Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 Hvað segja þeir um „kauprán" ríkisstjórnarinnar? Hvaö segja þeir um „kauprán" MORGUNBLAÐIÐ leitaði til forystumanna í verkalýðshreyfingunni og spurði þá álits á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðgerðir 1. desember n.k. Einnig spurði Mbl. þá, hvort þeir teldu að nú væri um að ræða „kauprán“ af öðru tagi en fólst í efnahagsaðgerðum fyrri ríkisstjórnar og ef svo væri í hverju sá munur væri fólginn. Svör þeirra fara hér á eftir« Verkaiýðshreyfingin alltaf metiö aðrar kjarabætur — Þetta frum- varp er flutt veftna þess vanda sem við stöndum frammi fyrir vejjna hækkandi verðlajís síðustu 3 mánuði of{ nemur verðbótaþátturinn 14,13% og blasir þessi vandi við öllum, sagði Eðvarð SÍKurðsson form. DaKsbrúnar. — Aðferðin að finna aðrar leiðir ok meta til jafns við kauphækkanir er ekkert nýmæli, en bæði niðurnreiðslur, skatta- lækkun ojj félaKslegu umbæturnar eijía að koma öllu launafólki til tíóða. Að vísu eru hinar félagslegu umbætur nokkur eftirgjöf og „eftirákaup" en ég vona að laun- þegar meti þetta allt og samanlagt eiga þessi atriði að vega móti 8% kauphækkun. Verkalýðshreyfingin hefur ávallt verið reiðubúin að meta aðrar kjarabætur en beinar launahækkanir, en það r ekki með óblandinni ánægju að þetta er gert með lagasetningu, því eðlilegra hefði verið að semja um þessi atriði í kjarasamningunum. Ef framkvæmdin verður eins og skoðanaskiptin pá er allt fals „Það er ýmislegt jákvætt í þessu frumvarpi en fleira er þó nei- kvætt og ég sé engan mun á þessu og aðgerð- unum í febrúar, sem ég var harð- ur á rnóti," sagði Kristján Ottós- son, formaður Félags blikksmiða. „Eg get ekki séð annað út úr þessu frumvarpi en að þeir, sem áður fullyrtu að laun væru ekki orsök verðbólgunnar, hafi um leið og þeir settust í valdastólana snúið við blaðinu og telji nú iaunin aðalorsökina. Það sem mér finnst jákvætt við frumvarpið eru fyrirheitin um félagslegar aðgerðir. Um þær er þó erfitt að dæma fyrr en efndirnar koma í ljós, en verði framkvæmdin eitthvað í líkingu við skoðana- skipti þessara manna varðandi launin og verðbólguna, þá er sama falsið í öllu frumvarpinu og þá verð ég harður á móti þessum hluta líka. Það er ákaflega erfitt að horfa upp á það hvernig þingmenn eru stöðugt að fjarlægjast almenning með því að ýta til hliðar siðferði- legum skyldum sínum við kjósend- ur og einbeita sér þess í stað stöðugt meir að persónulegum hagnaði sjálfra sín og flokkanna.“ Pólitískir varðhundar sendir af stað með dulbúna kjaraskerðingu „Þá er nú búið að opinbera hrika- legustu kosninga- svik, sem íslenzk stjórnmálasaga getur um,“ sagði Pétur Sigurðsson stjórnarmaður Sjómannafélags Reykjavíkur. „Nú er þessi þriðja vinstri stjórn, sem ég fylgist með, komin á sama stig og hinar fyrri: engin samstaða en höfuðáherzlan lögð á að falsa vísitöluna. Það hafa engin tilmæli komið til okkar um að við tjáðum okkur um þennan félagsmálapakka, sem í frumvarpinu er. Við munum að venju snúa okkur til okkar við- semjenda um kaup og kjör. Ég tel ekki unnt að tala um það sem kjarabætur, þótt lagfærð séu eldri lög eða uppfyllt gömul samnings- loforð. Það spáir ekki góðu fyrir sjómenn að við höfum farið á fund viðskiptaráðherra og óskað eftir því að gjaldeyrir til fiskimanna yrði hækkaður, þegar þeir sigla, en þrátt fyrir fögur orð hefur ekkert orðið úr framkvæmdinni. Sá er munurinn nú og síðastlið- inn vetur að nú eru sendir út pólitískir varðhundar til að setja af stað dulbúna kjaraskerðingu. Það var ekki gert í tíð ríkisstjórn- ar Geirs Hallgrímssonar og hún reyndi að gæta sérstaklega að því að þeir tekjulægstu héldu sínu að fullu, þótt ekki væru allir sammála um framkvæmdina. Það má bæta því við að fyrir fáum vikum mótaði Sjómannafél- ag Reykjavíkur sína kröfugerð með öðrum sjómannasamtökum og þá var samþykkt að það sem þá vantaði upp á fiskverð yrði bætt um áramótin. Þar réðu ferðinni stuðningsmenn núverandi ríkis- stjórnar og má vel vera að innan tíðar skipuleggi þeir nýjar hópsigl- ingar flotans í land kröfum sínum til áréttingar." Ekki sniðiö fyrir sjómannsstakkinn „Það hafa enginMj samráð verið höfðH við okkar samtökfl um þessarl aðgerðir, ekkil einu sinni þærl félagslegu. Égl fékk að vísul frumvarpið íl próförk um helg-B ina en meira var™ það ekki og þessar aðgerðir eru ekki sniðnar fyrir okkar stakk,“ sagði Ingólfur Ingólfsson formað- ur Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands. „Við sjómenn erum algjörlega andvígir vísitöluþaki og þessar ráðstafanir leggjast einnig býsna þungt á mikinn hluta sjómanna, þar sem allt verður þetta nú borið uppi með skattlagningu. Varðandi félagslegu umbæturn- ar, sem eiga að koma í stað 3%, veit ég ekki til að þar sé til umræðu neitt það sem meta má til tekna fyrir sjómenn svo það er alla vega hreint kauprán, ef menn vilja nota það orð. Mér finnst enginn grundvallar- munur á þessum aðgerðum og aðgerðum fyrri ríkisstjórnar. Báð- ar takmarka þær verðbæturnar á laun og vilji menn nota orðið kauprán yfir annað þá gengur það líka yfir hitt.“ Allt óljóst nema að launþegar eiga að borga brúsann „Ég hef lýst yfir óánægju minni með þessar fyrir- huguðu ráðstaf- anir og ég geri það aftur hér og nú,“ sagði Oskar Vigfússon for- maður Sjó- mannasambands Islands. „Þetta frumvarp bendir til þess að efnahagsaðgerðirnar verði bara hálfkák og mér sýnist allt óljóst annað en það að launþegar eigi að borga brúsann. Ég minni á að þessi ríkisstjórn hefur ekki staðið yið þau loforð sem hún gaf verkalýðshreyfing- unni, er hún kom til vaida og getum við sjómenn bent á fisk- verðiö því til sönnunar. Ég talaði um kauprán fyrir níu mánuðum og ég sé ekki annað en að þetta sé sömu ættar, en vandanum bara velt áfram á undan sér. Sjómenn eru reiðubúnir til að bera sínar byrðar af raunverulegri baráttu gegn verðbólgunni en ekki öðru visi en svo að allir aðrir landsmenn gangi undir okið með þeim.“ Samráð að vissu „— Það var nú ekki haft neitt samráð við svæðafélög Alþýðusambands- ins, en vissulega var haft samráð við ákveðna menn innan verkalýðs- hreyfingarinnar og fallizt hefur verið á ákveðnar kröfur sem hún hefur gert jafnvel í marga áratugi, sagði Pétur Sigurðsson formaður Alþýðusambands Vestfjarða. — Auðvitað er alltaf hægt að meta framlög til félagsmála ASI og ýmislegt annað, sem þarna var bent á að gert yrði, en það má líka benda á að launahækkunin sem gefin er eftir nemur milljörðum, en þessi félagslegi pakki skiptir kannski nokkur hundruð milljón- um og á því er auðvitað munur. Og þótt segja megi að svipað gildi um kauprán núna og kauprán í vor þá sé nokkur stigsmunur á þessu tvennu þar sem félagslegu um- bæturnar koma til. En það sem mér finnst nokkuð undarlegt er m.a. að verkafólk úti á landi vissi ekkert um þessi mál fyrr en það las um þau í Morgunblaöinu, því að hvorki stjórn ASÍ né svæða- félög voru með í ráðum. Ég styð persónulega þessa ríkis- stjórn og ég vona að hún standi sig í baráttunni gegn verðbólgunni. Met samráðið mikils — Ég met mikils að samráð skuli hafa verið haft við verka- lýðshreyfinguna í þessum málum, sagði Hákon Hákonarson, for- maður Alþýðu- sambands Norðurlands, og þótt frávik séu frá gerðum samn- ingum, sem menn vilja kannski ekki gefa eftir, þá má segja að mörg atriði komi til, eins og t.d. sú viljayfirlýsing er fram hefur komið um félagslegar umbætur. — Að vísu eru margir endar ennþá lausir í því efni og segja má að ákveðin áhætta sé tekin með því Tillögur BSRB um félagsleg réttindi: Opinberum starfsmönnum tryggðar atvinnuleysistrygg- ingar og aðild að lífeyrissjóð- um A fundi samráðsnefndar B.S.R.B. með dómsmálaráð- herra, félagsmálaráðherra og viðskiptaráðherra 25. þ.m. báru fulltrúar B.S.R.B. fram þessar tillögur um félagslegar ráðstafanir: Bygging í'búðarbúsnæðis á félagslegum grundvelli Opinberir starfsmenn njóti þeirra félagslegu úrræða, er felast í byggingu íbúðarhúsnæð- is með tilstyrk hins opinbera, til jafns við aðra. Samtök þeirra fái aðild að stjórn framkvæmda og úthlutun íbúða. Opinberir starfsmenn eru ekki aðilar að atvinnuleysis- tryggingasjóði. Á síðustu árum hefur orðið ör þróun í þá átt, að opinberir starfsmenn eru ekki „æviráðnir" og mikill fjöldi þeirra ráðinn með 3 mán. uppsagnarfresti eða skemmri. Því er gerð sú tillaga, að opinberum starfsmönnum verði tryggðar atvinnuleysistrygging- ar eins og öðru launafólki. Samkv. lögum um starfskjör launþega er öllum skylt að greiða í lífeyrissjóði. Lög og reglugerðir um lífeyrissjóði op- inberra stárfsmanna eru eldri. í þeim eru ákvæði, sem hindra aðild starfsmanna, sem ekki hafa náð 20 ára aldri og einnig þeirra, sem ekki eru ráðnir með 3 mánaða uppsagnarfresti. Því er mikill fjöldi starfsmanna látinn greiða í svokallaðan biðreikning. B.S.R.B. gerir til- lögur um, að biðreikningurinn verði afnuminn og hlutaðeig- andi lífeyrissjóðir verði opnaðir fyrir öllum þeim, sem starfa skv. samningum B.S.R.B. og aðildarfélaga þess. B.S.R.B. fái aðstöðu til að fjalla um undirbúning löggjafar um þær félagslegu ráðstafanir, er grg. frv. gerir ráð fyrir. marki Basar nemenda Þroskaþjálfa- skóla Islands Nemendur Þroskaþjálfa- skóla íslands halda basar í Miðbæjarskólanum næst- komandi laugardag og eru þar á boðstólum ýmsir munir og kökur. Hluti námsins á síðasta ári skólans er námsför til útlanda og að þessu sinni verður farið til Engladns þar sem skoðaðar verða stofnan- ir fyrir þroskahefta. Ágóða af basarnum verður varið til ferðasjóðs nemenda. Basar- inn hefst kl. 11 árdegis. Óskað eftir betri póst- samgöngum í A-Barð. Miðhúsum 28. nóvember. NÚ HEFUR rútuferöum veriö breytt þannig að hún er látin koma á þriðjudögum og fimmtu- dögum í Króksfjarðarnes í stað föstudaga áður. Þessi breyting er gerð til þess að íbúarnir í Búðardal geti fengið póst sinn þrisvar í viku, en jafnframt var felld niður önnur póstferðin frá Króksfjarðarnesi í Gufudalssveit. Vegna þess hve stutt er á milli ferða um miðja vikuna er erfiðara fyrir íbúana hér að fara í verzlunarferðir til Reykjavíkur. Við óskum þess svo sannarlega, að póstsamgöngur batni, en versni ekki frá því sem nú er, en þessi breyting er sízt til bóta. — Sveinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.