Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
VtK>
MORödKf-
MttlNú
IV Qsll y
GRANi GÖSLARI
Eítir þessu korti að dæma erum
við komnir í land á eyju sem
heitir Mörgæsaeyja.
Ertu hættur að vinna, maður?
Eru neyðarbremsurnar ekki of
hátt uppi fyrir konur. ef t.d.
karlmaður gerði sig líklegan ...?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Að þessu sinni er úrspilsæfing
vikunnar nokkuð erfið. En eftir
óhagstætt útspil þarf lega spil-
anna að vera hagstæð.
Austur og vestur segja alltaf
pass en norður gefur.
Norður
S. G52
II. G5
T. ÁKG73
L. D73
Suður
S. ÁK7643
H. Á63
T. 984
L. Á
Sanmingurinn er sex spaðar í
suður. Utspil hjartakóngur. Þú
tekur fyrsta slaginn og síðan á ás
og kóng í spaða. Vestur fylg.ir en
austur lætur lauf í kónginn.
Vestur mun því fá slag á tromp en
-þarf að fá hina tólf. Hvernig?
Greinilega má vörnin ekki fá
slag fyrr en þú hefur losnað við
hjörtun af hemlinni. Tígulliturinn
þarf þannig að gefa fimm slagi og
til að vestur trompi ekki of
snemma þarf hann að eiga fjögur
spil í litrium.
En tíguhlrottninguna þarf hann
ekki endilega að eiga. Við spilum
því tígulníunni til að stífla ekki
Litinn og tökum með ásnum.
Austur lætur sexið og allar
hendurnar þurfa því að vera þessu
líkar.
Vestur Suður Austur Norður
S. 1)109 S. ÁK7BI3S. 8 S. G52
II.KD9 II. Á63 11.108712 II. C,5
T. D1052 T. 981 T. 6 T. ÁKG73
I.. 695 L. Á L. K108612 L. 1)73
Eftir að hafa séð tígulsexið
förum við inn á hendina á laufás.
Síðan spilum við tíguláttu og láti
vestur lágt spil biðjum við um
þristinn frá borðinu. F'áum þannig
slaginn, endurtökum svíninguna
og látum síðan hjörtu í kónginn og
sjöið. Vestur má þá trompa en við
erum á undan og höfum tryggt
okkur tólf slagi.
COSPER
6
7787 C05PER
Nei — hikk — hingað hefur hikk enginn komið með þrjár hikk
brennivínsikk-flöskur!
SrT^nTf ■ f: f ■ x, \t)
'sfij
Jákvæð þjónusta?
„Ljótt er ef satt væri, varð mér
að orði, þegar ég las bréf til
Velvakanda frá kristnum manni,
birt 19. nóv. ásamt myndum af
auglýsingum úr Dagblaðinu og
Vísi. Nú er það staðreynd, að
slíkar auglýsingar sjást stundum í
téðum dagblöðum, og hljóta flestir
að taka undir það með bréfritara,
að þeim sé ekki sæmandi að taka
slíkan ósóma til birtingar. Varla
munar þau mikið um borgunina.
En vafamál hlýtur að teljast, að
hinum lágt hugsandi auglýsendum
sé alvara í öllum tilfellum. Eflaust
er þetta hjá mörgum gróft grín til
þess gert að hafa að háði og spotti
þá er svara kunna í alvöru. Og
líklega eru mörg svaranna send af
rælni, til þess að gera gys að
augiýsendum. Þó fylgir þessum
ósköpum sjálfsagt stundum fyllsta
alvara af beggja hálfu, og má þá
ástandið teljast ískyggilegt.
í bréfi til Velvakanda frá
Halldóri Einarssyni, sem birt var
22. nóv. er dregin upp skýr mynd
af þeim óskaplegu afleiðingum,
sem almenn lausung í samskiptum
kynjanna og meðfylgjandi upp-
lausn í heimilislífi mundi hafa
fyrir þjóðfélagið. Þessi mál ætti
enginn að hafa í flimtingum, því
að varla mun ofmælt þó að fullyrt
sé að sköpum skipti um hamingju
hvers einstaklings, hvernig honum
farnast í hinum viðkvæmu ásta-
málum. Allir eiga sér ástarþrá og
drauma. Sumir rætast aldrei, en
lifa samt í endurminningum, aðrir
verða að veruleika, hrynja í rúst
fyrr en varir, en skilja þó eftir
! dýrmæta reynslu, og sem betur fer
sjá margir björtustu æskuvonirn-
ar rætast.
— Siðleysi í kynferðismálum er
nátengt ruddaskap á öðrum svið-
um. Enda má fullvíst telja að þær
einföldu sálir, sem aðhyllast hinar
svokölluðu frjálsu ástir séu yfir-
leitt að öðru leyti auðnuleysingjar,
sem misþyrma líkama sínum og
sál og eyða tímanum sjálfum sér
og öðrum til ófarnaðar. Þetta
ólánsfólk heldur uppi áróðri gegn
hjónabandi eða alvarlegri sambúð
og fjölskyldulífi, eflaust. vegna
öfundsýki, þar sem þaö sjálft er
hvorki gætt nægum andlegum
þroska né óeigingirni til að lifa lífi
sínu á þann hátt. Óskandi er að
kirkju, skólum og frjálsum félags-
samtökum auðnist að hjálpa þeim
hrelldu sálum, sem villst hafa af
réttri leið, og hefja almennt
siðgæði á æðra svið.
En stundum má sjá í blöðum
auglýsingar undir flokknum
„Einkamál", sem tjá óskir um
kynni við gagnstætt kyn, að því er
virðist meintar af hjartans ein-
lægni með náið samband og
jafnvel hjónaband í huga. Beri
einhverjar þeirra þann árangur,
sem vonast er til, má þjónustu
dagblaðanna í einkamálum jákvæð
kallast (svo framarlega sem þau
hætta að birta hinar neikvæðu).
Blöðin ættu þó að taka slíkar
auglýsingar með gát, ekki gegnum
síma, heldur skriflega sem trúnað-
armál. Auðvelt ætti að vera fyrir
auglýsingastjóra að sjá, hvort
hlutaðeiganda er alvara, bæði af
framkomu og skriflegum frágangi.
Trúlega er að sum þeirra bréfa er
auglýsendur „Einkamála" fá sem
svör, séu spott og spé, en að öllum
líkindum mörg vel meint í fyllstu
alvöru. Auglýsendum ætti ekki að
reynast erfitt að sjá muninn og
velja hið rétta bréf til að svara,
eftir orðalagi og skrift, og oft er
líka send mynd. Einstæðufólki í
blóma lífsins fjölgar nú ört, vegna
hinna sorglega mörgu hjónaskiln-
aða. Varla er allt þetta fólk sátt
við einlífið, og misjafnlega gengur
að finna réttan maka í hávaða-
sömum vínveitingastöðum, vinnu-
stöðum, skólum eða annarsstaðar.
Áöur sendu menn biðilsbréf til
þeirrar útvöldu, oft með góðum
árangri. Hví skyldi einmana,
vonsvikið nútímafólk ekki reyna
að nota sér þá þjónustu, sem
dagblöðin geta veitt í þessu efni?
Virðingarvert er að sýna sjálfs-
bjargarviðleitni í svo mikilvægu
máli, menn skyldu síst gleyma því,
að guð hjálpar þeim, sem hjálpa
sér sjálfur.
Tvígiít."
• Meira popp?
„Væri ekki hægt að hafa
eitthvað í Morgunblaðinu fyrir
okkur eldri krakkana eins og þá
yngri, sem áhuga hafa á tónlist?
Þá sérstaklega eigum við við
erlent popp, að kynna hljómsveit-
irnar sérstaklega Bay City Rollers.
Hægt væri að hafa síðu með
myndum af erlendu frægu fólki,
ekki stjórnmálamönnum heldur
söngvurum, hljómsveitarmönnum,
3 með loðnu
til Akraness
Akranesi 28. nóvomher
VS VÍKINGUR AK 100 kom
hingað í morgun með 500 lestir,
Rauðsey AK 14 með 500 lestir og
Bjarni Ólafsson AK 70 með 400
lestir af loðnu til vinnslu í
S.F.A. Togarinn Krossvík er nú í
klössun í Esbjerg í Danmörku,
en aðrir togarar héðan,
Haraldur Böðvarsson og Óskar
Magnússon, eru á veiðum. Fjórir
bátar veiða með línu héðan frá
Akranesi og hefur afli verið frá
3—7 lestum. Tímabundið at-
vinnuleysi hefur verið hér að
undanförnu í tveimur frysti-
húsum hjá 30—40 manns vegna
viðgerða á Óskari Magnússyni,
sem nú er á veiðum eins og áður
sagði. — Júlíus.
Stóraukning
á þorskafla
Grænlendinga
MIKIL aukning varð í þorsk-
veiðum Grænlendinga fyrstu 9
mánuði þessa árs miðað við
sama tíma í fyrra. Fyrstu þrjá
ársfjórðunga þessa árs nam
þorskveiðin 27.348 tonnum, en á
sama tíma í fyrra var hún-18.671
tonn, sem er aukning upp á 81 %.
Af rækju bárust á land 9.762
tonn á Grænlandi fyrstu 9
mánuðina í ár, en 11.004 í fyrra
og er það 11% minni rækjuveiði
„Draumaheim-
urKittu”
KOMIN er út hjá Iðunni
ungjingabókin „Draumaheim-
ur Kittu” eftir norsku skáld-
konuna Evi Bogenæs í þýðingu
Andrésar Kristjánssonar.
Fylgst er með Kittu frá
barnæsku fram á fullorðinsár,
en Kitta er kyrrlát og feimin
stúlka sem nýtur lítils ástríkis
heima fyrir. Kitta skapar sér
sinn eigin heim og í honum
skipar Sveinn, drengur sem á
heima í næstu íbúð, mikinn sess.
Þegar stríðið brýst út í Noregi
er Kitta orðin átján ára og hún
leggur af stað til Haðalands með
barnahóp sem á að koma fyrir á
öruggum stað. í öllum þessum
þrengingum verður Sveini einn-
ig ljóst hvaða tilfinningar hann
ber til Kittu.
Evi Bogenæs skrifaði þrjár
bækur um Kittu, og er þetta sú
fyrsta í röðinni.
Þyngsti
dÚkurinn
hjáHöfn
28,4 kg
Selfossi, 27. 11.
HINN 12. nóv. s.l. hafði verið
samtals slátrað í sláturhúsi h/f
Hafnar á Selfossi 12659 fjár. Er
um 33%. aukningu að ræða frá
1977. Meðalfallþungi dilka var
13,1 kg.
Þyngsti dilkurinn vó 28,4 kg
og var hann eign Ingólfs Guð-
mundssonar bónda að Miðfelli í
Þingvallasveit. Innleggjendur
eru búsettir á svæðinu frá
Hvalfjarðarbotni austur að Sól-
heimasandi. Sláturhúsið er
starfrækt allt árið og auk
sauðfjár slátrað þar svínum,
nautgripum og hrossum. Slátur-
hússtjóri er Sigursteinn Guð-
mundsson. Ó.Í.J.
Félag refa-
og minkaveiði-
manna stofnað
FELAG refa- og minkaveiði-
manna á íslandi var stofnað
sunnudaginn 19. nóvember 1978.
Stjórn félagsins skipa: Hörður
Sævar Hauksson formaður, Oddur
Örvar Magnússon ritari og Helgi
Backmann gjaldkeri. Heimilisfang
félagsins er að Garðavík 13,
Borgarnesi.
í frétt frá félaginu segir m.a., að
markmið þess sé að sameina þá
menn sem eiga sömu hagsmuna að
gæta til að standa vörð um rétt
þeirra. Einnig mun það vera
markmið þess að halda refi og
mink í algjöru lágmarki og að
viðhalda ræktun og þjálfun góðra
veiðihunda til refa- og minka-
veiða.