Morgunblaðið - 21.09.1978, Síða 38

Morgunblaðið - 21.09.1978, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978 Ömurieg dómaramistök — vítaspyrnu á Holand sleppt Þetta var augljós vítaspyrna sagði þjálfari Hollendinga Jan Zwartkruis, þjálfari Ilollands, Arni Þorxrímsson og Youri Ilichew ra-ða málin í leikslok. Símamynd Telegraf aðvífandi og skallaði boltann i markið mjög laglega. Fyrir ein- hvern misskilning hafði gleymst að setja mann til höfðus Brandts, ef það hefði verið gert og Þor- steinn verið ákveðnari í úthlaupi hefði mátt koma í'veg fyrir þetta mark. Þorsteini brást hins vegar ékki bogalistin einni mínútu síðar, þegar Koster átti gott skot á markið, en Þorsteinn varði mjög vel. Þriðja og síðasta mark Hollend- inga kom á 18. mínútu seinni hálfleiks. Fyrirliðarnir Jóhannes Eðvaldsson og Ruudi Krol voru að kljást um boltann í vítateig íslenska liðsins og Krol féll með miklum tilþrifum. Séð úr blaða- mannastúkunni virtist vera um gróft brot að ræða, en Jóhannes sagði eftir leikinn, að þetta hafi verið leikaraskapur hjá Krol. Eigi að síður var vítaspyrna dæmd og úr henni skoraði Rob Rensenbrink, en litlu munaði, að Þorsteini tækist að verja skot hans. Eftir þetta var íslenska vörnin styrkt með komu Dýra Guðmunds- sonar, sem lék miðvörð en Jóhann- es færði sig framar. Þetta hreif og Hollendingum tókst ekki að bæta fleiri mörkum við þrátt fyrir nokkuð stífa sókn, lokatölur leiks- ins urðu því 3—0. Þorsteinn Bjarnason, sem þarna lék aðeins sinn annan landsleik, var besti maður íslenska liðsins og varði oft snilldarlega. Aftasta vörnin stóð sig nokkuð vel og skiluðu menn þar hlutverkum sínum bærilega, þeir Janus og Arni bakverðir og Jóhannes og Jón miðverðir. Dýri stóð sig einnig vel þann tíma sem hann var inn á. Tengiliðir íslenska liðsins, þeir Karl, Guðmundur og Atli, voru með daufara móti. Ásgeir var góður í fyrri hálfleik og gaf hann þá hollensku snillingunum ekkert eftir. I síðari hálfleik bar ekki eins mikið á honum, hann þreyttist og kom það niður á leik liðsins. Fremstu mennirnir, þeir Ingi Björn og Pétur Pétursson, fengu ekki margar sendingar til að moða úr og voru þeir því frekar atkvæðalitlir í leiknum, var þó Pétur sýnu sprækari. Um hollenska liðið þarf ekki að fjölyrða, þar léku 11 snillingar sem gátu gert allt með knöttinn, nema hugsanlega að láta hann tala. Frá Sigtryggi Sigtryggssyni. blm. Mbl. í Nijmegen í Hollandi t»AÐ ER sjaldgæft að sjá knattspyrnudómara bregðast jafn herfilega í hlutverki, sínu og finnski dómarinn Mattson í leik Hollands og íslands í Nijmegen í kvöld. Á 18. mínútu leiksins fékk Pétur Pétursson knöttinn skyndilega langt fyrir innan hollensku vörnina, brunaði upp, lék á markvörðinn og ætlaði að renna boltanum í netið þegar Ruudi Krol kom aðvífandi og hreinlega sparkaði fótunum undan Pétri. Dómarinn var í góðri aðstöðu til að sjá brotið, en gerði ekkert, heldur lét leikinn halda áfram. Undrunarkliðurinn, sem fór um völlinn, staðfesti, að dómarinn væri einn um þá skoðun að ekki bæri að dæma vítaspyrnu. Þessi heigulsháttur dómarans var afdrifaríkur, því að enginn veit hvað hefði gerst, ef ísland hefði náð óvæntri forystu í upphafi leiksins. En eins og vænta mátti, tóku hollensku leikmennirnir leikinn í sínar hendur þegar á leið og unnu verðskuldaðan sigur, 3—0. Miðað við aðstæður eru þetta úrslit sem vel má við una, strákarnir börðust vel og vörðust vel allan timann, enda hlutskipti þeirra lengst af að verjast. Þá mæddi mikið á hinum unga markverði Þorsteini Bjarnasyni, en hann skilaði hlutverki sínu með miklum sóma og var besti maður liðsins. í leik þessara sömu þjóða í fyrra gróflega. Vítaspyrna var sjálfsögð, á sama leikvanginum hér í Nij- megen, voru Hollendingarnir óstöðvandi í upphafi leiksins. Ottuðust menn að þeir myndu leika sama leikinn að þessu sinni, en svo var ekki. Reyndar voru Hollendingarnir mun meira með boltann og alltaí hættulegri í sókninni, en íslenska liðið varðist vel og náði að byggja upp nokkrar góðar sóknarlotur. Átti Ásgeir Sigurvinsson mestan þátt í að þær sóknarlotur upp. Á 18. mínútu var Ásgeir að kljást við Hollending um boltann á vallarhelmingi íslenska liðsins og endirinn varð sá, að boltinn barst óvænt inn fyrir hollensku vörnina. Pétur Pétursson var fyrstur að át.ta sig, náði knettinum og brunaði upp að markinu með Ruud Krol á hælunum. Hollenski mark- vörðurinn Schrievers kom út á móti Pétri, en hann lék áfram alls óhræddur. Rétt fyrir utan mark- teiginn lék hann á markvörðinn með snöggri bolvindu og opið markið blasti við, þegar Krol kom á fullri ferð og felldi Pétur en finnski dómarinn var hræddur og þorði ekki að dæma. Hörmuleg mistök dómarans komu þannig í veg fyrir þann möguleika, að litla Island næði forystunni gegn Hol- landi sem margir telja, að eigi á að skipa besta liði heimsins, þrátt fyrir tapið gegn Argentínu í úrslitum HM. Við þetta atvik lifnaði yfir leiknum, sem fram til þessa hafði verið heldur daufur. Strax á næstu mínútu skall hurð nærri hælum þegar Jóhannes Eðvaldsson bjarg- aði á línu, nokkru síðar lék Árni Sveinsson sama leikinn eftir að Ernie Brandts hafði átt góðan skalla á íslenska markið. Á 34. mínútu kom fyrsta markið. Eftir góða sóknarlotu Hollendinga var knettinum spyrnt frá íslenska markinu út fyrir vítateiginn, þar kom fyrirliðinn Ruudi Krol aðvíf- andi og skaut þrumuskoti í markið af 25 metra færi. Boltinn fór neöst í markhornið, óverjandi fyrir Þorstein markvörð, glæsilegt mark hjá Krol, sem að þessu sinni Símamynd Telexraf Þorsteinn Bjarnason grípur vel inn í leikinn. það er Ernie Brandts sem sækir að honum. Brandt hafði þó betur við annað tækifæri. er hann skoraði annað mark Hollands. Þorsteinn átti stórleik í marki Islands. lék sinn 60. landsleik fyrir Hol- land. í seinni hálfleiknum fóru Hol- lendingarnir í gang fyrir alvöru og sóttu látlaust að íslenska markinu. Aftur á móti gekk okkar mönnum afar illa að halda boltanum framarlega á vellinum, hollensku leikmennirnir gáfu þeim aldrei frið til þess að byggja upp sóknarlotur og einnig hafði það sitt að segja, að Ásgeir Sigurvins- son var óvenju atkvæðalítill í seinni hálfleiknum. Þreyta sat í honum eftir marga erfiða leiki með Standard Liege að undan- förnu. Hlutskipti íslenska liðsins í seinni hálfleiknum var þvi að verjast og tókst því það vel. Mæddi mikið á öftustu vörninni og Þorsteini markverði. Á 7. mínútu seinni hálfleiks skallaði Arie Haan að markinu, en Janus bjargaði á línu. Einni mínútu síðar bættu Hollendingar öðru marki sínu við og má kenna um varnarmistökum. Willy Van De Kerk tók hornspyrnu og sendi knöttinn vel fyrir markið, varnar- maðurinn Ernie Brandts kom Sjaldan veriö jafnhissa sagði Pétur Pétursson „Að mínu áliti var vítaspyrna rétti dómurinn, þegar miðvörðurinn Krol fclldi miðhcrjann ykkar í fyrri hálfleiknum," sagði Jan Zwartkruis landsliðsþjálfari Ilollands í samtali við hlm. Mbl. eftir landsleikinn í gærkvöldi. Zwartkruis var ekki einn um þessa skoðun, heldur voru allir sem blaðamaður talaði við eftir leikinn, sammála um að dómarinn hefði gert mikla skyssu að dæma ekki vítaspyrnu. Dómarinn sjálfur, Finninn Andrés Mattson, var á öðru máli. Ilann sagði í samtali við Mbl. „Að mínu áliti var þetta ekki víti, Krol var búinn að ná íslenska leikmanninum og varð íyrri til að krakja boltanum burtu. íslenski lcikmaðurinn var orðinn þreyttur eftir að hafa hlaupið hálfan völlinn á eftir boltanum og því datt hann." En hvað segir Pétur Pétursson um þetta umdeilda atvik." „Eg hef sjaldan verið jafn hissa á ævi minni, ég var búinn að leika á markmanninn og ætlaði að renna boltanum í autt markið, þegar Krol kom aðvífandi og sparkaði undan mér löppunum, ég skil ekki hvernig dómarinn gat sleppt þessu augljósa broti."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.