Morgunblaðið - 03.12.1978, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
69
hungruðum heimi
Landssöfnun á jólaföstu — Sjá bls. 2 og 3
Nú á jólaföstu mun fréttabréfi Hjálparstofnunar kirkjunnar dreift á öll heimili landsins.
Meöal efnis má nefna ýtarlega grein um fyrirhugaða landssöfnun, grein um samanburð
lífshátta próunarlanda og velmegunarríkja, ávarp biskups íslands, herra Sigurbjörns
Einarssonar, til landsmanna: „Fasta sem Guöi líkar“, viðtal við Helga Hróbjartsson,
kristniboöa, um þátttöku hans viö hjálparstörf á burrkasvæðum Ebíópíu, skýrt frá
hjálparflugi til hinnar einangruðu borgar Asmara í Erítreu og grein um aðstoð íslendinga í
Suöur-Súdan.
Hvernig má koma
gjöfum á framfæri?
1. Á gíróreikning Hjálparstofnunar kirkj-
unnar nr. 20005 í öllum bönkum, sparisjóð-
um og pósthúsum um land allt.
2. Til sóknarpresta um land allt.
3. Á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, Biskupsstofu. Klapparstíg 27, 5. hæð.
4. í söfnunarbíla sem staðsettir verða víða
um land þar sem fólk kemur saman síðustu
daga fyrir jól, og auglýstir nánar síðar.
Með fréttabréfi Hjálparstofnunar kirkjunnar, „Hendinni“,
verður dreift söfnunarbauk, sem flestir landsmenn munu
kannast við, en sams konar bauk var dreift á jólaföstu í
fyrra. Mikil pátttaka heimilanna um notkun hans lagði grunn
að söfnuninni í fyrra, en bá söfnuðust alls 36 milljónir króna.
bá munu mörg fyrirtæki væntanlega hafa sama hátt á og í
fyrra, er starfsmenn tóku sig til og söfnuöu í slíka bauka. í
fréttabréfinu kemur fram að áhersla er lögð á að börnunum
sé leyft að fylgjast meö notkun bauksins.
kunnugt er söfnuðust þá 36
miiijónir króna, og fyrir þetta
fé hefur nú verið unnið hjálpar-
starf, m.a. í Súdan, þar sem um
er að ræða boranir eftir fersku
vatni, svo og til áveitu, kennslu í
netagerð o.fl., en einnig hefur
Hjálparstofnun kirkjunnar ver-
ið aðili að hjálparflugi til
Asmara í Erítreu sem rekið er
af Lútherska heimssamband-
inu.
Hin stóru framlög íslendinga
á þessu ári til hjálparstarfs
Biblíulestur
VIKUNA 3. -9. DESEMBER
Matt. 21: 1—9. Sunnudagur 3. des.
Jes. UO: 1—11. Mánudagur U-des.
Jes. UO: 12—21. ÞriÖjudagur 5. des.
Jes. W: 22—30. MiÖvikudagur 6. des.
Jes. K2: 1—12. Fimmtudagur 7. des.
Jes. U3:1—13. Föstudagur 8. des.
Jes. 1+3: 21—28. Laugardagur 9. des.
hafa vakið verulega athygli, og
nú nýverið barst okkur bréf frá
Lútherska heimssambandinu
þar sem sagt er frá áframhaldi
þessara verkefna sem að ofan
eru rakin, ásamt þeirri spurn-
ingu hvort vænta megi jafn
stórra framlaga frá íslending-
um á næsta ári. Þes'su bréfi
svöruðum við með því að segja
að það væri undir íslenskum
gefendum komið, og höfðum þar
einkum í huga þá landssöfnun
sem nú stendur yfir dyrum.
Sjálfur trúi ég því að þótt e.t.v.
sé ekki eins rúmt um peninga
hjá landsmönnum og t.d. í
fyrra, þá láti þeir ekki staðar
numið í þessu hjálparstarfi, og
muni taka virkan þátt í söfnun-
inni. Um leið og þökkuð eru þau
fórnfúsu framlög sem stofnun-
inni hafa borist á þessu ári,
óskar Hjálparstofnun kirkjunn-
ar landsmönnum gleðilegra jóla
og blessunar Guðs á komandi
ári.