Morgunblaðið - 20.08.1978, Blaðsíða 28
u<;lysin<;asíminn er:
22480
Btargtmtolafcft
\ l (; 1,YSIN(;ASíMíNN ER:
22480
JW»T0\infeIaí)ií>
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1978
Stórslys í Krossá
-þrennt drukknaði
Tvær rútur í hættu í ánni
ÞRENNT drukknaði í Krossá í fyrrinótt, en tvennt komst af,
er Bronco-jeppa hvolfdi í Krossá. t»au sem drukknuðu voru 22
ára gamali Islendingur, 23 ára bandarískur hermaður frá
Keflavikurflugvelli og sænsk stúlka. Þau sem komust af voru
sænsk stúlka og Bandaríkjamaður. Fólkið var á leið inn f
Langadal í Þórsmörk þegar jeppinn valt í Krossá, austur af
skála Ferðafélags íslands.
Það var um kl. 3 í fyrrinótt, sem
Gufunesradíó hafði samband við
lögregluna á Hvolsvelli og bað
hana að halda í Þórsmörk ásamt
hjálparliði, en þá hafði skálavörð-
ur þar haft samband við Gufunes
vegna slyssins.
Sveinn Ingólfsson lögregluvarð-
stjóri á Hvolsvelli sagði, þegar
Mbl. ræddi við hann í gær, að
skáiavörðurinn hefði gengið út
fyrir skálann þegar fólk var að
ganga til náða. Sá hann þá hvar
stúlka kom gangandi upp Krossár-
aura og hljóp hann á móti henni.
Sagði hún honum að jeppinn hefði
oltið í ánni og samferðafólk sitt
væri enn í jeppanum. Fólk sem var
í Skagfjörðskáia fór strax niður að
slysstaðnum til hjálpar. Þegar það
kom að ánni, var jeppinn á hvolfi
í ánni og stóðu hjólin upp. Annar
Bandaríkjamannanna stóð þá uppi
á jeppanum og var hægt að henda
kaðji til hans og draga hann í land.
Hin þrjú fundust hvergi.
Það kom í ljós eftir á, að sænska
stúlkan hafði sparkað afturhlera
jeppans upp og komizt þannig út
en Bandaríkjamaðurinn gerði sér
ekki grein fyrir hvernig hann
komst út úr jeppanum.
Sveinn Ingólfsson sagði að þegar
hann og Guðjón Einarsson lög-
reglumaður hefðu komizt á stað-
inn hefði fólk verið að leita niður
með allri á að hinu fólkinu. Þeirra
fyrsta verk var, að Guðjón óð út
að jeppanum og kom taugum fyrir
í honum. Var þá hægt að rétta
jeppann við og er hann réttist, fór
toppurinn af honum og lík hinna
þriggja komu í ljós. Síðan var farið
með líkin og þau tvö sem komust
af til Reykjavíkur.
Þegar slysið varð, var tiltölulega
mikið vatn í Krossá vegna úrkomu
síðasta sólarhring. Tvær rútur,
sem voru í Þórsmörk, fóru strax til
aðstoðar. Önnur rútan var frá
Vestfjarðaleið, 50 manna, festist
hún í ánni og fór fljótlega svo til
á hliðina, þannig að sæti flutu út
úr henni. Eftir hádegi í gær hafði
ekki tekizt að ná henni upp, né
minni rútu sem einnig festist í
ánni, en var ekki talin í eins
mikilli hættu.
Frá Krossá
Lúðvík vill skýrar
línur eftir helgina
„ÉG LAGÐI á það áherzlu að
þessu yrði hraðað þannig að til
úrslita geti dregið upp úr helg-
inni. Ég vil ekki draga þessar
viðræður fram yfir miðja næstu
Ferskt dilkakjöt
selt til Parísar
og Danmerkur!
í BYRJUN sláturtíðar í haust er
áformað að gera tilraunir með
flutning á fersku og ófrosnu
dilkakjöti með flugvélum bæði til
Kaupmannahafnar og Parísar.
Að sögn Sveins Tryggvasonar
íramkvæmdastjóra Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins hafa athug-
a'iir á vegum Markaðsnefndar
Iíí idbúnaðarins sýnt að fá má
h rra verð fyrir dilkakjötið sé
þ d flutt út ferskt og nefndi hann
sem da-mi að við flutning á frosnu
kjiiti til Danmerkur hefði hæst
fengist um 9 krónur danskar
fyrir kílóið en gert væri ráð fyrir
að minnsta kosti 11,50 kr. dansk-
ar fengjust fyrir kflóið af fersku
kjöti þar. Fyrir liggja tilboð um
að 13.40 frankar íáist fyrir hvert
kfló af fersku kjöti komið til
Parísar og er það mun hagstæð-
ara verð en fengist hefur fyrir
kjöt héðan annars staðar.
Sveinn sagði að nú væri einkum
verið að kanna hvort flugvélar
fengjust til þessara flutninga og
hver kostnaðurinn við þá yrði.
Gert væri ráð fyrir að allt að 12
til 14 tonn kæmust í eina flugvél
sinnti hún ekki öðrum flutningum,
en eftir væri þó að sjá hvernig
tækist að hlaða kjötinu í vélarnar,
því það verður í fyrstu flutt út í
heilum skrokkum. Þá er einnig í
athugun að flytja kjötið t minni
förmum með farþegavélum.
í samtalinu við Svein kom fram
að fyrir lægi beiðni frá danska
fyrirtækinu IRMA, sem er stór
verslunarsamsteypa í Danmörku,
um að fá ferskt kjöt héðan í haust
en ekki væri neitt ákveðið hvað
það yrði mikið. Varðandi markað-
inn í París sagði Sveinn að þeir
hefðu ekki enn fengið endanlegt
svar en hann teldi yfirgnæfandi
líkur á því að þangað yrði einnig
fluttur að minnsta kosti einn
flugvélarfarmur í tilraunaskyni.
Undanfarin ár hefur allt kjöt
héðan verið flutt fryst, en fyrir
nokkrum árum var gerð tilraun
með flutning á fersku kjöti til
Berlínar og Bandaríkjanna en ekki
varð framhald á þeim útflutningi.
viku nema mjög miklar likur séu
til þess að árangur náist“, sagði
Lúðvík Jóscpsson er Mbl. ræddi
við hann eftir fyrsta fund Alþýðu-
bandalags. Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks um stjórnar-
myndun í gær. Lúðvík sagði að
hann gæti ekki neitað þvi' að
þessar vinstri viðræður „færu
liprar af stað“ en þær fyrri.
„Þessi fyrsti fundur gckk eðlilega
fyrir sig og það fór vel á með
mönnum", sagði Lúðvík. „Viðræð-
ur báru þess merki að aðrar hafa
farið fram áður og að hér er um
nokkurs konar framhald að
ræða”.
„Þessi fundur var út af fyrir sig
jákvæður. Menn skiptust á skoð-
unum og við erum sammála um að
skoða málin með opnum huga“,
sagði Ólafur Jóhannesson formað-
ur Framsóknarflokksins er Mbl.
ræddi við hann eftir fundinn.
Ólafur sagði að hjá hinum flokk-
unum hefði komið fram greinilega
breytt viðhorf varöandi efnahags-
málin frá fyrri viðræðum en sagði
ómögulegt að segja um það á þessu
stigi hvort sú breyting dygði til
árangurs.
Akveðið var að sérstakar undir-
nefndir vinni í efnahagsmálunum
um helgina og munu þeir Ragnar
Arnalds og Svavar Gestsson fjalla
þar um mál af hálfu Alþýðubanda-
lagsins, Kjartan Jóhannsson og
Karl Steinar Guðnason af hálfu
Alþýðuflokks og Steingrímur Her-
mannsson, Tómas Árnason og Jón
Helgason til skiptis af hálfu
Framsóknarflokksins. Formenn
flokkanna munu einnig ræðast við,
en næsti fundur viðræðunefnda
flokkanna verður klukkan 14 á
mánudag.
Þessi fyrsti viðræðufundur í
annarri umferð vinstri viðræðna
hófst klukkan 10 og stóð til hálf
eitt en fulltrúar Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks ræddu einir
saman í um hálftíma eftir að
framsóknarmennirnir fóru.
Mbl. spurði Lúðvík Jósepsson
um fund miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins í fyrrakvöld. Lúðvík
sagði að þar hefði engin samþykkt
verið gerð heldur hefðu málin
verið rædd fram og aftur og leitað
eftir skoðunum manna. „Það er
augljóst að okkar flokkur er mjög
samstilltur um það að reyna að
mynda ríkisstjórn með það tak-
markaða verkefni að leysa höfuð-
vandann sem eru efnahagsmálin",
sagði Lúðvík. „Og það kom jafn-
sterklega fram að menn telja að
gerðir launasamningar eigi að
standa“.
Fyrsti fundur vinstri viðræðna undir forystu Lúðvíks Jósepssonar.
F.v.i Steingrímur Hermannsson, Ólafur Jóhanncsson. Ragnar
Arnalds, Lúðvík, Benedikt Gröndal og Kjartan Jóhannsson.
Ljósm. Mbl.i Ól. K.M.
Síðasti dagur
Landbúnaðar-
sýningarinnar
SÍÐASTI dagur Landbúnaðar-
sýningarinnar á Selfossi er í
dag, sunnudag, en forráða-
menn sýningarinnar hafa
ákveðið að framlengja hana
ekki og verður sýningarsvæðið
opið frá kl. 10 til 23 í dag.
Mishermt var í frétt blaðsins
gær að gestir á sýningunni
væru orðnir 60 þúsund en hið
rétta er að um hádegi í gær
voru þeir orðnir um 50 þúsund.
Stöðugur straumur fólks var
inn á sýningarsvæðið laust upp
úr hádeginu í gær er blaðið
ræddi við Sigurð Jónsson
blaðafulltrúa sýningarinnar.
Meðal atriða á dagskrá sýn-
ingarinnar þennan síðasta sýn-
ingardag er að kl. 13 verða
sýndir nautgripir, tískusýning-
ar verða kl. 18 og 21 en kí. 20.45
syngur Margrét Sighvatsdóttir
einsöng. Þá flýgur land-
græðsluvélin Páll Sveinsson
ýfir svæðið kl. 15.30 í dag og
dreifir happamiðum yfir það.