Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 44

Morgunblaðið - 25.11.1978, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978 KfoFINÖ Onákvæm vinnubrögð? Hér fer á eftir bréf þar sem fjallaö er um hiustendakönnun útvarpsins og vinnubrögð við hana og telur bréfritari sig haf-a ýmis- legt við þau að athuga. „Velvakandi: Grein sú, er birtist hjá Velvak- anda 15. nóv. sl. um hlustenda- könnun Ríkisútvarpsins, sem Ólaf- ur Ragnar Grímsson annaðist fyrir nokkrum árum, hefur vakið mikla athygli. Einkum þó umsögn dr. Halldórs Guðjónssonar, sem á var drepið í áðurnefndri grein Sigurjóns Jónssonar. Þar er flett ofan af vinnubrögðum Ó.R.G., þ.e. skýrslugerð hans um fyrrnefnt verkefni, og raktar eru nokkuð umsagnir dr. H.G. þar að lútandi. Þar segir m.a.: „Það er varla nokkur setning í skýrslunni, sem telja má rétta.“ — „Ef málið á skýrslunni er fyrir miskunnar sakir kallað íslenzka, þá er það svo vond íslenzka, að firnum og býsnum sætir.“ — (Dæmi: „Hvað Ensku knattspyrnuna snertir, sker hlustunin sig úr; hún er heldur hærri en alltaf og oft til sam- ans“???). — Enn segir: „En þótt allar málvillur og ambögur skýrsl- unnar væru leiðréttar, væri hún samt illa skrifuð, óskýr og orð- mörg.“ — Og enn segir, að „uppiýsingar í skýrslunni (séu) svo ónákvæmar, að óhugsanlegt væri að treysta þeim“ o.s.frv. Það er mjög þarflegt verk, sem Sigurjón Jónsson hefir unnið, að benda fólki á, hvers konar vinnu- brögð Ó.R.G. hefur tamið sér. Geta má nærri um vinnubrögð hans annars staðar, þar sem hann á ekki á hættu neinar umsagnir á borð við fyrrnefndan ritdóm. Vert er þetta eftirtektar, þar sem Ólafur hefur allt frá því að hann kom frá námi, vaðið uppi í BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Eir þiirf á löggjöf um svíning- ar? l>a>r eru ávani og geta oft verið mjiig skaðlegar. í þessum dálki hefur verið sneytt hjá pólitiskum efnum en sú staðreynd stendur óhiigguð. að löggjafar- valdið virðist ekki nýta sér vald sitt á þessu sviði og mál er komið. að einhver fari að heimta það. Gjafari suður, norður-suður á hættu. Norður s. Agio H. K10832 T. Á1072 Vestur S. 97642 H. Á6 T. K43 L. D65 L. 7 Austur S. D8 II. G9754 T. G98 Suður L- 832 S. K53 H. D T. D65 L. ÁKG1094 Eftir að suður hóf. sagnir á einu laufi varð hann sagnhafi í þrem gröndum og vestur spilaði út spaðafjarka. Suður þóttist hafa himinn hönd- um tekið aö fá svíninguná ókeypis strax í fyrsta slag. Hann lét tíuna frá borðinu en varð að taka drottninguna með kóng. Hér hefðu stjórnvöld átt að grípa í taumana. Sagnhafi hafði tapað spilinu án umhugsunar. Þegar suður spilaði laufunum fékk vestur á drottninguna. Hann hélt áfram með spaðann en sagnhafa vantaði innkomuna til að taka slagina, sem biðu tilbúnir á hendinni. „Þolinmæðin þrautir vinnur allar“, sagði vestur þegar hann skrifaði 200 í sinn dálk að spilinu loknu en hann hafði haldið áfram spaðasókn sinni við hvert tækifæri. En undir eftirliti Rannsóknar- lögreglu ríkisins hefði suður ef- laust únnið spilið. Þá hefði verið sjálfsagt að taka fyrsta slaginn með spaðaás og laufsvíning í næsta slag hefði einnig verið eðlileg og sjálfsögð. Vestur hefði fengið á drottninguna en framhald spaðasóknarinnar hefði þá gefið sagnhafa spaðasvíninguna, sem hann afneitaði í fyrsta slag. Og í öllu falli yrði spaðakóngurinn örugg innkoma á hendina og níu slagir öruggir, sma hvernig vörnin berðist. Ertu að reyna að sanna að þú sért kominn af öpum? COSPER Komdu hingað til pabba. — Ég ætla að tala nokkur alvarleg orð við þig! Fyrsta tízku- sýning karla KARON, samtök sýningar- fólks, gengst fyrir tízkusýn- ingu á Hótel Sögu annað kvöld, sunnudag, 26. nóvember, kl. 22.00. A efnis- skránni er tízkusýning karla, sýning á kvenfatnaði og dans. Sú tízkusýning karla, sem nú verður, mun vera hin fyrsta sinnar tegundar hér- lendis. Sýndur er fatnaður frá verzluninni Bonaparte og fatnaður, sem Colin Porter hefur sérhannað, en hægt er að láta sérsauma karlmanna- og kvenfatnað í verlunum Karnabæjar. Þá er danssýning á vegum Dansskóla Heiðars Ástvalds- sonar kl. 22.45. Mun Birgir Jónsson „Travolta" sýna sólódans úr kvikmyndinni Saturday Night Fever og þau systkin Birgir og Ástríður verða með fleiri dansatriði úr kvikmyndinni. Því næst mun parið, sem sigraði í Mara- þon-danskeppninni, sem hér var í haust, sýna dans og að lokum dansa þau Heiðar Ást- valdsson og Edda Pálsdóttir rúmbu og Pasodoble. Loks er hálfrar stundar tízkusýning á innfluttum og íslenzkum kvenfatnaði frá Karnabæ. Karon-samtökin voru stofn- uð 1971 af sýningarfólki, sem hafði áhuga á að koma breyttu formi á tízkusýningar. Hanna Frímannsdóttir, stjórnandi samtakanna, sér um að kynna félagsmönnum það helzta, sem er að gerast í tízkuheiminum hverju sinni. Að sögn Svölu Haukdal, sem starfar hjá samtökunum, Hluti félagsmanna Karon, samtaka sýningarfólks. munu nú um þrjátíu manns starfa að jafnaði við sýningar hjá samtökunum. Félagsmenn eru aðallega milli tvítugs og þrítugs. Reynt hefur verið að sýna fatnað fyrir fólk yfir þrítugt, en erfiðlega gengið að fá konur ti! að gefa sig í tízkusýningarstörf fyrir þann aldurshóp. Hanna Frímannsdóttir kvað það vera á stefnuskrá samtak- anna að vera með tízkusýning- ar árlega bæði með reyndu og óreyndu sýningarfólki, en kvað erfiðleika vera í sam- bandi við það, þar sem starf- semi samtakanna er borin uppi af félagsmönnum ein- göngu og er mikið og tíma- frekt starf, en langflestir stunda aðra vinnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.