggja sér eintak strax svo pú purfir ekki aö hugsa um seinna meir hverju pú heföir getaö reddað ef pú aöeins heföir haft eintak af plötu eða kassettu tiltæka. Svo parftu endilega aö fá pér Fjörefnapillu í barminn. • • er komin í allar plötu verslanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.