Morgunblaðið - 01.10.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
29
Krabbi
fundinn med
blóðrannsókn
Boston, 29. septcmber. AP.
VÍSINDAMENN scgja að ný
hlóðrannsókn muni leiða í ljós
krabbamcinseinkenni áður en
KreinileK sjúkdómseinkenni komi
í ljós ok að þannití verði hægt að
flýta fyrir læknismeðferð og auka
batahorfur.
Slík rannsókn hefur lengi verið
takmark krabbameinssérfræð-
inga. Þeir sem fundið hafa hana
upp við Massachusetts General
Hospital segjast vona að hana
verði hægt að nota til að leita að
krabbameini í miklum fjölda fólks
áður en sjúkdómurinn komist á
ólæknanlegt stig.
Einn vísindamannanna, dr. Kurt
J. Isselbacher, segir að blóðrann-
sóknin kunni að verða venjulegur
liður í læknisskoðunum, á sama
hátt og blóðþrýstingsmælir og
sykursýkirannsóknir.
Blóðrannsóknin byggir á þeirri
uppgötvun að í blóði krabbameins-
sjúklinga eru efni sem finnast ekki
í heilbrigðu fólki. Þetta efni
kallast „Galactorsyltransferase"
eða GT-II.
Vísindamennirnir komust að
raun um að GT-II má finna í
blóðrannsókn mörgum mánuðum
áður sýnileg merki um krabba-
mein sjást á sjúklingi.
Rannsóknin hefur staðið í fjögur
ár og náð til 232 krabbameins-
sjúklinga. Læknarnir komust að
raun um að 71% þeirra voru með
GT-II í blóðinu.
Skýrsla um rannsóknir þeirra
var birt á fimmtudag í The New
England Journal of Medicine.
Isselbacher sagði að hann von-
aði að blóðrannsóknin yrði orðin
almenn innan þriggja ára. Hins
vegar verður í fyrstunni að notast
við einfaldaða aðferð sem getur
komið í staðinn fyrir flókna aðferð
sem nú er notuð til að rannsaka
blóðsýnishorn.
Vorster
forseti
Hiifðaboric. 29. sept. Reuter.
JOHN Vorster, fyrrverandi for-
sætisráðherra Suður-Afríku, var í
dag kjörinn forseti Suður-Afríku
eins og skipulagt hafði verið.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um mun Vorster hafa hug á því að
hlutur hans verði meiri en fyrir-
rennara hans, sem hafa verið
valdalausir og aðeins komið fram
við opinberar athafnir o.þ.u.l. Þá
er talið að flokkur Vorsters sem
kaus hann til forseta muni og
reyna að sleikja sár sín á næstunni
eftir valdabaráttuna sem stóð
innan flokksins um eftirmann
Vorsters.
Eftir að Vorster hafði verið
lýstur forseti ávarpaði hann
fréttamenn og sagðist þar mundu
vera utan við alla flokkapólitík en
hlutverk hans sé að efla áhrif og
virðingu S-Afríku inn á við sem út
á við.
Víetnam
vill ræða
við Kína
Singapore, 28. september. Reuter.
VÍETNAMAR hvöttu til þess í dag
að viðræður þeirra og Kínverja um
kínverska borgara í Víetnam yrðu
teknar upp að nýju.
Síðan. viðræðurnar fóru út um
þúfpr fyrr í vikunni hafa Kínverj-
ar sakað Víetnama um liðssafnað
á landamærunum og Víetnamar
hafa sakað Kínverja um hið sama.
Viðræðufundirnir urðu átta.
Útvarpið í Hanoi sagði í dag, að
Kínverjar hefðu einhliða slitið
viðræðunum og sakaði þá um að
sýna engan samstarfsvilja á við-
ræðufundunum.
Byggingaréttur 1000 fm
Til sölu er 1000 fm byggingaréttur á einni hæö (2.
hæö) í austurborginni meö nægum bílastæöum.
Hægt er aö skipta honum í einingar. Sérstaklega
hentugur fyrir félagasamtök, skrifstofur, o.þ.h.
Mjög góö fjárfesting. Eignaskipti koma til
greina.
Upplýsingar aöeins veittar á skrifstofunni.
Magnús Hreggvidsson, viðskiptafræðingur,
Síðumúla 33.
Orð
Krossins
Fagnaöarerindi veröur boöaö á íslensku frá Trans
World Radio, Monte Carlo, á hverju mánudags-
kvöldi kl. 23.15—23.30. Sent veröur á miöbylgju
205 metra (1466 KHz)
Ath: Breyttur tími og bylgjulengd.
Orö krossins,
Pósth. 4187, Reykjavík.
\
Opnaðu börnum
þínum töfraheim tónanna
stdnorhf s./28iss-i«4so.
úmrinn
Flytjendur eru Philadelphia Orchestra undir
stjóm Eugene Ormandy. Bessi Bjarnason er
sögumaður.
Bömin læra að þekkja hin ýmsu hljóðfæri og
fylgja þeim í sögunni sem magnast að spennu
eftir þvi sem á líður. Allt fer að sjálfsögðu vel að
lokum, svo sem vera ber.
Plötukápan er 8 síðna myndabók, prýdd 14
litmyndum eftir Pétur Halldórsson teiknara.
Þrátt fyrir að svo mjög er til útgáfunnar
vandað kostar þessi hljómplata aðeins kr.
4.900
Gefðu þeim hljómplötuna: Pétur og úlfurinn.
Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofieff er
frægasta lýsandi (Program) hljómsveitarverk
sem skrifað hefur verið í heiminum til þessa.
í upphafi plötunnar em hljóðfærin kynnt sem
fulltrúar hinna ýmsu persóna sögunnar. Klari-
nettan túlkar köttinn, flautan fuglinn, óbóið
öndina. Fagottið leikur afann, þrjú horn úlfinn,
trommurnar skot veiðimannanna. öll strok-
hljóðfæri hljómsveitarinnar fylgjast með Pétri.