Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.11.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBJÍR 1978 19 snúa sér beint til ráðherra, í litlu þjóðfélagi af okkar gerð. Starf blaðafulltrúa er og eðli málsins samkvaemt tvíþætt: að koma upplýsingum á framfæri — og koma í veg fyrir „óhentuga" upplýsingamiðlun. Þetta þekkja allir fjölmiðlamenn. Upplýsinga- streymi um fjölmiðla út í þjóðlífið er nauðsynlegt. Það á einfaldlega að vera hægt að tryggja með því, auk þess sambands sem nú er nýtt, að ráðherrar haldi einn blaða- mannafund í mánuði hverjum. Það er ekki ofætlun að fara fram á slíkt. Þá geta þeir komið á framfæri því, er þeir telja þörf á, og fréttamenn spurst fyrir um annað, er þeir telja ekki nægilegar upplýsingar fyrirliggjandi um. Þetta er mín skoðun, sagði Eiður Guðnason, en hún gengur í engu á ótvíræða hæfni þess manns, sem hér um ræðir, enda er hann persónulega ekki á dagskrá, heldur þörf eða ekki þörf tiltekins starfs og meðferð ráðningar í það. Pólitískir loftfimleikar Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) líkti ræðu forsætisráðherra við pólitíska loftfimleika. Hann hefði dansað snyrtilega umhverfis veru- leika, sem hann hafi búið sér til sjálfur. Þakka beri þó að forsætis- ráðherra hafi staðfest gagnrýni sína sl. þriðjudag á rangtúlkun fjármálaráðherra á eðli þessa starfs. Fjármálaráðherra hafi líkt því við starf aðstoðarmanns ráð- herra. Ég hélt því fram að þetta væri fast embættisstarf. Það hefur forsætisráðherra nú staðfest. Fyrst forsætisráðherra vék sér- staklega að nútímalegum starfs- háttum vil ég árétta, að eðlilegra hefði verið að starf þetta hefði verið auglýst og allir hefðu átt jafnan kost þess að sækja um það. Ekki fyrir ráðningarnefnd ríkisins Tómas Árnason, fjármála- ráðherra, sagði að starf blaðafull- trúa og aðstoðarmanns ráðherra ættu í því samlíkingu, að bæði studdust við ákvæði í lögum og þyrftu ekki að fara fyrir ráðn- ingarnefnd ríkisins. Starfsmanna- skrá ríkisins Pálmi Jónsson (S) vék að því að forsætisráðherra hefði talið starf blaðafulltrúa löghelgað. Það hafi því ekki þurft að fara fyrir ráðningarnefnd né fjárveitinga- nefnd. Ekki skal ég deila við ráðherra um þetta efni. Hins vegar er rétt að vekja athygli á því að fjárveitinganefnd ríkis fær í hendur „Starfsmannaskrá ríkis- ins“, sem stjórnarráð gefur út, og nefndin styðst við í störfum sínum. Samkvæmt starfsmanna- skrá þessa árs (1978) er talið að fullráðið sé í allar löghelgaðar stöður hjá forsætisráðuneytinu, þ.e. engin staða talin þar auð. Sé einhver misskilningur hér á ferð, varðandi þetta tiltekna starf, af hálfu nefndarinnar, á hann rætur í upplýsingum sem henni eru látnar í té af stjórnarráðinu í þessu riti. Brýningar forsætisráðherra í garð fjárveitingarnefndar hafi og verið miður viðeigandi. Stjórnin læri af deilum þessum Gunnlaugur Stcfánsson (A) sagði umræður utan dagskrár oftar en hitt árangurslitlar. Þær leystu aldrei vanda, þó að vakið gætu athygli á tilteknum málum. Hann taldi embætti blaðafulltrúa nauðsynlegt og árnaði Magnúsi Torfa Ólafssyni góðs í því starfi. Hitt er annað mál, sagði G.St., að ráðherrar hefðu mátt hafa nánari samráð í þessu máli, þannig að einn heyri það ekki fyrst í fjölmiðlum, hvað annar geri. Stjórnarflokkarnir gætu því lært það af þessú máli að hafa sam- starfi á gæfulegri hátt — á því er og brýn nauðsyn. Hafsteinn Aðalsteins- son sigraði í haustrallinu — 26 hófu keppnina en 19 luku SIGURVEGARAR í Haustralli Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur um helgina voru Hafsteinn Aðalsteins- son og Magnús Pálsson sem óku BMW 320 árg. 77, en alls voru 28 bflar skráðir til keppninnar. 26 komu til leiks og 19 luku keppni og sagði Alexander H. Bridde sem átti sæti í keppnisstjórn að sér virtust menn hafa verið ánægðir með gang keppninnar, og hún hefði tekizt vel. I öðru sæti urðu Árni Bjarna- son og Sigurbjörn Björnsson á Lada 1200, Jóhann Hlöðversson og Jóhann Sæberg voru í 3. sæti, en þeir óku Escort, og Sigurður Grétarsson og Þorvaldur Guð- mundsson höfnuðu í 4. sæti á Eseort. Alexander sagði að mikil áherzla hefði verið lögð á öryggi í þessari keppni eins og reyndar öðrum á vegum klúbbsins, og væru allir bílar útbúnir velti- grind, slökkvitækjum, sjúkra- kössum og ökumenn með hjálma og öryggisbelti. Þá sagðist Alexander vilja leiðrétta þann misskilning, sem oft hefði orðið vart, að rall væri kappakstur. Leiðinni væri skipt niður milli ferjuleiða og sérleiða og á sérleiðum væri gefinn upp hærri meðalhraði en á ferjuleiðum, en aldrei væri gefinn upp hærri meðathraði en leyfður hámarks- hraði væri. Alexander sagði ekki ráðið hvenær næsta keppni færi fram, en stefnt væri að þremur á ári. Hafsteinn Aðalsteinsson sagði að keppnin hefði verið erfið og skemmtileg, en hann keppti nú í fjórða sinn, og þakkaði sigurinn góðri sam- vinnu bíls og ökumanns. Góður afli þegar viðrar LOÐNUAFLINN á sumar- og haustvertíðinni er nú orðinn liðlega 400 þúsund tonn og enn sem fyrr er Sigurður RE afla- hæsta skipið. Vciði var góð í lok síðustu viku og aðfararnótt sunnudags, en síðan hefur ekki verið veiðiveður. Eftirtalin skip hafa tilkynnt um afla síðan á föstudagskvöldi Föstudagur: Loftur Baldvinsson 770. Laugardagur: Súlan 660, Rauðs- ey 500, Hákon 630, Arnarnes 350, Sæbjörg 200, Ljósfari 200, Seley 250, Guðmundur 600, Jón Kjart- ansson 550. Sunnudagur: Stapavík 200, Jón Finnsson 180, Albert 230, Ársæll 250, Sigurður 600, Gjafar 100, Gullberg 170, Sæberg 100, Freyja 30, Skírnir 20. Hornafjarðar- bátaríbasli Hornafirdi 13. nóvember. MJÖG góð síldveiði var síðast- liðna nótt og von er á mikilli sfld hingað í dag. Á laugardag var vitlaust veður hér og bátar lágu undir áföllum. Tveir Hornafjarð- abátanna skemmdust á leið 1 gegnum ósinn. Æskan fékk á sig sjó og brotnaði lunningin á kafla og skemmdir urðu á dekki Hvanneyjar. — Jens. Neyðarskipu- lagningu að ljúka í síð- ustu héruðunum .UNNIÐ er að því hjá Almanna- varnaráði ríkisins að ljúka við neyðarskipulag fyrir Vestfirði, Skagafjarðarsýslu, Húnavatns- sýslur og Strandir. Er þetta verk nú langt komið og er því lýkur verður allt landið orðið skipulagt ef til neyðarástands kemur í hinum ýmsu héruðum. * sem kostar AÐEINS 170 kr. lítrinn og fœst ískalt og freyðandi í afgreiðslu okkar í Þverholti. HF. OLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON Þverholti 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.