Morgunblaðið - 03.09.1978, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
Komið við á Núpskötlu á Sléttu
Snæuglan er einn af
gestunum á Kötlu. Á hverju
ári tefur hún nokkra daga
og situr eins og hvítt strik á
klettunum inni í hrauni.
Hún er vorboðinn norður
þar, einn af mörgum.
Núpskatla á Melrakka-
sléttu. Nafnið vekur forvitni
og til að skilja það, verður
að koma á staðinn sjálfan og
verða fyrir áhrifum af þeirri
sérstöku stemmningu, sem
þar ríkir. Bærinn er einstak-
lega þriíalegur og vel fyrir
öllu séð. Hann stendur við
Núpsvatn, ríkt af feitri
hleikju, sem tekur illa en
veiðist í net. Vatnið er í
jarðfalli breiðu g löngu. Að
norðan er sjávarkambur úr
hnullungs f jörugrjóti, en
endar í klettum, sem endur
fyrir löngu hafa svipzt í
sundur og eru dökkir í sárið.
Sá, sem kann að leita í
þvflíkri urð, finnur steina
frá Grænlandi sem borizt
hafa með hafís. Gísli læknir
mágur minn segir að þeir
séu grænir.
Minkurinn og
Þorgeir Hávarsson
Að vestan er Rauðinúpur og
utan við hann stendur karlinn
Trausti votur upp að mitti og
annar dran>;ur hjá honum,
Sölvarsnöf, sem fram á síðustu ár
var tenjjdur landi með jarðbrú of;
má KlöRtít Rreina sárið. Núpurinn
er iðandi af lífi, en takmörkuð
hlunnindi, fyrir því að sík er
torvelt veKna hruns.
1965 iíBtp enn haftyrðill vestan
undir Núpnum ok líkleKa eitthvað
lenKur, en ekki hin síðustu ár.
Mikið var af teistu í fjörunni en
minkurinn varð hér vargur í véum
ok endurnar á vatninu fenKu að
kenna á honum líka. FlórKoðinn er
horfinn með öllu, en hann hreiðr-
aði um sík í flotdynKjum á
vatninu, Hann var þó alKengari á
Leirhafnarvatni. ÞorKeir Hávars-
son á að hafa sneitt höfuð af
smala, af því hann lá svo vel við
höKKÍ- Eitthvað svipað hefur
minknum fundizt um flot-
d.vnKjurnar.
F’álki hefur orpið í Núpnum ok
jafnaðarleKa í Geflunni.
Skeglan og æðurin
liæjarhúsin á Núpskötlu. Nú er verið að byggja
þar nýtt tvílyít íbúðarhús. Næst á myndinni er
hílaréttingaverkstæðið og trésmíðaverkstæðið
en Ijær gamla íhúðarhúsið.
(ritan), KeldfuRHnn er óvinur
varpsins ok verður að stugga
duKleKa við henni til að æðurin fái
næði. SkeKlunni hefur fjölgað hin
síðustu ár og veldur gróðurspjöll-
um við hreiðurgerðina. Þá sezt
hún í þéttan hnapp til að leita
fanga og skilur ef-tir sig svartan
svörð, þar sem áður var þéttur
gróður.
Fyrstu sjálfs-
eignarbændurnir
A Kötlu búa hjónin Alfhildur
Gunnarsdóttir og Sigurður Har-
aldsson, ásamt sonum sínum
Haraldi og Jóni. Þau eru fyrstu
sjálfseignarbændur á Kötlu; áður
fylgdi jörðin Oddstöðum og á
síðustu áratugum 19. aldar var
algengt að leiguliðar norpuðu þar
tvö ár, hið síðára kýrlausir.
Annars er Katla einkum kunn af
því, að Guðmundur Magnússon
ólst þar upp og tók sér skáldanafn
af dranginum Trausta eða Jóni
Trausta, sem sennilega er yngra.
Þau Alfhildur og Sigurður voru
lengi á Efri-Hólum hjá Friðrik
Sæmundssyni og hefur dóttir
hans, Guðrún Sigríður, sagt mér,
að þau hafi reynzt hið mesta
dugnaðar- og atorkufólk og farsæl
Sigurður húndi ekur skán úr gömlu íjárhúsunum en nú er verið að
hyggja tjárhús tyrir 250 tjár á þessu nyrzta býli á Islandi ef Grímsey
er undanskilin.
Kristbjörg bætir við, að þröstur
hafi búið sér hreiður á vatns-
kassanum á dráttarvélinni, en þau
hafi flutt það í gamla hesthúsið og
þrösturinn unað því hið bezta.
— Hún fylgist vel með og hefur
gaman af því að virða fyrir sér
fuglalífið, segir Sigurður. Ég sýni
henni þúfutittlinga og sjaldgæfa
fugla og við skoðum hreiðrin
þeirra.
Hettumávur verpur
ekki bar
Það vekur eftirtekt, að hettu-
mávur verpur ekki á Kötlu, en á
Grjótnesi að vestan og Oddstöðum
að austan.
— Við höfum farið illa með
hann, segir Sigurður. Hann er
alverstur vargur í kríuvarpi, étur
hvern ungann á fætur öðrum, bara
ef hann nær í hann. Svartbakurinn
er skárri. Það eru til þess að gera
fáir einstaklingar, sem leggjast á
unga annarra fugla, og þess vegna
er auðveldara að halda þeim í
skefjum, ef maður nær að skjóta
þá eða fæla burt. Ég hef engan
svartbak séð taka æðarunga í vor.
Vargur eöa
jurtaæta
Mér, sem þetta skrifa, er líka
meinilla viö hettumáv og hef m.a.
vakið athygli á, að bæjarstjórn
Akureyrar hefur alfriðað
varpstöðvar þeirra í ósum Eyja-
fjarðarár. Segi samt, að ég hafi
fyrir satt eftir vísum mönnum, að
hettumávur sé fyrst og fremst
jurtaæta og síður en svo skaðvald-
ur í kríuvarpi; allt sé það mesti
misskilningur að hettumávur éti
unga, — „slíkt er ósæmileg hug-
mynd fullvita fólki", eins og
Hannes Jónsson póstur komst að
orði af öðru tilefni.
Verstu vargnarnir
eru friðhelgir
Við þessu rausi brosir heimilis-
fólkið góðlátlega, vant því að
heyra aðra segja sér frá iífinu í
náttúrunni upp úr bókum: Við
höfum horft á það hérna út um
eldhúsgluggann, hvað sem þeir
segja, eru hin hógværu orð hús-
freyju við athugasemd minni og
Jón sonur hennar bætir við:
— Það er alltaf þannig, aö
verstu vargarnir eru friðhelgir.
Hettumávurinn á að vera rétt-
dræpur allan ársins hring.
Stelkarnir hafa t.d. orpið hér í
túninu. Þeir voru með unganæ í
brekkunni hér heima við bæinn
um daginn, þegar hettumávurinn
kom og át þá alla. Lóuungarnir eru
töluvert sprettharðir og mikið á
ferli. Hettumávurinn tínir þá upp,
einn af öðrum. Hann kemur á
Reki er góður og æðarvarp á eyri
í vatninu að þéttast með natni og
umhyggju. Það var þó ekkert áður,
en nú í sumar urpu þar 23 kollur.
Þessu olli, að Kötluvatn auðnaðist
seint, af því að það er salt. Skeglan
Þar hefur
og ríkir einstök
fuglinn frið
stemmning
IVið i ivatn. I>au hafa hyggt víggirtan kastala í flæðarmálinu og
dr“giO til etni úr fjörunni. Kastalinn var að sjálfsögðu jafnaður við
jörðu. áður en haldið var hrott. — til þess að menga ekki.
í hvívetna, enda vinsæl og mikils
metin af Éfri-Hólafólki. Það hafi
strax verið auðséð, að þar fór
rakinn búmaður sem Sigurður var:
Hann var hirðusamur og vildi láta
sér verða sem mest úr öllu. Hann
lærði allt það bezta af foreldrum
mínum til að halda búi gangandi.
í skjóli kríunnar
Búskapur á Kötlu hefur verið
erfiður, þrátt fyrir hlunnindi. Þar
er grunnt á grjóti og ræktunar-
skilyrði rýr. Túnbleðlarnir eru
eins og grænar bætur í mónum. En
allt er iðandi af lífi:
— Mér finnst hafa fjölgað fugli
í kringum okkur frekar en hitt,
segir Sigurður bóndi. Þegar jarð-
irnar fara í.eyði í kringum okkur,
gengur tófan yfir allt eins og hún
eigi það og fuglinn flýr þess vegna.
Krían verpur innan girðingar hjá
okkur og Arni Pétursson ráðu-
nautur segir, að hér sé eitt stærsta
kríuvarp á landinu. Þar er grið-
land fyrir varginum fyrir aðra
fugla.
Lífið í mónum
Ég spyr hvaða mófuglar séu á
Kötlu og Sigurður svarar með
hjálp Kristbjargar dóttur sinnar,
10 ára, sem er alltaf með á
nótunum og fullorðinsleg í tali:
Rjúpa, þröstur, lóa, lóuþræll,
sendlingur, stelkur, hrossagaukur,
sólskríkja, steinklappa, sandlóa,
þúfutittlingur, máríuerla, sund-
hani, — það er lítið um hann hér,
— músarindill, sem kemur stund-
um til mín í hlöðuna. Spói verpur
á Oddstöðum; jaðrakan og tildra
koma sem gestir.
Sigurður
Haraldsson