Morgunblaðið - 17.08.1978, Page 24

Morgunblaðið - 17.08.1978, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978 Ingimar Kr. Magn- ússon húsasmíða- meistari — Minning Þann 8. ágúst s.l. andaðist á sjúkrahúsi Akraness Ingimar Kristján Magnússon húsasmíða- meistari. Hann var fæddur að Eyri í Mjóafirði í Norður-ísafjarðarsýslu 20. sept. 1891. Foreldrar hans voru hjónin Steinunn Magnúsdóttir og Magnús Brynjólfsson. Þau hjónin eignuðust 2 syni, Ingimar og Steinþór, sem var yngri. Steinþór var mikill efnismaður, en lést á besta áldri og var hann bróður sínum mikill harmdauði. Ingimar missti móður sína þegar hann var barn að aldri og fór hann því að mestu á mis við móðurlega umhyggju. Eftir lát hennar ólst hann upp á vegum föður síns og áttu þeir ^þá heimili að Arnardal í Norður-Isafjarðar- sýslu. Ingimar fór svo fljótt sem kraftar leyfðu í vist til vanda- lausra til að vinna fyrir sér, eins og þá var títt. Munu þau ævikjör oft hafa verið honum þungbær, því hann var að eðlisfari tilfinninga- næmur og viðkvæmur í lund. Á uppvaxtarárum sínum, vandist Ingimar allri algengri vinnu, bæði bústörfum og sjóróðrum, eins og þeir voru stundaðir við Isafjarðar- djúp upp úr aldamótum. Hann var góður liðsmaður að hverju sem hann gekk. Hugðaref^ii hans voru þó einkum hverskonar smíðar, því að allt slíkt lék í höndum hans. Hvert tækifæri, sem gafst not- aði hann til að smíða ýmsa hluti og þóttu þeir bera vott um meðfæddan hagleik. Svo var það árið 1912 að Ingimar fór til Reykjavíkur og gerðist nemandi í húsasmíði hjá Geir Pálssyni byggingarmeistara og vann hjá honum sem nemi í 3 ár og síðan í nokkur ár að námi loknu. Síðustu 2 árin sem Ingimar átti heimili í Reykjavík vann hann sjálfstætt við húsabyggingar. Hinn 26. des. 1916 kvæntist Ingimar eftirlifandi eiginkonu sinni Bóthildi Jónsdóttijr. Hún er ættuð úr Borgarfirði, fædd 24. ágúst 1892. Fullyrða má að þá hafi Ingimar stigið sitt mesta gæfu- spor, því að Bóthildur er góð og vel gerð kona og hefur hún verið manni sínum frábær lífsförunaut- ur í nærri 62 ára sambúð. Þau hjónin Ingimar og Bóthild- ur hófu sinn búskap í Reykjavík á erfiðum tíma og þurfti fólk þá að leggja hart að sér til að sjá sér og sínum farborða. En þau voru samhent, hert í skóla lífsins létu þröngan efnahag ekki buga sig, og voru því bjartsýn og hamingju- söm. Sumarið 1922 fluttust þau hjón- in búferlum til Akraness með 4 börn sín, það yngsta á 1. ári. Árið 1925 fluttust þau hjónin fyrst í eigið húsnæði. Það ár lauk Ingimar við að byggja stórt hús, sem hann skírði Arnardal. Þetta hús var heimili fjölskyld- unnar á 2. áratug og við það var hún kennd uppfrá því. Arnardalur síðan Kirkjubraut 48 var síðan í mörg ár, til ársins 1978, dvalarstaður aldraðra á Akranesi. Á heimili þeirra hjóna ríkti góður andi. Þau voru gestrisin og skemmtileg heim að sækja, var þar mannmargt og gestakoma mikil. Ingimar var heimiliskær, bar mikla umhyggju fyrir eiginkonu, börnum og öðrum vandamönnum, enda mjög velviljaður og trygg- lyndur. Fengu margir, sem honum kynntust, að njóta góðvilja hans og margskonar fyrirgreiðslu. Á Akranesi gerðist Ingimar umsvifamikill byggingarmeistari. Hann teiknaði og byggði hér mörg hús, var eftirsóttur og viðurkennd- ur afbragðs smiður. Hann hafði næmt fegurðarskyn og bera verk hans þess glöggan vott. Þó að aðalstarf Ingimars væru húsbygg- ingar, smíðaði hann jafnframt húsgögn og aðra muni þegar tími vannst til. Á öHum smíðisgripum hans er fallegt handbragð. Ingi- mar var mikill afkastamaður við verk, úrræðagóður og hugkvæmur, svo aö segja mátti að allt léki í höndum hans. Glaður var hann og ánægður þegar hann fjékkst við að leysa vandasöm verkefni. Hann virtist alltaf fljótur að koma auga á bestu úrræðin. Ingimar tók marga nema í húsasmíði og var ég sem þessar línur rita einn þeirra. Hann var nemum sínum um- hyggjusamur og góður kennari. Var hann fremur félagi þeirra en yfirboðari og þótti þeim öllum vænt um hann og virtu hann mikils. Þau hjónin Ingimar og Bóthild- ur eignuðust 7 börn, sem talin eru í aldursröð og eru 5 þeirra á lífi. Steinunn fædd 1917 var búsett á Akranesi, dáin 1962; Lilja, fædd 1919, búsett á Akranesi; Magnús, húsasmiður, fæddur 1920, til heimilis að Miðhúsum í Innri-Akraneshreppi; Bergdís, fædd 1922, búsett í Kópavogi; Guðjón Sigurgeir, fæddur 1923, dáinn 1925; Steinþór Bjarni, bóndi og bifvélavirki, fæddur 1925, búsettur að Miðhúsum í Innri -Akraneshreppi; Guðjón Sigurgeir húsasmíðameistari, búsettur í Borgarnesi. Barnabörnin eru orðin 28 og barnabarnabörnin 35. Þegar kraftar Ingimars og Bóthildar tóku að þverra og aldur færðist yfir, fóru þau til Lilju dóttur sinnar og manns hennar Árna Ingimundarsonar sem önn- uðust þau og veittu þeim alla umhyggju, svo sem best varð á kosið. Sem einn af vandamönnum gömlu hjónanna vil ég færa þeim Árna og Lilju mínar bestu þakkir fyrir þá umönnun og aðhlynningu sem þau veittu þeim þegar þau þurftu þess mest með. Árið 1977 fóru Ingimar og Bóthildur að eigin ósk á elliheimil- ið Arnardal. Húsið sem þau byggðu og bjuggu í á blómaskeiði ævinnar, var aftur orðinn dvalar- staður þeirra. I febrúar á þessu ári fluttust þau á Dvalarheimilið Höfða hér í bæ, glæsilegt nýtt elliheimili, sem þá var byrjað að starfrækja, svo sem kunnugt er. Þá var Ingimar farinn að heilsu og kröftum. Síðustu 2 vikurnar var hann á sjúkrahúsi Akraness og andaðist þar svo sem fyrr er getið hinn 8. þ.m., tæplega 87 ára að aldri. Ingimar var hár maður vexti, fríður sínum, mikið snyrtimenni og prúður í allri framgöngu. Hann var dulur að eðlisfari, en glaður í góðra vina hópi. Hann var í reynd mjög félagslyndur, en meðfædd hlédrægni hélt aftur af honum á þeim vettvangi. Árið 1931 stofnuðu iðnaðarmenn hér á Akranesi með sér fagfélag sem var skírt Iðnaðarmannafélag Akraness. Það starfaði til ársins 1967 en þá var það lagt niður. Ingimar var kosinn fyrsti formað- ur félagsins og kom það í hans hlut að stýra því fyrstu árin. Hann lét sér alla tíð mjög annt um þennan félagsskap og var boðinn og búinn til að vinna honum allt það gagn sem hann mátti. Þegar Ingimar varð sextugur árið 1951 var hann kosinn heiðurs- félagi Iðnaðarmannafélags Akra- ness. Ingimar var gæfumaður í eipka- lífi, átti góða konu og mannvænleg börn, sem öll elskuðu hann og virtu. Með Ingimari Magnússyni er til moldar hniginn heilsteyptur og vandaður maður, sem var grand- var í allri breytni svo að ekki varð á betra kosið. Honum fylgja yfir móðuna miklu' kærar kveðjur og þakkir margra vina og vanda- manna. Bóthildi Jónsdóttur tengdamóð- ur minni vil ég votta samúð mína með þakklæti og virðingu fyrir allt gott á liðnum árum. Ég óska þess að ókomnir ævidagar verði henni sem léttbærastir. Halldór Jörgensson. Að morgni þess 8. ágúst barst mér sú fregn að mágur minn Ingimar Kr. Magnússon hefði andast þá um nóttina. Mér kom fregnin ekki á óvart því fyrir stuttu heimsótti ég hann á sjúkra- hús Akraness og þóttist ég sjá að hverju stefndi þar sem aldurinn var orðinn hár og heilsan fyrir löngu farin að bila. Þó að andláts- fregn vinar komi ekki á óvart þá finnur maður til trega á slíkri stundu. Minningarnar leita á hugann hver af annarri, allt frá fyrstu kynnum að endadægri þess liðna og verða því ásæknari sem kynnin hafa verið lengri og nánari. Vorið 1915 fluttust foreldrar mínir til Reykjavíkur með yngstu börnin þrjú. Bóthildur systir mín ' var komin þangað á undan okkur og var þá þegar heitbundin Ingimar Kristjáni Magnússyni. Þá lágu leiðir okkar fyrst saman og tengdust þá þau vináttubönd sem aldrei síðan slitnuðu, þótt við hefðum ekki átt náttstað undir sama þaki hin síðari ár. Þar sem leiðir okkar skilja nú um sinn langar mig að rifja upp örfáar minningar í kveðjuskyni. Ingimar Kristján Magnússon var fæddur að Eyri í Mjóafirði við Isafjarðardjúp hinn 20. september 1891. Foreldrar hans voru hjónin Steinunn Magnúsdóttir og Magnús Brynjólfsson. Ekki naut Ingimar móður sinnar lengi því um hálfu öðru ári síðar ól hún annan dreng en dó af afleiðingum þess. Drengurinn lifði og var skírður Steinþór Bjarni. Hann var sendur í fjarlæga sveit til uppfósturs og sáust þeir bræður ekki fyrr en báðir voru komnir til Reykjavíkur, þá fulltíða menn. Með þeim tókst þá náin og traust vinátta sem hélst meðan báðir lifðu. Steinþór var eins og bróðir hans sérlega vel verki farinn og eftirsóttur í iðn sinni, sem var vélvirkjun. En hans naut ekki lengi við, því á miðju ári 1925 andaðist hann mjög sviplega. Bróðurmissirinn laust Ingimar djúpu sári sem seint greri í hans viðkvæmu sál. Eftir að Ingimar missti móður sína fylgdi hann föður sínum að mestu leyti og áttu þeir heimili í Arnardal við Isafjarðardjúp. Það- an átti hann margar góðar minn- ingar sem entust honum ævina alla, einkum um þá, sem sýndu móðurlausa drengnum umhyggju og hlýju. Á ellefta og tólfta aldursári dvaldist hann á Svanshóli í Bjarnarfirði á Ströndum. Á sumr- in sat hann kvíaær en að vetrinum vann hann ýmis önnur bústörf. Minntist hann oft veru sinnar þar með hlýhug og þakklæti, því þar var honum tekið sem einum af fjölskyldunni en ekki sem töku- barni. Þetta kunni Ingimar vel að meta og yljaði honum fram á elliár. Til fermingarundirbúnings dvaldi hann í Hnífsdál einn vetur. Það var öll hans skólaganga. Fyrstu árin eftir það stundaði hann sjó öðrum þræði og vann hjá bændum í heimasveit sinni. En hugurinn hneigðist snemma til smíða, því hagleik hafði hann hlotið í vöggugjöf. Haustið 1911 fór hann til járnsmiðs á ísafirði og vann hjá honum til vors 1912. Ekki varð þó úr frekara námi í þeirri grein. Á því ári fer hann til Reykjavíkur og hyggst freista gæfunnar. Fljótlega ræðst hann í trésmíðanám hjá Geir Pálssyni, sem þá hafði talsverð umsvif í byggingariðnaði. Eftir sinn náms- tíma vann hann hjá Geir að mestu til ársins 1920 en eftir það vann hann sjálfstætt. Árið 1916 kvæntist Ingimar heitkonu sinni Bóthildi Jónsdóttur systur minni og hófu þau þá búskap sinn. Næstu árin áttu foreldrar mínir og þau heimili undir sama þaki og mátti segja að það væri eitt og sama heimilið. Árið 1920 hóf ég, sem þessar línur skrifa, trésmíðanám hjá Ingimar, þá 14 ára gamall og fór þá alveg í þeirra heimili eins og þá tíðkaðist með lærisveina. Árin 1921 og 22 voru atvinnu- leysisár og erfitt að framfleyta heimili af reytingssamri vinnu. En Ingimar var orðinn þekktur sem vandvirkur og duglegur smiður; því var það að honum bauðst að gera fokheld tvö hús á Akranesi. Það var vorið 1922 að við hófum þetta starf, en veran varð lengri en til var ætlast á fyrstu, því að við settumst þar að. Það er margs að minnast frá þessum árum sem við höfum átt samleið hér í þessu byggðarlagi. Ingimar varð fljót- lega eftirsóttur smiður og byggði hér hvert húsið á fætur öðru og má með sanni segja að hann hafi sett svip á bæinn á fáum árum. Flestöll húsin, sem hann byggði, teiknaði hann sjálfur og reyndar fleiri. í teikningum hans fór saman glöggt auga listamannsins fyrir fegurð, hagkvæmni í innréttingu og síðast en ekki síst góðar til að vinna eftir. Hann fylgdist vel með nýjungum í byggingariðnaði og var fljótur að grípa það sem honum fannst betur mega fara. Ingimar var hagsýnn með efnivið og brýndi það oft fyrir okkur sem unnum undir hans stjórn að bruðla ekki með hann, slíkt væri ljótur siður. Hann gekk heill og óskiptur að hverju verki sem hann vann og vildi að aðrir gerðu það líka. Ég man að hann sagði eitt sinn: Menn eiga að vinna þegar þeir eru að vinna og skemmta sér þegar þeir eru að skemmta sér. Á árunum 1924 —25 byggði Ingimar sitt eigið íbúðarhús og skírði það Arnardal. Það þótti nokkur stórhugur að byggja svo stórt hús í þá daga 13x15 álnir, ein hæð port og ris. Nokkur hluti var notaður fyrir smíðaverkstæði. Á loftinu fékk ég íbúð þegar ég hóf minn búskap. Þær eru margar minningarnar sem leita á hugann frá þessum árum og allar góðar. Gott var að vera undir handar- jaðri þeirra hjóna á frumbýlings- árum, því að bæði voru hjálpfús og ráðagóð og vildu hvers manns götu greiða. Mér hefur alltaf fundist ég vera hálf uppalinn hjá þeim hjónum. Síðan byrjuðu börnin okkar að alast upp saman, svo að þetta varð eins og stór systkinahópur. Oft höfum við í minni fjölskyldu minnst þeirra daga með hlýjum hug. Á heimilinu ríkti glaðværð og góður andi og margt var sér til gamans gert þegar tóm gafst til. Ingimar hafði sérstakan hug á að bæta alla starfshætti í smáu sem stóru, og hafði mikla löngun til að eignast trésmíðavélar en efnin leyfðu það ekki. Þá leggur hann í það að smíða bandsög að mestu leyti úr tré og síðan fékk hann bifvél til að drífa hana. Þessi vél var lengi notuð. Á þessum árum kom hann sér upp fræsara að miklu leyti heimatilbúnum; veit ég ekki annað en hann sé til enn í fullu gildi, að einhverju endur- bættur. Árið 1936 selur Ingimar Arnardal og kaupir Sólbakka og þar eru þau til 1943 að hann kaupir Miðhús í Innri-Akranes- hreppi. Um 17 ára skeið voru þau í Miðhúsum með smá búskap en jafnframt stundaði Ingimar smíð- ar. Um 1960 flytjast þau aftur hingað í bæinn að Sandabraut 15. Þar kom hann sér upp góðu smíðaverkstæði með ágætum vél- um, sem hann var lengi búinn að þrá að eignast og þar smíðaði hann margt góðra muna, húsgögn og fleira, sem engin leið er upp að telja, því að enn var höndin hög sem fyrr og vinnufús. Þegar heilsan fór að bila og þrekið að dvína fluttust þau til Lilju dóttur sinnar og tengdasonar Árna Ingimundarsonar. Þar nutu þau góðrar umhyggju þeirra á heimilinu um ára bil, þar var gott að eiga skjól í hárri elli, því að allt var í kærleika gjört. Það átti ekki við þau Bóthildi og Ingimar að íþyngja öðrum um of, því óskuðu þau eftir að flytjast í sitt gamla hús Arnardal, en þar var búið að starfrækja élliheimili í nær 40 ár. Að dvalarheimilinu Höfða fluttust þau svo þegar það tók til starfa í febrúar síðastliðn- um. Var Ingimar þá mjög farinn að heilsu og kröftum. í júlí síðastliðnum fór hann á sjúkrahús Akraness og andaðist þar 8. ágúst sem fyrr segir. Með Ingimar er genginn einn af þeim mönnum sem setti svip á þetta byggðarlag. Hann unni fósturjörð sinni af alhug og vildi stuðla að heill hennar í hvívetna. Eins og áður hefur komið fram hafði hann óvenju næmt fegurðar- skyn og hygg ég að merki þess muni lengi sjást í þessum bæ, bæði utan húss og innan. Hamingju- mann tel ég Ingimar hafa verið í lífinu þrátt fyrir þung áföll sem hann varð fyrir. Hann stundaði þá vinnu lengst af sem hugur hans stóð til, fylgdist með og tók þátt í mestu framförum sem afa orðið með þjóð vorri frá landnámstíð. Hann átti góðar lífsförunaut og gott heimili þar sem góðvild og kærleikur ríkti. Hann átti miklu barnaláni að fagna enda þótt hann yrði fyrir þeirri þungu raun að fylgja tveimur þeirra til grafar. Ég vil svo að endingu þakka mági mínum þessa löngu samfylgd og alla hans umhyggju og velvild við mig og mitt fólk, ekki síst við föður minn sem dvaldi á heimili hans í nær 20 ár og endaði þar lífdaga sína farinn að kröftum. Mig brestur orð til að þakka mínum kæra vini sem vert væri en við hjónin biðjum Guð að blessa heimkomu hans til fyrirheitna landsins. Bóthildi systur minni vottum við okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að blessa hana og gefa henni fagurt ævikvöld. Börnum þeirra hjóna og aðstandendum öllum vottum við okkar innilegustu samúð. Sigurður Jónsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagsbiaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. t Systir okkar og mágkona, SIGRÍÐUR ÞORGILSDÓTTIR, Stórholti 31, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 18. ágúst kl. 1.30. Blóm vinsamlega afbeðin. Þeir sem vildu minnast hennar láti Landakots- spítala njóta þess. Þorgerður Þorgilsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Pill Þorgilsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.