Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 29
V
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
37
Beinar greiðslur til bænda:
Engar upplýsingar til
um hvernig með fjár-
muni bænda er valsað
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson er hann
fylgdi þingsályktunartillögu sinni úr hlaði
er um úrbaetur í fjármálum
bændastéttarinnar.
Steingrímur Ilermannsson (F)
landbúnaðarráðherra sagði að
h'ann efaðist ekki um þann megin-
tilgang flutningsmanna tillögunn-
ar, að bændur fengju greidd laun
sín eins og aðrar stéttir. Sá væri
einmitt tilgangurinn með þeirri
grein samstarfsyfirlýsingarinnar
er Eyjólfur Konráð hefði gert að
umtalsefni. Hins vegar sagðist
ráðherrann vera þeirrar skoðunar,
að málið væri talsvert flóknara
heldur en tillagan gerði ráð fyrir,
og fram hefði komið í ræðu
flutningsmanns.
Um niðurgreiðslur og út-
• flutningsbætur, sem renna frá
ríkissjóði, kvaðst ráðherrann vilja
segja eftirfarandi:
„Þær eru greiddar til Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins og skv.
framvísuðum reikningum yfir það
Þingsályktunartillaga Eyjólfs
Konráðs Jónssonar (S) um beinar
greiðslur til bænda kom til um-
ræðu á sameinuðu þingi á fimmtu-
daginn.
I upphafi ræðu sinnar sagði
Eyjólfur, að tillagan væri nánast
eins og gamall kunningi, enda
hefði málið oft verið til umræðu á
Alþingi. Fyrst hefði hann flutt
málið einn árið 1976. Á síðasta
þingi hefði hann síðan flutt það
ásamt Jóhanni Hafstein, en nú
væru meðflutningsmenn háttvirtir
þingmenn Jónas Árnason og Sig-
hvatur Björgvinsson.
Þá sagði Eyjólfur, að meiri hluti
allsherjarnefndar hefði mælt með
samþykkt tillögunnar á síðast
liðnu vori, en þá hefði ekki unnist
tími til að afgreiða hana á þingi.
Tillagan nú sé því flutt óbreytt,
eins og meiri hluti allsherjar-
nefndar gekk frá henni. Síðan
sagði Eyjólfur:
„Eins og tillaga þessi ber með
sér er það vilji flutningsmanna, að
gjörbreyting verði annarsvegar
gerð á fyrirkomulagi rekstrar og
afurðalána landbúnaðarins, þann-
ig að bændur fái þá fjármuni, sem
þeim eru ætlaðir, í hendur, en þeir
staðnæmist ekki um lengri eða
skemmri tíma í verzlunar- og
afurðasölufyrirtækjum og hins-
vegar, að leiðir verði fundnar til
þess, að útflutningsbætur og
niðurgréiðslur nýtist bændum
betur.
Með lögum nr, 28. frá 1930 eða
fyrir nærfellt hálfri öld var kveðið
svo á, að verkkaup sjómanna og
verkamanna skyldi greiðast í
peningum og innskriftakerfi því,
sem tíðkast hafði, skyldi lokið. Nú
hálfri öld síðar búa bændur hins
vegar víða við það fyrirkomulag,
að þeir fái ekki fjármuni sína í
hendur, og engar upplýsingar fást
um það hvernig með þetta fé er
valsað. Hér er þó ekki um neinar
smáfjárhæðir að ræða. Afurðalán
til landbúnaðarins urðu hæst á
síðastliðnu ári í desembermánuði
eða 12,7 milljarðar og rekstrarlán-
in urðu hæst í október eða 3,3
milljarðar króna.“
Þá beindi Eyjólfur þeirri
spurningu til landbúnaðarráð-
herra, hvort hann gæti gefið
nokkra lýsingu á ferð þeirra
fjármuna er hér um ræddi, um
kerfið. Ef ráðherra hefði svör ekki
á reiðum höndum, þá kvaðst
þingmaðurinn vænta þess að þau
kæmu fram síðar, við umræður um
landbúnaðarmál.
Einnig bað hann landbúnaðar-
ráðherra um svör við því, hvaða
merkingu bæri að leggja í þá
klásúlu samstarfsyfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar, þar sem rætt
magn, sem um er að ræða í sölu og
útflutning hverju sinni, fer í
hendur fjmr. sem metur þær og
ákveður síðan um útborgun. Fram-
leiðsiuráðið greiöir þetta síðan til
hinna ýmsu sölustofnana, sem
hafa framvísað viðkomandi skil-
ríkjum. Þetta er að sjálfsögðu
hægt að fá upplýst stórum nánar
hve tölurnar eru háar frá einum
mánuði til annars og skal ég með
ánægju gera það. Og reyndar vil ég
mótmæla því, sem mér finnst
koma fram í þessari þings-
ályktunartillögu og í ræðu hátt-
virts þingmanns að þarna sé
eitthvað á huldu. Ef hann telur svo
vera, þá bið ég hann að koma
slíkum beiðnum um upplýsingar
til mín og ég vil leyfa mér að lofa
honum því og fullyrða, að þær geta
allar legið á lausu. Það eru þarna
engin leyndarmál, sem ég þekki og
ég hygg að þau muni ekki reynast
svo.“
Páll Pétursson (F) sagðist ætla
að vera stuttorður að þessu sinni,
enda nennti hann nú ekki að tala
gegn þessari tillögu ölludengur, þó
hann hefði alla tíð verið and-
stæðingur hennar; og væri enn,
Ástæðu þessa sagði þingmaðurinn
vera þá, að hann sæi nú fram á, að
vinur sinn, Eyjólfur Konráð Jóns-
son, væri að vinna sigur í málinu.
Því ætlaði hann ekki að berja
höfðinu við steininn öllu lengur,
heldur óska Eyjólfi til hamingju
með þann árangur er hann hefði
náð. Raunar hefði hann nú ekki
staðið einn að málinu nú, því að
Alþýðubandalagsmenn hefðu
gengið í lið með honum, og það
skyldu bændur í landinu muna og
þakka.
Þá minnti Páll á það, að er
allsherjarnefnd hafði málið til
umræðu í fyrra, þá hefðu komið
fram ýmsar neikvæðar undirtekir
við tillöguna, og margir aðilar lýst
sig andvíga henni. Meðal þeirra er
slík svör hefðu gefið, sagði þing-
maðurinn að hefðu verið Lands-
banki íslands, Búnaðarbanki Is-
lands, Búnaðarfélag íslands,
stjórn Stéttarsambands bænda,
Mjólkursamsalan, Sláturfélag
Suðurlands og S.Í.S.
Að lokum sagði þingmaðurinn:
„Ég lít svo á, að það sé illt verk að
reyna að brjóta það kerfi sam-
hjálpar og samvinnu, sem bændur
hafa komið sér upp.“
Að lokinni ræðu Páls Pétursson-
ar var umræðu um málið frestað.
BOK ARSINS
í öllum bókaverzlunum
Hún fjallar um
manninn sjálfan,
vandamál hans og
staöreyndir Iffsins.
Hún fjallar ekki
um þaö sem
fólk sýnist
vera, heldur þaö
sem þaö er.
Áleitin bók
sem knýr á
Sönn bók
og stórfengleg.
DAVID WILKERSON
Sjö ungir drengir i New York eru akærðir fyrir morð á
jafnaidra sínum, sem var kr> ppiingur. Málið vekur feikna
athvgli, sakir mannvonsku og haturs drengjanna, sem
verknaðinn frömdu. Frásagnir og myndir af réttarholdun-
um birtast í flestum dagblöðum og tímaritum.
DAVID WIEKEKSON, ungur sveitaprestur, sítur um
kvöld og flettir tímaritinu LIFE. Þegar hann ser myndir af
þessum ungu sakborningum, fer um hann undarleg tilfinn-
ing. Hann finnur sig knuinn til að fara og hjálpa bessum
unglingum.
NICKY CRUZ er forhertur hofuðpaur afhrotaunglinga i
New York. Hann mætir Davíd WUkersoo og fyllist óseðjandi
hatri á þessum unga sveitapresti.
KRÖSSINN OG HNÍFSBLADID fjallar um stórkostleg-
ustu undur, sem gerast nú á timum. Þúsundir manna og
kvenna finna lausn a vandamalum srnum: Drykkjusýki,
ofnotkun lyf ja, ótta, kvíða, einmanaleika. Öhu þvt, sém veld-
ur óhamingju manna í dag.
KROSSINN ÖG HNÍFSBLADIÐ er metsolubók. sem
komíð hefur ut a 40 tungumálum í meira en 20 000 000 -
tuttugu mílljon - eintökuin.
FAT BOÖNE og DÖN MURRA Y fara með aðaihlutverk í
kvikmvnd, sem gerð var eftir bókinni, og nytur mikilia vin-
sæJda.
fáfnhjélp
fflmhiólfl
HATUNI 4A. SIMI 11000.