Morgunblaðið - 03.12.1978, Qupperneq 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1978
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
I>egar vestur fann ekki besta
útspil í spilinu hér að neóan greip
sagnhafi gefinn möguleika
feginshendi. l>ó var spilið engan
vegin auðvelt og krafðist fram-
sýni.
Gjafari austur, allir á hættu.
Norður
S. D63
H. 92
T. G1065
L. Á974
Austur
S. Á
H. KG10843
T: D42
L. KG2
Vestur
S. KG2
H. D65
T. 983
L. 10865
Suður
S. 1098754
H. Á7
T. ÁK7
L. D3
COSPER
Nú veit ég hvað ást er. — Ég fann það í
alfræðibókinni!
Hvaða skilyrði
þarf að uppfylla?
„Kæri Velvakandi.
Hvaða skilyrði þurfa andófs-
menn í austantjaldslöndunum að
uppfylla til að frásögn af dapur-
legum örlögum þeirra hljóti náð
fyrir augum fréttamanna íslenska
útvarpsins og rými í fréttaauka
þess? Svar við þessari spurningu
fékkst við að hlýða á áróðurinn í
fréttaauka kvöldið 23. nóvember.
Skilyrðin eru þessi:
1. Andófsmaðurinn verður að
vera sósíalisti.
2. Skoðanir hans og gagnrýni
verða að mótast af sósíaliskum
viðhorfum.
3. Marxistar-leninistar, trotsky-
istar, sósíalistar, sósíal-demókrat-
ar o.fl. verða að hafa komið saman
til fundar til að fjalla um skoðanir
andófsmannsins.
4. Frétt um örlög mannsins
verður að hafa hlotið náð í
vinstra-blaðinu Information í
Danmörku, því að fréttaaukar um
erlend málefni virðast ekki b.vggð-
ir á öðrum heimildum.
Fleiri atriði mætti telja en þau
eru öll á sömu bókina. Aðeins
vinstri sinnuð sjónarmið skulu
kynnt, jafnvel þegar rætt er um
andófsmenn gegn helstefnu
vinstrisinna, kommúnismanum.
Fróðlegt væri að fá upplýsingar
um það frá fréttastofu útvarpsins
hvaða erlend blöð og tímarit hún
er áskrifandi að eða kaupir
reglulega. Menn fengju þá a.m.k.
vitneskju um hvað það er, sem nær
ávallt verður að lúta í lægra haldi
fyrir Information þeirri dönsku.
Mundir þú ekki láta fréttastof-
unni í té rúm í dálki þínum undir
slíkt vfirlit?
P.“
• Notum
innlent
„Mig langar að skrifa nokkur
hvatningarorð til okkar allra
Islendinga núna þegar svo mikið
Sagnirnar:
Vestur Norflur 2S Austur
2 II 1 II
allir pass. Sudur 1 S 1 Spartar 311
Eins og sjá má tapast 4 spaðar
eftir lauf út en vestur spilaði
eðlilega hjartafimmi. Austur fékk
að eiga slaginn svo drottningin
yrði ekki innkoma á hendi vesturs.
Næsta slag fékk sagnhafi á hjarta,
spilaði spaðatíu, iágt, lágt og ás.
Og austur spilaði þá hjarta í
tvöfalda eyðu.
h'reistandi var að láta hjarta og
trompa í borði. Þá hefði nægt að
trompin skiptust 2—2 og tígul-
svíningin tækist. En þriðja hjarta-
spil austurs sýndi í rauninni, að
spaðaásinn var blankur og, að
austur átti einnig háspilin, sem
vantaði í láglitina. Enda hefði
opnun hans sagt svo vera.
Sagnhafi trompaði því á hend-
inni og tók á tígulás áður en hann
spilaði aftur spaða. Vestur tók á
kóng og skipti í lauf en það var of
seint. Lauf ás, tígulgosa svínað,
tígulkóngur og spaðadrottningin
var innkoma á borðið til að láta
síðasta laufið af hendinni í tígul-
tíuna. Tíu slagir og snyrtilega
unnið úr spili.
Litla sviðið:
Sýningum að ljúka
á Mæðrum og sonum
og Sandi og Konu
Nú er að ljúka á Litla sviði
Þjóðleikhússins sýningum á
einþáttungum þeim. sem þar
hafa verið sýndir í haust. bæði
á Mæðrum og sonum og ein-
þáttungum Agnars bórðarson-
ar.
Sýningin á Mæðrum og sonum
þykir með merkari sýningum
leikhússins í seinni tíð. Þar eru
á ferðinni tveir velkunnir ein-
þáttungar: beir riðu til sjávar
eftir írska skáldið J. M. Synge
og Vopn frú Carrar eftir
Bertolt Brecht. Sýningin hefur
hlotið afbragðsdóma og verið
sýnd við góða aðsókn. Þrítug-
asta og jafnframt síðasta
sýning verksins verður á mið-
vikudagskvöldið kemur. Þær
Guðrún b. Stephensen og Bríet
Héðinsdóttir fara með aðalhlut-
verkin í sýningunni en leikstjóri
er Baldvin Halldórsson.
Þá eru einungis eftir tvær
sýningar á einþáttungum
Agnars Þórðarsonar, Sandi og
Konu. sem einnig hafa vakið
athygli. Næst síðasta sýning er
á sunnudagskvöld og síéasta
sýning fimmtudagskvöldið 7.
des. Með stærstu hlutverk fara
Gunnar Eyjólfsson. borsteinn
(). Stephensen og Helga Jóns-
dóttir en leikstjóri er Gísli
Alfreðsson.
Æfingar standa rui. yfir á
næsta verkefni Litla sviðsins en
það er nýtt þýskt leikrit, Heims
um ból eftir Harald Mueller.
Fjallar það um konu á elliheim-
ili og samskipti hennar við son
sinn. Leikendur eru Bessi
Bjarnason og Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir. Leikstjóri er
Benedikt Arnason. Frumsýning
verður að líkindum milli jóla og
nýárs.
Guðrún b. Stephensen og Hákon Waage í hlutverkum sínum í
einþáttungnum Þeir riðu til sjávar.