Morgunblaðið - 30.11.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
3
Almenna bókafélagið:
Sagan um Sám
komin á íslenzku
BÓK sænska rithöfundarins, Per Olof Sundmans, „Sagan
um Sám, er komin út á íslenzku hjá Almenna
bókafélaginu. Sagan er byggð á Hrafnkels sögu
Freygoða og þótt hún beri svip nútímans er hún í raun
óháð tima. Sagan um Sám hefur vakið mikla athygli á
Norðurlöndum, en hún kom út í Svíþjóð í apríl 1977. í
ráði er að kvikmynda söguna hér á landi næsta sumar
undir leikstjórn Þjóðverjans Peter Stein.
í fréttatilkynningu um útgáfu
bókarinnar á íslenzku segir Al-
menn bókafélagið m.a.:
Sagan um Sám er ein af þeim
norrænu bókum sem einna mesta
athygli vakti síðast liðið ár, ekki
eingöngu fyrir sérkennilega aðferð
við samningu hennar, heldur
einnig fyrir stórbrotnar mannlýs-
ingar og markvísa ádeilu.
Sagan er þannig samin, að eitt
af listaverkum Islendingasagna,
Hrafnkels saga Freysgoða, er færð
til nútímans, og úr verður skörp
skilgreining á ýmsum óhugnanleg-
um þáttum í samtímanum.
Sagan um Sám er kynnt m.a. á
þessa leið:
„Sundman fylgir þræði Hrafn-
kels sögu en gerir hana miklu
fjölbreytilegri, leggur m.a. áherzlu
á þátt kvennanna í atburðarásinni
og skapar margar nýjar persónur,
svo sem ungu stúlkuna Ásu sem er
í senn áhrifavaldur og umkomu-
leysingi, Guðrúnu, konuna sem allt
sér, og skáldið Geir, sem sér inn í
framtíðina en getur ekki haft áhrif
á hana.
Sögusvið er Island, en sagan er
þó ekki íslenzk, því að í henni eru
þjóðveldislögin enn í gildi. Þau
gera ekki ráð fyrir framkvæmda-
valdi. Því er unnt að drýgja glæpi,
drepa menn, án þess að hegning
komi fyrir, ef hinn seki er svo
voldugur að mótherjihn ræður
ekki við hann.
Svo einkennilega vill til, að
þfetta fjarlægir söguna ekki nútím-
anum, þvílíkar reglur eru við lýði
víða í heiminum, þó að yfir það sé
breitt í orði.
Sagan um Sám hefur farið
sigurför um öll Norðuriönd og
Per Olof Sundman
Þýzkaland og er í ráði að kvik-
mynda hana hér á íslandi innan
skamms."
Eirikur Hreinn Finnbogason
hefur þýtt Söguna um Sám á
íslensku. Hún er 277 bls. að stærð
og er unnin í Prentverki Akraness.
Kjarvalsstaðir:
Einnig í bann h já
í slenzkri graf ík
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist fundarsamþykkt fclagsins
íslenzkrar grafíkur. þar sem
fram kemur að félagið lýsir
yfir eindregnum stuðningi við
Félag íslenzkra myndlistar
manna í deilunni um skipan
stjórnar á Kjarvalsstöðum.
Segir ennfremur, að félags-
menn muni því sniðganga alla
listræna starfsemi þar meðan
deila þessi stendur og hvetur
borgaryfirvöld til að leysa deil-
una fljótt og farsællega.
Sjúkraflug tíl Grænlands
í FYRRADAG fór flugvél frá
Flugfélagi Norðurlands á Akur-
eyri, flugmaður Sigurður Aðal-
steinsson í sjúkraflug til bæjarins
Scoresbysund á austurströnd
Grænlands. — Tveir læknar.frá
Akureyri fóru með í sjúkraflugið
en sjúklingurinn, sem sóttur var,
var ung stúlka sem var mjög
alvarlega veik í höfði. Mun hún
hafa verið nær meðvitundarlaus.
Flugið frá Akureyri til Grænlands
tók um tvo tíma. Flugskilyrði voru
all sæmileg og lenti Sigurður
flugvélinni á ís við bæinn. Höfðu
heimamenn lýst upp „flugbraut-
ina“ með logandi olíulugtum. —
Strax eftir lendinguna var komið
með sjúklinginn á hundasleða. Þar
var þá um 20 stiga gaddur. —
Flogið var í einum áfanga til
Reykjavíkur og lenti flugvélin hér
á Reykjavíkurflugvelli heilu og
höldnu um kl. 7 um kvöldið.
Grænlenska stúlkan var flutt
beint á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans.
Ljósm. Mbl. Emilía
Forsetinn fékk fyrsta„forseta ”peninginn
Fulltrúar Hrafnseyrarnefndar gengu í gærmorgun á fund dr. Kristjáns Eldjárns,
forseta Islands, og afhentu honum fyrsta settið af nýjum minnispeningum í tilefni af
hundruðustu ártíð Jóns Sigurðssonar forseta, sem nefndin hefur látið slá og mun
ágóða af sölu þessa penings verða varið til framkvæmda á fæðingarstað Jóns forseta.
Á myndinni sést Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri og formaður Hrafnseyrar-
nefndar, afhenda forsetanum settið en ásamt þeim sjást nefndarmennirnir Halldór
Kristjánsson á Kirkjubóli og Hannibal Valdimarsson.
MARGIR MALDA AÐ
HÁTALARAR
SCL) AÐEINS FYRIR
ATVINNUMENN
• ••
en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara,
notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér.
Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles
Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir
vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess.
AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um -
VELJIÐ AR HÁTALARA.
H
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA