Morgunblaðið - 08.10.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978
57
félk í
fréttum
+ í flugíréttum. blaði fyrir
starfsmenn Flugleiða, Flugfé-
lags íslands. Luftleiða og Air
Bahama, lesum við undir
fyrirsögninni í dalakofanum
m.a. þettat
Hrafnhildur Óskarsdóttir
starfar í túrabókunum í
farskrá. Þangað berast oft
hinar margvíslegustu beiðnir
um fyrirgreiðslu við okkar
ágætu farþega og verða
starfsfélagar okkar þá oft að
hafa ráð undir rifi hverju, því
að engan viljum við bónleiðan
til búðar senda. Og það var
ekki komið að tómum kofan-
um hjá Höbbu. Matreiðslu-
kona, sem ráðin hafði verið
til aðstoðar sex bandaríkja-
mönnum við laxveiðar í
Flókadalsá í Borgarfirði,
forfallaðist daginn fyrir
komu þeirra og ógerlegt
reyndist að útvega aðra í
staðinn með svo stuttum
fyrirvara.
Eftir nokkra umhugsun
ákvað Habba sjálf að taka á
sig erfiðið og verja til þess
viku af sumarleyfinu. Létti
þeim félögum mjög er þeir
fengu þessa frétt. Hefði eigi
annað flugfélag betur gert í
þjónustu við þá. Ferðin gekk
prýðilega og allir komu
ánægðir heim.
Og á myndinni er Habba í
dalakofanum sínum ásamt
bandarísku veiðimönnunum.
+ Rokkkóngurinn heiðraður. — Stjórn hinnar heimskunnu hótelkeðju — Hilton-hótelanna — hefur
nýlega látið gera styttu af rokkkóngnum Elvis Presley og látið koma henni fyrir í því hóteli, þar sem
hann skemmti lengst af. Er það Las Vegas Hilton. Þar skemmti Presley sálugi í 7 ár. Forseti stjórnar
Ililton-hótelanna bauð ekkju Presleys Pricillu og föður hins látna snillings að skoða styttuna af
Presley. Ilann er auðvitað látinn vera með gítarinn. Faðir Presleys er lengst til hægri, en lengst til
vinstri er forseti Hilton-hótelanna en hann heitir Barry Hilton og á milli þeirra er Pricilla Presley.
+ í TABAS. — Konan hér á
myndinni í allri mann-
þrönginni er Farah keis-
araynja í íran er hún
heimsótti borgina Tabas,
sem var svo mjög í fréttum
fyrir nokkru er hinn ægi-
legi jarðskjálfti lagði borg-
ina í rúst og drap hundruð
bæjarbúa. Iranskeisari fór
og til borgarinnar. Var
honum tekið mjög vinsam-
lega af hinu hrjáða og
hrædda fólki. — Urðu
hermenn að slá hring um
keisarann er manngrúinn
hafði hópast að honum.
Fólkið hafði hrópað til
hans Shashansha! — Kon-
ungur konunganna!
Óska eftir góðri jörð
á Norðurlandi meö bústofni til kaups. Upplýsing-|
ar um stærð og staösetningu sendist á augld.l
Mbl. merkt: „Jörð — 3624“.
Lögmanns- og endurskoðunarstofa
Baldur Guðlaugsson, hdl.
Jón Steinar Gunnlaugsson, hdl.
Sverrir Ingólfsson, viðskiptafræðingur
og löggiltur endurskoðandi.
Húsi Nýja Bíós við Lækjargötu, 5. hæð, sími 29666.
Hef tekið til starfa á ofangreindri
skrifstofu. Tek að mér hvers kyns
lögfræði- og lögmannsstörf.
Baldur Gudlaugsson, hdl.
DEXTEB GOROIn
KVARTETT
Jazztónleikar í Háskólabíói
18. október kl. 21.00
Forsala aögöngumiða er þegar hafin í Fálkanum,
Laugavegi 24.
Ósóttar pantanir verða seldar eftir 10. október.
Ath. númeraðir bekkir.
^S^jflZZVflKflinG
3*>
m
m
»•;
*<
%>\-
Nýtt
I
ww\
r
HÓTEL BOR&
í fararbroddi í hálfa öld
Nýtt
y»\r«
m
m
m
HADEGINU
HRAÐBORÐIÐ
sett mörgum smárétt-
um, heitum rétti, ost-
um, ávöxtum og
ábæti. — Allt á einu
veröi. Einnig erum viö
meö nýjan sérrétta-
seðil meö fjölbreytt-
um og glæsilegum
réttum.
Takið börnin meö
Síðdegis
k>:=
y><
*>:;
k>;;
y>i
*>
æi:
5.
kökur
á hlaðborði, vöfflur meö
Fjölskyldukaffi kl. 3—
Kaffi, súkkulaði og
rjóma o.fl.
Diskótekiö Dísa
kynnir og leikur danstónlist fyrir börn í kaffitímanum.
Afar og ömmur, sýniö börnunum hvar þiö dönsuðuð hér
áöur fyrr.
Um kvöldið Diskótekið Dísa
kynnir fjölbreytta danstónlist, t.d. gömlu dansana,
rokkiö og nýjustu popplögin kl. 9—1.
Ljósashow.
Leikhúsgestir byrjið ánægjulega leikhúsferð með
kvöldverði hjá okkur og er þið hafið kvatt Skáld-Rósu
og Dóttir bakarans og Son skóarans þá Ijúkið þið
ánægjukvöldi með því að fá ykkur snúning meö DÍSU.
Verið velkomin.
Umhverfið er notalegt. Njótiö góðrar helgar með okkur.
Hótel Borg
=;<*
í