Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 39

Morgunblaðið - 14.11.1978, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1978 47 Mikil skemmtun var haldin til heiðurs hnefalaikaran- um Joe Louis í Las Vegas á dögunum og margir kunnir íþróttamenn og kvikmyndaleikarar komu fram, þar á meðal Frank Sinatra sem hér sést hjálpa hnefaleikakappanum upp á sviðið. Skothríd við hús Genschers Breti ákærð- ur fyrir eit- urlyfjasmygl í Vestur- Þýzkalandi Aurich. VesturÞýzkalandi. 13. nóvember. Reuter. skaut hann á hann af byssu. Lögrefjlumaðurinn fleygði sér niður og skaut á móti. Maðurinn flúði inn í friðaðan skóg skammt frá, skiptist á tveimur öðrum skotum við lögreglumánninn og komst undan. Hvorugur særðist. Genseher var á þingi Frjálsa demókrataflokksins(FDP) í Mainz þegar þetta gerðist. Engar vís- bendingar liggja fyrir um hvort maðurinn standi í tengslum við vestur-þýzka hryðjuverkamenn. „Við athugum alla möguleika," sagði talsmaðurinn. A flokksþinginu var Genscher endurkjörinn formaður með 336 atkvæðum gegn 32 en 15 sátu hjá. Genscher hefur verið formaður flokksins í fjögur ár og var endurkjörinn með 14 fleiri at- kvæðum nú en þegar hann var endurkjörinn fyrir tveimur árum. l',DP hefur beðið mikið afhroð í tvennum fylkiskosningum á þessu ári og heiðursforseti flokksins, Eilhelm Borm, sagði að flokkurinn yrði að vera leiðandi afl en ekki afl sem væri leitt. Forysta flokksins varð fyrir því áfalli að þingið felldi tillögu um að fjölgað yrði um tvo menn í níu manna framkvæmdastjórn flokks- ins þannig að í henni fengju sæti nýskipaður innanríkisráðherra, Gerhart Baum, og Otto Lambs- dorff efnahagsráðherra. Baum tók við af Werner Maihof- er sem sagði af sér vegna lítils árangurs í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum og Lambs- dorff tók við af Hans Friedrichs sem tók við starfi bankastjóra Dresdner-banka, Júrgen Ponto, sem hryðjuverkamenn myrtu í fyrra. Idi Amin tekur Bonn. 13. nóvember. AP. VESTUR-þýzka lögregan leitaði í dag að manni sem skiptist á skotum við vörð fyrir utan bústað Hans-Dietrich Genscher utan- ríkisráðherra í gærkvöldi og flúði síðan að sögn talsmanns vestur-þýzka ríkissaksóknarans í Bonn. Atburðurinn gerðist skömmu eftir miðnætti þegar lögreglu- maður sem var á verði sá manninn skríðandi í kjarri um tíu metra frá húsi Genschers í úthveríinu Wachtberg- Pech. Þegar lögreglumaðurinn skipaði manninum að koma út úr kjarrinu Hans-Dietrich Genscher vió st jórninni Nairobi. 13. nóvember. Reuter. BRESKUR skipstjóri verður leiddur fyrir rétt hér á morgun, einu ári eftir að þýzk tollyfirvöld handtóku hann með stærsta eiturlyfjafarm sem tekinn hefur verið hér í landi til þessa. Skipstjórinn, Peter Lascelles, á yfir höfði sér ákæru fyrir að reyna að smygla inn í landið 2.8 tonnum af eiturlyfjum, að verðmæti 20 milljónir þýzkra marka, eða jafn- virði 3.3 milljarða íslenzkra króna. Stærstur hluti eiturlyfjanna var heróín en auk eitursins fannst við leit nokkuð af vélbyssum og öörum vopnum. Öll áhöfn skipsins var a sínum tíma handtekin en ekki er búist við því að fyrir rétt komi aðrir en skipstjórinn og yfirvélstjóri skips- ins, en öðrum verði sleppt. Idi Amin forseti Uganda, tók sjálfur við stjórn herliðs sín á vígstöðvunum í dag og Tanzaníumenn gerðu fyrstu gagnsókn sína í landamærastríðinu sem hefur geisað í tvær vikur. Tanzaníumenn tilkynntu í gær, að herlið þeirra hefði hafið meiri háttar gagn- sókn. Nokkrum klukku- stundum áður var haft eftir Ugandamönnum að misheppnuð tilraun hefði verið gerð til að sækja yfir ána Kagera sem aðskilur herina. Samkvæmt síðustu fréttum af stríðinu reyndu um 300 Tanzaníu- menn að sækj’a yfir ána, sem er full af krókódílum, á bátum en Ugandamenn hröktu þá aftur með skothríð. Fréttin er höfð eftir aðstoðarmanni Amins og hann segir að margir hermannanna hafi drukknað og aðrir hafi orðið krókódílum að bráð. Amin forseti ítrekaði í dag það tilboð sitt til Júlíusar Nyerere forseta að hann hörfaði með herlið sitt ef hann fengi tryggingu fyrir því að Tanzaníumenn réðust ekki á Uganda og vopnuðu ekki útlaga frá Uganda. Hann lagði til að Milton Obote fyrrverandi forseti, sem Amin steypti af stóli 1971, yrði fluttur frá Tanzaníu til annars lands eins og Guineu svo að hann kæmi ekki glundroða af stað. Diplómatar í Nairobi segja að Tanzaníumenn hafi flutt um 8.500 Verkamenn í íran óhlýðnast skipun Teheran 13. nóvember. AP. FLESTIR 37.000 starfsmanna olíuiðnarins í íran hundsuðu í dag skipun herforingjastjórnar- innar um að hætta við verkfallið sem þcir hófu fyrir tveimur vikum, en verkamenn í Teheran urðu ekki við áskorun um eins dags verkfall til þess að láta í ljós andúð á keisaranum. Sautján manns biðu bana í mótmælaaðgerðum gegn keisar- anum um helgina. Starfsmönnum olíuiðnaðarins var skipað að hefja aftur vinnu og hótað því að þeir yrðu reknir og handteknir ef þeir hlýddu ekki. Samt urðu aðeins örfáir verkamenn við skipuninni. Olíustarfsmennirnir lögðu niður vinnu 31. október til þess að krefjast launahækkunar og til þess að lýsa yfir stuðningi við hina vaxandi andstöðu gegn keisaran- um. Keisarinn heimilaði 22.5% kauphækkun í síðustu viku en verkamenn kröfðust þess að allir pólitískir fangar yrðu látnir laus- ir, að herlög yrðu felld úr gildi og að útlendingar sem starfa í olíuiðnaðinum yrðu reknir. Um 2.000 erlendir starfsmenn og 400 tæknimenn landhers og sjó- hers starfa í iðnaðinum og reyna að halda honum gangandi. Þeir segja að framleiðslan nemi 1.98 milljónum tunna á dag eða sem svarar 40% af eðlilegri fram- leiðslu. Stjórnin tapar 60 milljón- um dollara á dag í verkfallinu. Það hefur styrkt stöðu herfor- ingjastjórnarinnar undir forystu Sholam-Reza Azhari hershöfð- ingja að íbúar Teheran urðu ekki við áskorun trúarleiðtogans Ayatollah Khomainis um eins dags verkfall til stuðnings baráttu sinni fyrir því að steypa keisaran- um. Khomaini sagði í viðtali í París, að Carter forseti héldi verndar- hendi yfir keisaranum og að það gerði ástandið flóknara en ella. Hann sagði að Carter yrði að gera sér grein fyrir þvi fljótt að það væri hvorki í þágu írönsku þjóðar- innar né Bandaríkjanna að hann héldi verndarhendi yfir keisaran- um. hermenn til bardagasvæðisins sem er mjög afskekkt. Þeir segja að Tanzaníumenn kunni að neyðast til að sækja um hluta nágranna- ríkisins Rwanda þar sem þeir eiga lítið af brúarefni, bátum og flugvélum til að sækja yfir Kag- era. Sendimenn frá Einingarsamtök- um Afríku (OAU) sem hafa rætt við Nyerere fóru frá Dar Es Salaam til Kampala í dag og fengu skýrslu frá Amin um tilraunir sem hann segir að Tanzaníumenn hafi gert til að koma af stað glundroða í Uganda síðan hann kom til valda. Gandhi í London London. 13. nóvomber. AP. INDIRA Gandhi. fyrrverandi forsa'tisráðherra Indlands. kom til London í cinkaheimsókn í ga*r og rithiifundurinn Barbara Cart- land fór meö hana í heimsókn í dag til Mountbattens lávarðar af Burma. vinar þeirra beggja. Hækka far- gjöldin yfir N-Atlants- hafiðaftur? Gonf. 13. nóvomber, Routor. AP. VONIR manna um að hinar miklu lækkanir á flugfargjöldum á flugleiðum yfir N-Atlantshafið að undanförnu mvndu leiða til mikillar aukningar farþega hafa algerlega brugðist að því er segir í yfirlýsingu frá IATA. Alþjóða- samtökum flugfélaga. í dag. í kjölfar þessarar „óheillaþróun- ar“ hafa nú flest flugfélögin sótt um að fá að hækka fargjöld sín verulega til að mæta þeirri miklu tekjurýrnun sem hefur óhjá- kvæmilega verið samfara miklum fargjaldalækkunum. Alls mun vanta um 300 millj- arða íslenzkra króna til að þeirri útkomu verði náð sem aðildarríki IATA, 108 að tölu gerðu ráð fyrir upphaflega, er haft eftir Knut Hammarskjöld, aðalframkvæmda- stjóra samtakanna. í skýrslu sinni sem Hammar- skjöld lagði fyrir ársfund IATA í gær kemur fram að aukningin í farþega flugi fyrstu sex mánuði þessa árs er um 10% samanborið við 7.9% á síðasta ári. Meðal mála sem tekin verða ' fyrir á ársfundi 1ATA eru far- gjaldareglur samtakanna og er búist við því að þeim verði breytt verulega vegna mikillar óánægju meirihluta aðildarfélaga. 28 lestir af marijuna í togara Now York. 13. nóvombor. Routor. YFIRVÖLD í New York gerðu 28 lestir af mariju- ana og 10 milljón vana- bindandi svefntöflur upp- tækar í togara um helgina. Verðma'ti þess magns af mari- juana sem var gert upptækt er áætlað 25 milljónir dollara og talið er að hægt sé að selja töflurnar á 10 milljónir dollara. Veður víða um heim Akureyri -2 snjókoma Amslerdam 10 skýjað Apena 19 heiðskirt Barcelona 18 mistur Berlín 6 léttskýjað Brussel 12 rigning Chicago 9 rigning Frankfurt 4 skýjað Genf 4 Þoka Helsinki 5 skýjaö Jerúsalem 12 heiöskírt Jóhannesarborg 25 léttskýjað Kaupmannahöfn i 8 rigning Lissabon 13 rigning London 14 skýjað Los Angeles 14 skýjað Madríd 13 skýjað Malaga 20 heiðskírt Mallorca 20 léttskýjað Miami 27 heiðskirt New York 12 skýjað Ósló 8 skýjaö París 13 skýjað Reykjavík -3 snjóél Rio De Janeiro 26 skýjað Rómaborg 14 léttskýjað Stokkhólmur 7 skýjað Tel Aviv 20 skýjað Tókýó 11 rigning Vancouver 7 léttskýjaö Vínarborg 1 skýjað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.