Morgunblaðið - 14.11.1978, Síða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978
Þetta gerðist
Ungfrú alheimur verður kosin í London á fimmtudag. Hér sjáum við tvær fegurðardísanna, Ásdísi
Loftsdóttur ungfrú ísland t.h. og Elisabeth Klaeboe ungfrú Noregur er þær heimsóttu The tower og
London í gær. — Símamynd AP.
U ngfrú alheimur kosin:
68 fegurdardísir
mættar í slaginn
London, 13. nóvember. Reuter.
FEGURÐARDROTTNINGAR víðs vegar að úr
heiminum eru nú farnar að þyrpast til London til
að taka þátt í keppninni um titilinn ungfrú
alhcimur scm fram fer í London á fimmtudag.
Fegurðardísir frá 68 löndum sátu fund með
blaðamönnum í dag þar sem þær voru kynntar og
myndaðar í bak og fyrir. Það bar helzt til tíðinda
á fundinum að ungfrú Túnis neitaði algjörlega að
láta blaðaljósmyndarana mynda sig i stuttbuxum
og sagði í því sambandi að hún væri ekki mætt til
að láta taka af sér klámmyndir heldur til að sýna
fegurð.
Ungfrúin lét ekki segjast fyrr en henni hafði
verið hótað því að hún yrði rekin úr keppninni.
Veðmangarar voru fljótir að kippa við sér og
veðmálin voru hafin. Helzt var veðjað á ungfrú
Stóra-Bretland og á eftir henni komu svo ungfrú
Mexíkó, ungfrú Ástralía, ungfrú Belgía og ungfrú
Costa Riea.
Herir Sýrlendinga og
íraks undir einn hatt
samnings milli þjóðanna frá lok-
um Bagdadfundar Arababanda-
lagsins. Hann sagði að hugmyndin
meö sameiningunni væri sú að
stofna sterka heild Araba undir
einum og sama hatti. Öllum
Arabaríkjum stæðu dyrnar að
þessu bandalagi opnar ef þau
aðeins hefðu áhuga á að starfa á
þeim grundvelli sem samkomulag-
ið gerir ráð fyrir. Ráðherrann vildi
þó ekki fara nánar út í gerð
samningsins og sagði að hann yrði
kynntur innan tíðar.
Þá kom fram í viðtalinu að ef
Anwar Sadat forseti Egyptalands
undirritaði friðarsamninga við
Israelsmenn, kæmu ráðamenn
annarra ríkja í Arababandalaginu
þegar saman til að ákveða nauð-
s.vnlegar mótaðgerðir, þar á meðal
hvert flytja ætti höfuðstöðvar
bandalagsins, en þær eru nú í
Karíó.
Flugránum fjölgaði
nokkuð á síðasta ári
Genf. 13. nóvember AP
NOKKUR fjölgun varð á
flugránum á síðasta ári sé
tekið mið af sex árum þar á
undan, en þá hafði þeim
fækkað verulega í kjölfar
mjög aukinna öryggis-
krafna, segir í frétt sem
IATA, Alþjóðasamtök flug-
félaga, sendu frá sér í dag.
Alls voru gerðar 29 tilraunir til
flugrána á síðasta ári og heppn-
uðust 4 þeirra en árið á undan
voru gerðar 19 tilraunir til flug-
rána, og var það hæsta tala
tilrauna fra árinu 1970 þegar 60
tilraunir voru gerðar,
Að síðustu er lagt mjög hart að
ríkisstjórnum landa og flugvalla-
yfirvöldum að herða enn frekar
þær miklu varúðarráðstafanir sem
þegar eru í gildi til að koma í veg
fyrir flugrán.
Fundu vopnaverksmiðju
skæruliðahópa mótmæl-
enda.
Vegna málsins voru fjórir
menn handteknir og þeir
ákærðir fyrir að hafa starf-
rækt verksmiðjuna ólög-
lega.
Bolfast. 13. nóvpmhor. Reuter
Norður-írska lögreglan
fann um helgina vopna-
verksmiðju neðanjarðar
rétt utan við Belfast sem
talin er hafa framleitt
litlar vélbyssur fyrir
1977 — Sadat býðst til að
ávarpa ísraelska þingið.
1975 — Marokkó og
Máritanía semja um Spænsku
Sahara.
1973 — Anna prinsessa
giftist Mark Phillips höfuðs-
manni.
1970 — 300.000 farast í fár-
viðri í Austur-Pakist.an.
1965 — Harðir bardagar
byrja á miðhálendi Suður-
Víetnams.
1962 — Jóhannes páfi fyrir-
skipar fyrstu breytingar á
rómverskri messu síðan á
sautjándu öld.
1935 — Filippseyjar fá
heimastjórn og fyrirheit um
sjálfstæði.
1918 — Þýzki flotinn gefst
upp á hafi úti. — Þjóðverjar
gefast upp í Austur-Afríku —
Masaryk kosinn forseti Tékkó-
slóvakíu.
1851 — Birgðaskip Banda-
manna eyðileggjast í fárviðri í
Sevastopol.
1677 — Frakkar taka
Freiburg.
1617 — Karl I af Englandi
aftur handtekinn og fangels-
aður. .
1633 — Bernharð af Sachsen-
Weimar og sænskur her hans
taka Regensburg af Maximillian
af Bæjaralandi.
Afmæli dagsins. Gottfried
Wilhelm von Leibnitz, þýzkur
heimspekingur (1646—1716) —
Jean Paul Friedrich Richter,
þýzkur rithöfundur (1763—1825)
— Jawaharlal Nehru, indversk-
ur stjórnmálaleiðtogi (1889 —
1964) — Kari Bretaprins
(1948—) — Hussein Jórdaníu-
konungur (1935—).
Innlent. Ráðuneyti Bjarna
Benediktssonar tekur við 1963
— Ólafur Thors skipaður dóms-
málaráðherra 1932 — D.
Sigurður Kristjánsson ráðherra
1963 — Tvö hús brenna á
Akureyri 1912 — Sigurður Ara-
son í Árbæ dæmdur til dauða
fyrir að 'rnvrða bónda frillu
sinnar að áeggjan hennar 1704
— Sala á sætum í Dómkirkjunni
ieyfð 1871 — F. Dr. Trausti
Einarsson 1907.
Orð dagsins. Nú á dögum er
ekket ómögulegt nema sumt fólk
— Ónefndur.
Kaupmannahöfn. 13. nóvember AP
Sameining Sýrlands og
íraks er aí verður mun
verða á þeim grundvelli að
rikin munu hafa sameigin:
lega stjórnarskrá og herir
landanna munu verða sam-
einaðir er haft eftir Abdel
Karim Khaddam, utan-
ríkisráðherra Sýrlands, í
útvarpsviðtali í dag.
Utanríkisráðherrann sagði enn-
fremur, að fulltrúar landanna
hefðu unnið sleitulaust að gerð
Teng ræðir við
Lee Kuan Y ew
SinKapore. 13. nóvcmber. Reuter.
Varaforsætisráðherra
Kína, Teng Hsiao-ping,
háttsettasti kínverski em-
bættismaðurinn sem hefur
komið í heimsókn til Singa-
pore, hefur rætt við Lee
Kuan Yew forsætisráð-
herra um árekstra Víet-
nama og Kambódíumanna
og framtíð kínverskra íbúa
Singapore sem eru í
meirihluta.
Kínverjar hafa aldrei haft
stjórnmálasamband við Singapore
sem er síðasti viðkomustaður
Tengs á ferð hans um Suðaust-
ur-Asíu. Hann heimsótti meðal
annars Thailand og Malaysíu í
ferðinni.
Þegar Teng ■ var í Malaysíu
varaði forsætisráðherra landsins,
Datuk Hussein Onn, Teng við
hvers konar afskiptum af innan-
ríkismálum landsins, Kommún-
istaflokkurinn í Malaysíu er bann-
aður og aðhyllist maoisma og
flestir félagar hans eru af kín-
verskum uppruna.
Kista Jó-
hannesar
skírara
fundin?
Kaírú. 13. nóvember AP
Fornleifafræðingar og
munkar hafa fundið lík-
kistu sem þeir segja að
hafi að geyma jarðnesk-
ar leifar Jóhannesar
skírara að sögn blaðsins
A1 Ahram í Kaíró.
Menjarnar fundust í
gömlum helli inni í
klaustri Maqar biskups í
Wadi Natroun, 100 km
norðaustan við Kaíró,
segir blaðið.
Blaðið segir að menjarnar
hafi komið frá Palestínu á
fimmtu öld til Alexandríu og
að þær hafi verið fluttar til
klaustursins 600 árum síðar.
Engin staðfesting hefur enn
fengizt frá egypzku fornleifa-
stofnuninni á því hvort hér sé í
raun og veru um að ra‘ða
jarðneskar leifar Jóhannesar
skírara.
Lee, sem er sjálfur af kínversk-
um ættum eins og, 75% íbúa
Singapore, sagði í veizlu til heiðurs
Teng að framtíð Kínverja í Singa-
pore lægi í Singapore en ekki í
Kína.
Teng lýsti yfir stuðningi við það
takmark Samtaka Suðaust-
ur-Asíuþjóða (Asean) sem Singa-
pore á aðild að að friðlýsa
Suðaustur-Asíu.
Blaðið Sunday Times í Singa-
pore segir að Peking-stjórnin
kunni að skoða Asean sem mót-
vægi gegn áhrifum Víetnama í
þessum heimshluta. I heimsókn-
inni í Thailandi kallaði Teng
Víetnama „skríl Austurlanda".
Tunney
Hnefaleikarinn Gene Tunney,
sem tvívegis sigraði Jack
Dempsey. lézt á miðvikudag í
síðustu viku. áttræður að aldri í
Greenwichsjúkrahúsi í Connecti-
cut.
Tunney vann heimsmeistara-
titilinn af Jack Dempsey 1926 og
dró sig í hlé tveimur árum síðar
án þess að hann væri sigraður.
Dempsey gerði tvær misheppn-
aðar tilraunir til að sigra hann.
Það vakti mikla furðu þcgar
Tunney dró sig í hlé aðeins
þrítugur en hann vann sér inn
tvær milljónir dollara og sá ekki
eftir ákvörðun sinni. Gagnstætt
mörgum öðrum hnefaleikurum
hélzt honum vel á peningum
sínum og hann átti farsælan feril
sem yfirmaður í nokkrum fyrir-
tækjum og bönkum.
Sonur Tunneys er John Tunney
öldungadeildarmaður frá Kali-
forníu.