Morgunblaðið - 21.09.1978, Side 21

Morgunblaðið - 21.09.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978 21 Birgir fsl. Gunnarsson: Hinn 9. september s.l. ritaði ég grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni „Reykjavík og hin nýja orkustefna". Þar gerði ég nokkra grein fyrir frumkvæði Reykjavíkur í orkumálum, sam- vinnu borgarinnar og ríkisins að Landsvirkjun og varaði við því, að gengið yrði á hagsmuni Reykvíkinga við framkvæmd þeirrar stefnu, sem vinstri kílsárvirkjun, sem Akranes- kaupstaður og Mýra- og Borgar- fjarðarsýsla eru eigendur að. Skeiðfossvirkjun er í eigu Raf- veitu Siglufjarðar, svo að dæmi séu nefnd. Sannleikurinn er sá, að ríkið hefur aldrei náð neinum tökum á orkumálum nema í samvinnu við sveitarfélög, sem hafa þá sýnt það nauðsynlega aðhald, sem þarf. Ástæðan er ekki til greiðslu á tollum og öðrum opinberum gjöldum. Öll önnur lán þessara fyrirtækja hafa verið tekin á venjulegum lánamörkuðum. Allar fram- kvæmdir og væntanleg arðsemi þeirra hafa þurft að fara í gegnum þau nálaraugu, sem alþjóðlegar lánastofnanir, setja upp, þegar þær meta, hvort einstaka framkvæmdir séu láns- Enn um orkumál ríkisstjórnin hefur boðað í orkumálum. Grein mín varð m.a. tilefni til þess, að Jón Sólnes, alþingis- maður, birti hér í Morgun- blaðinu hinn 12. september s.l. grein, sem hann nefndi „Grýlu- börn — dekurbörn" og var svo að skilja, að við Reykvíkingar værum dekurbörnin í orkumál- um, en þeir norðanmenn grýlu- börnin. Eg verð að viðurkenna að mér l.eiðist að standa opin- berlega í þrefi við Jón Sólnes, sem ég met umfram ýmsa aðra menn, en þar sem í grein hans gætir nokkurs misskilnings og um sumt er ég ósammála honum, þykir mér rétt að setja þessar línur á blað. Fyrirspurn Davíðs Oddssonar Það er misskilningur hjá Jóni Sólnes að Davíð Oddsson hafi á sínum tíma flutt fyrirspurn í borgarstjórn, „utan dagskrár" og henni síðan verið svarað viðstöðulaust á þeim fundi. Þann 1. apríl 1976 bar Davíð Oddsson fram fyrirspurn í borgarstjórn um raforkumál, þar sem m.a. var spurt um hvaða áhrif það gæti haft á raforkuverð í Reykjavík, ef halli Kröfluvirkjunar til viðbótar árvissum halla RARIK dreifðist á orkunotendur á Lands- virkjunarsvæðinu. Þessi fyrir- spurn var send inn með þeim fyrirvara, sem fundarsköp borgarstjórnar segja fyrir um. Fyrirspurnin fylgdi útsendri dagskrá 2 dögum fyrir fund og var síðan svarað, eins og skylt er, á fundinum. Svar mitt byggðist á upplýsingum og mati forsvarsmanna Rafmágnsveitu Reykjavíkur. Þennan misskiln- ing í grein Jóns vil ég leiðrétta, þó að þetta sé smámál og snerti ekki kjarna þess máls, sem um er deilt. Sveitarfélög — ríki Meginágreiningurinn um skipulag orkumála hefur lengi verið um það, hversu stóran hlut eigi að ætla sveitarfélögum í meðferð þeirra niála.' Ég hef ávallt verið þeirrar skoðunar og er enn, að ætla verði sveitar- félögum mikinn þátt í þeim málaflokki. Sveitarfélögin hafa haft merkilegt frumkvæði í raforkumálum og reynslan hef- ur sýnt, að þar sem það frumkvæði hefur fengið að njóta sín, þar hefur orkuöflunin verið hvað tryggust og orkufyrirtækin verið sterkust og best rekin. Ég hef nefnt Reykjavík og nú allt Landsvirkjunarsvæðið sem dæmi um þetta. Fleiri dæmi mætti þó nefna. Laxárvirkjun hefur verið gott fyrirtæki, en þar á Akureyrarbær 65% og ríkið 35%. Ég nefni líka Anda- sú, að Rafmagnsveitur ríkisins hafa þjónað þeim félagslega tilgangi að sjá ýmsum dreifðum byggðum landsins fyrir raf- magni án þess að hinn félagslegi tilgangur í rekstri RARIK væri nokkurn tíma viðurkenndur í raun. Afleiðingin hefur orðið skuldir á skuldir ofan, rekstrar- tap og síðan meiri skuldir. Allsherjar-RARIK? Athygli vekur, hvílíkur regin- munur hefur verið á undir- búningi, fjármögnun og stjórn- Fjármögnun Landsvirkjunar Sá misskilningur kemur oft upp í umræðum um þessi mál að Landsvirkjun og þar með Reykjavíkurborg njóti ein- hverra fríðinda m.a. varðandi fjármagnsútvegun. Ennfremur að Reykjavíkurborg hafi notið „mjög hagkvæms stuðnings þjóðfélagsheildarinnar" í sam- bándi við virkjunarframkvæmd- ir. Að því er Landsvirkjun varðar er bent á svonefnd hæfar eða ekki og lán Lands- virkjunar hafa í nokkur ár að verulegu leyti verið án ríkis- ábyrgðar og einföld ábyrgð eignaraðila látin nægja. Það sýnir bezt, hvílíkt traust lána- stofnanir erlendis hafa borið til þessa fyrirtækis. Því trausti má ekki glata með einhverjum sameiningarævintýrum. Ekki eru allir sammála um það, að erlend gengistryggð lán séu þannig, að um þau verði sagt, að Landsvirkjun hafi „alltaf fengið að hagnýta sér alla hagstæðustu lánamarkaði, l rrkumii•* J hjá okkur of farleKa a haugi I kennir 1 ' K eins °K v,ð má búast I Ih'ss að X "l a,rra Krasa Ti,efni I ri"kk™ann, mj [ hlllglð i ()á átl að nmr I hafa - við KROF/ r ft“mfcv*‘mdunum hrn,.vn,(asé;frJ;:;un;;1((h£u tes'r...................K | iíík£«m|,í:?Í “""'“"iSw-ndí I kraur i feitt*J!*rÖf,u komna« I fu|lir.ii Pess' sam‘ ágæi «<•". Kranuvi,ij„n 'h.með Þv' að flytja "ItrnReyly. S, V7,k “ f'na kumið á virkiunír ,nokkru s*nni m-ð eigin LuÍ. Tf lnn °* íSí-Si vfir bv, h ‘ k'. ' anapWu sinni SS3L- ^•tSiSXsS! i Fjármál Lands- SVífK ••igendaframlog ti| |T^Ur. f*.urf« ar. að hvoraðili „i ^n*’',rkJun- fram jafn mikið ■ b! “ h*fur laK* Éandsvirkiun . . " ,0*um hefur "v*kjandi lán" hiá riL s'.ok<>,,ud 0 f'rra var tekið P*ð Jeyt, sem byrjað var , *kuM«br(/ H.i»lulo,aj4 j ^•virkíun v'kjandi lánum’ Ff eftirstóðvar bessar/^ °Kreiddar Jon G. Sólne.s Grýlubörn dekurbörn fvð £5."" a«riði Við 4,;*.^ . Stefnan í orkumáliini ollum landsmnr. K,rn,skrafa' a« ^V^ndsmönnum verði tryorf raforka á virkjunarmálum á aðliða þar Hiö £r“” J mynt, að Ulm|._. *r *, 1 erlendn míUj “ “Wiflm 300 Samanburdur á lánsfjármögnun Landsvirkjunar og annarra orku- fyrirtækja eins og pd- Laxárvirkjunar. Kafmagnsveitna nkisins og Kröfluvirkjunar “■» u25-‘ Itam.væmd- Kri-Sfss.-'C, ■v“k»""4»m hJSUsSL' r sr.rtó .a«”ím~. .0 6hí,'r*k,il hrf"r kjorum. ff >h',ll'K“m u„. s.ýr. frí bvlí'. rftlr *ö un annarsvegar fyrirtækja sveitarfélaga með eða án þátt- töku ríkisins, hinsvegar hreirina ríkisfyrirtækja eða fram- kvæmda ríkisins undir stjórn pólitískra nefnda. Til hinna hreinu ríkisframkvæmda er stofnað með þeim hætti, að fjárhagsgrundvöllur þeirra er allur ósambærilegur vi fyrir- tækin, sem sveitarfélögin eiga eða eru meginaðili að. Þegar málum er svo í óefni komið, virðist aðstandendum ríkisvirkjana einsýnt, að steypa beri þeim fyrirtækjum saman við fyrirtæki sveitarfélaganna, sem standa á fjárhagslega traustum grunni. Ég óttast slíka sameiningu og slíkt samkrull. Ég óttast að menn missi verð- skynið og það aðhald, sem sveitarfélögin hafa sýnt í sam- vinnu við ríkið og að úr þessu verði eitt allsherjar RARIK, þar sem enginn veit hvað snýr upp og hvað niður í fjármálum. víkjandi lán. — Vissulega eru lán þessi hagkvæm, en þau vega engan veginn þungt, þegar litið er á heildarlánabyrði Lands- virkjunar, sem í árslok 1977 nam 36.690 m.kr. Áðurnefnd víkjandi lán eru tvö og nam höfuðstóll upphaflega samtals 550 m.kr., en var í árslok 1977 orðinn 2118 m.kr. 450 m.kr. af upphaflegum höfuðstól var gengistryggt. Það var ríkið sjálft sem kaus að hafa þennan hátt á og þótt lánin séu hagstæð skapar það ríkinu ekki meiri rétt sem sameiningaraðila. Þegar talað er um „stuðning þjóðarheildarinnar" við Sogs- virkjanir, mun átt við það, að þriðja virkjunin, írafossvirkjun, var ein þeirra framkvæmda, sem naut lánskjara Marshall- aðstoðarinnar. Var það svo- nefnd ECA-lán fyrir efniskaup- um í Bandaríkjunum og Alþjóðabankalán fyrir efnis- kaupum í Evrópu. Fyrir inn- lendum kostnaði fékkst að nota fé úr mótvirðissjóði ríkisins, þó sem völ er á“. Mér segir hugur um, að þegar litið er til lengri tíma sé gengistap á erlendum lánum nokkuð sambærilegt við vísitöluákvæði þau, sem ríkis- sjóður hefur beitt á innlendum markaði. Þetta má þó reikna nákvæmlega út og þarf ekki um það að deila. Sogsvirkjun — Landsvirkjun Þegar fullyrt er, að ríkissjóð- ur hafi veitt Landsvirkjun „þægilega fyrirgreiðslu" og síð- an spurt: „Hefur hinn meðeig- andinn í Landsvirkjun, Reykja- víkurborg, veitt Landsvirkjun slíka fyrirgreiðslu? er hollt að minnast upphafsins, Sogs- virkjunar. Sú virkjun var í upphafi eign Reykjavíkur- borgar. Með lögum um Sogs- virkjun frá 1946 var henni gert að skyldu að selja einnig „raf- orku við stöðvarvegg í orkuver- um og afspennistöðum til almenningsnota utan Reykja- víkur við kostnaðarverði og að viðbættum allt að 5% . Raforku- verðið mátti þó aldrei „fara fram úr því, sem Rafmagnsveita Reykjavíkur borgar fyrir raf- orkuna miðað við afhendingu á sama stað“. Þannig hefur Sogs- virkjun og síðan Landsvirkjun ætíð selt Rafmagnsveitum ríkis- ins orku bæði frá stöðvarvegg og i aðalspennistöð við sama verði og Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þegar ríkisstjórnin og borgar- stjórn Reykjavíkur gerðu með sér sameignarsamning um Sogs- virkjun 30. júlí 1949, varð ríkið eignaraðili að Sogsvirkjuninni. Reykjavíkurbær lagðt fram sínar eignir án þess að nokkurt eignaframlag kæmi á móti frá ríkissjóði. Á þennan hátt eign- aðist ríkið 15% virkjunarinnar. Ég dreg stórlega í efa, að það verði með sanni sagt, að borgin hafi verið þiggjandi í skiptum sínum við ríkið í þessum efnum. Rafmagnsveitur ríkisins Um Rafmagnsveitur ríkisins ætla ég ekki að fjalla neitt að ráði í þessari grein. Kvartað er yfir því, að RARIK njóti ekki jafn hagkvæmra lána og Lands- virkjun — og að það sé „megin- ástæðan fyrir fjárhagsvand- ræðum Rafmagnsveitna ríkis- ins“, að fyrirtækið „sæti óhæfi- legum lánakjörum". Á sínum tíma voru sett lög um verðjöfn- unargjald af raforku, þar sem rafveitum sveitarfélaganna var gert að hlaupa undir bagga til að leysa „tímabundinn" fjár- hagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins. Þessi lög hafa verið framlengd æ síðan — og á'þessu ári mun Rafmagnsveita Reykja- víkur ein styrkja RARIK með um 500 m.kr. framlagi. Ymis önnur fyrirgreiðsla til RARIK svo sem eftirgjöf á tolla- og áðflutningsgjaldaskuldum virð- ist hrökkva skammt. Margoft hefur verið sýnt fram á, að of mikið er gert úr þeim kostnaði, sem dreifing raforku á orku- veitusvæði RARIK hefur í för með sér. í skýrslu stjórnskipaðr- ar nefndar, sem ranrisakaði orsakir fjárhagsvanda RARIK áriö 1969, er ein meginniður- staðan sú, að „fjárhagsvandræði og hin háa gjaldskrá Rafmagns- veitna ríkisins stafa af óhag- kvæmum orkuöflunarkostum og dýrum flutningi, en felast ekki í rekstri dreifiveitna, hvorki í sveitum eða þéttbýli". Andvígur alls- herjar sameiningu Reykjavík hefur boriðgæfu til að tryggja íbúum sínum og nálægra byggða næga og örugga raforku við hóflegu verði. í samvinnu við ríkið hefur Reykjavík getað útvíkkað þessa þjónustu til annarra landshluta með stofnun Sogsvirkjunar og síðar Landsvirkjunar. Sama hafa önnur sveitarfélög gert, m.a. Akureyri. Enginn mælir því í mót, að æskilegt sé að tr.vggja öllum landsmönnum örugga raforku á sem lægstu verði. Slíkt gæti gerst með samvinnu og samhæfingu þeirra fyrirtækja, sem fyrir eru í landinu á þessu sviði. Það á ekki að gerast með því, að ríkið komi og segi við vel rekin fyrirtæki sveitarfélaganna: „Nú get ég.“ Spor ríkisins í rekstri raforku- fyrirtækja hræða. Þessvegna er ég á móti þeirri allsherjar sameiningu undir forystu ríkis- ins, sem nú er boðuð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.