Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
Haukur Helgason, skólastjóri:
Grunnskólakenn-
arar töldu sig haf a
samið um jöfnun
prófa til launa
Nokkrar athujfascmdir vcgna ummæla Höskulds Jónssonar ráðuneytis-
stjóra í viötali vió Mornunblaðið 4. okt. 8.1. vegna dcilu Krunnskólakcnnara
og ríkisins. í viðtali því sem hlaðið átti við ráðuneytisstjórann er sieppt
mikilvætfum þáttum er varða málið. Tel ég nauðsynlegt að þeir komi fram
svo heilleg mynd fáist.
Árgerð prófa ráði
ekki launum
Kjarni þessa máls er að kennarar
hafa krafist þess að próf sem tekin
eru á mismunandi tímum og gefa
full réttindi til starfa við grunnskóla
séu metin jafnt til launa. Kröfur til
kennaramenntunar hafa stöðugt
verið að breytast allt frá því að
Flensborgarskóli útskrifaði kennara
eftir nokkurra mánaða nám og til
þess sem nú er. Allan þann tíma sem
þessar breytingar hafa staðið yfir.
hafa kennarar setið við sama borð
varðandi rétt til launa hvenær sem
þeir luku prófi þar til nú allra
síðustu ár. Þeim ójöfnuði sem nú
hefur viðgengist hafa kennarar illa
unað og töldu sig reyndar sjá fyrir
r endann á málinu við gerð síðustu
kjarasamninga. Vil ég nú víkja
nánar að því.
Samningarnir 1977
I viðtalinu við ráðuneytisstjórann
er sleppt veigamiklu atriði er varðar
samninginn en hann segir: „I
samningunum sem gerðir voru í
nóvember 1977 varð enn ein mála-
miðlunin að okkar dómi og þá sagt
að stefnt skyldi að því að próf sem
gæfu sömu starfsréttindi gæfu sömu
laun. Það var engin tilviljun að
þarna væru orðin „stefnt skal að“
heldur voru þau hreinlega valin til
þess að ekki þyrfti að taka skrefið til
fulls. Þetta var öllum aðilum ljóst og
hefðu menn ætlað sér eitthvað
annað, þá hefðu önnur orð verið
valin.“ Tilvitnun lýkur.
Þetta er rétt svo langt sem það
nær, en samninganefnd kennara
vildi ekki fallast á að í aðalkjara-
samningi yrði þetta atriði afgreitt
með orðunum „stefnt skal að“. Þess
vegna stóð í löngu og stífu stappi við
samninganefnd ríkisins þar sem
kennarar héldu fast við það að þeir
gætu ekki fallist á annað en að málið
yrði útkljáð á samningstímabilinu.
Þeirri lotu lauk með því að aftan við
samninginn kom eftirfarandi bókun
sem báðir aðilar féllust á. Bókunin er
þannig:
Aðilar eru sammála um, að ákvæði
1. 4. 3. í aðalkjarasamningi eigi við
um þá kennara, sem hafa kennslu-
réttindi skv. lögum eða reglugerðum.
Á samningstímanum verði ákvæð-
um þessum að því er varðar kennara
við grunnskóla komið í framkvæmd
þannig:
1. Kennarar, sem í dag eru í
launaflokkum 10, 11 og 12 hækki um
einn launaflokk 1. júlí 1977. Þeir
kennarar, sem þá hafa ekki náð þeim
launaflokki sem aðilar ákveða í
sérsamningi fyrir kennara með B.
Ed. prófi, flytjist í þann launaflokk
1. janúar 1978.
2. í sérkjarasamningi verði ákveðnar
samræmdar reglur um tilfærslur
milli launaflokka fyrir kennara, sem
falla undir tölulið 1, kennara með B.
Ed. próf og aðra kennara, er nú taka
laun skv. 13. launaflokki og ofar.
Með þessari bókun töldu kennarar
sig hafa tryggt að málið væri leyst.
Ályktun þeirra byggist á 2. gr.
bókunarinnar þar sem segir að
„samræmdar verði reglur um til-
færslur milli launaflokka". Til-
færslur milli launaflokka í undan-
förnum samningum hafa grundvall-
ast á því að hvert starfsár sem búið
er að vinna hefur skilaö mönnum
nokkuð áleiðis. Það gat því engum
dottiö í hug að fjármálaráðuneytið
túlkaði samningana á þá lund að allt
í einu þýddi margra ára starfsaldur
enginn starfsaldur og nú byrjuðu
allir á svo til sléttu. Enda varð þá
mörgum kennurum að orði er þeir
sáu þá túlkun ráðuneytisins „engum
er Höskuldur líkur“. Það má vera að
samninganefnd ríkisins hafi strax
frá upphafi ætlað sér að túlka þessa
grein á þann veg sem þeir gerðu en
það kom aldrei fram er bókunin var
samin og samþykkt.
Ráðuneytisstjórinn segir í viðtal-
inu að engum nema kennurum dytti í
hug að ræða mál sem þetta milli
kjarasamninga. Reynslan hefur sýnt
að vegna mjög leiðinlegrar viðleitni
ráðuneytisins til að draga í land með
atriði sem búið er að semja um hafa
fjölda mörg félög þurft að standa í
langvinnu stappi til að fá það sem
samningar áttu að geta.
Þetta hefur oft valdið óþarfa
tortryggni sem komið hefur niður á
gangi samninga síðar.
Niðurlag viðtalsins er svo sérkafli
en þar kemur ráðuneytisstjórinn
með gömlu lummuna sína um það að
opinberir starfsmenn séu „að seilast
ofan í vasa samborgara sinna“.
Þetta eru gróf orð og hitta
ráðuneytisstjórann sjálfan harðast
fyrir því á hans borði eru samdar
þær reglugerðir og þau lög sem
heimila skattheimtumönnum að
seilast dýpra og harðneskulegar í
vasa samborgaranna en áður hefur
þekkst.
Deiluna þarf að leysa
Deila þessi hefur verið til leiðinda
og ama fyrir skólastarfið og ekki síst
bitnað illa á kennaranemum. Það er
því nauðsynlegt að leysa hana sem
fyrst. Ég treysti vel samningamönn-
um ríkisins að finna viðunandi lausn
með kennurum fái þeir til þess
heimild. Talað er um að ekki megi
gefa fordæmi um breytingar á
kjarasamningum á samningstíma-
bilinu. Kennarar telja að hér þurfi
að verða rétt framkvæmd á gerðum
samningi. Fyrir því eru aftur á móti
engin fordæmi að breytt námsfyrir-
komulag til embættisprófs gefi lægri
laun til þeirra er áður luku prófi ef
hið fyrra námsform er niður lagt.
ósvikið grín — svo hjartanlegt
og auðskilið að börnin skildu
það best ef marka mátti viðtök-
urnar. Sumt var líka í ætt við
barnasprell eins og að: súpa á
vatni, halda sopanum uppi í sér
og sæta færis að frussa framan í
náungann, óviðbúinn og granda-
lausan! Annað fól í sér skop-
stæling á sjónhverfingum og
kraftíþróttum, allt auðskilið. Og
svo þetta sígilda: tilraun til að
leika á hljóðfæri sem einatt
mistekst þrátt fyrir ærnar
forfæringar og vesin. Allt þetta
þekkjum við orðið mætavel —
úr sjónvarpinu ef ekki annars
staðar frá; þetta er alþjóðleg list
Látbragðs-
leikur í Iðnó
Leikilst
eftir ERLEND
JÓNSSON
ARMAND MIEHE skemmti í
Iðnó á miðvikudagskvöld ásamt
félögum. Þau eru: Eda Michel-
son leikkona, Mats Söderquist
og Peter Furuskov hljómlistar-
menn, auk Max Miehe, ungs
sonar Edu og Armands.
Skemmtun »fyrir alla fjölskyld-
una«, auglýsti leikhúsið og hitti
naglann á höfuðið. Sýningar-
gestir voru á öllum aldri, þar á
meðal mörg börn sem skemmtu
sér vel, hlógu dátt og innilega —
þau sem voru nógu stór til að sjá
yfir höfuð og herðar þeirra sem
framar sátu!
I leikskránni, sem að þessu
sinni var aðeins eitt fjölritað
blað, er Armand Miehe sagður
»þekktasti cirkus-trúðleikpri og
látbragðsleikari á Norðurlönd-
um.« Fyrri titillinn hæfir betur,
leikur Miehe er meir í ætt við
trúðleik og cirkus en sviðslegan
látbragðsleik. Gervi Miehe er í
stórum dráttum cirkustrúðsins:
fínir larfar; rauður klútur upp
úr vasanum; kúluhattur á höfði.
Og mikið, uppbrett og rautt nef
sem bókstaflega tilheyrir stétt-
inni!
Sama máli gegndi um leikinn.
Þar var ekki farið með neins
konar táknræn látbrögð sem
leggja bæri í dýpri merking
heldur var þarna á ferðinni
og takmarkast ekki við eitt
heimshorn; senurnar víða svip-
aðar.
Já, börnin skemmtu sér. En
fullorðnir nutu líka kvöldsins.
Armand Miehe framdi leik sinn
af öryggi og þrótti og með
kunnáttulegum ærslum sem
aðeins næst með ærinni þjálfun,
byggðri á langri hefð. »Frá
blautu barnsbeini ólst hann upp
með þeirri list, sem forfeður
hans hafa lagt rækt við mann
fram af manni,« segir í leikskrá.
Auðvitað hvíldi sýningin mest
á Miehe sjálfum. En hlutur
meðleikara hans var líka veru-
legur. Og með því að blanda
örlítilli tónlist saman við ærslin
öðlaðist þetta allt framandlegri
og dramatískari svip.
Hér hefur farið svo lítið fyrir
látbragðslist að heita má að
erlendir látbragðsleikarar, sem
leggja hingað leið sína, komi hér
fyrir sjónir eins og fáséðir
fuglar. Og hugtakið »trúður« —
felur það ekki í sér niðrandi
merking? í raun og veru hafa
íslendingar amast við trúðum
allt frá því að hirðskáldin fornu
urðu að keppa við þá um hylli
konunga og ortu um þá níðvísur
í þeim tilgangi að stökkva þeim
á braut. Trúðleikurinn er nefni-
lega gömul list. Og hann hefur
ávallt borist að sunnan — frá
löndum þar hægt er að leika úti
og njóta listar undir heitri sól.
Þetta er mannleg list sem
höfðar til lífsgleðinnar; en
einnig til tilfinninganna. Því
trúðurinn er jafnan í afkáraleik
sínum ímynd umkomuleysis og
klaufaskapar.
Skemmtun og list getur farið
saman, það held ég hafi ekki
farið milli mála þetta kvöld með
Armand Miehe og fólki hans.
Siglufjörður
frá 1. október hefur Matthías Jóhannsson tekiö aö sér
umboö fyrir Morgunblaðiö á Siglufiröi.
Verksmiðjuútsala
að Skúlagötu 26
Herrabuxur, dömubuxur, barnabuxur, skyrtur, náttföt,
peysur og fl.
Drengjabuxur frá kr. 1900.
Smekkflauelsbuxur frá kr. 2000
Bútar í miklu úrvali, flauelsefni, gallabuxnaefni,
twillefni, kakhiefni, köflótt efni og f.l.