Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 27
S j ávarútvegsráð-
herra í ræðu
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
27
á Fiskiþingi:
íhuga verð-
ur hvort
ríkið eigi að
hafa umráð
yfir fáein-
um togurum
FISKIÞINGI var íram haldið í
gær og flutti Kjartan Jóhanns-
son sjávarútvegsráðherra þá
ræðu. Gerði hann sérstaklega
að umræðuefni heildarskipu-
lagningu sjávarútvegsins og
heildarstjórn. Sagði ráðherra
að hyggja þyrfti sérstaklega að
samnýtingu skipanna við að
dreifa hráefninu á löndunar-
staði, þannig að atvinna yrði
sem jöfnust. Síðan sagði hann.
„Frjálst og fordómalaust
verður líka að íhuga hvort til
greina komi og geti skilað
heildar ávinningi að ríkið hafi
umráðarétt yfir fáeinum togur-
um sem það fæli reyndum
togaraútgerðárfyrirtækjum að
annast rekstur á með skilyrð-
um um að þeim yrði beitt til
hráefnisjöfnunar.“
í ræðu sjávarútvegsráðherra
kom fram að fyrir um mánuði
síðan hófst á vegum sjávarút-
vegsráðuneytisins grundvallar-
undirbúningsstarf varðandi
hugmyndir að skipulagningu
bolfisklöndunar fyrir landið í
heild. Kjartan sagði að á
ýmsum veiðum væri flotinn
óþarflega Stór og dýr og nýting
hans skertist því og þar með
arðsemi fjárfestingarinnar með
aflatakmörkunum. Nefndi hann
síldarvertíðina, þar sem aug-
ljóslega hefði verið hagkvæm-
ara að búa færri skip til
veiðanna.
Fram kom hjá ráðherra að á
síðasta ári var fjárfesting í
fiskveiðunum sjálfum tvöfalt til
þrefalt meiri en í fiskvinnsl-
unni. Sagði hann að þetta
hlutfall þyrfti væntanlega að
breytast verulega, þannig að
framkvæmdir miðuðust öðru
fremur við það að vinna aflann
til fyllstu nýtingar. Þá kom
fram í ræðunni að í hlut
sjávarútvegsins kom aðeins
tíundi hluti heildarfjárfesting-
ar landsmanna á síðasta ári.
Sídasti dagur umf erdarvikunnar:
Ölvadur ökumaður
stef nir sér og öðrum
vegf arendum í hættu
Á þessum síðasta degi um-
ferðarviku Slysavarnafélags
íslands verður ölvun við akstur
gerð að umtalsefni. Hafa Slysa-
varnafélagið og Umferðarráð
tekið saman pistil um það efni,
en fyrst eru hér nokkur orð frá
Ilaraldi Ilenrýssyni, fulltrúa
SVFÍ í Umferðarráði. þar sem
áréttuð eru nokkur atriði sem
tekin voru til meðferðar fyrsta
dag umferðarvikunnar.
„Grundvallarskilyrði þess, að
umferðin geti verið örugg og
greið, er, að vegfarendur virði
rétt hvers annars, sýni gagn-
kvæma kurteisi og skapstillingu
og beini óskiptri ath.vgli að því,
fyrirvara eða merkjagjafar, til
vandræða fyrir umferð, sem á
eftir kemur. Einnig sjást menn
því miður tefla á tæpasta vaðið
við skiptingu á umferðarljósum.
Aftanákeyrslur eru mjög tíð-
ar í umferðinni í dag. Þær verða
fyrst og fremst raktar til þess,
að menn eru ekki nægilega
vakandi. Akstur krefst einbeitni
og fullrar athygli og menn geta
ekki leyft sér að vera með
hugann bundinn við annað, er
þeir sitja undir stýri.
Að lokum skal hér minnt á, að
gangandi vegfarendur sýna oft á
tíðum skeytingarleysi um eigið
líf og tillitsleysi gagnvart öðr-
hópur manna hér á landi eigi
það til að aka undir áhrifum
áfengis, meira eða minna. I
hinum ýmsu löndum getur þetta
hlutfall verið misjafnt en ótrú-
lega hliðstæðar tölur koma þó
fram þegar athuguð er áfengis-
neysla almennings. Það fer ekki
á milli mála að hér á landi er
áfengi mikið notað, því miður.
En eitt er að neyta áfengis og
annað að ætla sér að vinna
trúnaðarstarf undir áhrifum
þess, svo sem að stjórna vélum,
ökutækjum eða farartækjum
almennt.
Eflaust eru Islendingar ekki
verr settir hvað varðar ölvunar-
sem þeir eru að gera, hvort sem
þeir eru akandi eða gangandi.
Mörg umferðarslys má rekja
til þess, að á þetta skortir. Menn
tefla mjög á tvær hættur, virða
iðulega ekki rétt annarra og
misbjóða þolinmæði þeirra. Það
er t.d. allt of algengt að sjá
ökumenn aka viðstöðulaust inn
á akbrautirá gatnamótum þrátt
fyrir almennan umferðarrétt
eða aðalbrautarrétt annarra og
neyða þá, sem eftir viðkomandi
braut aka, til að draga snögg-
lega úr ferð eða hemja.
Það sést líka oft, að menn
snarbeygja yfir á aðra akrein án
um, þegar þeir ganga í hugsun-
arl^ysi út á götu án þess að huga
nokkuð að umferð. Hvert fótmál
krefst umhugsunar og aðgæzlu.
Höfuðatriðið er, að sérhvér
vegfarandi sýni ábyrgð og
sjálfsaga í umferðinni. Góð
umferð krefst þekkingar og
samvinnu, þar sem enginn má
skerast úr leik. Vakandi, tillits-
samir vegfarendur skapa örugga
urnferð."
Hve margir ölvunar-
bílstjórar nást?
Það er ekki ólíklegt að stór
akstur en gerist með öðrum
þjóðum. En það er meðal annars
vegna hins sterka almennings-
álits hér á landi gegn ölvunar-
akstri og eins þess 'að óvíða
hefur löggæslan náð jafngóðum
árangri í handsömun ölvaðra
bilstjóra.
Einn af hverjum
2000?
Það er talið líklegt að í
Bandaríkjunum og Kanada
handsami löggæslan ekki nema
1 af hverjum 2000 sem aka undir
áhrifum áfengis. I Svíþjóð 1 á
móti 600. Hér á landi má ætla að
mun færri sleppi. Undanfarin ár
hafa hér á landi um 2000
ökumenn verið teknir grunaðir
um ölvun við akstur. Ef við
margföldum þá tölu með 100
sjáum við að í 200 þúsund skipti
er hér ekið undir áhrifum
áfengis yfir árið. En hver sem
fjöldi þessara afbrota er getum
við í hreinskilni íhugað að þau
eru alltof mörg jafnvel þótt
hundraðasti hver sleppi.
Erlendis er talið að um
40—50% alvarlegrá slysa í
umferðinni verði þegar annað
hvort ökumaður eða gangandi
vegfarandi hafa verið ölvaðir.
Það er langt frá því að sú
óhugnanlega tala setji svip sinn
á slysfarir hjá okkur, en sú tala
er nógu há. I mörgum tilfellum
þegar alvarleg umferðarslys
hafa átt sér stað hér á landi er
dregið úr lýsingu slysanna með
því að dylja fyrir fólki að ölvun
hafi verið meginástæðan fyrir
slysinu. En lögregluskýrslur
segja annað. Almenningur
verður hér að vera vel á verði og
tvímælalaust er það ein veiga-
mesta slysavörn sem hægt er að
beita að hindra ölvaðan mann í
að aka bíl.
Hvenær eru menn
brot*
legir sem ökumenn?
Hver og einn sem ætlar að
aka bíl eftir að hafa neytt víns
verður að gera sér grein f.vrir
þeirri hættu sem hann setur
sjálfan sig í, eða þá sem á vegi
hans verða. Hann má einnig
hafa í huga að hans nánustu eru
oft í jafnmikilli hættu og honum
fjarskyldir.
En hvað á að gera?
Einasta vörnin til að vera viss
um sakleysi í þessum efnum er
því að snerta aldrei vélknúið
ökuta'ki ef hann hefur neytt
áfengis eða annars vímugjafa.
Alger drengskapur við settar
reglur er eina tryggingin fyrir
því að verða ekki sjálfum sér né
öðrum að fjörtjóni á svo auð-
virðilegan hátt, að aka bíl undir
áhrifum áfengis.
GÓLFTEPPI
Seljum 24 rúllur gólfteppi og búta á lækkuöu veröi í dag laugardag kl.9—16.
Komiö og geriö góö kaup.
TEPPAVERZLUN FRIÐRIKS BERTELSEN Lágmúia 7. sími 86266.