Morgunblaðið - 25.11.1978, Qupperneq 41
fclk f
fréttum
Hárgreiðslustofa
Leirubakka 36, sími 72053.
Tísku
permanent.
Klippingar.
Lokkalýsingar.
Blástur.
Glansvask.
Næringanudd
o.fl.
Opiö virka daga frð 9—6,
laugardaga 8—3.
Reynið viöskiptin.
Lira Daviósdóttir,
Björk Hreiöarsdótti.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
+ KVENHATTAR þykja ætíð forvitnilegir. Brodway-stjarnan Constance Towers, sem um þessar
mundir leikur í söngleiknum „The King and 1“ í New York, skemmti sér við það dag nokkurn heima í
íbúðinni sinni að setja upp ýmsar gerðir af höttum, en ljósmyndari AP-fréttastofunnar fékk að vera
viðstaddur. Við rekjum þá sögu ekki frekar, en eins og sjá má, eru hattarnir bersýnilega fyrir dömur að
nota úti á götunum eða í samkvæmum. Og gamla hattatízkan endurvakin. — En nóg um það.
+ BRÚÐKAUPSTERTA. Hér er
tertugerðarmeistari einn í New
York, ánægður með verk sitt,
ístertu, sem hann hafði gert fyrir
vini sfna er gengu í hjónaband
fyrir nokkru. — En þegar til
kom skáru brúðhjónin aldrei
þessa veglegu tertu. — Á sfðustu
stundu ákváðu þau að hafa
ekkert tilstand f kringum
borgaralega hjónavígslu sína, þvf
það myndi aðeins verða til þess
að draga þangað blaðamenn,
Ijósmyndara og aðrar óæskilegar
persónur — undir slíkur kring-
umstæðum. Brúðhjón þessi, sem
töldu sig myndu lenda svo í
sviðsljósinu voru John Erlich-
man, var einn nánasti starfsmað-
ur Nixons og er nýkominn úr
fangelsi eftir að hafa afplánað
refsingu fyrir þátt sinn í Water-
gate-málinu — og Christie
Peacock, 26 ára gömul. Tertu-
gerðarmeistarinn, Donald Gould,
var svaramaður við giftinguna.
Sú athöfn tók nákvæmlega 12
mfnútur, sögðu blöðin.
+ ÞESSARI ungu konu var rænt í Mexikóborg fyrir
nokkru. Hún er Brianda Domecq de Rodriguez. Faðir
hennar var búinn að leggja fram lausnarfé, 5 milljónir
dollara, fyrir dóttur sína. Skyldi einn úr hópi
mannræningjanna ná í peningana. Hann féll þá í
hendur lögreglunnar í Mexikóborg, sem lét hann fylgja
sér á staðinn þar sem vinir hans voru, og konan höfð í
haldi. Þar gerðu lögreglumennirnir skyndiáhlaup á
vistarverur mannræningjanna. í þeim átökum var
enginn skotinn, en fimm mannræningjar handteknir
og stúlkunni bjargað ómeiddri úr höndum þeirra.
/ kvöld klukkan níu verðum við
í sjónvarpinu í bráðskemmti-
legri auglýsingu frá Erni og
Örlygi, og svo verðum við aftur
í sjónvarpinu á mánudags-
kvöldið klukkan níu og svo á
miðvikudaginn klukkan hálf-
níu.
Bless á meðan.
Mikki refur
ogLilli klifurmús