Morgunblaðið - 04.08.1978, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
+ ADALHEIÐUR BERGSDÓTTIR,
Drépuhlíð 32,
Reykjavik,
andaöist 1. ágúst. Edda Carlsdóttir, Páll Pálsson.
+ Faöir okkar,
ÞORSTEINN SNORRASON,
Hvassafelli,
lézt í sjúkrahúsi Akraness, 2. ágúst. Snorri Þorsteinsson, Gísli Þorsteinsson.
+
Eiginmaður minn. faðir og stjúpfaðir
RÓGNVALDUR SIGURJÓNSSON,
vélstjóri, (frá Seyöisfirði)
Garöavegi 11, Keflavik,
lést á Gjörgæsludeild Landspítalans 30. júlí. Jarðarförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 8. ágúst ki. 2.
Juliana Jónsdóttir,
Sigurfríö Rögnvaldsdóttír,
Elsa Lilja Eyjólfsdóttir.
Í
Móðir mín,
ARNDÍS JÓNSDÓTTIR,
andaðist 3. ágúst. Jarðarförin ákveðin að Breiðabólstað í Fljótshlíö,
laugardaginn 12.8. kl. 2. e.h.
Fyrir hönd aöstandenda.
Eggert Ó. Sigurósson
Smáratúní.
Móðir okkar, + KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kaupakona,
Túngötu 23, Keflavík,
sem lést 28. júlí, verður jarðsungin laugardaginn 5. ágúst kl. 2 eftir hádegi fra
Keflavíkurkirkju.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á slysavarnarfélagiö eöa sjukrahus
Keflavíkur. Guðmundur Jóhannsson, Ingi Þór Jóhannsson, Halldoðr Jóhannsson.
+
Elsku faðir okkar
ÁRNI SKÚLASON,
f.v. forstjóri,
Hrannarstíg 3,
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Þeir sem
vilja minnast hins látna er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Ragnheióur Árnadóttir Sigríöur E. Arnadóttir.
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÍDUR JÓNSDÓTTIR,
fyrrverandi húsmóöir Hlíöarendakoti
veröur jarösungin frá Hlíöarendakirkju í Fljótshlíö, laugardaginn 5. ágúst kl. 2.
Sigríöur Arnadóttir,
Ólafía Arnadóttir, Hákon í. Jónsson.
+
Þökkum innilega sýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR,
Eggert Ólafsson, Stefanía Markúsdóttir,
Gylfi Þór Ólafsson, Kristín Gestsdóttir,
Siguröur Ólafsson, Hólmfriöur Bjartmarsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum öllum sem auösýndu samúð og hluttekningu viö andlát og jarðarför
EINARS BEINTEINSSONAR,
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Elliheimilisins Grund fyrir alúö og
umhyggju honum sýnda í langri legu.
Systkinin.
Brúarsmíði yfir Víðidalsá stcndur nú yfir og samkvæmt upplýsingum hjá Vegagcrð ríkisins verður brúin
fullgcrð í september n.k.. ef allt gengur að óskum. Brúin verður 70 metra löng og spannar yfir þrjú bil á
fjórum stöplum. Skv. vegaáætlun verður kostnaður af brúargerðinni um 88 milljónir króna og mun sú
áætlun að siign Einars Hafliðasonar koma til með að standast. Ljósmynd Snorri Snorrason.
Minning - Hjörtur
Þór Gunnarsson
Fæddur 5. febrúar 1962.
Dáinn 26. júlí 1978.
MinninKa myndirnar skína
við mildustu þakkarKjiirð.
É)? si«ni yfir saLnvina þína.
síðustu hvíluna á jörð.
L.B.
í geislum sumarsólar kveðjum
við ungan vin okkar Hjört Þór
Gunnarsson, son hjónanna Höddu
Hálfdánardóttur og Gunnars
Jóhannessonar, Sléttahrauni 28,
Hafnarfirði. Þótt okkur, sem með
honum höfum dvalið síðastliðna
tvo vetur, hafi verið það ljóst, að
ævi hans yrði ekki löng, þá á
maður alltaf jafn erfitt með að
trúa því, að kallið sé komið. Árin
urðu ekki nema sextán, sem þessi
prúði drengur fékk að dvelja hér á
jörð. En þau síðustu voru erfið,
þar sem hann var bundinn við
hjólastól vegna sjúkdóms síns.
Aldrei heyrðist æðruorð af hans
munni, en gleðin ríkti því sterkar
yfir öllu, sem fyrir hann var gert.
Hann gladdist yfir því að fara í
skólann sinn, Öskjuhlíðarskólann,
þar sem mikið var fyrir hann gert.
Og þar átti hann félaga og vini
meðal kennara, nemenda og
starfsfólks, því öllum þótti vænt
um þennan brosmilda dreng. Hann
hlakkaði sérlega til að fara í
teikningu og söng, því söngur var
hans gleði, og hafði hann mikla
ánægju af segulbandinu sínu. Það
ríkti líka gleði og gagnkvæmur
skilningur með honum og félögun-
um á Fjölskylduheimilinu að
Selbrekku 32, þar sem hann hefur
dvalið, meðan skólatími hans var
síðastliðna þrjá vetur. I Reykjadal
var hann á sumrum og allir þar
minnast hans með hlýju og þökk.
En hans stærsta gleði var að
vera heima hjá foreldrum sínum
og bræðrum, þar sem allt var gert
til að gleðja og bæta. Öll sú ástúð
og umhyggja, sem þau sýndu
honum alltaf, var ómetanlegur
gleðigjafi, og andlit hans ljómaði,
er þau komu í heimsókn eða voru
að fara með hann heim.
Við, sem trúum á Guð almáttug-
an, trúum því, að fegurð himinsins
opnist fyrir þeim, sem héðan fara.
Því veit ég, að þessi ungi vinur
okkar á góða heimkomu.
Þakkir skulu honum færðar
fyrir öll hans gæði og björtu
brosin, sem hann gaf okkur, sem
með honum vorum í Selbrekku 32
veturna 1976-1977 og 1977-1978.
Margar samverustundir verða
okkur ógleymanlegar og munu
kenna okkur, að af veikum mætti
er margt framkvæmanlegt, ef
viljinn er fyrir hendi. Þvílíka
þrautseigju sýndi Hjörtur þessa
tvo vetur, að það vakti okkur oft
mikla undrun.
Við kveðjum hann og þökkum
honum allt. Foreldrum hans og
bræðrum vottum við innilega
samúð okkar og biðjum Guð að
blessa þeim minninguna um góðan
dreng, sem fetaði ævibraut sína á
vegi kærleikans.
Blessuð sé minning hans.
Guðmunda Ilansen.
Brynhildur Axfjörð
—Minningarorð
Fædd 2. febrúar 1891.
Dáin 25. mars 1978.
J>ú vildir feKÍn íórna
þcim fátækustu mcst
oft vcrja alt hið vcika
oK varnarlausa hcst.“
SiK. M.
Hún var að sauma litla flík, er
kallið kom, kallið, sem allra bíður.
Brynhildur gekk hröðum skrefum
um götur Ákureyrar til síðasta
dags, bein i baki með reisn í svip
og fasi, því yfir henni var mikill
gerðar þokki.
Brynhildur var fædd að Saurbæ
í Eyjafirði 2. febrúar 1891. Dóttir
hjónanna Sigfúsar Einarssonar
Axfjörð og Kristínar Jakobsdóttur
Björnssonar, prests í Saurbæ frá
1884 til 1916, af hinni kunnu
Húsafellsætt. Séra Jakob Björns-
son var ástsæll af söfnuðum sínum
og svo mikill greiðamaður, að
hann vildi öllum gott gera. Enn
þann dag í dag er gestrisni hans og
göfugmennska rómuð. Kona séra
Jakobs var Sólveig Pálsdóttir frá
Gilsbakka í Öxarfirði, annáluð
hannyrðakona. Hafa margir niðjar
frú Sólveigar hæfileika á því sviði.
Þar var Brynhildur ekki afskipt
því allt lék í höndum hennar og
afköstin eftir þvi.
Brynhildur ólst upp með for-
eldrum sínum og systkinum á
Krónustöðum í næsta nágrenni við
afa og ömmu í Saurbæ. Björn var
næstur Brynhildi að aldri. Hann
er trésmiður, búsettur á Akureyri.
Næst er Þórveig húsfreyja í
Reykjavík og síðan Friðjón múr-
arameistari, látinn fyrir nokkrum
árum.
Brynhildur var félagslynd. Oft
minntist hún æskudaganna í
Eyjafirði í hópi margra frænd-
systkina og vina. Yfir þeim árum
var gleði er hún geymdi í þakklát-
um huga og hélt tryggð við það
fólk alla tíð.
Kristín og Sigfús Axfjörð flytja
til Skagafjarðar með fjölskyldu
sína árið 1913. Þar kynntist
Brynhildur manni sínum Snorra
Jónssyni frá Heiði. Þau eignuðust
þrjú börn. Jakob múrari, kona
hans var Jóhanna Ólafsdóttir,
bæði látin. Sigfús Axfjörð búsett-
ur á Akureyri, kvæntur Guðrúnu
Sigurðardóttur. Yngst er Steinunn
búsett í Reykjavík, maður hennar
er Bragi Kristjánsson forstjóri.
Eftir nokkurra ára búskap í
Skagafirði, flytja Brynhildur og
Snorri til Ákureyrar og þar
andaðist Snorri árið 1939.
Brynhildur starfaði hjá Akur-
eyrarbæ í mörg ár og aðstoðaði
jafnfrámt tengdadóttur sína
meðan börnin voru lítil. Marga
flíkina saumaði hún á hópinn sinn
og einnig á vandalausa því engum
gat hún neitað.
Brynhildur vann mikið fyrir
bindindi og starfaði í stúku fjölda
ára. Hún var í Kvenfélagi Akur-
eyrarkirkju og Kv. Hlíf. Hún átti
þann félagsanda að vera ætíð
viðbúin og glöð að geta lagt góðum
málum lið.
Brynhildur dvaldi oft í Reykja-
vík hjá dóttur sinni og fjölskyldu
og öðrum vinum. Þeir tímar voru
henni miklir gleðigjafar, hún
þurfti að fylgjast með niðjunum.
I fyrrasumar fór hún í heimsókn
til elskulegs dóttursonar er var við
nám í Vínarborg. Sú ferð var
Brynhildi ljós á vegi til æviloka og
ánægjulegt var að heyra hana
segja þá ferðasögu.
Langri vegferð er lokið hér í
heimi. Með þessari síðbúnu kveðju
er Brynhildi þökkuð samfylgd,
vinátta hennar var ætíð sú sama.
Megi geislar hins eilífa ljóss
umvefja hana á nýrri vegferð.
Laufey Sigurðardóttir
frá Torfufelli.