Morgunblaðið - 21.09.1978, Side 3

Morgunblaðið - 21.09.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978 3 „Uppsagnim- ar fráleitar” — segja forystumenn launþegasam- takanna um fyrirætlun Flugleiða Sú tilkynning Flujíleiúa að miða uppsagnir starfsfólks síns við 67 ára aldur hefur vakið víðtæk mótmæli verkalýðsfélaga, en í samtölum við forystumenn verkalýðssamtaka í gær kom fram. að þeim þykir fáránleKt að miða uppsagnir starfsfólks við þennan aldur, bæði vegna þess að lífeyrissjóðir verkafólks greiða ekki fullar bætur fyrr en við 70 ára aldursmarkið og einnig vegna þess að fjölmargt 67 ára gamalt fólk sé með fulla starfsorku og mikla starfsþjálfun sem vegi þá upp á móti fullri starfsorku. Mbl. náði ekki sambandi við yfirmenn starfsmannadeildar Flugleiða vegna þessa máls í gærkvöldi, en hér fara á cftir viðtöl við forystumenn Á fundi Verkalýðsfélagsins í Keflavík í fyrrakvöld voru sam- þykkt mjög ákveðin mótmæli gegn uppsögnum Flugleiða varðandi 67 ára gamla starfsmenn. Karl Steinar Guðnason formaður verkalýðsfélagsins sagði í samtali við Morgunblaðið að málið snerti 3—4 af félagsmönnum þeirra. Alls er um að ræða um 20 manns hjá Flugleiðum. „Við viljum eindregið ræða þetta mál við Flugleiðir til þess að þessi ákvæði verði endurskoðuð," sagði Karl Steinar, „enda eru engin fordæmi um uppsagnir á svo lágum aldri hér á Suðurnesjum. Uppsagnirnar eru miðaðar við 67 ár, en greiðslur úr lífeyrissjóðum hefjast við 70 ára aldur. Ellilíf- eyrir hefst hins vegar við 67 ár og hann er 44.400 krónur á mánuði. Það er næsta nöturlegt fyrir vinnufæra menn að una við slíkar smánargreiðslur. Þeir þrír eða fjórir menn sem þetta varðar hjá okkur hafa unnið lengi hjá Flug- leiðum og þeir eru mjög sárir yfir því að vera ætlað þannig út á kaldan klaka.“ Magnús L. Sveinsson hjá Verzlunarmannafélagi Reykjavík- ur sagðist ganga út frá því sem vísu án þess þó að hafa nákvæma tölu, að þó nokkrir í þessum hópi sem sagt hefur verið upp störfum hjá Flugleiðum væru félagar í VR. „Ég tel þessa afstöðu Flugleiða fráleita. Mín skoðun er sú að það sé raunverulega grundvallaratriði að menn fái að vinna svo lengi sem heilsa þeirra leyfir. Stór hluti af heilsu fólks er að fá að vinna. Og það er af og frá að skera svona á í þremur launþegafélögum. þennan þátt hjá fullfrísku fólki án þess að tryggja því aðra vinnu. Margt fólk sem hefur unnið hjá sama fyrirtækinu í mörg ár á hreinlega ekki um marga mögu- leika að velja þegar árin færast yfir. Ég tel þessar reglur mistök og þær hljóta að hafa verið settar að óhugsuðu máli. Þjóðfélag okkar hefur ekki efni á því að vera án þessa reynda starfsfólks og starfs- fólkið hefur ekki heldur efni á því auk þess að þar er höggvið nærri heilsu þess. Þetta mál verður m.a. tekið fyrir á stjórnarfundi hjá VR í dag.“ „Ég er ákaflega óhress yfir þessum uppsögnum," sagði Bjarni Jakobsson formaður Iðju, félags iðnverkafólks," bæði vegna þess að 67 ára aldurinn nær ekki lífeyris- sjóðsgreiðslu hjá verkalýðssjóðun- um og svo er það fyrir neðan allar hellur að miða við 67 ára aldur, fólk á bezta aldri. Við munum ekki una þessu án þess að láta í okkur heyra og ég tel þetta mikið spor aftur á bak. Þá mun þetta snerta margar stéttir og má nefna auk okkar, Verkalýðsfélagið í Keflavík, Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur og Starfsfólk í veitingahúsum. Mér vitanlega er hvergi hér á landi miðað við uppsagnir 67 ára fólks, ríkið er með 70 ár og einhverntíma var þessi hugmynd reifuð hjá Eimskip, en stjórnendur félagsins breyttu því aftur í samráði við verkalýðsfélögin. Við erum nú að kanna þetta mál og hvað það varðar marga hjá okkur og öðru hvoru megin við helgina munum við halda fund um þetta mál sem ég tel einnig vera mál heildarsam- taka verkafólks." AA-samtökin á Austur- landi færa út kvíamar AA-SAMTÖKIN á Austurlandi eru um þessar mundir að færa út starfsemi sína, en í júní s.l. var fyrsta deildin stofnuð á Egilsstöð- um og hefur starfsemi hennar gengið vel. Menn úr nærliggjandi fjörðum hafa sótt fundi hjá Égilsstaðadeildinni, en starfsem- inni hefur vaxið hratt fiskur um hrygg og nú er í ráði að stofna deildir á öðrum stöðum m.a. vegna þess að þegar vetrarveður ganga í garð er erfitt um vik. fyrir fjarðamenn að sækja fundi til Egisstaða. Til stendur að stofna deild á Seyðisfirði og Fáskrúðs- firði á næstunni og n.k. sunnudag, 24. sept., verður kynningarfundur í þeim tilgangi í gamla barnaskól- anum á Fáskrúðsfirði og hefst hann kl. 15. Slíkur fundur hefur verið haldinn á Seyðisfirði. Þess má geta að starfsemi AA er mjög öflug víða um land, en flestar deildir eru í Reykjavík, alls 22. Menn úr hinum ýmsu landshlutum taka þátt í starfi AA þar sem þeir eru í það og það skiptið og til dæmis hefur nokkuð borið á því að reykvískir AA-menn í vinnu á Austfjörðum hafi sótt fundþEgils- staðadeildarinnar. í MORGUNBLAÐINU í gær birtist mynd af rangri flugvél með frétt blaðsins um möguleg DC10 þotukaup Flugleiða. Hér birtist mynd aí DC-10 breiðþotu. Eldskírn busanna IIEFÐBUNDIN eldskírn bus- anna í Mcnntaskólanum í Reykjavík fór fram í gær. Hinir eldri skólanemendur tóku þá nýliðana og tolleruðu og var þá sem jafnan mikill handagangur í öskjunni. því að busarnir streytast jafnan í móti — en enginn má við margnum og hver businn á fætur öðrum svífur í loft upp. Þessi athöfn er jafnan góð tilbreyting frá námsamstrinu í upphafi skólaárs. Ljósmyndari Morgunblaðs- ins brá sér að Menntaskólanum í Reykjavík í ga*r til þess að festa husavígsluna á filmu. Arangurinn birtist hér og eins og sést, voru ýmsir nemenda málaðir með stríðsmálningu í andliti. En myndirnar tala bezt SÍnu máli. — Ljósm., Kristján. „Suður- og Suðvesturland sett skör lægra en aðrir landshlutar” — segir Stefán Runólfsson um stöðu fiskiðnaðarins MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samhand við Stefán Runólfsson framkva*mdastjóra Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum og innti hann álits á ummælum Kjartans Jóhannssonar sjávarút- vegsráðherra í Mbl. í gær varðandi aðgerðir í vandamálum fiskiðnaðarins. Stefán kvaðst hjartanlega sam- mála Kjartani í því cfni að vandi. Suður- og Suðvesturlands væri sérstæður, því það hefði aldrei komið nógu berlega fram að þetta svæði hefði verið sett skör lægra í atvinnuuppbyggingunni en önnur svæði landsins og það væri rétt hjá Kjartani að það væri mikið átak að rétta hlut þess. Varðandi ummæli Kjartans um að „lykilfyrirtækin" ættu að fá aðstöðu til starfa fyrst um sinn með aðstoð bankanna, kvaðst Stefán telja að ráðamenn hefðu gögn um rekstur allra fisk- verkunarstöðvanna og það hlyti að vera matsatriði fyrir stjórnvöld og REIKNAÐ er með að viðgerðarskip til þess að gera við Scotiee verði komið á staðinn, 4 mílur suður af Færeyjum, þar sem strengurinn slitnaði í fyrradag. Ekki er vitað af hvaða ástæðum strengurinn slitn- bankayfirvöldhverjir fái að lifa og hverjir ekki. Stefán kvaðst telja að ef það stæðist sem sjávarútvegsráðherra segði, að málin myndu þróast stig af stigi, þá væri það vel, en það eitt væri ljóst að ekkert mætti slaka á í þessum efnum. aði. Á meðan strengurinn er óvirkur er símasamband eftir varaleiðum milli Islands og annarra Evrópu- landa, en 2 aðrir gamlir strengir eru einnig á þessari leið. Líkur eru taldar á að strengurinn komist í lag á morgun. Viðgerðarskip við Scotice í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.