Morgunblaðið - 14.11.1978, Page 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
t
Sonur okkar og bróöir,
JÓN INGIINGIMUNDARSON,
Hafnargötu 68, Kaflavík,
lést af slysförum sunnudaginn 12. nóvember.
Ingimundur Jónsson, Steinunn Snjólfadóttir
og systkini.
+ Móðir okkar
KARITAS JÓNSDÓTTIR
Austurbrún 6,
lést á Landakotsspítala 13. nóvember. Synir hinnar lótnu.
t
Eiginmaöur minn,
ÞOROUR EINARSSON,
Dunhaga 15.
andaðist í Landspítalanum 11. nóvember.
Svava Sveinsdóttir.
+
WILLY RASMUSSEN
stórkaupmaóur,
Thorvaldsensvej 13, Kaupmannahöfn
andaðist aö morgni sunnudagsins 12. þ.m.
Aðstandendur.
Faöir minn
POVL CHR. AMMENDRUP
kaupmaður
lézt í Borgarspítalanum sunnudaginn 12. nóvember.
Tage Ammendrup
t
Sonur okkar og bróðir,
ÞORLAKUR BJARNI HALLDÓRSSON,
sem lést af slysförum þann 4. növember veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hans, er vinsamlega bent á Styrktarsjóð Dagsbrúnar.
Else, Halldór Þorláksson
og systkini.
+
HJÖRT'JR L. HANNESSON
Kirkjubraut 50,
Akranesi,
andaðist sunnudaginn 12. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju
laugardaginn 18. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna
Sigríöur Einarsdóttir.
Þorbjörg Teitsdóttir
Borgarhöfh -Minning
„Á snöggu augabragöi af skorið
verður fljótt, lit og blöð niður
lagði, iíf mannlegt endar skjótt."
Þessi orð úr sálmi Hallgríms
Péturssonar komu mér í hug,
þegar ég frétti að kær öldruð
vinkona mín væri látin, svo snöggt
og óvænt var hún kölluð af þessum
heimi 24. júlí síðastliðinn.
Þorbjörg Teitsdóttir, var fædd
að Lambleiksstöðum á Mýrum 29.
ágúst, 1889.
Foreldrar hennar voru hjónin
Sigríður Þórðardóttir bónda í
Flatey Árnasonar og Teitur Gísla-
son bóndi í Slindurholti Teitsson-
ar.
Systkini Þorbjargar er náðu
fullorðinsaldri voru Gísli verka-
maður á Höfn, látinn, Margrét
húsfreyja í Veisu í Fnjóskadal,
látin. Þórður lést á besta aldri og
Guðný húsfreyja á Öngulsstöðum í
Eyjafirði, sem nú ein lifir af
þessum systkinum.
Björg, en svo var hún kölluð af
okkur sem þekktum hana best, fór
frá foreldrum sínum á Lambleiks-
stöðum áður en hún hafði náð
fermingaraldri að Flatey til
Guðrúnar Sigurðardóttur og Jóns
Jónssonar mætra hjóna sem þar
bjuggu þá og lengi síðan, frá þeim
fermdist hún og dvaldi þar einhver
ár eftir fermingu. Síðan lá leiðin
austur að Dilksnesi til Lovísu
Eymundsdóttur og Björns Jóns-
sonar hjá þeim var hún vinnukona
um tíma og síðar í Bjarnanesi hjá
Kristínu Jónsdóttur og séra Bene-
dikt Eyjólfssyni.
Árið 1913 verða þáttaskil í lífi
Bjargar þá kynnist hún manninum
sem átti eftir að verða lífsföru-
nautur hennar í hálfan sjötta tug
ára. Var það Sigurður Gíslason á
Vagnsst. í Suðursveit, hann var
sonur hjónanna þar Halldóru
Skarphéðinsdóttur og Gísla
Sigurðssonar. Voru þau gefin
saman í hjónaband 24. júní 1914. Á
Vagnsstöðum bjuggu þau í sam-
býli við foreldra Sigurðar til 1918
að þau flytja að Króki í Borgar-
höfn.
Þar bjuggu þau til vors 1948, en
þá fluttu þau að Gamlagarði í
Borgarhöfn með sonum sínum
Ragnari og Skafta þar áttu þau
hjón heimili æ síðan, meðan líf
entist. Á Vagnsstöðum fæddust
tvö elstu börn Bjargar og
Sigurðar, Benedikt Kristinn
Gunnar smiður og bóndi í Króki
kvæntur Sigurlaugu Kristjáns-
dóttur frá Einholti, eru synir
þeirra fjórir og Hulda gift Her-
manni Eyjólfssyni Höfn börn
þeirra eru firnrn.
Eftir að Björg og Sigurður
fluttust að Króki eignuðust þau
fjögur börn, Sigríði búsetta í
Reykjavík maður hennar var
Ólafur Hallbjörnsson prentari
hann er látinn, börn þeirra eru
fjögur, Gísli Ragnar lést ungbarn,
Gísli Ragnar bóndi í Gamlagarði
ókvæntur og Skafti Þór sem lést
1956. Sigþór Hermannsson dóttur-
+ Konan mín og móöir okkar,
INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
frá Firði,
er látin. Árelíus Níelsson og börn.
+
Móðir okkar og tengdamóðir
ANNA SIGURBRANDSDÓTTIR,
Vífilsgötu 16,
lést í Landakotsspítala 3. nóvember. Jaröarför hennar fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Ágústína Eggertsdóttir, Gunnar Þjóðólfsson,
Snót Eggertsdóttir, Anton Arnfinnsson.
+ Móöir okkar
ERLÍN JÓNSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. þ.m. kl. 10.30.
Fyrir hönd vandamanna Hrefna Jensen,
Siguröur Jensen, Guörún Klausen.
+
Maðurinn mlnn, faöir, tengdafaðir og afi
ALFREÐ Þ. KRISTINSSON
bakarameistari,
Ásgaröi 155, Reykjavík,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. nóv. kl. 13.30.
Sigurveíg Oddsdóttir,
Margrót Ósklín Alfreiósdóttir, Einar Pilmi Matthíasson,
Lilja B. Alfreiðsdóttir, Guðmundur JEgir Aðalsteinsson,
Haraldur Gunnar Borgfjöró, Eyjólfur K. L. Atfreðsson,
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
TÓMAS TÓMASSON
ölgerðarmaður
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 16. nóvember,
kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afbeöin, en þeim sem vildu minnast hans, er
bent á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Agnes Tómasson,
Tómas Agnar Tómasson, Þórunn Árnadóttir,
Jóhannes Tómasson, Rósa Sveinsdóttir
og barnabörn.
+
Móöir mín, tengdamóöir og amma
GUÐLAUG BJARNADÓTTIR,
Gnoðarvogi 40,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. nóv. kl. 15.
Erlendur Kristjánsson, Kristín Gunnarsdóttir,
Kristján Erlendsson, Erla Margrát Erlendsdóttir.
sonur þeirra hjóna dvaldist mikið
hjá þeim á sínum uppvaxtarárum.
Björg var í meðallagi há, grann-
vaxin og mjög snör í hreyfingum
alla tíð hún var við góða heilsu
alla ævi, enda kom það sér vel, þar
sem Skafti sonur hennar var
heilsu lítill frá frumbernsku og
átti við erfið veikindi að stríða
síðari hluta sinnar stuttu ævi, en
hann var jarðsettur á tuttugasta
og sjötta afmælisdegi sínum.
Lengst af dvaldist hann heima og
naut umönnunar móður sinnar.
Sigurður maður Bjargar lést 16.
september 1968 var hann lengi
búinn að liggja rúmfastur, en hún
veitti honum frábæra aðhlynningu
þótt öldruð væri orðin.
Nú þegar Björg er horfin okkar
jarðnesku sjónum er margs að
minnast og ótal margt að þakka.
Ég minnist hennar og hennar
heimilis allt frá mínum bernsku-
dögum, maðurinn hennar var
föðurbróðir minn, samgangur var
mikill milli Króks og Vagnsstaða.
Haustið 1935 gekk Kíghósta-
faraldur þér í sveit og barst að
Vagnsstöðum, Guðný Valgerður
systir mín fæddist þá í október tók
Björg hana til sín og annaðist
hana með ágætum um tíu vikna
skeið.
Móðir mín minntist þess oft
hversu Björg og dætur hennar
Hulda og Sigríður hefðu hver fyrir
sig verið fljótar að koma að
Vagnsstöðum sér til aðstoðar, ef
þær höfðu hugmynd um að hún
þyrfti hjálpar við. Björg hafði ekki
alltaf úr miklu að miðla á sínum
fyrri búskaparárum, fremur en
flestir aðrir á þeim tímum, en hún
var nægjusöm og glöð og ávallt
mjög gestrisin.
Að Gamlagarði kom ég nokkrum
dögum áður en hún dó, var hún þá
sem alltaf áður strax með hugann
við að koma kaffi og kökum á
borðið, enda var hún hress og
óbuguð andlega, en sjón og heyrn
var tekin að sljóvgast.
Það er mikil hamingja hverju
foreldri þegar aldurinn færist yfir
að vera samvistum við börn sín.
Björg var þeirrar miklu gæfu
aðnjótandi að dveljast með Ragn-
ari syni sínum, sem ætíð sýndi
henni kærleiksríka hlýju og um-
hyggjusemi svo sem best má
teljast, enda mat hún hann mikils
að verðleikum. Björg sýndi mér
ætíð mikinn kærleika og nú að
leiðarlokum hér megin grafar
þakka ég af hjarta alla vináttu
hennar og velgjörðir mér til handa
og bið sál hennar allrar blessunar
á nýjum leiðum.
Halidóra Gunnarsdóttir.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því. að
afmadis- og minningargreinar
verða að herast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði. að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línuhiii.
+
Hjartkær sonur okkar og bróðir,
ÓSKAR GUÐMUNDSSON,
andaöist 3. þessa mánaöar.
Jarðarförin hefur fariö fram.
Kristín Skúladóttir,
Jónas Bjðrnsson
og systkini.