Morgunblaðið - 20.08.1978, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. AGÚST 1978
Allt til skólans
Þú þarft ekki aó leita víóar
EYMUNDSSON
Austurstræti 18 Sími 13135
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
I>1 AK.LVSIK l M AI.LT l \\I) I>K(iAR
M AK.KYSIR I MORíil NRLADIM
Dagur Brynjúlfs-
son - Minningarorð
Fæddur 12. apríl 1934
Dáinn 14. ágúst 1978
Hann heimsótti okkur seinast
fyrir u.þ.b. þrem vikum, kátur og
hress að vanda og hafði frá mörgu
að segja. Enda varð okkur skraf-
drjúgt og þegar ég fylgdi honum
til dyra var tekið að birta af degi.
Ekki grunaði okkur þá að endalok-
in væru svo skammt undan, þótt
við fyndum að vissuiega væri mjög
tekið að halla undan fæti.
Það er alltaf erfitt að sjá á bak
vinum sínum, ekki sízt, þegar um
er að ræða mann, sem svo mikið
hafði að gefa. Frá því að ég var
smá krakkaangi hefur Dagur verið
einn af mínum beztu vinum. Hann
var maður sem hægt var að ræða
við um hvað sem var.
Hann hafði alltaf frá einhverju
skemmtilegu að segja, en hann var
líka tilbúinn að hlusta á raunatöl-
ur vina sinna og var hollur í ráðum
og átti ríka samúð með þeim er
bágt áttu. Þess vegna held ég, að
svo margir unglingar hafi hænzt
að honum. Hann skildi þá svo vel.
Dagur Brynjúlfsson var fæddur
í Reykjavík, sonur Brynjúlfs
Dagssonar læknis og konu hans
Sigríðar Pétursdóttur.
Hann sagði mér einhverju sinni,
að við fæðingu sína hefðu aðstand-
endur og viðstaddir allir orðið
mjög felmtri slegnir, útlimir hans
voru allir snúnir og sagðist hann
allur hafa verið hinn ógæfulegasti
útlits. Ekki bætti svo um að
viðstaddir læknar töldu líklegt að
hann væri bæði spastiskur og með
vatnshöfuð. Þá kom þar að lang-
amma hans háöldruð og leit á
fyrirbærið í vöggunni op sagði
síðan eitthvað á þá leið; að það
ætti nú eftir að verða maður úr
honum þessum. Reyndist gamla
konan þar sannspá.
Fyrstu ár ævi sinnar átti Dagur
heima á Breiðumýri í Þingeyjar-
sýslu, síðan bjó fjölskyldan um
tíma í Búðardal, en þegar hann var
um tíu ára gamall fluttust þau til
Hvammstanga.
Þegar þar var komið var búið að
gera aðgerðir á fótum Dags og með
því að ganga á styrktarskóm tókst
honum að bera sig um. Hann varð
fljótt vinsæll meðal krakkanna á
staðnum og tók óspart þátt í
leikjum þeirra og uppátækjum. I
staðinn voru þau honum hjálpleg
ef hann þurfti á að halda og drógu
hann á sleða í skólann, þegar færi
var þungt.
Á Hvammstanga átti hann sín
bernsku- og leikjaár, þess vegna
talaði hann alltaf um Húnavatns-
sýslu, sem „Heima" og það var
eiginlega ekki annað „Heima" fyrr
en eftir að hann kom í Hátúnið.
Með Degi ólust upp tvær alsyst-
ur hans, þær Þórlaug og Sigríður.
Milli þeirra systkinanna hefur
alltaf verið náið og gott samband
og einnig við hálfsystur þeirra,
Huldu Brynjúlfsdóttur. Þau systk-
inin stóðu saman, þegar á móti
blés og studdu hvert annað.
Foreldrar Dags misstu eitthvað
af börnum, auk þess áttu þau tvær
dætur vanheilar, sem dvöldu lengi
á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og
létust þar fyrir all-löngu.
Sigríður móðir Dags átti lengi
við þungbær og erfið veikindi að
stríða, kom það mjög niður á
fjölskyldu hennar og varð Bryn-
júlfur oft að annast um heimilið
og hjúkra konu sinni auk læknis-
starfanna. Og er veikindi Sigriðar
ágerðust og engin von var gefin
um bata fór hún til Reykjavíkur á
sjúkrahús, þar sem hún dvaldi um
árabil. Hún er látin fyrir mörgum
árum.
En þrátt fyrir alla erfiðleika og
veikindi taldi Dagur sig alltáf hafa
átt góða æsku. Hann dáði föður
sinn mikið og þakkaði honum að
hafa komið sér til manns.
Eitt sumarið, sem Dagur átti
heima á Hvammstanga, var hon-
um komið til skammrar dvalar að
Illugastöðum á Vatnsnesi, síðan
stóðu honum ætíð opnar dyr þar
og reyndar á hverjum bæ í
Vatnsnesinu öllu og Vesturhópinu
með. Hann dvaldi eftir þetta á
Illugastöðum um lengri og
skemmri tíma. Einhver sumur var
hann „símadama“ eða talsíma-
vörður eins og það heitir núna og
' svo hefur hann bara verið eins og
einn af fjölskyldunni síðan. Hann
hefur verið með okkur á tímum
gleði og sorgar og okkur fannst við
eiga hann, þess vegna er erfitt að
sætta sig við það að hann er ekki
lengur í kallfæri, það er eitt og
annað, sem við þyrftum að spyrja
hann um og við hefðum líka alveg
þegið að heyra nokkrar raddir og
að rifja upp eitthvað af skemmti-
legum sögum.
Þegar Dagur var rúmlega tví-
tugur varð faðir hans héraðslækn-
ir í Kópavogi og fluttu börn hans
með honum suður. Brynjúlfur
' kvæntist öðru sinni og reyndist
Ingibjörg kona hans stjúpbörnum
sínum ákaflega vel og mátu þau
hana mikils. Því miður naut
hennar alltof stutt við. Brynjúlfur
varð bráðkvaddur á ferðalagi og
um sama leyti fékk Ingibjörg
heilablóðfall og lá lengi lömuð og
Allur búnaöur fyrir lokuö sjónvarpskerfi
í fyrirtæki og verslanir.
Verö ótrúlega hagstætt.
Sjónvarpsvélar frá kr.115.000.-
Upplýsingar hjá tæknimönnum okkar.
heimilistæki sf
TÆKNIDEILD — SIMI: 24000
I