Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÖVEMBER 1978
21
Orðsending til
bindindismanna
Þóróur Jónsson skrifar:
N óbels verðlaun-
in í eðlisfræði
Bindindisdajíurinn er á
morjíun. sunnudajíinn 2fi. nóvem-
ber.
Kl. 11 flytur séra Guðmundur
Óskar Ólafsson útvarpsmessu í
Neskirkju. Ilann mun í ræðu
sinni minnast hindindismálsins
og Góðtemplararcíílunnar. í
messulok mun svo flutt stutt
ávarp frá reslunni.
Ekki skal dregið í efa að prestar
almennt minnist bindindismála í
ræðum sínum þennan dag og má
vel vera að ástaeða væri til að
minna sérstaklega á fleira en mér
er kunnugt. En geta vil ég þess að
við messu í Asprestakalli kl. 2 að
Norðurbrún 1 mun Jón F. Hjartar
prédika en sóknarprestur annast
altarisþjónustu. Færi vel á því að
það sæist að bindindismenn vissu
af þessu og sýndu þaö um leið og
viðkomandi sóknarprestum er
þakkað að koma til móts við okkur.
Sunnudagskvöldið er svo opið
hús í Templarahöllinni. Þar verður
kvöldskemmtun með líkum hætti
og tíðkast á fundum og í félags-
skap templara en þó með iéttari
brag en hversdagslega. Templarar
eru hvattir til að koma með gesti.
Aðgangur er óke.vpis og allir
velkomnir.
Gerum bindindisdaginn hátíð-
legan og minnisstæðan.
Ilalldór Kristjánsson
þingtemplar.
í ár skiptust Nóbelsverðlaunin
fyrir eðlisfræði milli þriggja
manna. tveggja Bandaríkja-
manna og aldraðs Rússa. Kapitsa
að nafni. Kapitsa voru veitt
vcrðlaunin fyrir framlag hans í
eðlisfræði kaldra efna. Starf hans
á því sviði fór fram að mestu í
Bretlandi á árunum fyrir síðari
heimsstyrjöld. A alþjóðavett-
vangi er Kapitsa kannski þekkt-
astur fyrir andstöðu sína við
Stalín á kaldastríðsárunum. en
þá sat hann lengi í stofufangelsi.
Bandaríkjamennirnir tveir,
Penzias og Wilson, fengu hins
vegar verðlaunin fyrir uppgötvun
stuttbylgjugeisla, er berast til
jarðar utan úr geimnum. I þessu
greinarkorni mun ég reyna að gera
grein fyrir mikilvægi þessarar
uppgötvunar og hvernig hún renn-
ir stoðum undir heimsmynd, er
stjarneðlisfræðingar og fleiri hafa
unnið að, allt síðan Einstein setti
fram hina almennu afstæðiskenn-
ingu árið 1915.
Penzias og Wilson starfa hjá
Bell — símafélaginu og voru árið
1965 að rannsaka truflanir á
fjarskiptum við gervihnetti, er
þeir fundu stuttbylgjurnar, sem
berast utan úr geimnum. Styrkur
þeirra er svo til hinn sami, hvert
sem litið er á himinhvolfin. Litróf
geislanna er eins og litróf geislun-
ar frá svörtum hlut við þrjár
gráður á Kelvin, þ.e. — 270°c.
Stjarneðlisfræðingurinn Robert
Dicke og félagar hans í Princeton-
háskóla urðu fyrstir til að skýra
þessa geislun. Töldu þeir hana
komna frá mikilli sprengingu fyrir
u.þ.b. 15 milljörðum ára, er allt
efni í hinum sýnilega heimi virðist
hafa átt uppruna sinn í. Segja má,
að túlkun Dickes og samverka-
manna hans hafi áunnið sér
almennt fylgi og er nú litið á
stuttbylgjugeislunina sem eitt af
helztu sönnunargögnum fyrir því,
að þessi sprenging hafi raunveru-
lega átt sér stað.
Eðlilegt er, að spurt sé, hvaðan
mönnum hafi komið sú hugmynd í
upphafi, að ofangreind sprenging
hafi orðið. Sé himinhvolfið skoðað
í stjörnukíki blasir við fjöldi
stjörnuþyrpinga eða vetrarbrauta.
Okkar sólkerfi er í einni þessara
stjörnuþyrpinga, sem frá alda öðli
hefur nefnzt Vetrarbrautin. Ljós,
sem berst til jarðar frá fjarlægum
vetrarbrautum, er rauðara og
rauðara eftir því sem þær eru
lengra í burtu. Þetta fyrirbæri
nefnist rauðvik og er skýrt með
því, að allar stjörnuþokur séu að
fjarlægjast okkur og því hraðar,
þeim mun fjær sem þær eru. Af
þessu mætti e.t.v. freistast til að
álykta, að Vetrarbrautin sé í
miðpunkti alheimsins. Svo er ekki.
Hér kemur afstæðiskenningin til
skjalanna. Sams konar útþensla
myndi sjást frá sérhverri annarri
vetrarbraut. Þessu má lýsa með
dæmi. Imyndum okkur blöðru, sem
á eru málaðar doppur með jöfnu
millibili. Ef við sitjum á einni
doppunni og blaðran er blásin út,
virðist okkur sem allar doppurnar
fjarlægist og því hraðar, því fjær
sem þær eru. Augljóslega er
fráleitt að segja, að okkar doppa sé
miðpunktur yfirborðs blöðrunnar.
Á líkan hátt þenst geimurinn út og
sérhver vetrarbraut fjarlægist
allar aðrar. Eðlilegast er að líta
svo á, að vetrarbrautirnar séu
kyrrstæðar en rúmið á milli þeirra
víkki. Hin upphaflega sprenging
var ekki sprenging á ákveðnum
stað og stundu í tómum geimi.
Rúmið, sem við hrærumst í,
Myndaðist í þessari sprengingu og
er enn að þenjast út. Hefði
sprengingin orðið í tómu rúmi,
væri glampinn frá henni horfinn
út í buskann fyrir löngu, og við
gætum ekki séð hann, því að allt
efni hreyfist hægar en ljós. En við
sjáum bjarma frá upphafsspreng-
ingunni. Bjarminn er stuttbylgj-
urnar, sem Penzias og Wilson
fundu. Af eðlilegum ástæðum er
hann frekar daufur núna, enda 15
milljarða ára gamall. Vetrarbraut
okkar hreyfist nærri því með
ljóshraða miðað við sprenginguna,
svo að rauðvikið hreytir glampan-
um úr sýnilegu ljósi í stuttbylgjur.
Einhverjum lesanda kann að
þykja frásögnin að ofan harla
goðsögukennd. Því er til að svara,
að mynd sú, er við fáum af
alheiminum, sé gert ráð fyrir, að
almenna afstæðiskenningin sé rétt
og heimurinn hafi orðið til í
mikilli sprengingu, er sjálfri sér
samkvæm og í samræmi við allar
stjörnufræðilegar athuganir.
I grófum dráttum virðist sem
atburðarásin fyrst eftir sprenging;
una hafi verið sem hér segir: I
upphafi var hitastig og þéttleiki
efnis sem næst óendanlegt. Er
rúmið þandist út, kólnaði efnið og
venjulegir atómkjarnar mynduð-
ust eftir nokkrar mínútur. Um
langt skeið var efni alheimsins þó
svo þétt, að hann var ógagnsær.
Að u.þ.b. hálfri milljón ára liðnum
var hitastigið komið niður í
5000°C og stuttbylgjugeislunin,
sem við sjáum nú, er talin ættuð
frá þessu skeiði. Stjörnur og
vetrarbrautir eru síðari tíma
fyrirbæri. Til gamans má geta
þess, að kunnur bandarískur eðlis-
fræðingur, Steven Weinberg að
nafni, hefur nýverið ritað bók,
ætlaöa leikmönnum, þar sem
einvörðungu er fjallað um þrjár
fyrstu mínútur veraldarsögunnar.
Auðvitað er enn mörgum spurn-
ingum ósvarað. Til dæmis má
nefna að ekki er vitað, hvort
útþensla alheimsins mun halda
áfram að eilífu, eða hvort hún mun
stöðvast, heimurinn dragast sam-
an Qg að lokum farast í ragnarök-
um nýrrar sprengingar. Til að
svara þessari spurningu þarf
nákvæmari mælingar á þéttleika
alheimsins en kleift hefur verið að
gera til þessa. Ástæðulaust er þó
að hafa áhyggjur af nýrri spreng-
ingu næstu ármilljarðina!
Jólabasar Vinahjálpar
HINN árlegi jólabasar Vinahjálp-
ar verður á Hótel Sögu sunnudag-
inn 26. nóv. og hefst kl. 2 e.h. Þar
verða til sölu margir sérsta'ðir og
fallegir munir ásamt happdrætti
með góðum vinningum.
Félagið Vinahjálp var stofnað
árið 1963 af sendiherrafrúnum frú
Boothby og frú Capplin ásamt frú
Karitas Sigurðsson. Ákveðið var
að vinna alls konar handavinnu og
hafa síðan basar fyrir jólin.
Peningana átti svo að nota til
hjálpar börnum, sem voru vangef-
in eða fötluð á einn eða annan
hátt. Síðan hefur þessi félags-
skapur stækkað mikið og eru nú
flestar sendiráðskonur í honum
ásamt íslenzkum konum.
MIKIÐ ÚRVAL AF HUSGOGNUM