Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 29

Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL. 10— 11 FRA MÁNUDEGI (ivujjQnrx’u.a'u n síhækkandi. Svo nú er það orðið samtals heldur yfir 200 þúsund kr. á mánuði. Þetta er okkur meira en nóg. Búum líka í eigin húsi skuldlausu og gætum vel greitt fullan fasteignaskatt. í Morgunblaðinu birtist í sl. mánuði kafli úr stólræðu sr. Hjalta dómkirkju- prests og sagði hann m.a.: „Er þjóðfélag okkar virkilega svo illa statt að það geti ekki veitt öldruðu fólki fullt skattfrelsi á öllum sviðum? Þetta fólk er búiö að vinna hörðum höndum alla ævi. Það er búið að vinna þjóð sinni vel.“ Ekki tel ég mig eiga sérstakar þakkir fyrir að hafa unnið. Hvað væri líf heilbrigðs manns án starfs? Vinnan hefur verið mér lífsfylling og unnin fyrst og fremst til iífsþarfa fyrir mig og mína. Eg tel víst að meðal yngri skattgreiðenda séu margir sem eigi erfitt með að greiða sín álögð gjöld. En öldungarnir, sem skatt- frjálsir skulu vera, eru vafalaust allmargir stóreignamenn. Það er augljóst að því meir sem stórum fjölda þjóðfélagsþegnanna er hlíft við öllum sköttum, hlýtur það að þyngja byrðarnar á hinum. Jón Helgason." Svo mörg voru þau orð hins aldraða manns, sem telur ekki eftir sér að standa klár á sínum skyldum, og það er satt að segja næstum fátítt að sjá skrif í þökk en ekki kvörtun, en þó er hér annað bréf sem þakkar fyrir útvarpsþátt: * • Anægð með morgun- póstinn „A sunnudaginn var birtist í Velvakanda álit konu nokkurrar frá Vík í Mýrdal á Morgunpóstin- um í útvarpinu. Hún leggur þar til að útvarpsráð felli þáttinn niður eða færi hann til í dagskránni. Því finnst mér tími til kominn að við sem erum ánægð með Morgunpóstinn látum frá okkur heyra. Mér er kunnugt um mjög marga sem líkar þessi nýbreytni og vona ég að Morgunpósturinn verði áfram um sinn og maður fái smáhvild frá morgunþulunum. Ein af Seltjarnarnesi." Sportsokkar Hosur Sportsokkar Sportsokkar ullarblanda 12 lltir HOSUR 5 litir Allt nýtt frá HUDSON VERIIVNIN/ Bankastræti 3, sími 13635. Sportsokkar HUDSON Sportsokkar • Of mörg útibú? Verzlunarmaðuri — Eitthvað hefur það verið rætt meðal manna og það í fullri alvöru hvort ekki sé rétt eða hægt að fækka nokkuð bönkunum okkar og telja sumir það hina mestu spillingu og óþarfa að hafa svo margar og glæsilegar hallir undir peninga okkar, sem eru svo verðlausir. Ekki skal undrast slíkar hugmyndir, því vissulega er það nokkuð undarlegt hversu margir bankár eru t.d. á Reykjavíkursvæðinu. þó er annað sem ég held að fremur ætti að byrja á en það er að hafa ákveðnari stjórn á því hversu mörg útibú hver banki getur haft á þessu svæði. Ég hef ekki tölu á útibúum í Reykjavík en þau skipta sjálfsagt nú orðið 3—4 tugum í allt. Er bærinn í raun og veru orðinn svo stór og útbreiddur að hann þurfi öll þessi útibú? Er ekki miklu fremur hægt að koma við einhverri meiri hagræðingu kring- um allar þessar afgreiðslur, þcí væntanlega eru útibúin stofnuð m.a. til að auka þjónustu við viðskiptavinina og með því að þau SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákþingi Rúmeníu í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Georgescus og Tratakovicis, sem hafði svart og átti leik. Síðasti leikur hvíts var grófur afleikur, 33. c2xb3?? í stað 33. Df6+ og þrá- skáka. 33. ... IIal+! og hvítur gafst samstundis upp, því að eftir 34. Kxal - Dcl+, 35. Ka2 - Ha8 er hann mát. eru fleiri ætti afgreiðsla að ganga hraðar í smáum útibúum en stórum báknum. En því er bara ekki að heilsa. Ég held að miklu nær væri fyrir bankana að fækka útibúum sínum en leggja stóraukna áherzlu á að afgreiða viðskiptavini sína fljótt og vel því á þann hátt verður án efa mun betri nýting á starfskrafti bankanna og þá yrði hætt að tala um fækkun eða samruna bank- anna, þegar menn sæju hversu vel þeir þjónuðu viðskiptavinunum. HÖGNI HREKKVÍSI FUGLAR Holdakalkúnar .. Kr. 3.260.- pr. kg. Aligæsir .. Kr. 2.400.- pr. kg. Aliendur .. Kr. 3.160.-pr. kg. Pekingendur .. Kr. 3.200.- pr. kg. Rjúpur verö ókomið? Villigæsir .. Kr. 2.500.- pr. kg. Svartfugl . Kr. 300.- pr. kg. Kjúklingar ... Kr. 1.740.- pr. kg. 10. stk. Kjúklingar ... Kr. 1.470.-pr. kg. Unghænur 10. stk ... Kr. 1.070.- pr. kg. Unghænur ... Kr. 1.290.-pr. kg. Kjúklingalæri og bringur .... ... Kr. 2.260.- pr. kg. OPIÐ ÖLL HADEGI I m DESEMBER. S------- .AUGALÆK Z. sími 350 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.