Morgunblaðið - 04.08.1978, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1978
Samanlögð gjöld nema
tæplega 3,1 milljarði
SjvATTSKRÁIN í Suðurlandsum-
i mi verður lögð fram í dag og
eru álögð gjöld samtals að
upphæð 3.091.756.577 á 7.125
einstaklinga og 466 félög og
stofnanir. Af þessari upphæð
nemur tekjuskattur á einstakl-
inga kr. 1.063.435.036 og hækkar
frá fyrra ári um 69,5% en
tekjuskattur félaga nemur
111.020.543 kr. og hækkar um
26%.
Utsvör eru nú í fyrsta sinn lögð
á af skattstofunni í öllum sveitar-
félögum umdæmisins og nema þau
samtals 1.096.446.800 og hækka um
66,6% frá fyrra ári, en þá vantaði
inní útsvör frá 5 sveitarfélögum.
Hæstan tekjuskatt einstaklinga
eiga að greiða:
Brynleifur Steingrímsson, Selfossi
kr. 3.584.591, Sigfús Kristinsson,
Selfossi 3.449.210, Ísleifur Hall-
dórsson, Stórólfshvoli • 3.322.233,
Magnús Sigurðsson, Eyrarbakka
3.149.887, Þórhallur Ólafsson,
Hveragerði 2.843.857.
Hæst samaníögð gjöid greiða:
Sigfús Kristinsson, Selfossi
10.884.604, Brynleifur Steingríms-
son, Selfossi 5.848.456, ísleifur
Halldórsson, Stórólfshv. 5.446.875,
Magnús Sigurðsson, Eyrarbakka
5.427.146, Þórhallur Ólafsson,
Hveragerði 4,870.818.
Hæstan tekjuskatt bera þessi
félög:
Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi
26.350.677, Vörðufell hf. Hruna-
mannahr. 5.353.000, K. Richter hf.,
Hellu 5.270.456, Suðurverk sf.,
Hvolsvelli 4.646.082, Vélgrafan sf.,
Seifossi 4.546.998.
Hæst samanlögð gjöld bera
þessi félög
Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi
44.200.595, Kaupfélag Arnesinga,
Selfossi 41.125.287, Meitiliinn hf.,
Þorlákshöfn 40.434.740, Kaupfélag
Rangæinga, H.volsvelli 17.332.009,
Glettingur, Þorlákshöfn
12.402.350.
Fursvarsmenn Alþýðubandalags-
ins, þeir Ragnar Arnalds og
Kjartan ólaísson koma af fundi
með Geir og Gunnari. Ljósm.
ói.K.M.
fjölmiðium. Við létum auðvitað í
ljós okkar viðhorf í þessum efnum
og vöktum athygli auðvitað á þeim
tillögum sem við höfum lagt fram í
sambandi við efnahagsvandann
margnefnda, en svo skiptumst við
á skoðunum vítt og breitt," sagði
Kjartan. Hann kvaðst líta svo á að
forustumenn Sjálfstæðisflokksins
mundu að loknum þessum könn-
unarviðræðum gera upp við sig
hvort þeir telji ástæðu til að gera
Sumarloðnal977:
Útflutnings-
verðmæti 6
milljarðar
ÞAÐ kemur fram í viðtali við
Matthías Bjarnason, sjávarútvegs-
ráðherra, sem birt er á bls. 10 og 11
í Mbi. í dag, að heildarverðmæti
loðnuafurða á sl. ári, 1977, var 16
milljarðar og fjögurhundruð og níu
milljónir. Þar af var andvirði
sumarveiddrar loðnu, eða afurða
unninna úr henni, rétt rúmlega sex
milljarðar króna, en sumarveiði
loðnu er nýlegt fyrirbæri í þjóðar-
búskap okkar.
Þá kemur það ennfremur fram að
útflutningsverðmæti síldarafurða
1977 var 3.185 m. kr. Þar af var
saltsíld fyrir 2.555 m. kr., fryst síld
fyrir 604 m. kr. og mjöl úr
síldarúrgangi 26 m. kr.
Krafla:
Nyhdaboruðog
gert við holu 11
ÁKVEÐIÐ hefur verið að verja
þeim 350 milljónum. sem ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að útvega
til lagfæringa á borholum við
Kröflu, til að gera við holu 11 og
láta bora eina nýja holu. Eiga
þessar framkvæmdir að hefjast
undir næstu mánaðamót og verð-
ur borinn Dofri, sem nú er við
borun fvrir Hitaveitu Reykjavík-
ur skammt frá Hótel Esju fluttur
norður. AIls hefur ríkisstjórnin
samþykkt að útvega allt að 500
milljónir króna til endurvinnslu
og lagfæringa við Kröflu og auk
holanna verður unnið að lagfær-
ingum á gufuveitunni og unnið að
lagfæringum í stciðvarhúsinu.
Einar Tjörvi Elíasson, fram-
kvæmdastjóri Kröflunefndar,
sagði að hann hefði upphaflega
Veðrið um
helgina
GERT er ráö fyrir aö hægbreytileg
átt verði á öllu landinu um helgina,
sennilega verður þurrt og sólar-
glæta í innsveitum á Norður- og
Austuriandi en víðast skýjað á
Suður- og Vesturlandi og sums
staðar súld að næturlagi. Þar sem
verður skýjað veröur hitinn á
daginn 10 til 14 stigen í innsveitum
fyrir norðan 15 til 18 stig.
gert tillögu um að lagfæra þrjár
holur en hann hefði byggt tillögur
sínar á gömlum ög í sumum
tilvikum röngum upplýsingum.
Niðurstaðan hefði orðið sú að láta
endurvinna holu 11 og bora nýja á
því svæði, sem jarðvísindamenn
telja að mestar líkur séu til þess áð
besta gufan fáist. Er það í
suðruhlíðum Kröflu, ekki langt frá
holu 9, sem er besta holan í notkun
nú. Veröur hafist handa við að
lagfæra holu 11 og reynt að loka
efra kerfinu í henni og að því
loknu verður vinna hafin við nýju
holuna.
Þá er áætlað að verja 60 til 70
milljónum til að byggja yfir
skiljustöðina, viðgerða á gufuveit-
unni og lagfæringa á ýmsum
göllum á gufuveitunni sem komið
hafa í Ijós við reksturinn. Svip-
aðri upphæð verður varið til
viðgerða inni í stöðvarhúsinu.
Sem kunnugt er liggur raforku-
framleiðsla nú niðri í Kröflu-
virkjun en gert er ráð fyrir að
virkjunin fari á ný í gang í
október, þegar lagfæringu á holu
11 er lokið og þá geti hún framleitt
7 til 8 megawött. Við tilkomu nýju
holunnar gæti framleiðslan farið
upp í 13 megawött að sögn Einars
en allt fer það þó eftir því hvernig
til tekst við þá borun.
Þyrluslysið:
Annað stétekrúfu-
blaðið datt af
LJÓST ER nú að orsök þess að
Andri Heiðberg varð að nauð-
lenda þyrlu sinni við Álftakrók
skammt norðan við Eiríksjökul á
mánudagskvöld var sú að annað
blað stélskúfu þyrlunnar losnaði
af og féll til jarðar. Vegna
miðflóttaaflsins rifnaði hitt blað-
ið einnig af ásamt gírkassa, sem
er í stélinu. Kom þetta fram í
samtali við Skúla J. Sigurðsson,
deildarstjóra hjá Flugmálastjórn-
inni, en hann fór í gær að
þyrluflakinu og skoðaði það fyrir
hönd Flugmálastjórnar ásamt
öðrum.
Skúli sagði að Andri hefði ekki
átt annars úrkosta en nauðlenda
þar sem hann var staddur og hann
hefði haft mjög takmarkaða stjórn
á þyrlunni. Hann lenti niður í
stórgrýti og halla en þyrlan hefur
skorðast á milli steina og brotnað
mjög illa. Sagði Skúli að hún
virtist gjörónýt.
Aö sögn Skúla er eftir að rannsaka
hvers vegna skrúfublaðið losnaði
og verður það gert á næstunni.
Sjá „Furðulegt að 'ekki
skyldi takast“ viðtal við
Andra Heiðberg á bls. 16.
Þjóðstjórnarhugmyndin reifuði Þeir Einar Ágústsson, Geir Hallgrímsson, ólafur
Jóhannesson og Gunnar Thoroddsen í upphafi fundar forsvarsmanna Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins.
Áfram þreifað á þjóð-
stjórnarhugmyndinni
Engar niðurstöður úr könnunarviðræðum
forsvarsmanna flokkanna fjögurra í gær
FORMAÐUR Sjálfstæðisflokks-
ins og varaformaður, þeir Geir
Ilallgrímsson og dr. Gunnar
Thoroddsen, munu halda áfram f
dag að reifa hugmyndir sjálf-
staðismanna um myndun þjóð-
stjórnar við nokkra aðila, en í
gærdag áttu þeir viðræður við
forsvarsmenn hinna þriggja
stjórnmálaflokkanna. „Þetta
voru fyrst og fremst könnunar-
viðræður og ekki til þess stofnað
að út úr þeim kæmu neinar
niðurstöður,“ sagði Geir Hall-
grimsson í samtali við Mbl. í gær.
Hann kvað verða séð til með
framhaldið eftir viðræðurnar í
dag.
Benedikt Gröndal og Kjartan
Jóhannsson, formaður og varafor-
maður Alþýðuflokksins, gengu á
fund forsvarsmanna Sjálfstæðis-
flokksins árdegis, en eftir hádegi
voru haldnir fundir með Ólafi
Jóhannessyni og Einari Ágústs-
Skattskrá Suðurlands lögð fram í dag:
syni, formanni og varaformanni
Framsónarflokksins, og þeim
Kjartani Ólafssyni og Ragnari
Arnalds, varaformanni Alþýðu-
bandalgsins og formanni þing-
flokks þess, en Lúðvík Jósefsson,
formaður flokksins, er staddur úti
á landi sem stendur.
Kjartan Ólafsson, sagði í sam-
tali við Mbl. í gær um fundinn:
„Þeir Geir og Gunnar kynntu
okkur hugmyndir Sjálfstæðis-
flokksins um myndun fjögurra
flokka stjórnar með svipuðum
hætti og Geir hefur áður gert í
formlega tillögu um stjórnar-
myndunarviðræður á þessum
grundvelli. Alþýðubandalagið
myndi ekki taka neina afstöðu til
þátttöku í slíkum viðræðum fyrr
en erindi þessa efnis bærist þeim.
Reyndar kvað Kjartan þá Alþýðu-
bandalagsmenn hafa ákaflega litla
trú á því að málefnaleg samstaða
næðist með öllum flokkunum
fjórum og auðvitað megi öllum
vera ljóst að Alþýðubandalagið
muni aðeins taka þátt í ríkisstjórn
að það geti sætt sig við þann
málefnagrundvöll, er slík stjórn
byggði á.
Kjartan Jóhannsson, sagði að
viðræður þeirra Benedikts við
forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins
hefðu staðið um klukkustund án
þess að þær leiddu til neinnar
niðurstöður heldur málin rædd
vítt og breitt. Þingflokkur Alþýðu-
flokksins myndi að öBum líkindum
taka afstöðu til þessara hugmynda
í dag, föstudag.
Ólafur Jóhannesson vildi ekkert
láta uppi um viðræður þeirra
Einars Ágútssonar við forsvars-
menn Sjálfstæðisflokksins en kvað
þjóðstjórnarhugmyndina mundi
verða rædda á fundi miðstjórnar
Framsóknarflokksins í dag.