Morgunblaðið - 25.11.1978, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.11.1978, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 Björn Emilsson skrifar: Bezti vinur númer eitt og sú rauðhærða her- tóku aftursætið. Teikn. greinarhöfund- ur. anna voru venjulega á þá leið, að eigendurnir gáfust upp og seldu með tapi, en þó ekki fyrr en í fulla hnefana. En kynþroska- aldurinn sagði til sín, sagan endurtók sig. Hver bíllinn keyptur á fætur öðrum, í þeirri von að fegurðardís félli fyrir honum og innihaldinu. Stöðugur peningaaustur, endalaus vinna, samt enginn kvenmaður. Ekki var laust við að manni fyndist þeir bölvaðir monthanar, sem höfðu það af að ná sér í stelpu út á skrjóðinn. Sumir segja bílinn „vöggu“ ástarinnar. Margir upplifa þar fyrsta kossinn. Aftursætiskelér- íið er víst viðurkennt sem nokkurs konar listgrein. Ekki er öll vitleysan eins. Menn eru sjálfsagt mismunandi elskhugar í bílum, enda gilda þar aðrar reglur en annars staðar. Ekki er verra að hafa innsýn í fimleika. Joga hefur, að sögn, reynzt góð undirstaða. . Kvartmílingur hafði þessa sögu að segja, ofangreindu til sönnunar. Þegar ég var tvítugur, átti annar beztu vina minna Ford Victoriu '56 ... og rauð- hærða vinkonu. Hinn bezti vinur minn átti einnig vinkonu í Borgarnesi, en engan bíl. Ákveð- ið var, að bezti vinur númer eitt léti bezta vin númer tvö aka Fordinum upp í „nes“ og aftur í bæinn, meðan hann og sú rauðhærða hertóku aftursætið. Á heimleiðinni um nóttina sofnaði bezti vinur númer tvö við stýrið og Fordinn hafnaði á vegvísinum við Dragháls. Þar klofnaði hann í tvennt aftur að aftursætinu og vélin hafnaði í gírkassanum. Unga stúlkan í aftursætinu, sem fram að þessu hafði notið sveitaveganna að fullu með bezta vini númer eitt, misskildi áreksturinn gjörsam- lega og var ófáanleg til að skilja, að 70 km höggið stafaði af hörkuárekstri, en ekki einhverju öðru. Það var ekki fyrr en lögreglan kom á staðinn, að stúlkan tók sönsum. Fram að því hélt hún því til streitu, að hún hefði á einstaklega frum- legan hátt „sinnt sínu kalli undir Hafnarfjalli“. Ástin blómstrar einnig upp til sveita. En þar hefur bíllinn ekki sömu áhrif og í fjölbýliskjörn- um. Traktorar hafa ekki orðið mjög vinsælir meðal elskenda. Sveitafólkið hefur þó tvennt, sem við bæjarbúar förum á mis við, hlöðurnar og „bak við fjósvegginn". Bíllinn er mótel Islendinga, enda skárra að leggja bílnum á góðum stað í fallegu umhverfi en að liggja undir illa hljóðeinangraðri súð í foreldrahúsum. Frjálsræði skapast með bílnum, það vissi Henry Ford þegar hann fram- leiddi fyrsta Fordinn. Skáld hafa ort óteljandi ástarsöngva um bílástir. Bíllinn útfærir landhelgi fjölskyldu og ástalífs. Hve mörg okkar skyldu hafa „komið undir" í bíl? Hve margir foreldrar skyldu hafa tekið hjónabandsákvarðanir í þröng- um vistarverum bifreiða við „í aftursætinu“ Þegar ég var sextán ára fór ég ferða minna á reiðhjóli. Þá þegar hafði bílaáhugi gert vart við sig. Að ferðast um á reiðhjóli í þá daga þótti álíka niðurlægj- andi og að vera stelpa á 16. ári, sem ekki gat með nokkru móti fundið ástæðu til að ganga með brjóstahaldara. Tveggja hjóla farartækið með ryðguðu felgun- um, ónýta sætinu og slöku keðjunni, sem átti það til að festast í buxnaskálminni ein- mitt þegar Gunna sæta var nærstödd. Það var hámark niðurlægingarinnar. Þetta voru árin þegar maður var að flýta sér að verða gamall. Árin sem ^maður öfundaði vinina af því einu að vera fæddir fyrr á árinu. Laugardagskvöldin voru rúnt- kvöld. Að vera sautján ára og hafa bíl til umráða var blómstr- uð tilvera. I þá daga var rúnturinn rúntur, Austurstræti opið í báða enda. Þar glumdi í sílsum í „sílsabeygjum", spólað fyrir öll horn. Amerískir kaggar með stálslegið nefið upp í loft og afturstuðarann í götunni þóttu glæsilegastir. Hefði maður umráðarétt yfir einum slíkum, mátti bóka að kvöldið yrði ekki kvenmannslaust. Um þessar mundir fóru menn að safna . fyrir bíl, lögðu til hliðar viku- peninga, átu ekki í hádeginu og unnu um helgar. Sumir voru svo forsjálir að byrja aldrei að reykja og drekka og fengu þannig forskot á» hina. Menn eignuðust sinn fyrsta bíl, sem gjarnan var gamall, bilaður blöðruskódi. Viðkvæðið var „þetta er nú ekkert, við kippum þessu í lag á nokkrum dögum". Nokkrir dagar urðu að mánuð- um og jafnvel þá var bíllinn aldrei í lagi. Endalok farartækj- Er bíllinn „vagga” ástarinnar? „Ungmegjar með hvíta hveitirassa” undirleik bílflautunnar, sem virðist hafa þá ónáttúru að pípa forleikinn að brúðarmarsinum þegar ástarleikurinn stendur sem hæst? Mesti kúfurinn á geymslu- loftakeleríinu fór af með til- komu bifreiðarinnar. Nú sjást Bókmenntaunnendur fagna nýútkominni bók um bifreióanotkun á stríösárun- um síöari, bók sem sýnir Ijóslifandi hvernig barfasti Þjónninn var leystur af hólmi. Hinu er ekki aö leyna, aö kynslóö sú, sem í kjölfariö sigldi, féll ekki langt sjaldan ungmeyjar með hvíta hveitirassa og því síður rúsínu- og sveskjurassa. Henry Ford og bifreiðin sáu fyrir því. frá eikinni. Bílaáhugi og notkun bíla viö ólíkustu aöstæður hefur gengiö í erföir, Fáir listamenn hafa reynt að túlka aftur- sætisástina. Fyrir um það bil sjö árum skapaði ameriski listamaðurinn Edward Kienholz lista- verkið „í aftursætinu“ og kom því fyrir á listasýningu. Fljótlega fór að bera á því, að „konur úr vesturbæn- um“ höfðu andúð á verk- inu og vildu láta f jarlægja það af sýning- unni. Listamaðurinn stóð á því fastar en fótunum, að verkið væri ekki klámfengið. Sjónvarp og dagblöð gerðu málið enn æsi- fengnara. Listaverkið stóð áfram á sínum stað, en með því skilyrði, að hurðir bílsins væru aðeins opnar í hálfa gátt. Fyrir vikið varð verkið heimsfrægt. Þeg- ar sýningunni lauk, höfðu 70.000 manns komið á staðinn. og mun svo lengi sem stórmerki gerast í aftursætinu. Meðfylgjandi greinarkorn hvort tveggja ber betta meö sér og sannar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.