Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 13
Krakkar — Kennarar Setjist nú niður — með sveittan skallann — og semjið ljóð, sögur, eða eitt- hvað, sem ykkur langar til. Þið getið líka skrifað álit ykkar eða óskir um útvarps- eða sjónvarpsefni — allt er vel þegið. Og myndir eftir ykkur væri mjög gaman að fá. Fullorðna fólkið þarf ekki alltaf að ganga eftir ykkur með að stinga upp á ein- hverju, er það? SÝNIÐNÚ HVAÐÍ YKKURBÝR Einnig viljum við hvetja kennara og aðra til þess að leyfa börnum að vinna að sérstökum verkefnum, sem þau geta e.t.v. sent Barna- og fjölskyldusíðunni. Einn- ig mætti senda okkur fréttir frá skólum ykkar, skóla- eða bekkjarblöð, sem oft eru skemmtileg og frumleg og hvaðeina, sem ykkur fynd- ist eiga við í blaðinu. Látið nú hendur standa fram úr ermum og sendið efnið til. Barna- og f jölskyldusíða Morgunblaðsins Morgunblaðið Aðalstræti 6, 106 Reykjavík Óhamingjusama kóngsdóttirin. Mynd eftir Auðbjörgu. Ríma Nöldur eftir Eddu Óskarsdóttur, 10 ára, Eyrarbakka. Það er svo svalt, ég fæ mér malt. Það er svo kalt og líka salt. Svo er allt svo valt. 7vicj.bj6 rcj po• !dsd Ingibjörg Þorvaldsdóttir, 4 ára, Reykjavík. Rakarinn frægi Einhvern tíma var spurt um rakarann fræga, sem setti upp skilti við rakarastofuna sína og skrifaði stórum stöfum: Eini rakarinn í þorpinu, sem rak- ar það fólk, sem ekki rakar sig sjálft! Og svo stungu menn saman nefjum og spurðu: Rakaði rakarinn sig sjálfur eða var ein- hver annar, sem rakaði hann? Var þá annar rakari í þorpinu, sem rakaði...??? Friðbjörg Gylfadóttir, 6 ára, Akranesi. Bréf frá Svandísi, 8 ára Blessuð og sæl. Kisa er gotin og hán átti fjóra litla kettlinga. Þremur var lógað strax, og einn var látinn lifa eftir. Hann er farinn að drekka mjólk. Einu sinni gleymdum við að hleypa honum út af baðinu og þá sofnaði hann ofan í koppnum!! Ég skrifaði þetta bara að gamni mínu. Bless, Svandís.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.