Morgunblaðið - 25.11.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
7
Svavar sem
Þjóövilja-
ritstjóri
„Hið stóttarlega og
sögulega samhengi" er
frasi, sem þeim hluta
Alpýðubandalagsmanna,
sem eru kommúnistar, er
gjarnt að skreyta mál sitt
með, hvort sem er í ræöu
eöa riti. Þaö kalla Þeir
„marxíska söguskoðun",
sem er einkum í Því
fólgin, að grísja stað-
reyndir og beita fremur
tilvitnunum í aldar gömul
rit en almennum rökum
eða skynsemi. Út úr
Þessari áróðurslegu
naglasúpu, kemur svo
einn stór sannleikur, sem
að sjálfsögðu er breytí-
legur frá degi til dags í
samræmi við „hið stótt-
arlega og sögulega sam-
hengi“.
Fyrir einum tíu mánuð-
um skrifaði Svavar
Gestsson ritstjóri Þjóð-
viljans leiöara, og komst
Þannig að orði:
„Nú Þarf að kveðja til
„alÞingi götunnar", fólkiö
sjálft, til Þess að sýna
fram á Þá pólitísku stað-
reynd að íslandi á ekki að
vera unnt að stjórna með
kaupkúgunarlögum í
andstööu við verkalýðs-
hreyfinguna. „AIÞingi
götunnar“ Þarf að sýna
hrokagikkjum valdsins
viö Austurvöll hver Það
er sem ræöur úrslitum
um allt efnahagslíf Þessa
Þjóöfélags: Þeir sem
framleiða, Þeir sem
vinna, Þeir eru meirihluti
Þessarar Þjóðar.
Þjóðviljinn heitir á allt
launafólk að beita öllum
ráðum til Þess aö hrinda
árás ríkisvaldsins. Með
samstöðunni er unnt að
stöðva kaupránið.“
í Þessum ummælum er
raunar ekkert sem kemur
á óvart. Sízt fyrirlitningin
á löggjafarsamkundu
Þjóðarinnar og hinum
lýðræðislegu stjórnar-
háttum.
Svavar sem
viöskipta-
ráöherra
Nú er Svavar Gestsson
orðinn viðskiptaráðherra.
Hann hefur nýverið lýst
peirri skoðun sinni, að
verkalýðsleiðtogar Al-
Þýðubandalagsins sóu
fyrst og síöast AlÞýöu-
bandalagsmenn og eigi
að líta á störf sín innan
verkalýðshreyfingarinnar
sem slíkir. Hagsmunir
launafólks í landinu er
algjört aukaatriði hjá Því
að vera á flokkslínunni og
beita sór sem slíkur.
Nú hefur viðskiptaráð-
herrann Svavar Gestsson
lagt Þá línu, að skerðing
kaupgjaldsvísitölunnar
só óhjákvæmileg, pað er
hin nýja „stóttarlega og
marxíska söguskoðun"
og Benedikt Davíðsson
og allir hinir dansa með.
Hinn nýi stór sannleikur
er Þeim jafn heilagur og
sá gamli. Og nemandinn
Benedikt slær jafnvel
lærimeistaranum fram,
Þegar hann segir: „Það er
ekki bara Þessi vandi,
sem fyrirsjáanlegur er nú
1. desember vegna
hækkana á verðbótavísi-
tölu, sem menn eru að
ræöa um, heldur líka
framhaldið, Þ.e. 1. marz
og 1. júní.“
Og nú er niðurstaðan af
Þessum viöræðum feng-
in. Veröbótavísitalan
verður skorin niður um
meira en helming 1. des-
ember og er skerðingin
aö mestum hluta bóta-
laus fyrir launÞega.
í Þessum athöfnum
kemur í rauninni ekkert á
óvart fremur er> í hinni
fyrri afstöðu Þess hluta
AlÞýðubandalagsmanna,
sem eru kommúnistar.
Svo svipar hverjum til
sjálfs sín, — og við pví er
ekkert aö gera.
Bílmottur
sem halda þurru og hreinu
Eigum nu fjölbreytt urval af bilmottum. Grofmunstraöar og
fínmunstraöar, margar geröir.
Einnig sniömottur, sem auðveldlega má sníöa í allar tegundir
bíla.
Bílmottur henta einnig sem venjulegar dyramottur.
Kynniö ykkur úrvaliö.
Fást á bensínstöövum og fjölda verslana. /X
Heildsölubírgöir: Smávörudeild,
Laugavegi 180, sími 81722, Reykjavík
Olíufélagið Skeljungur hf
ii
Lítiö til beggjo^hliða