Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 31
1
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
39
Friðjón Stephen-
sen - Minningarorð
Hann fæddist að Meðalholtshjá-
leigu í Arnessýslu 7. desember
1905 og andaðist á Borgarspítalan-
um í Reykjavík laugardaginn 4.
nóvember s.l. Foreldrar hans voru
Magnús Stephensen frá Mýrum,
Álftaveri, og Sesselja Jónsdóttir
frá Berustöðum á Rangárvöllum.
Árið 1946 gekk Friðjón í hjóna-
band með eftirlifandi konu sinni
Önnu Oddsdóttur, sem var fædd og
uppalin á þekktu heimili í vestur-
bænum j Reykjavík. Bjuggu þau
hjónin lengst af á Hagamel 23 í
Reykjavík, að undanskildum fáum
árum, er þau ráku garðyrkjustöð á
Stórásfljóti í Biskupstungum.
Friðjón missti foreldra sína
barnungur og mun það hafa breytt
miklu um hans framtíðardrauma.
Hann vann" sín unglingsár við
hverskonar störf, mest við sjávar-
síðuna, svo sem i Vestmannaeyjum
og í Siglufirði, m.a. við verkstjórn
á síldarpiönum. Síðar sem birgða-
stjóri hjá Sölumiðstöð Hraðfyrsti-
húsanna í Reykjavík og stjórnaði
því fyrirtæki til dauðadags.
Börn þeirra Önnu og Friðjóns
eru, Olafur, sem nú er við nám í
Svíþjóð, og dæturnar Þuríður og
Guðlaug, sem einnig dvelja í
Svíþjóð um þessar mundir.
Þegar góðkunningi okkar Frið-
jóns hringdi mig upp og tilkynnti
mér lát hans, get ég ekki sagt, að
það hafi komið mér á óvart. Mér
var ljóst, að síðustu um það bil tvö
ár æfi sinnar gekk hann ekki heill
til skógar. Hann hafði gengið
undir mikla læknisaðgerö vegna
illkynjaðs sjúkdóms, fengið
nokkra bót en ekki fullkomna
heilsu aftur, svo að sýnilegt var, að
ekki hafði tekist að komast fyrir
rætur rneinsins. Enda darpaðist
heilsan eftir því sem tímar liðu,
þar til svo var komið, að hann tók
sjálfur þá ákvörðun, að enn skyldi
reynt, þótt læknir hans gerði
honum ljóst, að um mikla áhættu
væri að ræða, og það gæti brugðið
til beggjá vona. Þessi ákvörðun
í hádeginu alla daga
”Shawarma„
ísraelskur grillréttur
Borinn fram í brauóhleif,
með sinnepssósu
og salati
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Veitingabúó
Friðjóns lýsir vel skapgerð hans,
því að ekki held ég, að hann hefði
kært sig um að lifa lengi óstarf-
hæfur eða ósjálfbjarga.
Kynni okkar Friðjóns hófust í
Samvinnuskólanum í Reykjavík.
Kannski urðu þau ekki sérstaklega
náin í fyrstu. Skoðanir okkar á
hinum ýmsu málum stönguðust þá
mikið á og hefur það eflaust
einhverju um ráðið, en ekki var
hægt að umgangast hann án þess
að hann vekti athygli. Hann var
hár og grannur, alvörugefinn í
allri framkomu, bráðgáfaður eins
og hann átti ættir til, þögull og
laus við alla framhleypni, en gat
sleppt fram af sér beizlinu á
gleðinnar stund í góðra vina hópi.
Nokkrum árum eftir að námi
lauk i Samvinnuskólanum, lágu
leiðir okkar enn saman og þá fyrst
norður í Siglufirði og síðar í
Keflavík. Má segja, að á þeim
árum hafi kunningsskapur okkar
tengst svo sterkum böndum, að
ekkert gat rofið hann. Á þeim
árum ræddum við margt og mikið
saman og víst er, að eftir því sem
árin liðu, minnkaði skoðana-
ágreiningur að sama skapi.
Ég hefi raunar stundum verið að
velta því fyrir mér, hvernig það
má vera, að þeir skólafélagar
mínir, sem stundum voru mér
fráhverfastir í skoðunum, urðu
síðar á æfinni mínir einlægustu
kunningjar.
Að lokum kveð ég vin minn
Friðjón Stephensen með söknuði.
Og hverju svo sem ég hefi áður
haldið fram, þegar trúmál bar á
góma, vona ég að þegar þar að
kemur, eigi ég eftir að hitta hann
glaðan og reifan, svo að við getum
tekiö upp þráðinn, þar sem að frá
var horfið.
Ég votta frú Önnu Oddsdóttur,
börnum þeirra og allri fjölskyld-
unni samúð mína og tek mér um
leið það bessaleyfi að gera slíkt hið
sama fyrir hönd skólasystkina
okkar allra.
Ólafur E. Einarsson.
Villa í
Gárum
I Gárudálkum í blaðinu á
sunnudag varð meinleg villa, sem
ruglaði merkingu þess sem Gáru-
höfundur vildi segja — stóð ostur í
stað smjörs. Setningin átti að vera
svona: Ofan í einstaklinginn er
reiknaður stór skammtur af
smjöri og kynstur af mjólk, þótt
hann noti kannski aðeins hungur-
lús af smjöri ofan á brauðið sitt
eða jafnvel jurtasmjörlíki og
ávaxtasafa.
Spörum
ekki
ökuljósin
Vorum aö taka upp
stórglœsileg húsgögn í
Lúbvíks 16. stil.
Opiö milli 1(1. T «• « é . , .
2—io e.h. T. Sigurðsson & Co. h.f.
og um helgar. Þinghólsbraut 50, Kópavogi, sími 41195.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
TÓNLEIKAR
í Háskólabíói fimmtudaginn
16. nóv. 1978 kl. 20.30.
Verkefni:
Vivaldi — Concerto grosso.
Honegger — Concertino.
Jón Nordal — Píanókonsert.
Sibelius — Sinfónía no. 1.
Stjórnandi: Karsten Andersen.
Einleikari: Gfsli Magnússon.
Aögöngumiöar í Bókaverslunum Sigfús
ar Eymundssonar og Lárusar Blöndal
viö innganginn.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
ITT Schaub-Lorenz, vestur-þýsku litsjónvarpstækin
eru þekkt fyrir skýra mynd, góöa liti og endingu.
Spyrjiö þá sem eiga ITT litsjónvarpstæki, þeir eru
okkar besta auglýsing.
GELLIR hefur veriö umboösaöili fyrir vestur-þýsk
ITT tæki i meira en áratug, og hefur reynslu i
meöferð þeirra.
Tæknimenn okkar. sem eru menntaöir hjá
framleiöanda i Vestur-Þýskalandi, sjá um viðgeröar-
og stillingaþjónustu.
Bræöraborgarstíg1-Sími 20080- (Gengió inn frá Vesturgötu)