Morgunblaðið - 04.08.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
Greinargerð Eimskips um vöruflutninga fyrir varnarliðið:
Otrúlegt að framkoma Bifrastar
verði ábatasamleg þjóðarbúinu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
greinargerð Eimskipafélags ís-
lands vegna frétta um samkeppni
Einskips og Bifrastar hf. um
vöruflutninga fyrir varnarliðið
og lækkun farmflutningsgjalda á
Ameríkuleið í kjölfar þeirra>
Um langt árabil fluttu erlend
skipafélög allan þann varning
bandaríska varnarliðsins, sem það
þurfti að fá hingaö til Islands eða
koma héðan með skipum.
Fyrir tólf árum tókst Eimskipa-
félaginu að fá þessa flutninga,
sennilega m.a. vegna þess að
erlend skipafélög töldu þá eina
ekki nógu arðbæra.
Eimskipafélaginu var mjög hag-
kvæmt að fá flutningana fyrir
varnarliðið þar sem þeir leiddu til
stórbættrar nýtingar á flutninga-
rými þeirra skipa, sem Eimskipa-
félagið varð að nota til þess aö
halda uppi mjög tíðum ferðum
milli Islands og Ameríku til að
annast flutninga á frystum ís-
lenzkum fiskafurðum, sem fóru á
markaði í Bandaríkjunum. Þessi
’’ aukna nýting flutningarýmisins
leiddi til þess að unnt var að bjóða
íslenzkum og erlendum viðskipta-
vinum félagsins hagstæð farm-
gjöld á siglingaleiðunum milli
Islands og Ameríku. Auk þess sem
varnarliðsflutningarnir bættu hag
Eimskipafélagsins leiddu þeir til
stóraukinna gjaldeyristekna fyrir
þjóðina og gerðu það einnig
mögulegt að flytja frystan fisk
fyrir verulega lægri farmgjöld en
ella. Hinar tíðu ferðir fiskflutn-
ingaskipanna ollu því, að unnt var
að anna varnarliðsflutningunum
án þess að kaupa eða leigja til
þeirra ný skip, en vegna alls þessa
voru þeir þjóðinni mjög hagstæðir
og um þá var gott samstarf og
samkomulag milli varnarliðsins og
Eimskipafélagsins.
Fyrir alllöngu var um það rætt
að varnarliðið myndi taka upp þá
stefnu aukinna gámaflutninga,
sem víðast hvar hefur átt auknum
vinsældum að fagna. Hún hefur
leitt til margvíslegra breytinga í
flutningamálum, m.a. í gerð skipa
og ákvörðunum flutningataxta.
Eimskipafélagið bjó sig m.a. undir
þetta með kaupum á einu skipi,
sem sérstaklega var ætlað til
flutninga á gámum. Þegar varnar-
liðið tók til við að auka flutninga
sína með gámum var auðsætt að
setja varð nýja flutningataxta,
sem tóku bæði mið af almennum
töxtum gámaflutninga og þeirrar
sérstöðu gámaflutninga varnar-
liðsins, að þeim er skilað fylltum
til félagsins og varnarliðið annast
tæmingu þeirra á leiðarenda. Við
ákvörðun taxtanna var einungis
miðað við það eitt, sem ætla mátti
að væri sanngjarnast í ljósi
fenginnar reynslu, enda aldrei af
Eimskipafélagsins hálfu til þess
stefnt að gera varnarliðinu að
greiða önnur farmgjöld en þau,
sem hófleg máttu teljast hverju
sinni. Hitt er það, að um þau
farmgjöld gildir sú almenna regla
beggja aðila, kaupenda og selj-
enda, að réttur þeirra er jafn til
endurskoðunar við breyttar að-
stæður.
í grein, sem birtist 2. þ.m. í
Morgunblaðinu, er það haft eftir
forráðamönnum Bifrastar, að þeir
hafi í upphafi Ameríkusiglinga
félagsins boðið varnarliðinu sömu
flutningagjöld og Eimskipafélagið
en síðar orðið að lækka þau vegna
undirboðs Eimskipafélagsins. Hér
er öllum staðreyndum öfugt snúið.
Sannleikurinn er sá, að í stað þess
að einbeita sér að því að flytja
ísaðan fisk til útlanda og bifreiðir
til íslands, eins og forráðamenn
Bifrastar létu í veðri vaka þegar
þeir voru að fá fé til skipakaup-
anna, þá stefndu þeir í upphafi
Ameríkusiglinganna svo hratt til
varnarliðsflutninganna, að þeir
hófu þá með farmgjaldatöxtum,
sem voru 10% lægri en þeir, sem
þá voru í gildi milli varnarliðsins
og Eimskipaféiagsins. Að vísu
varð hér síðar á breyting, en hún
haggar í engu þeirri staðreynd, að
upphaf samkeppni Bifrastar við
Eimskip um varnarliðsflutningana
var 10% undirboð Bifrastar frá
flutningatöxtum Eimskipafélags-
ins.
Eimskipafélagið hefur jafnan
reynt að láta varnarliðið njóta
réttlátra farmgjaldataxta og tíðra
ferða, og mun enn halda þeirri
stefnu óbreyttri. Flutningarnir
eru félaginu hagstæðir og þess
vegna mun það kappkosta að fá að
auðfundið, en við öðrum svar-
leikjum leikur hvítur í næsta
leik f4 og hefur góða stöðu).
13. f4 — Rc4,14. f5 — gxf5,15.
Rxf5 - Hg8
8. einvígisskákin
Ilvítti Karpov
Svart. Korchnoi
Spánski leikurinn (Opna vörnin).
1. e4 - e5,2. Rf3 - Rc6,3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. (H) -
Rxe4 (Korchnoi reynir enn einu
sinni uppáhaldsleikvörn sína í
Spánska leiknum, opnu vörnina
sem er tvíbent afbrigði og ekki á
færi neinna að tefla nema þeirra
sem vel eru að sér í fræðunum.
Korchnoi beitti þessu afbrigði í
2. og 4. skákinni en varð lítið
ágengt. Báðir keppendur reyna í
þessari skák að breyta til frá
þessum skákum).
6. dl - b5, 7. Bb3 - d5, 8. dxe5
— Be6, 9. Rbd2 (Hér breytir
Karpov taflmennsku sinni frá
fyrrnefndum skákum, en þá lék
hann í bæði skiptin 9. c3)
9. — Rc5, 10. c3 — g6! (Þessi
leikur er af sérfræðingum talinn
upphaf ófaranna. Korchnoi er,
eins og áður hefur verið vikið að,
mikill sérfræðingur í þessari
byrjun og þessu afbrigði og
hefur ritað í handbækur ritgerð
um þetta afbrigði. Þar hefur
hann sjálfur mælt með fram-
haldinu 10. — d4! sem hann
telur að leiði a.m.k. til tafljöfn-
unar. Korchnoi beitti þessum
leik í 2. skákinni og mikið rétt;
leikurinn leiddi til tafljöfnunar
án mikilla erfiðleika. En nú
sækist Korchnoi eftir meiru og
þessvegna tektrr hann þá áhættu
aö reyna fyrir sér með nýjum
leik, en Karpov er vandanum
vaxinn og finnur fljótlega
snöggan blett á taflmennsku
Korchnois. Eftir framhaldið 10.
— d4! hefði áframhaldið getað
orðið 11. Bex6 — Rxe6, 12. Rb3
— dxc3, 13. Dc2! ? með óljósu
tafli)
11. De2 - Bg7, 12. Rd4! (Hér
fórnar Karpov peði sem
Korchnoi hefði betur hafnað en
hann er þekktur fyrir það að
þiggja einmitt slíkar peðsfórnir
og treysta á varnarhæfileika
sína). 12.... — Rxe5. (Ótrúlega
djarfmannlega leikið hjá
Korchnoi sem reynist honum
örlagaríkt. Fyrir peðið fær nú
Karpov óstöðvandi sókn. Síðsti
leikur hvíts var mjög öflugur og
viðunandi svar hjá svörtum ekki
(Korchnoi hefur nú galopnað
taflið á kostnað kópgsstöðunn-
ar, sem er orðin vægast sagt
varhugaverð. Karpov notfærir
sér ótrygga stöðu kóngsins á
lærdómsríkan hátt. Karpov
hafði er hér var komið sögu eytt
45 mínútum en Korchnoi 50
mínútum, en frá og með 16. leik
fóru keppendur að hægja ferð-
ina).
16. Rxc4 — dxc4 (Korchnoi
hugsaði sig um í 35 mínútur
en hann ákvað að drepa
með drottningarpeðinu. Ljóst er
að hefði Korchnoi drepið með
b-peðinu skapast ákveðnir veik-
leikar á drottningarvæng og
hefðu valdið svörtum ekki minni
erfiðleikum).
17. Bc2 - Rd3,18. Bh6! - Bí8
(Svartur er þegar í nokkurri
klípu ef t.d. 18. — Bxh6,19. Rch6
- Hg7, 20. Rxf7!).
19. Hadl - Dd5, 20. Bxd3 -
cxd3, 21. Hxd3 - Dc6, 22. Bxf8
- Db6, 23. Khl - Kxf8, 24.
DÍ3 - He8, 25. Rh6 - Hg7,
Loksins sigur
í 8. skákinni
Skák
Gunnar Gunnarsson
skrifar um
8. einvígisskákina
26. Hd7!! (Glæsilega leikið!
Svartur er mát ef hann þiggur
hrókinn: 26 ... Bxd7, 27. Dxf7 -
Hxf7, 28. Hxf7 mát. Svartur
reynir að mæta þessari óvæntu
heimsókn hróksins en þá dynur
yfir lokaflétta skákarinnar sem
minnir á fallega skákþraut).
26 ... IIb8, 27. Rxí7!! - Bxd7
28. Rd8!!og svartur gafst upp
því hann verður mát á f8 með
drottningunni hvort sem hann
leikur kóng á g8 eða e8. Glæsileg
lok hjá Karpov. Korchnoi getur
dregið þann lærdóm af þessari
skák að betra sé að fara hægt í
sakirnar með tilraunaleiki eins
og þann 10. í þessari skák og
láta frekar Karpov koma næst
með slíka leiki. Með þessum
fyrsta sigri í einvíginu færist
fjör í keppnina sem vonandi
verður til þess að við fáum
loksins að sjá fleiri skemmti-
legri og æskilegri skákir.
Harry Golombek
skrifar fyrir
Morgunblaðiö:
Endurbótin reyndist
Korchnoi illa
KORCHNOI var mættur við taflborðið
um tveimur mínútum fyrir byrjun 8.
skákarinnar, sem tefld var í dag.
Karpov kom á staðinn nokkrum
sekúndum áður en skákklukkurnar
voru settar í gang og þegar Korchnoi
ætlaði að heilsa honum með handa-
bandi neitaði Karpov þverlega. Stuttu
síðar lét Alexander Roshal, blaðafull-
trúi Karpovs, frá sér fara yfirlýsingu
þar sem sagði, að Karpov neitaði að
heilsa Korchnoi oftar fyrir skákirnar,
vegna móðgandi hegðunar og ummæla
hans um Karpov.
Korchnoi tefldi opna afbrigðið á móti
spánska leik meistarans og er það í
þriðja sinn í einvíginu, sem hann gerir
það. Karpov tefldi nú öðru vísi en í 2. og
4. skákunum og lék í 9. leik Rd2 í stað
Rc3 áður. í 10. leik lék Korchnoi g6 og
virðist svo sem hann hafi hér verið að
reyna eitthvað nýtt, en leikur þessi
kom síðast fyrir í skák þeirra Lashdan
og Ulverstad í Bandaríkjunum 1946. Þá
lék Ulverstad fyrst g6 og síðan Rc5.
Korchnoi, sem skrifar um þetta
afbrigði í bókinni „Badsfords
Encyclopaedia of Chess Openings", sem
prentuð var í London 1974, merkti við
þennan leik með !? Við lok 8.
skákarinnar hefur Korchnoi eflaust
getað sleppt upphrópunarmerkinu.
Askorandinn hélt áfram að tefla
afbrigðið á sama hátt, sennilega vegna
þreytu eftir 7. skákina. Næstum án
nokkurrar hugsunar og vissulega án
þess að hugsa fram í tímann reyridi
hann að skapa sér möguleika á
gagn-sókn, með því að drepa e-peðið
með riddara sínum. Þetta var ekki
aðeins áhættusamur leikur, heldur
einnig ófullnægjandi og því var hann
aðeins að bjóða hættunni heim, þar
sem Karpov er mjög fær að notfæra sér
afleiki annarra.
Á örskammri stundu hrundi vörn
Korchnois. Karpov lauk skákinni með
fallegri drottningarfórn og Korchnoi
gafst upp, þegar mátið var óumflýjan-
legt.
Heimsmeistarinn hefur því tekið
forystuna 1—0 og stigið fyrsta mikil-
væga skrefið í vörn titils síns.