Morgunblaðið - 06.10.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
Rögnvaldur Sigurjónsson;
Tónleikar í
I>jóðleikhúsinu
RÖGNVALDUR Sigurjóns-
son, píanóleikari, heldur
einleikstónleika í Þjóðleik-
húsinu á sunnudaginn.
RiÍKnvaldur SÍKurjónsson
Tónleikarnir eru haldnir í
boði Þjóðleikhússins, en
listamaðurinn á sextugs-
afmæli um þessar mundir.
Rögnvaldur hélt fyrstu opinberu
tónleika sína aðeins 18 ára að aldri
og hefur síðan haldið fjölda
tónleika hér heima og erlendis.
Eftir að hann kom frá framhalds-
námi í Bandaríkjunum árið 1945
hóf hann kennslu við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og hefur
kennt þar síðan. Hann er nú
yfirkennari í framhaldsdeild
skólans, en undanfarin ár hefur
Rögnvaldur lítið komið fram
opinberlega.
A efnisskrá tónleikanna á
sunnudag eru þessi verk: Fantasía
í C-moll eftir W.A. Mozart, Sónata
í H-moll eftir Franz Liszt,
Bergeuse op. 57 og Fantasía í
F-moll op. 49 eftir Fr. Chopin,
fjórar prelúdíur eftir Claude
Debussy og Þriðja sónatan eftir
Sergei Prókoffíeff.
12 tónlistarmenn á
tónleikum á í safirði
RAGNAR II. Ragnar skólastjóri
Tónlistarskólans á Isafirði varð
áttra'ður 28. september s.l. Af því
tilefni hafa ýmsir vinir hans og
yelunnarar. hér í Reykjavík og á
ísafirði. ákveðið að efna til
tónleika honum til heiðurs. á
ísafirði. n.k. laugardag. hinn 7.
október. Tónleikarnir verða í
Alþýðuhúsinu. ísafirði. kl. 8.30. Á
efnisskránni verða. að ósk
aímælisbarnsins eingöngu ís-
lensk kammerverk og sönglög
eldri og yngri.
Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari og Halldór Har-
aldsson píanóleikari mu u leika
Systurnar í Garðshorni eftir Jón
Nordal, og er það æskuverk, sem
ekki hefur heyrst lengi.
Þá leikur Anna Áslatig Ragnars-
dóttir píanósónötu eftir Leif
Þórarinsson, og síðan munu Ruth
Magnússon og Jónas Ingimundar-
Leiðrétting
I grein Gísla Jónssonar mennta-
skóiakennara, Tekið í streng með
Sveini, sem birtist í blaðinu í gær,
féll niður orðið „vinstri" í kafla
þar sem fjallað var um hófskött-
unarstefnu Viðreisnarstjórnarinn-
ar. Rétt er málsgreinin þannig:
„Alla tíð Viðreisnarstjórnarinnar
var fylgt hófsköttunarstefnu. Að
sjálfsögðu snerist allt á verri veg í
tíð vinstri stjórnarinnar, og í
Endurreisnarstjórn Geirs Hall-
grímssonar tókst ekki nema að
litlu leyti að lagfæra það, sem fyrr
hafði aflagast. Þó voru á síðasta
alþingi samþykkt ný skattalög,
sem horfa til verulegra bóta, ef til
framkvæmda koma.“
son flytja sönglögin Um ástina og
dauðann eftir Jón Þórarinsson.
Fluttu þau verkið seinast á
Listahátíðinni í júní s.l.
Seinasta verkið fyrir hlé er Four
better or worse eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, en það flytja
Jósep Magnússon, á flautu, Gunn-
ar Egilson á klarinett og Pétur
Þorvaldsson á selló, auk höfundar,
sem Ieikur á píanó.
Eftir hlé verður flutt Fremur
hvítt en himinblátt eftir Atla
Heimi Sveinsson fyrir klarinett
(Gunnar Egilson), selló (Pétur
Þorvaldsson) og píanó (Halldór
Haraldsson) og er það frumflutn-
ingur verksins á Islandi.
Þá koma fjögur sönglög eftir
Jakob Hallgrímsson, við ljóð eftir
Davíð Stefánsson og Halldór
Laxness, sem Ruth Magnússon og
Jónas Ingimundarson flytja.
Þar næst verður frumflutt nýtt
verk eftir Sigurð Egil Garðarsson,
Úr dagbók hafmeyjunnar, og
flytja það séra Gunnar Björnsson í
Bolungavík og Sigríður Ragnars-
dóttir, Anna Áslaug Ragnarsdóttir
flytur Sónötu fyrir píanó eftir
Jónas Tómasson.
Seinasta verkið á efnisskránni
er Fjögur lög eftir Hjálmar H.
Ragnars við ljóð Stefáns Harðar
Grímssonar. Verkið er samið nú í
haúst og er þetta því frumflutn-
ingur þess. Ruth Magnússon syng-
ur og með henni leika Jósep
Magnússon (flauta), Pétur Þor-
valdsson (selló) og Jónas Ingi-
mundarson (píanó).
Fimm höfundanna, þeir Leifur
Þórarinsson, Jakob Hallgrímsson,
Sigurður Egill Garðarsson, Jónas
Tómasson og Hjálmar Ragnarsson
hafa allir starfað sem kennarar
við Tónlistarskólann á Isafirði.
Forráðamenn Brimhorgar. sem flytur inn Daihatsu> Jóhann Jóhannsson (t.h.) og Sigtryggur
Ilelgason. Ljósm. Emilfs.
Kynna nýjan bil frá Daihatsu
DAIIIATSU-umboðið á íslandi.
Brimborg hí„ kynnir um þess-
ar mundir nýja gerð Daihatsu
Charade 1000. en hún kom á
markað í Japan nokkru fyrir
síðustu áramót og var kjörin
hifreið ársins 1977 þar í landi.
Innflutningur á Daihatsu-hfl-
um til Islands hófst fyrir rúmu
ári og hafa alls verið fluttir inn
um 150 bflar af þeirri gerð að
sögn forráðamanna Brimborg-
ar hf. og nú er komin til
landsins fyrsta sendingin af
nýja hflnum. 45 bflar. og eru
þegar flestir bflanna pantaðir.
Verð þeirra nú sögðu þeir vera
um 3.1—3,3 m. kr. Dai-
hatsu-verksmiðjurnar sögðu er
Daihatsu Charade var kynntur
fyrst að lögð hefði verið til
grundvallar við hönnun bflsins
sú hugsun að framleiða bfl
fyrir þá er vildu eignast
einfaldan. sterkan. en spar-
neytinn bfl. sem gæti þó leyst af
hendi öll verkefni stærri bfla
með stærri vél.
Daihatsu Charade 1000, sem
er skráður 5 manna er tæpir 3,5
m að lengd, 1,51 á breidd og 1,35
á hæð. Hann vegur 660 kg, er
framhjóladrifinn, vélin þriggja
strokka, vatnskæld fjórgengis-
vél sem framleiðir 55 DIN
hestöfl við 5500 snúninga, en
vélin er 993 cc. Hún liggur
þversum í vélarrýminu, en með
yfirliggjandi kambási og búin
jaínvægisöxli. Daihatsu telur
vél þessa framtíðarlausn þar
sem vinnsla og eldsneytiseyðsla
er hagstæðust þegar 330 cc eru
við hvern strokk.
Brimborg sýnir um helgina
bílana í sýningarsal í Ármúla 23
en þar er umboðið, varahluta-
þjónustan og verkstæðið til
húsa.
Fyrsta frímerkja-
uppboð haustsins
Á morgun, laugardag,
heldur Hlekkur sf. annað
frímerkjauppboð sitt í ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða
og hefst það kl. 13.30.
Uppboðsefnið verður til
sýnis á uppboðsstað kl.
10—11.30 en áður hafði
mönnum gefizt kostur á að
skoða það sl. laugardag.
Eins og á fyrsta uppboði Hlekks
í maí sl. er á þessu uppboði margt
mjög áhugavert efni. Úppboðsskrá
félagsins er mjög vönduð og engu
lakari að útliti og öllum frágangi
en almennt gerist erlendis. Eru
birtar myndir af margvíslegu
frímerkjaefni, einkum þó umslög-
um og bréfspjöldum. Er það að
vonum, þar sem söfnun þessara
hluta hefur mjög færzt í vöxt á
síðari árum. Þá er söfnun margs
konar stimpla orðin snar þáttur í
frímerkjasöfnun, og sér þess vel
merki á þessu uppboði. Eru hér
nokkrir skemmtilegir kórónu-
stimplar og margir svonefndir
tölustimplar. Þá hefur söfnun
fjórblokka einnig verið allalmenn,
enda eru margar slíkar á
uppboðinu.
Ekki er unnt að greina nákvæm-
lega frá uppboðsefninu hér enda er
líklegt, að safnarar hafi almennt
þegar kynnt sér það, þar sem
uppboðsskráin er löngu komin út
og hefur fengizt í frímerkja-
verzlunum.
Töluvert er af erlendu efni á
þessu uppboði. Er ekki ósennilegt,
að það fari vaxandi á næstu
uppboðum, þar sem erlendir safn-
arar eru farnir að kynnast
uppboðum Hlekks sf. og senda
tilboð sín með góðum fyrirvara.
Samkv. uppboðsskrá verður
næsta uppboð félagsins 2. febrúar
n.k. á sama stað.
Athugasemd við ummæli
Sigurðar Pálssonar
Árleg perusala Lionsklúbbs Haínarfjarðar fer fram í dag, föstudag 6. október, og
á morgun, laugardag. Öllum ágóða er varið til uppbyggingar á heimili
þroskaheftra í Hafnarfirði, sem myndin er af.
Fjögurra dálka frétt um sam-
komur Billy Grahams í Neskirkju
birtist í Morgunblaðinu í gær.
Sigurður Pálsson, formaður
KFÚM, sem segir myndsegui-
handssamkomurnar hafa verið
uppörvun og hvatning, drepur
Iftillega á grein undirritaðs, scm
birtist í Þjóðviljanum sl.
þriðjudag.
Um þá grein segir Sigurður m.a.:
„þar ægir saman misskilningi, sem
virðist stafa af takmarkaðri mála-
kunnáttu, rangtúlkunum, útúr-
snúningum og hálfsannleika, auk
þess sem er rétt lýst.“ Orðum
sínum til staðfestingar segir hann
blaðamann hafa ruglað saman
orðunum „closing circus“ og
„closed service." Ekki þorir blaða-
maður að leggja sál sína að veði að
hann hafi heyrt þessi orð rétt, en
ef rangt var með farið, biður hann
áhangendur Billy Grahams vel-
virðingar á rangtúlkun sinni.
Sigurður segir hins vegar að í
endursögn minni á formála Evie
Tornquist sé „ekki heil brú, eins og
þeir vita sem voru í Neskirkju og
skildu það sem fram fór.“ Undir-
ritaður hefur verið búsettur sl. 9
ár í Skandinavíu, þar af rúm 6 ár í
Svíþjóð, og telur sig fullkomlega
færan um að skilja rétta sænsku.
Miss Tornquist talaði þokkalega
sænsku en bjagaða eins og von er,
þar sem hún er fædd og uppalin í
Guðs eigin landi.' Hún beygði t.d.
sögnina að „vera“ í lh. pt. sem
„vært“ (norska) í stað „varit" sem
er rétt sænska. Ég lýsi mig
reiðubúinn að horfa á upptökuna
með Sigurði Pálssyni hvenær sem
er til að standa við endursögn
mína á orðum Evie Tornquists.
Þá minnist Sigurður á mynda-
texta einn, sem fylgdi greininni í
Þjóðviljanum, þar sem stendur að
kirkjugestir hafi fúslega látið fé af
liendi til styrktar Billy Graham.
Þarna telur Sigurður að rangt sé
farið með staðreyndir, þar sem
hvorki Billy né samtök hans hafi
borið fjárhagslegan hagnað af
fyrirtækinu. Það hlýtur hins vegar
að vera formanni KFUM fyllilega
ljóst, að þótt fjárhagslegur ágóði
komi hvergi fram, og þó að
peningar þessir hafi verið notaðir
til greiðslu kostnaðar við samkom-
ur í Neskirkju, þá hefur hver sá
kirkjugestur, sem lagt hefur pen-
inga í gulu plastföturnar, lýst yfir
fjárhagslegum stuðningi sínum við
krossfarir Billy Graham. Þess
vegna stendur myndtextinn full-
komlega undir sér.
Ingólfur Margeirsson,
blaðamaður.
Sálumessa í
Landakotskirkju
Á MORGUN, laugardag, syngur
biskup kaþólskra, dr. Hinrik
Frehen, sálumessu fyrir Jóhannes
Pál páfa í Dómkirkju Krists
Konungs, Landakoti. Athöfnin
hefst kl. 2 síðd.