Morgunblaðið - 13.10.1978, Síða 1
32 SIÐUR
232. tbl. 65. árg. 13. OKTÓBER1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samkomulagi
verður hraðað
Washington, 12. október. Reuter.
VIÐRÆÐUR ísraels <>K Esyptalands um friðarsamninK hófust í dag «g
ísraelski utanríkisráðherrann Moshe Dayan ok egypzki landvarnaráð-
herrann Kamel Hassan Ali hershöfðingi sögðu báðir, að þeir mundu
reyna að komast að samkomulaKÍ um drög að samningi eins fljótt og þeir
gætu.
Viðra“ður þeirra hófust eftir stutta athöfn í Hvíta húsinu þar sem
Carter forseti skoraði á Jórdaníumenn og aðra Araba að taka þátt í
friðartilraununum.
Utanríkisráðherra ísraels Moshe Dayan og landvarnaráðherra
Egyptalands Kamel Hassan Ali hershöfðingi, heilsast við setningu
friðarviðræðnanna í Washington og Carter forseti klappar.
Bandaríski talsmaðurinn George
Sherman sagði að andrúmsloftið í
Blair House þar sem ísraelsku og
ogypzku fulltrúarnir búa væri að
allra dómi „gott og jákvætt, alúð-
legt og vinsamlegt". Þannig var iíka
andrúmsloftið við athöfnina í Hvíta
húsinu þar sem Carter forseti sagði
við fulltrúana: „Þjóðir heims
treysta á ykkur.“
Samningsaðilar urðu ásáttir um
dagskrá viðræðnanna og svo virðist
Minníhlutastjóm
mynduð í Svípjóð
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
í Stokkhólmi. Önnu Bjarnadóttur.
í gærkvöldi.
EINNAR viku stjórnarkreppa Svía
Icystist í kvöld með því að Henry
Allard. forseti þingsins, fól Ola
Ullstcn að mynda minnihlutastjórn
þjóðarflokksins eins.
Sósíaldemókratar ræddust við í
allan dag en komust ioks að þeirri
niðurstöðu að veita stjórn Ullstens
hlutleysi. Á morgun mun þingið
greiða atkvæði um útnefningu
Ullstens sem forsætisráðherra, en
slík atkvæðagreiðsla er skyld sam-
kvæmt stjórnarskrárbreytingunni
Sarkis
sendir
herinn
Beirút. 12. október. AP. Reuter.
ELIAS Sarkis, forseti Líbanons,
kom í dag úr ferðalagi til sex
Arabaríkja og hófst strax handa
um að hrinda í framkvæmd öryggis-
áætlun scm á að draga úr átökum
Sýrlendinga og kristinna manna.
í samræmi við áætlunina sóttu 500
líbanskir hermenn inn í tvö úthverfi
kristinna manna sem eru umkringd
sýrlenzkum hermönnum arabíska
friðargæzluliðsins og skriðdrekum
þeirra. Þar eiga þeir að taka við
öryggisgæzlu og tilgangurinn er sá
að draga úr möguleikum á átökum
við Sýrlendinga.
Sarkis sagði við komuna að hann
væri vongóður um að martröð
fjögurra ára ófriðar í Líbanon væri
senn á enda. En mikil spenna var
enn í Beirút í dag á fimmta degi
ótryggs vopnahlés vegna skothríðar
frá leyniskyttum.
Hafez Al-Assad, forseti Sýrlands,
sagði eftir viðræður hans og Sarkis
að það væri skylda allra Araba að
hjálpa Líbönum en tók fram að
kristnir menn yrðu að fylkja sér um
Sarkis.
Hægriforinginn Camille Chamoun
varaði við nýju borgarastríði þar
sem sveitir úr Frelsisfylkingu Pale-
stínu hefðu verið sendar til Beirút.
frá 1974. Sósíaldemókratar og
Miðflokkurinn munu sitja hjá við
þá atkvæðagreiðslu. en Hægri
flokkurinn og flokkur vinstri
manna og kommúnista munu
greiða atkvæði gegn útnefning-
unni.
Afstaða flokkannna tveggja veitir
stjórn Þjóðarflokksins þann meiri-
hluta sem reynt hefur verið að ná
síðastliðna viku. Þjóðarflokkurinn er
minnsti borgaralegi flokkurinn með
aðeins 39 fulltrúa á þingi af 349 eða
rúm 7%.
Palme sagði eftir fund sósíaldemó-
krata að hann vildi ekki bera ábyrgð
á þvi að haldið yrði áfram að grafa
undan stjórnmálaforystunni í land-
inu, að sögn AP.
Hann kvaðst líta á stjórn Ullstens
sem „bráðabirgðastjórn eingöngu"
og sagði að hún mundi aðeins sitja
fram að næstu þingkosningum sem
eiga að fara fram 18 september á
næsta ári. Hann kvaðst gera ráð
fyrir sigri sósíaldemókrata í
kosningunum, en 44 ára stjórn
þeirra lauk 1976.
í stjórnmálakarpi því sem staðið
hefur síðan stjórn Thorbjörn Fálld-
ins féll hefur Ullsten lagzt gegn
stjórnarsamvinnu með fyrrverandi
samstarfsflokkum Þjóðarflokksins.
Þannig komust sósíaldemókratar í
lykilaðstöðu og Palme notaði sér
stöðuna í valdataflinu til að auka
klofning borgaraflokkanna.
Ullsten sagði eftir tilnefninguna
að meginmarkmiðið yrði að móta
stefnu í orkumálum sem nyti stuðn-
ings meirihluta þingsins. Hann er 47
ára og hefur verið leiðtogi Þjóðar-
flokksins í hálft ár. Hann var
aðstoðarforsætisráðherra í stjórn
Fálldins og fór með aðstoð við erlend
ríki.
sem viðræðunum ljúki fyrr en að
tveimur eða þremur vikum liðnum
eins og spáð hefur verið. Cyrus
Vance flýtti fundi sem hann ætlaði
að halda með israelsku sendinefnd-
inni og síðan ætlaði hann að tala við
þá egypzku.
Sherman talsmaður sagði að
Bandaríkjamenn mundu taka þátt í
öllum stigum viðræðnanna og veita
samningsaðilum eins skjóta aðstoð
og þeir gætu til að komast að
samkomulagi.
Forsetinn hafði áður sagt að
aðstoð Bandaríkjamanna væri fá-
anleg og „þið getið treyst á
persónulega hlutdeild rnína".
Bæði forsetinn og Ali hershöfð-
ingi hvöttu aðra Araba til að taka
þátt í tilraunum til að koma á
samkomulagi um víðtækan friðar-
samning í Miðausturlöndum.
„Á ný bjóðum við Jórdaníumönn-
um, íbúum vesturbakka Jórdanár og
Gaza og öðrum sem eru fúsir að
grípa þetta tækifæri til að koma til
liðs við okkur í leit okkar að friði,“
sagði forsetinn.
„Hinn valkosturinn er að láta
reka á reiðanum, sjálfhelda, fjand-
skapur og ef til vill stríð," bætti
hann við.
Fiskvinnslufólki
sagt upp 1 Noregi
Frá fréttaritara Mbl. í Ósló í gær.
RÚMLEGA 1000 starfsmönnum
fiskvinnslufyrirtækja í Norð-
ur-Noregi hefur verið sagt upp
vinnu vegna skorts á hráefni. Lftil
veiði hcfur verið hjá togurunum og
fiskibátaflotinn er að miklu leyti
bundinn við bryggju.
Fjöldi þeirra sem hefur verið sagt
upp er um það bil fjórðungur allra
starfsmanna fiskiðnaðarins í Norð-
ur-Noregi og hætta er á að talan
hækki. Harðast úti hafa líklega orðið
Vesterálen og Lófót, en verulega
hefur verið dregið úr afköstum
hinna stóru fiskvinnslustöðva
Findus í Hammerfest og Fi-No-Tro í
Honningsvág.
Aflabresturinn kemur fram í
miklum halla á rekstri togaraflotans
og mörg útgerðarfyrirtæki hafa
tekið þann kostinn að láta bátana
liggja við bryggju í von um að úr
rætist. En við þetta versnar afkoma
sjávarútvegsins.
„Innrás”
í Uganda
Nairobi. 12. október. Reuter.
ÚTVARPII) í Uganda sagði í
dag að hcrdeild frá Tanzaníu
hefði gert innrás í landið í nótt
og að hardagar geisuðu í land-
inu.
Útvarpið sagði að Tanzaníu-
menn sæktu í átt til bæjanna
Mbarara og Lyantonde vestan
við Viktoríuvatn og að barizt
væri 20 km innan landamæra
Uganda. bví var haldið fram að
Tanzaníumenn hcfðu valdið
manntjóni og eignatjóni með
vélbyssum. gagnskriðdreka-
vopnum og stórskotaliði.
I Dar-es-Salaam vísaði tals-
maður Tanzaníustjórnar frétt-
inni á bug og sagði að hún væri
„vitleysa“.
Jafnframt biðu 150 Banda-
ríkjamenn sem eru búsettir í
Uganda frétta af refsiaðgerðum
sem Amin forseti hefur hótað að
grípa til gegn banni Carters
Bandaríkjaforseta við viðskiptum
við Uganda.
Amin sagði í gær að hann
mundi bráðlega taka róttæka og
alvarlega ákvörðun um Banda-
ríkjamenúina í kjölfar ákvörðun-
ar Carters.
I Washington sögðu bandarísk-
ir embættismenn að þeir fylgdust
náið með ástandinu í Uganda.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hefur verið haft samband
við sendiráð Uganda í Washing-
ton og vestur-þýzka sendiráðið í
Kampala sem gætir hagsmuna
Bandaríkjanna í Uganda.
Flestir Bandaríkjamenn í Ug-
anda eru trúboðar. Carter forseti
ákvað að stöðva viðskiptin vegna
mannréttindabrota í Uganda.
Smith fylg jandi
ráðstef nu allra
Washington, 12. október
AP — Reuter
IAN SMITII forsætisráðherra Rhó-
desíu. sagði í dag að hann setti
engin fyrirfram skilyrði fyrir
N óbelsverðlaun f yrir
aðf erðir gegn krabba
Stokkhólmi, 12. október. AP. Reuter.
TVEIR bandarískir prófessorar og einn svissneskur
fcngu í dag Nóbelsverðlaunin í læknisfræði fyrir
uppgötvanir á nýjum efnahvötum og nýjar aðferðir
til að beita þeim.
Bandarfsku prófessorarnir Daniel Nathans og
Ilamilton O. Smith eru báðir frá John Hopkins-há-
skóla í Baltimore, Maryland. en svissneski prófessor-
inn, Werncr Aber, er frá Basel.
Karolinska-stofnunin í Stokkhólmi sem veitti þeim
verðlaunin sagði að uppgötvanir þeirra veittu nýja
innsýn í möguleika á því að koma í veg fyrir og lækna
krabbamein, vansköpun og erfðasjúkdóma.
Peter Reichard, prófessor við stofnunina, sagði að
valið hefði verið auðvelt á þessu sviði þar sem
verðlaunahafarnir sköruðu framúr á sínu sviði.
Smith og Nathans voru hins vegar furðu lostnir og
sögðu þegar samstarfsmenn þeirra samfögnuðu þeim
að þeir hefðu aldrei búizt við því að fá verðlaunin.
Reichard sagði að í krabbameinsrannsóknum væri
hægt með aðferðum verðlaunahafanna að bera kennsl
á gen í veirusellu sem ylli því að æxli myndaðist.
Á sviði svokallaðra erfðafræðilegra skurðaðgerða
gera uppgötvanir þeirra á nýjum efnahvötum að
verkum að beita má þeim eins og skurðhnífum sem
skera í gegn kjarnsýruna, undirstöðu alls lífs.
þátttöku í ráðstefnu allra aðila
Rhódesíu-deilunnar.
En Smith sagði einnig að hann
gæti ekki fallizt á skilyrði sem hann
sagði að Bandaríkin settu fyrir
slíkri ráðstefnu.
Hann sagði fréttamönnum að
loknum fundi með fulltrúum utan-
ríkismálanefndar öldungadeildar-
innar að hann vonaði að frjálsar
kosningar gætu fljótlega farið fram
og hann hefði alls ekkert á móti
alþjóðlegu eftirliti.
Fulltrúar í nefndinni höfðu eftir
Smith að Cyrus Vance utanríkisráð-
herra hefði verið ilia að sér um
afstöðu hans og ekki skilið að hann
væri fús til þátttöku i ráðstefnu allra
aðila ef engin fyrirfram skilyrði
væru sett.
Fimm daga heimsókn Smiths er að
ljúka og áhugi Bandaríkjamanna á
heimsókninni hefur minnkað óðum.
Blöðin í Washingtonsegja jkkert um
það sem fram fór þegar Smith og
séra Ndabaningi Sithole komu fram í
blaðamannaklúbbnum í gærkvöldi
en birta viðtöl við hvítan stjórnar-
andstæðing frá Rhódesíu, Allan
Savory.