Morgunblaðið - 14.11.1978, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
„Eins og Hótel Esja hefði
lagst á bakið á mér“
MAÐUR er nefndur Skúli óskarsson, lyftingamaður.
Hann vann það frábæra afrek fyrir tæpum hálfum
mánuði að hreppa silfurverðlaun í sínum þyngdarflokki
á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum, sem fram fór í
Turku í Finnlandi. Mbl. leit við í Jakabóli æfingahúsi KR
í Laugardal, rétt fyrir helgina og spjallaði dálítið við
Skúla. Fyrst var Skúli spurður þeirrar klassísku
spurningar, hvort hann hefði átt von á slíkum árangri
Stefndi að 3ja sætinu
— Ég stefndi auðvitað að því að
komast á pallinn og gerði mér
nokkrar vonir um 3. sætið, en í
fyrstu greininni, hnébeygjunni féll
Bandaríkjamaður Gaugler úr
keppninni. Við höfðum talið hann
sigurstranglegastan, þannig að nú
var kominn möguleiki á a.m.k.
öðru sætinu.
Nú báðum við Skúla að rekja
gang keppninnar í stuttu máli, en
þá kom babb í bátinn. Einbeitni
Skúla er nefnilega svo gífurleg
meðan á keppni stendur, að hann
man ekkert hvað fram hefur farið
að keppni lokinni. Ólafur Sigur-
geirsson formaður Lyftingasam-
bandsins var þarna nærstaddur og
Skúli brá hart við og sótti hann,
enda horfði Ólafur á keppnina og
þurfti ekki að einbeita sér eins og
Skúli. Ólafur segir nú frá:
— Fyrst var keppt í hnébeygju
og lyfti Skúli þar fyrst 280 kg.
Bretinn Peter Fiore lyfti þá 287,5
kg, en Skúli svaraði þvi með 295
kg lyftu, sem jafnfrmt er Norður-
landamet. Þá var komið að bekk-
pressunni, en þar stóð Skúli
mótherjum sínum nokkuð að baki,
lyfti 130 kg á sama tíma og Fiore
lyfti 180 kg og Finninn sem
hafnaði Í3. sæti lyfti 175 kg. Segja
má, að í þessari grein hafi Fiore
tryggt sér sigurinn.
Bekkpressan eyðilagði
Blm. greip fram í og spurði
Skúla hvernig stæði á frekar
slökum árangri í bekkpressunni.
„Gömul meiðsl," sagði Skúli, „þau
há mér ennþá, þótt gömul séu, en
ég held þó að þetta sé að lagast."
Ólafur heldur áfram: — Það
voru allir búnir með sínar lyftur
þegar Skúli byrjaði í lokagrein-
inni, sem réttstöðulyfta. Hann
lyfti fyrst 282,5 kg og tryggði
þannig örugglega 3. sætið. Finninn
Lyftlngar
,Þeir ætla að borga mér stórfé ef ég set heimsmet“
var þá í öðru sætinu, en Skúli
vippaði því næst upp 297,5 kg og
skaust þar með fram fyrir Finn-
ann. Skúli hafði því lyft samtals
722,5 kg og auk þess sem það
tryggði honum annað sætið í
keppninni er það nýtt Norður-
landamet í samanlögðu. Keþpnin
var allan tímann jöfn og mjög
spennandi enda voru keppendurnir
sífellt að skjótast hver fram fyrir
Næstum heimsmet
Eins og komið hefur fram í
fréttum, gerði Skúli aukatilraun
við nýtt heimsmet í réttstöðulyftu,
310 kg. Þyngdin fór upp, en tveir
af þremur dómurum dæmdu lyft-
una ógilda.
Hvers vegna? spurði Mbl.: — Ég
veit það ekki, dómarar í lyftingum
þurfa ekki að greina frá ástæðum
sínum. Ætli ég hafi ekki hallað
eitthvað undan hlassinu, enda var
það mjög þungt svaraði Skúli.
Attu von á því Skúli, að heimsmet-
ið fari upp löglega á næstunni?
— Ég á von á því, já, ég ætla að
reyna við það á Evrópumeistara-
mótinu í kraftlyftingum, sem fram
fer í Svíþjóð í mars næstkomandi.
Ef það fer ekki upp, þá er alltaf
Norðurlanda mótið i september á
næsta ári.
Nú ætlar þú að keppa í sjón-
varpssal á næstunni, hefurðu ekki
hug á að rífa upp nýtt heimsmet
við það tækifæri? — Það myndi
ekki gilda, því að met sem þessi
fást ekki staðfest nema alþjóðlegir
dómarar séu fyrir hendi og því er
ekki að heilsa hér á Islandi, svona
met verður að setja á alþjóðlegum
mótum, eigi þau að vera viður-
kennd. Það skiptir í sjálfu sér ekki
máli, ég er í toppformi nú og ég
verð það einnig í Svíþjóð í mars.
Með tilboð frá sænsku
félagi
Blm. breytti nú dálítið um
umræðuefni og spurði Skúla hvort
hann hefði í hyggju, eða hvort
honum hefði boðist að æfa hjá
erlendum félögum eins og félagi
hans, Gústaf Agnarsson, sem
ætlar að keppa fyrir sænskt félag.
— Ekki á ég von á því, þó hef ég
fengið tilboð frá sænsku félagi um
að keppa fyrir hönd þess á móti í
október næsta ár. Þeir ætla að
—borga mér 250 Bandaríkjadali
ef ég set heimsmet.
Ætlarðu að fara? „Því ekki
„Það var eins og Hótel Esja
Myndir. — gg»
það?“ svaraði Skúli, „Maður verð-
ur að sjá til, en boðið er freist-
andi.“
Stálbuxur
Skúli vakti athygli síðastliðið
vor, þegar hann mætti til keppni í
nokkurs konar stálbuxum. Blm.
spurði hann hvort fleiri hefðu
tekið upp þessa nýjung, sem Skúli
hefði riðið á vaðið með, og hvort
þeir lyftu þyngri byrðum klæddir
brókum þessum.
— Jú, það er dálítið léttara að
lyfta, og ég er alls ekki sá eini sem
nota þennan fatnað, fleiri hafa
tekið upp á því.
„Þetta er skítlétt“
Til að slá botninn í þetta samtal,
spurði blm. Skúla um búkhljóðin
sem ganga frá ýmsum lyftinga-
mönnum, ekki síst honum sjálfum,
þegar verið er að rífa upp lóðin,
hvað það hefði að segja fyrir þá, ef
einhverra hluta vegna lyftinga-
mönnum yrði bannað að vera með
háreysti um leið og þeir lyftu.
Skúli byrjaði á að segja, að það
myndi aldrei eiga sér stað, en
þetta væri mörgum mjög mikil-
vægt, en þó væri hægt að einbeita
sér á annan hátt. Hvernig? — Ég
veit það ekki, annars geri ég
minna af þessu nú en áður. Þetta
gerist meira inn í höfði mér nú og
ég tala minna þegar ég er að lyfta.
Samt er ég ekki búinn að fullmóta
þessa nýju einbeitingu, sbr. að
þegar ég var að reyna við heims-
metið, tókst mér að einbeita mér
svo rækilega, að ég fann varla
fyrir þyngdinni til að byrja með.
En síðan var eins og öll einbeitnin
væri rifin frá mér og þá var eins
og Hótel Esja hefði lagst á herðar
mér, þá fór ég að kikna undir
byrðinni. Það er líklegasta skýr-
ingin á því að lyftan var dæmd
ógild, sagði Skúli.
Og þetta voru lokaorð Skúla, því
að hann var farin að iða í skinninu
eftir því að byrja að æfa, því að til
þess var hann kominn í Jakaból,
en ekki til þess að ræða við
blaðamann, þó að hann tæki
honum vel.
Það verður án efa gaman að
fylgjast með Skúla í keppni á;
næstu mánuðum, hann er svo
nærri því að setja heimsmet, að
það hlýtur að koma fyrr en seinna.
Það verður líka skemmtilegt að
fylgjast með Skúla í lyftingamót-
inu sem fram fer í sjónvarpssal á
næstunni, skemmtilegt vegna þess
sem Skúli segir sjálfur, að hann
hrópi minna á lóðin þegar hann er
að Iyfta, að hann einbeiti sér á
annan hátt.
— gg-