Morgunblaðið - 04.08.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
31
• íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki. Fremri röð frá vinstrii Sólveig Sigurðardóttir, Bryndís
Valsdóttir, Sigrún Bergmundsdóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði, Rósa Hermannsdóttir,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Karen Guðnadóttir. Efri röð frá vinstrii Auður Ólafsdóttir, Anna Kaja
Þrastardóttir, Sigrún Þóarinsdóttir, Erna Lúðvíksdóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Þóra Gunnarsdóttir,
Sigrún Cora Barker, Ilelena Jónsdóttir, Anna Vignir og Albert Guðmundsson, þjálfari. Ljósmyndi
Emili'a Björnsdóttir.
Fyrstu meistararnir
krýndirí gærkvöldi!
SENN dregur til úrslita í
flestum flokkum (slands-
mótsins í knattspyrnu og
í gærkvöldi voru fyrstu
íslandsmeistararnir
krýndir, Valsstúlkurnar,
sigurvegarar í kvenna-
flokki 1978.
Fjögur félög tóku þátt í
mótinu að þessu sinni og fór
síðasti leikur mótsins fram á
Valsvellinum í gærkvöldi og
áttust þár við Valur og FH. Val
nægði jafntefli til þess að verða
meistari og lengi vel leit út fyrir
að úrslitin myndu verða marka-
laust jafntefli. En tveimur
mínútum fyrir leikslok skoraði
Ragnheiður Víkingsdóttir óvænt
mark með skoti af löngu færi og
gulltryggði Val íslandsmeist-
aratitilinn.
Lokatölurnar 1:0 fyrir Val,
verðskuldaður sigur í leiknum
og jafnframt verðskuldaður sig-
ur í mótinu. Valur hlaut 10 stig
en meistararnir frá í fyrra,
UBK, komu næstir með 8 stig.
í leikslok afhenti Ellert
Schram formaður KSÍ ánægð-
um og glöðum Valsstúlkum
sigurlaunin. — SS.
• Ragnheiður Víkingsdóttir fyrirliði Vals tekur við bikarnum úr
hcndi Ellerts B. Schram, formanns KSÍ á Valsvellinum í
gærkvöldi.
KR-ingarfá
enga ágjöf
KR-INGAR fá varla verðuga mót-
herja pessar vikurnar og nú voru
Það Ármenningar sem steinlágu og
áttu aldrei möguleika á Því að stela
stigi, hvað Þá tveimur. KR-ingar
unnu 3—0 eftir að staðan hafði verið
2—0 í leikhléi.
KR-ingar höfðu mikla yfirburði í
fyrri hálfleik, en ef frá er talinn Sverrir
Herbertsson, fékk liðið sárafá góð
færi. Sverrir fékk hins vegar þrjú og
úr einu skoraði hann á 45. mínútu,
eftir langt innkast Stefáns Arnar.
Stefán skoraöi sjálfur fyrsta markið á
9. mínútu með góðu skoti eftir
fyrirgjöf Birgis Guðjónssonar.
Síðari hálfleikur var hálfgerð leik-
leysa til að byrja með, en um
miðbikið fóru KR-ingar að leika
saman að nýju og skoraði þá Stefán
Örn annað mark sitt og þriðja mark
KR. Undirbúningurinn var fallegur og
markið glæsilegt, þrumuskot í hornið
fjær eftir að Vilhelm Fredriksen hafði
lagt knöttinn fyrir hann eftir fyrirgjöf
frá vinstri. Síðasta stundarfjórðung-
inn höfðu KR-ingar síðan sömu
yfirburðina og í fyrri hálfleik. Þeir
hefðu getað bætt mörkum við með
nokkurri heppni. Bestur hjá KR var
Birgir Guðjónsson. — gg.
STAÐAN
STAÐAN í 2. deild oftir loikinn í Ka rkvoldi
or þossii
KR — Armann
Iiaukar — Rovnir
KR
I»ór
ÍHÍ
Roynir
Austri
Haukar
l»r»ttur
Fylkir
Armann
ViislunKur
3-0
MAKKII.KSTU LEIKMENN.
Svorrir Ilorhortsson KR
Stofán ()rn Sivíurðssun KR
Jón Lárusson l>ór
hráinn Ásmundsson Ármanni
Háhýsin nötruðu
og bflar dælduðust
HAUKAR og Reynir skildu jöfn á
Hvaleyrarholtsvelli í gærkveldi,
hvort liö skoraði tvö mörk. Reynie-
menn voru hins vegar nær sigri, ef
litiö er á færin, en knattspyrnan,
sem leikin var, var Þess eðlis, að
rúöur háhýsanna í kring nötruðu, er
knötturinn skall á Þeim og bílar
beygluðust á bílastæðum vallarins.
Fyrri hálfleikur var jafn og þóf-
kenndur, en þaö voru Haukar sem
brutu ísinn og náðu forystunni, Árni
Hermannsson skoraði.
í síðari hálfleik gerðu Reynismenn
harða hríð að marki Hauka og rak þá
hvert dauöafæriö annað, en öll voru
þau misnotuö. Þegar 10 mínútur voru
eftir jafnaði Ómar Björnsson fyrir
Reynir, en hann hafði nýlega komið
inn sem varamaöur. Mínútu síðar
skoraði Sigurður Aðalsteinsson úr
víti fyrir Hauka, en Sveinn Þorkels-
son jafnaði á ný fyrir Reyni. Á síðustu
mínútunni var Þórður Marelsson í
dauðafæri, en skaut framhjá. Ekki
hefði verið ósanngjarnt aö har.n
tryggöi Reyni sigurinn.
— 99-
Sægur af HM mörkum á skjánum
„VEGNA fjölda áskorana, munum við sýna í heild framlenginguna í leik
Argentínu og Hollands og síðan verötaunaafhendinguna og fagnaðarlætin í
leikslok, en pann pátt var ekki tími til aö sýna áöur en við fórum í frí.“
Þetta sagöi Bjarni Felixson um ípróttaÞáttinn á iaugardaginn. „Annars
verður Þátturinn að mestu helgaður HM í Argentínu, ég mun sýna leikinn
um 3. sætið milli Brasilíu og italíu næstum í heild og auk Þess syrpu par
sem sjá má sæg af mörkum,“ sagði Bjarni ennfremur. Leikur Italíu og
Brasilíu var hinn fjörugasti, italir náðu forystu í fyrri hálfleik, en
Brasilíumenn mættu tvíefldir til leiks í Þeim síðari og tryggöu sér Þá
bronsið með pví að skora tvívegis.
Enska knattspyrnan hefst hinn 19. Þ.m. og viku síðar mun Bjarni sýna
landsmönnum fyrsta leikinn, pó er vel hugsanlegt að hinn svokallaði
Charity Shield leikur verði einnig á skjánum, en hann er viku fyrr. Þaö er pó
allsendis óvíst ennpá hvort leikurinn sá verði til sýnis. — gg.
Heimsfrægir íþróttamenn streyma
á Reykjavíkurleikana í frjálsum
IIINIR árlegu Reykjavíkurleik-
ar í (rjálsum íþróttum verða að
þessu sinni dagana 9. og 10.
ágúst nk. og fara fram á nýja
tartanvellinum í Laugardaln-
um. Hér er um að ræða fyrsta
íþróttamót, sem háð er á
slikum velli hérlendis. í gær
bættust fimm frábærir íþrótta-
menn, allir frá Bandaríkjun-
um, í þann hóp, sem þegar
hafði boðað þátttöku. Fimm-
menningarnir eru Steve Ridd-
ick og Bill CoIIins, sem báðir
hafa hlaupið 100 metra á 10
sekundum. Larrie Jessey, sem á
5,61 metra í stangarstökki,
Tony Darden, sem á 45,2 sek í
400 m og 20,5 sek í 200 m og að
lokum Ben Fields, sem stökk
2,28 metra í hástökki á móti í
vikunni. Reykjavíkurleikarnir
eru nú orðnir, ef þeir voru það
ekki fyrir, sterkasta frjáls-
íþróttamót sem fram hefur
farið hérlendis og fer vegur
þeirra greinilega vaxandi, því
að keppendur á heimsmæli-
kvarða eru farnir að hringja og
fá að koma til leiks. Þeir, sem
vitað er var fyrir að myndu
keppa, eru þessir>
Mac Wilkins, heimsmethafinn í
kringlukasti.
Charlie Wells, spretthlaupari,
sem á best 10 sek í 100 m.
Sex góðir millivegalengda- og
langhlauparar koma frá Banda-
ríkjunum og eru það þessir:
Doug Brown 8:04,0 í 3000 m og
13:40,6 í 5000 m.
Jim Crawford 3:40,2 í 1500 m,
8:01,2 í 3000 m og 13:35,4 í 5000
m.
Tiny Cane 1:47,7 í 800 m og
3:39,1 í 1500 m.
George Malley 3:40,2 í 1500 m og
7:59,8 í 3000 m.
Mike Manke 1:48,5 í 800 m og
3:37,1 í 1500 m.
Craig Virgin 3:46,1 í 1500 m,
7:54,9 í 3000 m og 13:25,4 í 5000
m.
Evrópumeistarinn í kúluvarpi
innanhúss, Finninn Reijo Stál-
berg, verður meðal keppenda,
svo og norski kringlukastarinn
Knut Hjeltnes, sem á best 65,66
metra.
Frá Sovétríkjunum koma
fjórir íþróttamenn, þar af ein
kona. Þeir eru:
Nikolai Walahanowitsch, kúlu-
varpari með um 20 metra best.
Iwan Morgol, spjótkastari, sem
kastaði 82,50 metra í fyrra.
Michail Starowoitow, sprett-
hlaupari sem á best 103, sek í
100 m.
Irina Kowaltschuk, keppir í 400
og 800 m hlaupi og á heldur
skárri tíma en íslenskar stöllur
hennar.
Steve Riddick
• Vilmundur fær skemmtilega
keppni á Reykjavíkurleikun-
um.