Morgunblaðið - 14.11.1978, Page 36

Morgunblaðið - 14.11.1978, Page 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 Ég var barnakennari hér á árum fyrr. cn taujiarnar þoldu þad okki. Eru litlu nra'nu kallarnir komnir á skerminn? Er nauðsynlejít að lesa af mælunum hcr oft á daic? Það eru kjaftasÖBur í jíangi um þij; oj; trúðinn? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Ekki er nój; að jjeta talið slajji sína og finna ráð til að fjöljja þeim na'jíilejía til að vinna mejíi sitt spil. Einnij; þarf að hafa ákveðna framsýni í laj;i svo komast mcj;i hjá skakkaföllum. sem eftirá likjast meir fljótfærni en j;ctuleysi. Gjafari, vestur, allir á hættu. Norður S. Á754 H. G2 T. G2 L. Á6532 Austur S. 8 H. D973 T. K8754 L. G107 Vestur S. KD10963 H.1085 T. D96 L. 4 Suður S. G2 H. ÁK64 T. Á103 L. KD98 Hvað heldurðu, vinur. Auðvitað er ég og verð alltaf þín! Athyglisverð- ar rannsóknir j— 1 Hér á eftir fjallar bréfritari, sem segist lengi hafa haft hugann við sjóinn án þess að stunda sjómennsku sjálfur, um rannsókn- ir sem gerðar hafa verið á reki gúmbáta og birtar voru niðurstöð- ur um fyrir nokkru: „Sem kunnugt er af fréttum voru gerðar umfangsmiklar rann- sóknir á reki gúmbáta og hafa þær staðið yfir í langan tíma, nokkur ár að mig minnir. Ekki fóru þessar rannsóknir hátt og kannski ekki ástæða til, en niðurstöður þeirra, sem kynntar voru fyrir stuttu, hafa vakið athygli, held ég mér sé óhætt að segja. Þær voru m.a. á þá lund, að gúmbátarnir þola illa slæm veður og hafa menn því e.t.v. fram til þessa ofmetið þá nokkuð. Ekki man ég nákvæmlega hversu mörg vindstig þeir þola, en þau voru ekki mjög mörg, 7—8, áður en þeir taka að rifna og hvolfir þeim við mikinn öldugang. Auðvitað hafa menn nokkra reynslu af dvöl í gúmbátum, þ.e. þeir sem hafa þurft að leita í þá við skipsskaða einhvern, en þessar rannsóknir sem gerðar hafa verið eru hinar fyrstu skipulögðu og því um margt athyglisverðar. Eg vildi því leyfa mér að þakka þeim aðilum, sem hlut áttu að máli fyrir þær og vonandi verða þær til þess að reynt verður að endurbæta þessa báta á einhvern hátt. Nefndin sem stóð að rannsóknunum benti á nokkur atriði, sem gera mætti til aukinna slysavarna á þessu sviði og má gera ráð fyrir að þessar ábendingar verði teknar til gaum- gæfilegrar athugunar af réttum aðilum. Spil þetta kom fyrir í keppni tveggja sveita og á báðum borðum varð suður sagnhafi í þrem gröndum. Eðlilega var útspilið það sama í báðum tilfellum. Vestur spilaði spaðakóng og fékk að eiga slaginn. En þegar spaðadrottning- in kom í næsta slag skildu leiðir. I öðru tilfellinu tók sagnhafi drottninguna með ás og fór að háma í sig iaufslagina — hafði talið sína níu upplögðu slagi; fimm á lauf, ásana þrjá og kóng í hinum litunum. En að því kom, heldur seint, að hann komst að raun um, að hann hafði siglt skipi sínu í strand. Bannsett fjórða laufið á hendinni stíflaði litinn. Lágspilin í borðinu réðu ekki við níuna þegar fimmti laufslagurinn beiö tilbúinn. Og að því kom, að níundi slagurinn dó í borðinu. Sama var hvernig suður barðist um á hæl og hnakka, átta slagir urðu hámark- ið. Einn niður. En á hinu borðinu kom sagnhafi auga á hættu þessa í tíma og gat gert sínar ráðstafanir. Hann gaf einnig spaðadrottninguna og eftir það var ekki hægt að tapa spilinu. Vestur hafði ekkert betra að gera en spila þriðja spaðanum en þá tók sagnhafi á ásinn og lét í hann lauf af hendinni. Síðan rúllaði hann í hvelli upp sínum niu slögum og sveit hans fékk drjúgan slurk stiga fyrir. JOL MAIGRETS • • Framhaldssaga eftir Georges Simenon. Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði. 33 litlu telpuna og er orðin svo óróleg. I»að var farið að dimma. Fjölskyldurnar í nágrenninu höfðu verið að tínast heim. Ljós hafði verið kveikt í flestum íbúðanna. Enn þóttist hann sjá skuggamynd fröken Doncoeur fyrir innan gluggatjaldið. Maigret hafði cnn ekki sett á sig hálsbindi. En á meðan hann beið komu hins bflstjórans ákvað hann að Ijúka þvf. Ilann kaliaði til Lucasari — Ertu ekki svangur Lucas? Viltu ekki fá þér bita? Nei þökk fyrir, húsbóndi. Ég er nýbúinn að horða fylli mína af smurðu brauði. Mig langar aðeins í eitt þegar við förum út. Stórt glas af bjór. Bilstjórinn kom klukkan rúmlcga sex. Skömmu síðar sneri hann glaseygur aftur heim til Maigrets. — Hún er snotrari í morgun- slopp. það verð ég að segja. sagði hann loðmæltur. — Hún bað mig að koma inn og hún spurði mig hver hefði sent mig. Af því að ég vissi ekki hverju ég átti að svara sagði ég bara að gamni mínu að ég kæmi frá leikhússtjóranum í Folies Berg- ere. Þá varð hún trítilóð. En hún er snotur hnáta, það er ekki hægt að segja annað. Ég veit ekki hvort þér hafið tekið eftir því, en hún hefur skrambi góðar lappir... Það tók nokkurn tíma að losna við hann og heppnaðist ekki fyrr en hann hafði hvolft í sig vænni lögg af líkjör. — Hvað ætlið þér að gera núna húsbóndi? Það var sjaldan að Lucas hafði séð Maigret búa sig jafn vel undir að aðhafast eitthvað og nú. Það var með ólfkindum að í hlut ætti bara ein lítilsmeg- andi húsfrú? Haldið þér að hún sé mjög á varðbergi? — Ekki vafi á því. — Og eftir hverju bíðum við nú? — Eftir því að Torrence hringi í mig. Að því kom einnig. Allt gekk áfram eins og eftir Ijómandi skipulegri áætíun. — Taskan er hér. Ilún er næstum tóm. Eins og þér gátuð yður til var hún ekki afhent nema gegn sérstakri lieimild. Hvað viðkemur afgrciðslu- manninum sem var við störf í morgun þá hefur mér verið sagt að hann búi í La Varenne Saint Hilairc. — Sæktu hann þangað. — Á ég að koma með hann til yðar. Kannski var bjórlöngunin farin að segja alvarlega til sín hjá Maigret. — Nei, komdu með hann í húsið á móti. Þriðju haíð. Hjá frú Martin. Ég verð þar þegar þú kemur. Hann greip stóra frakkann sinn og tróð í pípu sína og sagði við Lucasi — Kemur þú með? Frú Maigret kom á eftir honum til að spyrja hvenær hann vildi að kvöldverðurinn yrði tilbúinn. Hann hikaði en brosti_ svo við. — Á sama tíma og venjulega. Ekki var. það beinh'nis góðs viti. — Þú verður að gæta barns- ins vel! kallaði •'ún á eftir þeim niður stigann. 5. kafli Þegar klukkan var tíu um kvöldið voru þeir enn engu nær. Sjálfsagt var cnginn í húsinu sofnaður nema Colette sem loks hafði tckizt að sofna. Faðir hennar sat við rúmstokk hennar. Klukkan hálfátta kom Torr ence ásamt afgreiðslumann- inum. Hann var einnig eilítið undir áhrifum áfengis eins og scinni bflstjórinn. — Víst er það hún. Ég sé hana fyrir mér þegar hún tók við kvittuninni. Hún lagði hana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.