Morgunblaðið - 21.09.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.09.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978 29 r Avarp Magnúsar Kjartanssonar: Borgarstjóri, borgarfulltrúar, aör- ir áheyrendur. Heilbrigði er eitt þeirra oröa, sem við sínotum í daglegu tali okkar, án þess að hugsa um merkingu þess. Því er ástæða til að staldra við og hugleiða hvað í orðinu felst. Það er ekki fléttað úr raunsæju mati á ástandi manna, heldur er „ Við erum aðeins fólk, ekki vélar-þess vegna hefur athyglin ekki beinstað okkur” það sótt í veröld hugsjónanna. Meðal þeirra milljarða manna sem búa á heimskringlunni er ekki einn einasti maður, sem getur notað það orð um varanlegt ástand sitt, og í gervallri sögu mannkyns- ins hefur aldrei verið til slíkur maður. Heilbrigði er ekki ástand heldur markmið; það er hugsjón, svo að ég noti orð sem þykir fornfálegt á okkar köldu tímum. Öll heilbrigð- isþjónusta stefnir að því marki að færa okkur sem næst hugsjóninni og afrek heilbrigðisvísindanna eru í mínum huga undursamlegasti þátturinn í sögu mannkynsins. Mannkynið nær trúlega aldrei því marki að allir verði heilbrigðir alla ævi, en hugsjónin verður engu að síður að lifa í brjósti manna alla tíð. Við erum mislangt frá mark- miðinu. Fatlað fólk skiptir til að mynda mörgum hundruðum millj- óna um alla heimskringluna. Alþjóðlegir staðlar bera með sér að í Reykjavíkurborg eru 250 einstaklingar sem einvörðungu geta hreyft sig í hjólastól. Hér í höfuðborginni eru átta þúsundir manna sem ekki geta gengið upp og ofan tföppur nema með miklum erfiðismunum. Atta þúsund og fimm hundruð Reykvíkingar hafa mjög skerta hreyfigetu. Og það eru hvorki meira né minna en fimmtán þúsund höfuðborgarbúar sem eiga við einhverja fötlun að stríða. Þessi mikli fjöldi fatlaðra Reyk- víkinga hefur engu aö síður mikla starfsgetu, svo er ekki síst endur- hæfingarlækningum fyrir að þakka, en þróun þeirra er eitt af undrum heilbrigðisvísindanna. Það er hins vegar erfitt fyrir okkur fatlaða að nýta starfsgetuna í þjóðfélagi, sem einvörðungu er skipulagt í samræmi við þarfir þeirra sem ófatlaðir eru. Við lifum á öld bílsins og umferðamál eru ríkiir þáttur í störfum þeirra sem stjórna þjóð- Ávarp Theódórs A. Jónssonar, formanns landssambands fatlaðra „ Við vanþökkum ekki það sem gerthefur verið, en betur má efduga skal” íbúðarhúsnæði og umhverfi íbúðarhúsa hefur mikil áhrif á líf og lífsskilyrði fólks, ekki síst þeirra, sem eru fatlaðir, vegna þess að þeir eyða oft lengri tíma en aðrir í íbúð sinni, eða nágrenni hennar. Þrátt fyrir þetta búa fatlaðir oft í minni, óhentugri og lélegri íbúðum en fólk almennt. Það er staðreynd að góð, hentug og velinnréttuð íbúð er nauðsynlegt framhald góðrar endurhæfingar. Um næstu áramót ganga í gildi ný byggingalög, sem tryggja eiga fötluðum að byggingar ríkis og bæjarfélaga, sem ætlaðar eru til sameiginlegra nota, verði hindrun- arlaust aðgengilegar öllum þjóð- félagsþegnum. En hvað með eldri byggingar þessara aðila? Hvað með íbúðarhús, vinnustaði, sam- komustaði, íþróttamannvirki, skóla o.fl.? I eigu Reykjavíkurborgar er mikið og margháttað húsnæði. Við skorum á Reykjavíkurborg að verja verulegri fjárhæð árlega til breytinga á eldra húsnæði, í eigu borgarinnar, til þess að gera það aðgengilegt fötluðum. Við skorum á ykkur borgarfulltrúa að setja inn í byggingasamþykkt Reykja- víkurborgar ákvæði um lágmarks dyrabreiddir, staðsetningar og stærðir á lyftum, slétt inn á jarðhæðir o.fl. Þessa þrjá liði skal ég rökstyðja aðeins' nánar. Það hefur verið landlægt hér að hafa salernisdyr mjórri en aðrar dyr í húsum, þannig að í miklum meirihluta íbúðarhúsnæðis er gjörsamlega útilokað fyrir fólk í hjólastólum að komast á salerni. I mörgum húsum eru ónauðsyn- legar tröppur við útidyr. Þess eru jafnvel dæmi að jafnmargar tröppur eru upp utan dyra eins og þær eru niður innan dyra, á neðsty hæð. Lyftur þurfa að vera það rúmar að þær rúmi hjólastól, að hægt sé að komast í þær slétt frá götu og að þær stoppi á hverri hæð, en ekki á milli hæða eins og er Ld. í háhýsi við Kleppsveg. Þjóðfélag, sem vill teljast vel- ferðarþjóðfélag, verður að tryggja öllum þegnum sínum bestu mögu- legu lífsskilyrði og aðbúnað, án tillits til aldurs eða fötlunar. Það grundvallaratriði að allar íbúðir, byggingar og opin svæði verði aðgengileg fyrir alla. Að byggja aðeins sérstakar íbúðir fyrir ákveðna þegna í þjóðfélaginu er engin framtíðarlausn. Við sem erum fötluð eigum ættingja og vini, sem sru ófötluð. Við viljum geta heimsótt þá. Við viljum ekki þurfa að flytja úr því íbúðahverfi sem við erum orðin rótgróin 5, vegna þess að í hverfinu eru engar íbúðir sem henta mikið fötluðu fólki. Rannsóknir sem gerðar hafa verið í Svíþjóð og Danmörku, sýna, að íbúðir sem byggðar hafa verið, eðá breytt þannig að þær væru hentugar mikið fötluðu fólki hafa einnig betra notagildi fyrir ófatlað fólk. Rannsóknirnar sýndu líka að ef tillit var tekið til fatlaðra strax, þegar íbúðin var skipulögð kostaði bygging hennar sáralítið meira en ella. Þar sem það er viðtekin hefð hér á landi, að húsbyggjendur vinni félögum eða hlutum þjóðfélaga. Þið, sem eigið sæti í borgarstjórn Reykjavíkur og fjallið mikið um samgöngumál; þið hafið myndar- legar stofnanir og hóp sérfræðinga sem vinnur að því með aðstoð mikilla fjármuna að gera alla vegi sem greiðfærasta bílum, hafa þá breiða, með bundnu slitlagi, forð- ast misfellur á vegum, hryggi og holur. En ég spyr ykkur sem starfið í borgarstjórn: Hafið þið stofnanir, sérfræðinga og fjár- muni til þess að fjalla um samgöngur okkar sem fatlaðir erum? Eg svara spurningunni sjálfur. Það er ekki ein einasta króna í fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar til þess að auðvelda fötluðum að komast leiðar sinnar, við komumst ekki með neinum almenningsfarartækjum; víðast hvar í borginni komumst við ekki einu sinni yfir götu í hjólastól. Vandi okkar sem fatlaðir erum er hinn sami og vandi bílsins; við þurfum misfellulausa braut til þess að komast íeiðar okkar jafnt innan húss sem utan; en við erum aðeins fólk, ekki vélar — þess vegna hefur athyglin ekki beinst að okkur. Hér í Reykjavík eru margar stofnanir starfandi i þágu þjóðarheildarinnar, sumar að forminu til í eigu ríkisins. Við höfum hér til að mynda Þjóð- minjasafn og Listasafn Islands. Það er ámóta erfitt fyrir fólk í hjólastól að komast inn í þessar stofnanir og það væri fyrir bíl að aka þangað upp. Bíll á ekkert erindi í Þjóðminjasafn og Lista- safn, en við sem fatlaðir erum eigum þangað sama erindi og aðrir, að kynnast sem best menn- ingarfjársjóðum þjóðarinnar. Við erum menn, ekki vélar. Ég veit að söfn þessi eru formlega í eigu ríkisins, en þau eru starfrækt í Reykjavík. Væri ekki ráð að borgarstjórn Reykjavíkur til- kynnti ríkisstjórninni að starfsemi þessara safna verði ekki heimiluð, nema komið verði fyrir lyftu handa fötluðum í lyftugöngum þeim sem staðið hafa auð síðan húsið var byggt. Ég nefni ekki kostnaðinn; hann er svo hlægilega lítill í samanburði við þær millj- arðatölur sem stjórnvöld láta fjölmiðla flytja okkur dag hvern. Ég nefndi kostnað, og ýmsir kunna að spyrja hvort það verði ekki dýrt að verða við jafnréttis- kröfum okkar. Því er öfugt farið. Það eru ekki hugsanlegar arðsam- ari framkvæmdir í þjóðfélaginu en að gera fötluðu fólki kleift að nýta hæfileika sína. Við þurfum á þjóðfélaginu að halda, en þjóð- félagið þarf einnig á okkur að halda. Við undirbúning þessa jafn- réttisdags hef ég leitað liðsinnis hjá fjölmörgum mönnum. Ég hef hvarvetna fengið sömu viðtökur, hjálpsemi, skilning, áhuga — Og það sannar, að nú er lag til að breyta hugsjónum í veruleika á skömmum tíma. Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, hefur beðið mig að koma hér á framfæri kveðjum sínum og óskum um sem bestan farnað í jafnréttisbaráttunni. Ég sagði í upphafi að heilbrigði væri hugsjón. Kjörorð þessa dags, jafnrétti, er einnig hugsjón. Þetta eru hugsjónir sem sameina. Fötlun bitnar á fólki úr öllum þjóðfélags- hópum, án tillits til skoðana, stétta og annarra skiptinga. Við erum hingað komin til þess að biðja ykkur borgarfulltrúa að sanna í verki, að þið getið ekki aðeins deilt um mikilvæg atriði, heldur kunnið þið einnig að vinna saman að stórmálum. Gerum jafnréttið svo ríkjandi hugsjón innra með okkur, að hún sameini þjóðina alla. Þá getum við lyft Grettistökum. mikið við byggingu íbúðarhúsnæð- is síns, gefur það auga leið að það er mun dýrara fyrir fatlaða en aðra að koma yfir sig þaki, þar sem þeir þurfa að kaupa út alla vinnu. Eins er um breytingar á eldri íbúð. Það er því brýn nauðsyn að fatlaðir eigi kost á hærri og hagstæðari lánum til húsbygginga, en nú er. Þurfa borgaryfirvöld að koma þar til móts við fatlaða, í samvinnu við Húsnæðismálastofn- un ríkisins. í ályktun Allsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna frá 9. desember 1975, um réttindi fatlaðra segir meðal annars að fatlaðir eigi rétt á að lifa með fjölskyldu sinni eða forráðamönnum og taka þátt í öllum störfum samfélagsins og tómstundaiðkunum. Með tilliti til heimilis eigi fatlaðir sama rétt og aðrir. Sama ár, 1975, sendu Sameinuðu þjóðirnar út skýrslu í 76 liðum um byggingar og innréttingu þeirra. Er þar einnig skýrt kveðið á um réttindi fatlaðra og byggingu íbúða þannig að öllum henti. Við Islendingar erum meðal stofnenda Sameinuðu þjóðanna og ættum því að hugleiða þessa ályktun og skýrslu vel og taka hana til eftirbreytni. Góðir borgarfulltrúar! Við van- þökkum ekki það sem vel hefur verið gert, en betur má efa duga skal. i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.