Morgunblaðið - 14.11.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞRÖTTABLAÐI
260. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Refsiaðgerðir
gegn S-Afríku?
New York, 13. nóv. AP, Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna skoraði í dag á
stjórn Suður-Afríku að af-
lýsa þegar boðuðum kosn-
ingum í Suðvestur-Afríku,
Namibíu, en eiga ella á
hættu efnahagsiegar refsi-
aðgerðir á vegum samtak-
anna. Ályktun um þetta
efni var samþykkt í dag í
Öryggisráðinu með 10 sam-
hljóða atkvæðum, en
fulitrúar Bandaríkjanna,
Israel vill
norska olíu
Frá fráttaritara Mbl.
í Ósló í gær.
ÍSRAELSMENN hafa sent
Norðmönnum óformleg til-
mæli um að fá að kaupa olíu úr
Norðursjó vegna erfiðleika á
að fá nógu mikla olíu sökum
olíuverkfallsins í Iran.
Nokkur vandkvæði eru á því
að Norðmenn geti uppfyllt ósk
ísraelsmanna um kaup á
norskri olíu. Olían sem Norð-
menn fá úr Norðursjó fullnægir
olíuþörfum þeirra sjálfra en
lítið umfram það. Einkafyrir-
tæki sem taka þátt í vinnslunni
selja mestan hluta olíunnar og
norsk stjórnvöld hafa ekki
áhrif á þau.
Bretlands, Kanada,
V-Þýzkaiands og Frakk-
lands sátu hjá. Segir í
ályktuninni að stjórn Suð-
ur-Afríku beri að fallast á
ráðagerðir Sameinuðu
þjóðanna um kosningar á
vegum samtakanna síðar
meir.
Tillagan um þetta efni var borin
fram af fulltrúum ýmissa Asíu- og
Afríkuþjóða, en naut einnig stuðn-
ings Kína, Sovétríkjanna og
Tékkóslóvakíu.
Kurt Waldheim framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna var
veittur frestur til 25. nóvember að
gefa ráðinu skýrslu um fram-
kvæmd ályktunarinnar.
Viðræður í Washington — Frá fundi Vance utanríkisráðherra Bandaríkjanna með
þeim Dayan utanríkisráðherra og Weizman varnarmálaráðherra ísraels fyrir
skemmstu. Nú er talið útlit fyrir að samningaviðræður Egypta og ísraelsmanna um
frið milli þessara tveggja gömlu fjandþjóða séu að fara út um þúfur.
Slitnar upp,úr viðræðum
Egypta og Israelsmanna?
Washington, Kaíró, Jerusalem,
13. nóvember. AP, Reuter.
CARTER Bandaríkja-
forseti og starfsmenn
bandarísku utanríkisþjón-
ustunnar voru í dag önnum
kafnir við að reyna að
Læknir skot-
inn í Mílanó
Mflanó. 13. nóv. AP. Reuter
ÍTALSKIR hryðjuverkamenn réðust í dag á fangelsis-
lækni í Mflanó og særðu hann alvarlega er þeir skutu af
stuttu færi í fætur hans. Læknirinn, dr. Mario Marchetti,
er yfirlæknir í fangelsi því í Mflanó sem hýst hefur suma
höfuðleiðtoga rauðu herdeildanna.
Árásin á Marchetti og morðið á
saksóknara á Suður-ítaliu í fyrri
viku virðast vísbending um að
hryðjuverkamenn í landinu séu á
ný að sækja í sig veðrið, en
nokkurt lát hefur verið á póli-
tískum ofbeldisverkum í landinu
um skeið eftir morðið á Aldo Moro
fyrrur forsætisráðherra.
Hópur sem kallar sig „árásar-
hóp kommúnista" lýsti sig ábyrg-
an fyrir ódæðinu í Mílanó, en
hópur þessi hefur ekki fyrr komið
fram á sjónarsviðið. Hryðjuverka-
mennirnir náðust ekki, en lögregl-
an leitar þeirra nú ákaft.
blása lífi í samningavið-
ræður Egypta og ísraels-
manna, sem í dag virtust
um það bil að fara út um
þúfur. Fréttir bárust frá
Egyptalandi þess efnis að
Sadat hefði ákveðið að
kalla heim sendinefnd sína
á fundunum í Washington
og slíta viðræðunum, en
þær voru bornar til baka af
opinberri hálfu í Kaíró í
dag og egypzki forsætis-
ráðherrann Mustapha
Khali sagði að viðræðurn-
ar gengju þokkalega.
Begin forsætisráðherra Israels
kom í dag heim til lands síns eftir
opinbera heimsókn til Kanada og
viðkomu í Bandaríkjunum á heim-
leið, þar sem hann átti m.a.
viðræður við Vance utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Sagði Begin
við heimkomuna að stjórn sín
mundi nú fjalla um nýjar tillögur
Bandaríkjamanna og Egypta um
það á hvern hátt leysa mætti
ágreininginn um það hvort og
hvernig tengja eigi tvíhliða friðar-
samninga Egypta og Israelsmanna
við framtið Palestínumanna á
Vesturbakka Jórdanár. Begin vildi
ekki láta uppi hver sín eigin
afstæða væri til þessara tillagna.
I Kaíró lét háttsettur embættis-
maður hafa eftir sér, að ekki væri
útilokað að Sadat sliti viðræðun-
um úr því hvorki gengi né ræki og
Israelsmenn væru jafn óbilgjarnir
og raun bæri vitni.
Kosningum frest-
að í Rhodesíu?
Salishury, 13. nóvember. Reuter. AP.
NÝIR erfiðleikar í stjórn-
arsamstarfinu í Rhodesíu
virðast nú yfirvofandi, en
bráðabirgðastjórnin þar
mun væntanlega taka um
það ákvörðun á þriðjudag,
hvort reyna eigi að koma á
Kafbátafloti Sovét-
ríkjanna vex stórum
London, 13. nóvember. Reuter.
SOVÉTRÍKIN munu um
miðjan næsta áratug
hafa yfir að ráða 300
kafbátum, flestum bún-
um kjarnorkuvopnum, að
því er brezkur flotafor
ingi skýrði frá í dag.
Sovétríkin eiga í dag um
200 kafbáta. Foringinn,
Graham Rhys-Jones,
skýrði frá þessu í fram-
haldi af ráðagerðum
brezka sjóhersins um að
taka í notkun sérstaka
tegund af þyrlum sem
ætlaðar eru til hernaðar
gegn kafbátum og fyrir
hugað er að hafi aðsetur
um borð í skipum á hafi
úti.
Flotaforinginn sagði að hinir
nýju kafbátar Sovétmanna
yrðu hraðskreiðari, og búnir
öflugri vopnum en þeir sem nú
eru í notkun og muni geta verið
„veruleg ógnun við afnot okkar
af hafinu“.
meirihlutastjórn blökku-
manna fyrir áramót og
efna til kosninga í desem-
ber eins og ætlunin hefur
verið eða draga það eitt-
hvað fram á næsta ár.
Muzorewa biskup, en hann
nýtur mests fylgis blökkumanna-
leiðtoganna þriggja, sem stjórnina
mynduðu ásamt Ian Smith forsæt-
isráðherra, sagði um helgina að
voðinn væri vís ef frestað yrði
valdatöku blökkumanna. Hin ein-
arða afstaða biskupsins í þessu
efni hefur vakið upp orðróm um að
hann kunni að segja af sér út af
þessu atriði, ef frestun verður ofan
á, en ýmislegt er talið benda til
þess að Smith og öðrum ráðherr-
um þyki margt að vanbúnaði því
að blökkumenn fái völdin um
áramót.
Margir þeirra sem málum eru
kunnugir í Rhodesíu telja ófram-
kvæmanlegt að ætla að boða til
kosninga í landinu í næsta mánuði
vegna stríðsins sem þar geisar og
færist stöðugt í aukana og einnig
vegna þess að ný stjórnarskrá um
meirihlutastjórn blökkumanna
hefur enn ekki verið gefin út, eins
og þó var ætlunin fyrir nokkru.
Um helgina gerðu skæruliðar
árás á heimili hvítrar fjölskyldu i
útjaðri Salisbury og er það í fyrsta
sinn sem slík árás er gerð svo
nálægt borginni. Var ráðist á
húsið með eldflaugum og vélbyss-
um. Enginn beið bana, en öldruð
kona sem var meðal ibúa, er sögð
hafa særzt alvarlega.
Hollending-
arbanna
þorskveiði
Haag. 13. nóvember.
Reuter.
HOLLENZKA stjórnin ákvað í
dag að banna allar frekari
þorskveiðar hollenzkra skipa í
Norðursjó það sem eftir er af
árinu. Astæðan er sú, að
hollenzkir sjómenn hafa þegar
veitt meir en þau 22100 tonn.
sem kvóti þeirra til þessara
veiða heimilar þéim í ár.
Bannið kemur til fram-
kvæmda n.k. laugardag.