Morgunblaðið - 06.10.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1978
31
<
Ingunn og
Frjálsíþróttkonan góð-
kunna, Ingunn Einarsdótt-
ir, sem keppt heíur undir
merki íþróttafélags
Reykjavíkur (ÍR) frá 1972,
hefur nú ákveðið að snúa
til bernskustöðvanna og
keppir hún því í nafni
Knattspyrnufélags Akur-
eyrar (KA) á næsta ári.
Ingunn var skorin upp í
Jón í KA
sumar við brjósklosi en er
á góðum batavegi og byrj-
uð að æfa smávegis á ný.
Ennfremur mun Jón S. Þóröar-
son ganga í raðir akureyrska
frjálsíþróttamanna á næsta ári og
er ekki að efa að þau Ingunn og
Jón verða frjálsíþróttum á Akur-
e.vri mikil lyftistöng. Margir efni-
tegir Akureyringar hafa vakið
ath.vgli fyrir góðan árangur á
frjálsíþróttamótum í sumar.
— ágás.
200 mílna hlaupið féll niður
I>VI miður verður ekkert af 200
mílna hlaupinu. sem áformað var
nú í haust. Jón Guölaugsson
langhlaupari hafði sem kunnugt
er skorað á alla hlaupara heims
eð etja við sig kappi í þessari
vegalengd. Einn hlaupari tók
áskoruninni. Ágúst Ásgeirsson.
ÍR. Pegar til kom. gat Jón ekki
komið því við að hlaupa nú í
haust en mögulegt er að
hlaupið fari fram na<sta haust.
Jón var ákaflega óánægður yfir
því að ekki skyldu fleiri hlauparar
taka áskoruninni. Átti hann von á
því að erlendir hlauparar kæmu til
leiks en sú von brást.
Jón hefur sem kunnugt er
hlaupið 200 míina hlaup áður. í því
hlaupi fann hann upp hinn fræga
hlaupastíl, sem kallaður er hjóla-
stíii.
Watford fyrirbæriö
Það kom auðvitað gífurlega á
óvart, þegar Watford, lið Eltons
Johns í 3. deild, gerði sér lítið fyrir
og vann risana Manchester United
á Old Trafford í fyrrakvöld í 3.
umferð deildarbikarkeppninnar.
En ekki var það einsdæmi, síðast
þegar Watford kom í heimsókn til
United, í FA-bikarieik árið 1969,
náði Watford jafntefli og vann
síðan 2—0 á heimavelli sínum og
vöktu þau úrslit ekki síður athygli
þá heldur en nú.
Kissinger á kaf
í knattspymuna
TILKYNNT var í ga>r að fyrrum
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna Ilenry Kissinger. hefði verið
kjörinn formaður Bandaríska
knattspyrnusambandsins. Þá
kom fram að eitt af meiri háttar
verkefnum hans verður að fá
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu til Bandaríkjanna 1990.
Verdur það erfitt verkefni við að
glíma. Alþjóða knattspyrnusam-
handið hefur ekki samþykkt þær
reglur sem leikið er eftir í
Bandaríkjunum.
Kissinger hefur alltaf verið
mikill áhugamaður um knatt-
spyrnu og mætt sem áhorfandi á
þrjár síðustu HM-keppnir.
— Ég hef alltaf. haft mikinn
áhuga á knattspyrnu og hef ávallt
reynt að koma því við á ferða-
lögum mínum að sjá spennandi
leiki ef þess hefur verið nokkur
kostur sagði Kissinger við frétta-
menn.
Marka-Pele
Landslið Brasih'u hefur leikið 490
leiki allar götur síðan 1914. Liðið
hefur unnið 317 sigra, gert 91
jafntefli og tapað aðeins 82
leikjum. Liðið hefur skorað 1177
mörk en fengið á sig 537. Það er
athyglisvert, að á ferli sínum
skoraði Pele fleiri mörk heldur
en landslið Brasilíu allt aftur til
1914!
Árið 1909 skoraði Pele sitt 1000
mark. Á myndinni hér fyrir ofan
fagnar hann 1221 marki sínu. það
skoraði hann árið 1975 í Dallas
Texas í leik með Cosmos.
Stórar tölur á
Reykjav íkurmótinu
ÞAÐ var sannkölluö haustslátrun í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi, en
þá fóru þar fram þrír leikir í
Reykjavíkurmótinu í handbolta.
Minnsti sigur kvöldsins var 9
marka sigur Vals yfir ÍR-ingum
25—16 (11 — 10). Víkingur lagði
Þrótt með 10 mörkum, 25—15
(12—7) og verstu útreiðina hlaut lið
Leiknis, er það mætti Fram og
tapaði 17—32 (5—15).
Það var sami haustbragurinn á
handboltanum í gærkvöldi og raunar
lítið um leikina að segja.
Leiknir skoraði ekki mark fyrstu
18 mínútur fyrri hálfleiks og þegar
Hafliði Kristinsson loks skoraði úr
víti, var staðan orðin 10—0 fyrir
Fram. Leiknismenn söxuðu enn á
forskot Framara 6 mínútum síðar, er
Hafliði breytti stöðunni úr 13—1 í
13—2! Kæruleysi Framara gerði
Leiknismönnum kleift að skora
nokkuð er á leið, en án Hafliða
Péturssonar vár hvorki haus,
sporður né uggar á liði Leiknis.
Þó fóru fram í Hafnarfirði í
gærkvöldi leikir milli FH og Hauka,
bæði í karla og kvennaflokki.
Konurnar léku um Emblu-bikarinn,
en karlarnir um ESSO-bikarinn. FH
vann báða leikina, 21—19 í karla-
flokki og 17—12 í kvennaflokki.
-gg.
Mark Jóns
frægt orðið!
MARGIR hafa ekki glevmt því.
þegar Jón Þorbjiirnsson. mark-
vörður ÍA. skoraði beint úr
útsparki gegn Víkingum. Diðrik
missti holtann milli fóta sér. Nú
veit alheimur af þessu spaugilega
marki. í hinu víðlesna enska
knattspyrnuriti Shoot er sagt frá
atviki þessu. með þeim orðum að
IIM í Árgentínu hafi sýnt fram á
langskot sem mikilvægan þátt í
sóknarleik. en hér væri full langt
gengið. enda meira en 90 metrar!
Pétur með freistandi
tilboð frá Feyenoord
!
i
i
j
i
i
i
5
1
Fer til Hollands á morgun að líta á aðstæður
Á FIINDI. sem knattspyrnu-
maðurinn Pétur Pétursson átti
með P. Stephan. framkvæmda-
stjóra Feyenoord. á Ilótel Loft-
leiðum í gærkvöldi. hauö fram-
kva'mdastjórinn Pétri atvinnu-
mannasamning hjá Feyenoord.
Pétur mun íhuga þetta tilboð,
sem mun vera mjög freistandi,
eftir því sem Mbl. kemst næst. Fer
Pétur utan til Hollands á morgun
ásamt P. Stephan til þess að líta á
aðstæður hjá Feyenoord. Pétur
sagði í samtli við Mbl. í gærkvöldi,
að hann vildi ekkert um málið
segja að svo stöddu. Telja má
líklegt, að Pétur taki þessu tilboði,
enda freistandi fyrir ungan knatt-
spyrnumann að byrja atvinnu-
mannsferil hjá jafn þekktu knatt-
spyrnuliði og Feyenoord er, en
liðið varð m.a. Evrópumeistari í
knattspyrnu árið 1970.
Karl Þórðarson átti einnig
viðræður við framkvæmdastjóra
Feyenoord í gærkvöldi, en honum
var ekki boðinn samningur að svo
stöddu a.m.k. Fleiri félög hafa
sýnt áhuga á Karli og mun það
vafalaust skýrast á næstunni
hvort hann fer út í atvinnu-
mennsku.
- ss
Lækkuö verö á
þegar stórlækkuöum
veröum á
Stórútsölu
og
verksmiðjuútsölu
Karnabæjar
Belgjagerðarinnar
í kjallara Idnadarmannahússins
ad Hallveigarstíg 1.
D Pólar úlpur, barna- unglinga-, fulloröinna. D Anorakkar barna-,
unglinga, fulloröinna, D Sloppar, D
D Stórkostlegt úrval af alls konar efnum. D Kakhi buxur
D Terylenebuxur D Herraskyrtur D Dömupeysur D Dömudragtir
D Tweed pils D Kjólar D Bolir D Mussur D Flauelsbuxur
D Denimbuxur D Dömublússur D Dömujakkar D Mittisjakkar
D Pils D Herrajakkaföt m. vesti D DressD HerrajakkarD o.m.fl.
o.m.fl.
Þessa útsölu er ekki
hægt að láta fram hjá
sér fara á þessum
síðustu og verstu
tímum.