Morgunblaðið - 17.08.1978, Síða 17
MORGUNBLAÐIÓ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978
17
Þetta geröist
Spá Alþjóðabankans:
Mannkyninu á eftir
að fiölga um 250%
Washington. 16. ágúst. AP.
INDVERJAR verða íjöl-
mennari en Kínverjar ef
núverandi þróun mann-
fjölda verður óbreytt
næstu áratugina, að því er
segir í skýrslu Alþjóða-
bankans um mannf jöldann
í heiminum á næstunni.
í skýrslunni er því spáð að
Indverjar verði 1,6 milljarður árið
2150, en reiknað er með að þá verði
fjöldi landsmanna í hámarki. Þá
niðurstöðu er einnig að finna í
skýrslunni að íbúafjöldi heimsins
verði um 10 milljarðar innan
næstu 200 ára, en reiknað er með
að jarðarbúar verði aldrei fleiri. I
dag telur mannkynið um 4 millj-
arða og á því samkvæmt spánni
eftir að aukast enn um 250%.
Reiknað er með að Bandaríkin
verði fjórða fjölmennasta þjóð
heims um næstu aldamót. Nú f.vlla
Bandaríkjamenir 215 milljónir en
þeir verða skv. spánni 254 milljón-
ir að 22 árum liönum. í dag eru
Kínverjar fjölmennastir, eða 826
milljónir manns, Indverjar eru 620
milljónir og Sovétmenn telja 257
milljónir í dag.
Sama röð verður með þjóðunum
um aldamótin, skv. spánni, en þá
er reiknað með að Kínverjar verði
1,4 milljarður manna, Indverjar
17. ágúst
958 milljónir og Sovétmenn 320
milljónir.
Meðal annarra þjóða af tíu
fjölmennustu þjóðum heims er
spáð að fólksfjöldi þeirra allra
nánast tvöfaldist á næstu 25 árum.
Spáð er að fjöldi barnsfæðinga og
dauðsfalla í þessum löndum muni
haldast í hendur einhvern tíma á
næstu 200 árum og fólksfjöldi
þeirra nái því algjöru hámarki
fyrir árið 2175.
Af fjölmennustu þjóðunum ná
Bandaríkin fyrst þeirra þessu
marki, eða árið 2035 Hámarks-
fjöldi Bandaríkjamanna verður þá
276 milljónir manna. Sovétmenn
ná hámarksfjölda árið 2065 þegar
þeir verða 373 milljónir, Mexíkanir
árið 2075 þegar þeir verða 254
milljónir og Kínverjar verða
í'úmur 1,4 milljarður manna 2090.
Ekkilinnir of-
sóknum í
Jóhanncsarhorg. 16. ág. Routcr.
ENN DRÓ til tíðinda í dag í
Suður Afríku er atlögur voru
gerðar að tveimur þekktum and-
stöðumönnum stjórnarinnar í
Suður-Afríku. Bensínsprengju
var varpað að bifreið dr. Beyers
Naudc, fyrrverandi forstjóra
kristilegrar stofnunar sem nú
hefur verið bönnuð, og nokkru
síðar var skotið inn um glugga á
heimili Helen Joscph sem er
alþekkt fyrir gagnrýni sina á
kynþáttastefnu stjórnarinnar.
bykir ýmsum fréttamönnum sem
hratt lengist nú listi yfir þá
stjórnarandstæðinga sem verða
fyrir ámóta árásum nú upp á
síðkastið. Dr. Naude er bannfærð-
ur af stjórnvöldunum og Helen
Joseph hefur mjög takmarkað
ferða- og athafnafrelsi og fylgzt
er með því hverja hún hittir.
JulieNixon
ól dóttur
S-Afríku
I ársbyrjun sagði blaðið Johann-
esburg Sunday Express frá því að
um 1600 ofbeldisverk hefðu verið
framin síðan árið 1964 gegn þeim
sem gagnrýnt hafa stjórnina. Á
þessu ári hefur ólgan síðan
magnast enn og hafa nokkrir
þekktir menn sem reynt hafa að
rísa gegn Vorster og kynþátta-
stefnu hans verið drepnir en mál
hefur ekki höfðað á hendur
neinum eftir illvirki þau sem
framin hafa verið.
Marþon-
sundkonur
gáfust upp
Miami. — 16. ágúst. AP.
Maraþonsundkonurnar tvær,
Stella Taylor og Diana Nyad, sem
freistuðu þess að synda milli Kúbu
og Flórida gáfust upp á þriðjudag.
Voru þær teknar örmagna upp í
báta er fylgdu þeim. Mótvindur
gerði þeim sundið erfitt og
marglyttur stungu þær. Diana
Nyad, sem synti í frægðar- og
fjáröflunarskyni, tókst að komast
112 km af 165. Stella Taylor hafði
tæplega 100 km að baki, er hún
gafst upp.
Julie og David Eisenhower. Þau
haía nú verið giít í meira en tíu
ár og ekki átt barn fyrri og má
því ætla að ánægjan sé ósvikin
hjá þeim og öðrum fjölskyldumeð-
limum.
Washington, 16. ágúst. AP.
JULIE Nixon Eisenhower. dóttir
Richard Nixons fyrrum forseta
Bandaríkjanna. ól dóttur klukk-
an 1:32 að staðartíma á þriðju-
dagsmorgun í San Clemente
sjúkrahúsinun í Kaliforniú. að
því er aðstoðarmaður Nixons
skýrði frá í gær.
Stúlkan vó um 4,200 grömm.
Auk þess að vera barnabarn
Nixons er stúlkan einnig barna-
barnabarn Dwight Eisenhowers
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, því
faðir hennar er David sonarsonur
hans, eiginmaður Julie. Móður og
barni heilsast vel.
brátt fyrir heimsfréttir á borð við fráfall páfa, erfiðleika í
stjórnarmyndun hér, í Portúgal og víðar, skærur og stríð, er þó
ekki neinum blöðum um að fletta að það sem mikill fjöldi manna
hefur hvað mestan áhuga á cru uppátektir Christinu Onassis.
Enginn fær enn neinn botn í hvaða skyndiferðir hennar um
heiminn síðustu daga hafa átt að þýða. Nú er hún allténd komin
aftur til Sergei í Moskvu en þessi mynd var tekin af henni við
einkahús sitt í Aþenu þegar hún fékk sér sundsprett. Tekið er
til þess að Christina brosi á myndinni en venjulega er hún
sérdeilis alvörugefin stúlka.
Manntjón
í flóðum
Nýju Delhi, 16. ágúst. Reuter.
311 manns að minnsta kosti
hafa drukknað í flóðum víðs
vegar um Indland, að því er
Surjit Singh Barnala land-
búnaðarráðherra greindi frá í
dag. Ilann sagði að mcst hefði
manntjónið orðið í ríkinu Uttar
Pradesh sem er í norðurhluta
landsins. en þar drukknuðu 163 f
Ganges er hún flæddi yfir bakka
sína. Unnið er að björgunarstörf-
um og víða við örðugar aðstæður.
Eigna- og uppskerutjón hefur
orðið mikið og er metið á um 63
milljónir dollara. Alls hafa 11
milljónir manna á einhvern hátt
orðið fyrir barðinu á þessum
náttúruhamförum.
Spaethfor-
sætisráð-
herra Baden-
Wiirtemberg
Stuttgart. 16. ágúst. AP.
KRISTILEGIR demókratar í
Baden-Wiirtemberg-fylki út-
nefndu í dag Lothar Spaeth
innanríkisráðherra sem forsætis-
ráðherraefni flokksins með 47
atkvæðum gegn 27. Forsætisráð-
herra fylkisins verður kjörinn á
fylkisþinginu 30. ágúst n.k.
Eins og kunnugt er kemur þessi
útnefning kristilegra demókrata í
kjölfar afsagnar Hans Filbinger
forsætisráðherra fylkisins fyrir
skömmu. Talið er víst, að Spaeth
verði kjörinn forsætisráðherra
fylkisins á þinginu, þar sem
kristilegir demókratar hafa meiri-
hluta þar.
Salómoiís-
eyjar í S.Þ.
S.|). líi. átíúst. Rcutcr.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna kom saman til fundar í dag og
samþykkti þar aðildarumsókn frá
Salómonseyjum. Eru þá ríki innan
vébanda samtakanna alls eitt
hundrað og fimmtíu. Salómonseyjar
voru áður brezkt verndarsvæði. þær
eru í suðvesturhluta Kyrrahafs og
íhúar eru rétt innan við 200
þúsund. bær fengu sjálfstæði þann
7. júlí sl.
1977 — Söngvarinn Elvis
Presley deyr úr hjartaslagi.
1975 — Sovézkur togari tekinn
aö ólöglegum veiðum í banda-
riskri fiskveiöilögsögu.
1970 — Líbanska þingið kýs
Suieiman Franjieh forseta Líb-
anon.
1969 — Philip Blaiberg, sem
lengst hefur lifað þeirra sem
hafa ígrætt hjarta, lézt í Höfða-
borg.
1952 — Kínversk sendinefnd
undir forystu Chou En Lai
kemur til Moskvu.
1945 •— Holland neitar að
viöurkenna sjálfstæði Indónes-
íu.
1943 — Hersyeitir bandamanna
ná Sikiley á sitt vaid.
1940 — Þjóðverjar lýsa yfir
algeru hafnbanni á England.
1920 — Rúmenía myndar
þriggja þjóða bandalag með
Júgóslavíu og Tékkóslóvakíu.
1879 — Franskt fyrirtæki um
Panamaskurðinn er stofnað.
Afmæli dagsins. Joseph Do-
brovsky, tékkneskur heimspek-
ingur (1753—1829), William
Carey, enskur trúboöi
(1751 — 1834), Maurice Barres,
franskur rithöfundur
(1826-1923), David Crockett
bandarískur landnemi
(1786-1836), Mae West, banda-
rísk leikkona (1893--)
Innlent: D. Sveinbjörn Egilsson
1852. — F. Jón Árnason bóka-
vörður 1819. — Fjáj-nám í búi
Skúla fógeta í Viðey 1774. —
Þriðji dómurinn yfir Sölva
Helgasyni sem er fluttur til
Kaupmannahafnar 1852. —
Bráðabirgðaúrskurður Alþjóða-
dómstólsins um óbre.vtt ástand
varðandi fiskveiðar Breta við
ísland 1972.
Orð dagsins: Hold er mold,
hverju sem það klæðist.
Samningur Kína og
Jap an a staðfestur
PckinK. 16. ágúst. Rcutcr.
KÍNVERJAR staðíestu í dag
friðar- og vináttusamninginn sem
gerður var við Japana um síðustu
helgi. Fréttastofan Nýja Kína
sagði að þingncfnd hefði einróma
staðfest þann samning og einnig
eínahags- og tæknisamvinnu-
samning sem gerður hafði verið
við Rúmeníu.
Japanska þingið, Diet, á eftir að
ganga frá málunum þar í landi og
búizt er við að Teng Hsiao Ping
aðstoðarforsætisráðherra muni
fara til Tókíó síðar á þessu ári og
verði þá skipzt á skjölum varðandi
þessa samningsgerð. Undirbún-
ingur tók sex ár og hefur stjórn
Sovétríkjanna látið í ljós gremju
vegna samningsins og sagt, að
hann kunni aö stofna heimsfriði í
voða.
Kínverska fimleika-
fólkið á íslandi
Síöasta sýning kínverska fimleikafólksins hér á landi er í kvöld kl. 20,30.
Samkvæmt ósk kínverska fimleikafólksins mun íslenskt fimleikafólk koma fram á þessari sýningu.
Fimleikasamband íslands