Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978
63
Ég er ekkert sérlega áfram
um að ræða hér um aðra tegund
mútuþægni. Ég veit vel, að
stundum hefur rithöfundi verið
nær ókleift að fá frí frá öðrum
störfum, þann tíma sem honum
hefur verið úthlutað styrk til
ritstarfa. Þó hefur það nær
alltaf tekist á einn eða annan
hátt. En sá rithöfundur misskil-
ur hlunnindi sín, sem tekur við
styrk til að semja skáldsögu og
er laus frá öðrum störfum, en
leggur sig ekki allan fram við
skáldsöguna. Það er vitaskuld
ekki meiningin, að rithöfundur-
inn þjóti að ritvélinni strax
daginn sem honum er veittur
styrkurinn, og hefji 8 stunda
vinnudag. En það er skylda
hans, þegar honum hefur boðist
tækifæri, að byrja á því að
undirbúa sig andlega. Hann
verður að læra, þroska sjálfan
sig, íhuga. Og skrifa síðan.
Vitanlega bjóðast rithöfundi
sífellt einhver smáviðvik, sem
hann getur haft fyrir átyllu til
að fresta aðalverkinu, og sem
gefa fljótfengið fé í aðra hönd.
Þannig er rithöfundurinn þátt-
takandi í mörgu. Hann ferðast
um landið í fyrirlestarferðum
eða bara til að sýna sig, í hverri
viku kemur hann einhvers
staðar fram, hann tekur þátt í
hringborðsumræðum, skrifar
dálka um eitt og annað, kemur á
hvert námsskeið, tekur þátt og
atast í öllu. Mér finnst, að með
því að drepa þannig kröftum
sínum á dreif, sé hann mútu-
þegi. Tilgangurinn með styrk-
veitingunni er geymdur.
Tilgangurinn er einmitt og
eingöngu að tryggja vinnumögu-
leika. Styrkur er ekkert heiðurs-
skjal, hann er grjótharðir
peningar og sýnir um leiö traust
til styrkþegans. Rithöfundurinn
fær að sýna hæfileika sína,
þegar hann á að setja saman
greinargerð um hvernig hann
hafi notað styrktíma sinn. Von-
andi á hann þá eitthvað eftir af
ímyndunarafli.
Loks bjóða blöðin líka rit-
höfundunum mútur. Hann fær
að vísu tæpast greitt fyrir
viðtöl, en rithöfundurinn gengst
kannski upp við að sjá heila
opnu í blaðinu tíunda erfiðan
uppvöxt hans, eða veikindi.
Frægðin kitlar, tælir og auk
þess fullyrðir útgefandinn að
hún auki sölu bókanna. En með
því að njóta frægðarinnar, eyðir
rithöfundurinn eigin ferli. Rán-
yrkja er rányrkja, en hver hefur
skipað manni að ræna sjálfan
sig tíma og vinnufriði? Eða þá
þegar stund sjálfsfyrirlitningar-
innar rennur upp? En gott e)
hún rennur upp. Því að vinsæld-
ir og frægð eru ekki í neinum
tengslum við bókmenntir
Pasternak hefur sagt, að það st
skömm að því, ef nafn rit-
höfundar sé á allra vörum
Þessar mútur, enn sem fyrr
fáfengilegar, hindra rithöfund-
inn enn í að ná settu marki, þótt
tíminn sé naumur. Eins og ég
áður sagði, og endurtek, verður
rihöfundurinn að læra að velja
og hafna, læra orðaval, efnisval,
lífsbrautarval, án blekkinga, og
taka eftir því í tíma, ef honum
hefur orðið á að velja rangt.
Stundum finnst manni, að
hverjum rithöfundi þyrfti að
kenna að neita, kenna hvernig
eigi að bera fram smáorðið Nei.
Það er ekki auðlært. Því að
manns ófullnægða, veikgeðja,
óörugga sjálf hvetur ákafast til
að þiggja múturnar. Allir
dalirnir sýnast grænir, en vinn-
an verður að vera manns eini
guð.
En er ég nú ekki of ein-
strengingsleg, of kröfuhörð?
Víst er ég einstrengingsleg og
kröfuhörð. Því að aðeins með
kröfuhörku — við sjálfan sig —
getur maðurinn lifað og rit-
höfundurinn skrifað.
Mér liði betur, ef þið tryðuð
því, að ég hafi allt eins verið að
halda þessa prédikun yfir sjálfri
mér.
KrÍKtín bórarinsdóttir MiintyiS
tslenKkaði.
Smátölvusýning
Skýrsutæknifélag íslands mun gangast fyrir
sýningu á smátölvum og tengdum búnaöi dagana
16.—18. janúar 1979. Sýningin veröur opin
almenningi.
Þess er vænzt aö sýnd veröi smátölvukerfi,
borötölvur, tölvur til heimilisnota og örtölvur meö
fjölbreyttum tengibúnaöi og hugbúnaöi.
Innflytjendur eöa eigendur smátölva eru vinsam-
legast beönir aö hafa samband viö Odd
Benediktsson, Pál Jensson eöa Sigfús Björnsson,
allir hjá Háskóla íslands, sími 25088. Stjórnin.
RENAULT12
ódýr sparneytinn lúxusbíll
Stöðugt hækkandi bensínverð
er áhyggjuefni flestra bifreiðaeigenda.
Af þeim sökum hefur athygli manna
beinst að spameytnum bifreiðum.
RENAULT 12 er frekar stór, rúmgóður
en umfram allt, eyðir mjög litlu bensíni.
RENAULT 12 er með framhjóladrif
sem eykur ökuhæfni við allar aðstæður.
KRISTINN GUSNASON Hl.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
Seinni dagur
flóamarkaðar
ársins
í félagsheimili Fáks viö Elliöaár í dag sunnudag
frá kl. 2.
Á boöstólum meóal annars á gjafveröi:
Nýr og glæsilegur fatnaöur, leikföng, lukkupakkar, matvæli, hjónarúm,
s-ófasett, prjónavél, saumavél, barnarúm, stálvaskur, skápar, svefnbekkir,
borö, búnaöur og búsáhöld, plötuspilarar og sjónvörp, notaöur fatnaöur og
ótal margt fleira.
Komiö og gerlö reyfarakaup og styrkið gott málefni í Húsbyggingasjóð FEF.
Stjórnin
leitid ekkí
langt yfir
skammt
Við vekjum alhygli á viðgerða- og þjónustumiðstiið Ma/ila
að Sniiðshöfða 23.
Sérþjálfað sfarfslið og fullkomnasti tækjabúnaður tryggir
1. flokks þjónustu.
Smurstöð oc varahlutaþjónusta á staðnum.
Við minnum Ma/da eigcndur á að áríðandi er
að konia með bílinn í reglubundnar skoðanir
eihsog framleiðandinn malir ineð.
Það Iry ggir lágmarksbilanatiðni
og hámarkscndingu bilsins.
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 s imar: 812 64 og 812 99
Hvererforsenda hinnar háu endursölu
vw og Audi bifreiöa?
Leyndarmál viðhaldsins veturí nánd!
VW ogAudi eigendur fara nærri um það
að regluleg yfirferð, vélarstilUng og
skoðun er forsenda góðrar endingar og
hárrar endursölu.
Jafnvel þótt þeir þurfi minna viðhald
en aðrir bílar að öllu jöfrui.
Hekla býður VW og Audi eigendum
alhliða þjónustu fagmanna á þessu sviði
auk hirmar rómuðu varahlutaþjónustu
og viðgerðaraðstöðu.
Því vekjum við athygti á hinni
hagkvcemu vetrarshoðun okkar auk Ijósa-
stiUingar sem framkvæmd er á staðnum.
Hvort tveggja ráðstafanir sem auka öryggi
og endingu vagnsins í erfiðum vetrarakstri.
u ,ir. gk
■ m IébI mliiarsdm I m
Laugavegi 170-172 Sími 21240 og 15450
Látið sérhæfða fagmenn stilla vagninn inná veturinn!