Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978 5% kauphækkunarforsendan í þjóðarspánni: Yfirlýst stefna ríkisstjórnar — segir Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar Jólasvoinar vekja jafnan athygli yngstu þjóðfélagsþegnanna þar sem þeir tróna í búðargluggum eða eru á ferli, en þeir sjást væntanlega æ oftar því nær sem dregur jólunum. „VIÐ gefum okkur þær forsendur að kauptaxtar hækki ekki umfram 5% á þriggja mánaða fresti f sambandi við útreikning á þjóðar spánni einfaldlega vegna þess að það er yfirlýst stefna ríkisstjórnar innar að svo verði,“ sagði Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhags- stofnunar f samtaii við Mbl. Jón sagði aðspurður að þessi stefna ríkisstjórnarinnar kæmi fram í athugasemdum með frumvarpi til laga um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgunni sem seinna varð að lögum 30. nóvember sl. I athugasemdum með frum- varpinu segir m.a. 1) Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að stefnt verði að því í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins að verðlags- og peningalaunahækkanir 1. marz nk. verði ekki meiri en 5%. 2) Leitast verði við að ná svipuðum mark- miðum fyrir önnur kaupgjaldsbreyt- ingatímabil á árinu 1979 þannig að verðbólgan náist niður fyrir 30% í lok ársins. Þá var Jón Sigurðsson inntur eftir áliti hans á ummælum Svavars Gestssonar viðskiptaráðherra þess efnis, að það væri barnaskapur að gefa sér slíkar forsendur. — Jón sagðist einungis geta bent á áður- nefndar athugasemdir með frum- varpi ríkisstjórnarinnar um tíma- bundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgunni. Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag: Skattatillögur Tóm- asar valda óánægju Mikið fundað í Alþýðuflokki um helgina um tillögugerð í efnahagsmálum MIKLAR deilur eru nú milli stjórnarflokkanna um skatta- málatillögur fjármálaráðherra, sem kynntar voru meðal þing- manna stjórnarinnar í gær. Al- þýðubandalagi _ og Alþýðuf lokki finnst Tómas Árnason lftið sem ekkert tillit hafa tekið til tillagna þeirra í skattamálum og ennfrem- ur mun ráðherrann svo til ekkert tillit hafa tekið til tillagna skattanefndarinnar, sem nefndin skilaði í sfðustu viku. Ráðgert hafði verið að önnur umræða um fjárlagafrumvarpið færi fram næstkomandi föstudag. Einn af talsmönnum úr stjórnar- liðinu sagði í gær, að eftir að Þeirra eigin orð „Hvet hvern og einn launamann til að mótmæla á þann hátt einnig ólög- um ríkisstjórnarinnar” — sagði Benedikt Davíðsson 28. febrúar BENEDIKT Davíðsson for- maður Sambands byggingar- manna og Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins sagði í Þjóðviljanum 28. íebrúar til að undirstrika kröfu ASI um „óskcrta kjarasamninga" þar sem m.a. var að kjörorði hafL „Barátta fyrir réttum kaup- töxtum": „Við erum að verjast ólög- mætri árás og grípum til neyðarréttar. Við gerum okkur ljóst, að þessar aðgerðir eru ekki samkvæmt því sem skráð er í vinnulöggjöfinni, en bendum á, að fleira eru lög en það sem skráð er og teljum okkur hafa allan siðferðislegan rétt til þess að mótmæla með þeim hætti sem við höfum boðað, og ég hvet hvern og einn launamann til þess að mótmæla á þann hátt einnig ólögum ríkisstjórnarinn- ar.“ 99 Verulegur hluti verð- bóta .... verði greiddur með öðrum hætti en bein- um peningagreiðslum” — sagði Benedikt Davíðsson 11. nóvember Benedikt Davíðsson segir í Þjóðviljanum 11. nóvember sl.i „Verkalýðshreyfingin er sam- mála um, að það sé höfuð- nauðsyn að leysa þann vanda, sem nú blasir við án þess að verðbólgan aukist. Við teljum rétt að verulegur hluti verðbóta vegna vísitölunnar, sem gildi tekur 1. desember verði greiddur með öðrum hætti en beinum peningagreiðslum." þessar tillögur hefðu verið kynnt- ar meðal þingmanna, væri alls kostar óljóst, hvort af þessari umræðu gæti orðið á föstudag, áður þyrfti þá að ná samkomulagi um nokkur veigamikil atriði. Innan Alþýðuflokksins er nú mikil óánægja með stefnuna í efnahagsmálum og telur mikill meirihluti í þingflokki Alþýðu- flokksins ekki stætt á að halda áfram á sömu braut, „stefnan sé fullkomið ábyrgðarleysi". Hefur Alþýðuflokkurinn nú í undirbún- ingi ítarlegar tillögur í efnahags- málum, sem flokkurinn ætlar að leggja fram bráðlega. Voru mikil fundahöld í flokknum um helgina vegna þessara tillagna. I því sambandi hefur Sigurður E. Guðmundsson framkvæmda- stjóri ritað grein, sem birt var í gær, þar sem hann segir, að flokksstjórn og þingflokkur Al- þýðuflokksins verði „í janúarmán- uði næstkomandi að setja fram kröfur til hinna stjórnarflokk- anna, sem stjórnarsamstarfið verði látið rofna á, fáist ekki gömlu kerfisflokkarnir til að fallast á þær“. Nánar er skýrt frá þessari grein á öðrum stað í Mbl. í dag. Loftleiðaflugmenn mót- mæla nafninu Icelandair FÉLAG Loftleiðaflugmanna hef- ur samþykkt ó fundi sínum mótmæli við því að hið erlenda nafn Loftleiða skuli lagt niður en tekið upp þess f stað nafnið Icelandair, nafnið sem Flugfélag fslands notaði óður, og að nota skuli Icelandair fyrir bæði félögin. „Það er skoðun stjórnarinnar," segir í greinargerðinni, „að ekki sé lengur unnt að horfa upp á það í aðgerðarleysi, að sameining flug- félaganna verði til þess að nafn Loftleiða verði hreinlega afmáð af korti íslenzkra samgöngumála. Félagið mótmælir þessari nafn- breytingu harðlega og bendir á, að svo virðist sem ekki hafi verið leitast við að finna nýtt sameigin- legt nafn heldur eigi hið gamla nafn Flugfélagsins einfaldlega að ryðja nafni Loftleiða út.“ Síðan eru í greinargerðinni rakin ýmis atriði varðandi sam- einingu félaganna og að lokum eru talin upp nokkur atriði sem félagið segist vilja minna á í framhaldi af blaðaskrifum um kaup á DC-10 þotu og þjálfun og mannaráðningar þar að lútandi og benda m.a. á, að nú starfi 32 flugáhafnir hjá Loftleiðum og eftir tilkomu DC-10 sé þörf 26 áhafna samtals. Þá verði 10—12 mönnum ofaukið og því sé um atvinnuspursmál að ræða þegar ekki hafi verið samþykkt að tveir flugmenn frá Flugfélaginu skyldu teknir í þjálfun á DC-10. Sjó nánar „Nafn Loftleiða þurrkað út“ bls. 20. 99 Jákvæður fundur” — segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir um fund borgarmálaráðs Alþýðuflokksins BORGARMÁLARÁÐ Alþýðu- flokksins hélt fund um helgina, þar sem rætt var meðal annars um atkvæðagreiðsluna um sorp- hirðingargjaldið í siðustu viku, en þar klauf Sjöfn Sigurbjörns- dóttir meirihlutann og greiddi atkvæði gegn álagningu gjalds- ins, eins og fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins. Sjöfn sagði, í samtali við Morgunblaðið, að fundurinn í borgarmálaráði Alþýðuflokksins hefði verið mjög jákvæður, og að þar hefðu ekki verið gerðar neinar samþykktir er gengju í berhögg við ákvarðanir hennar í borgar- stjórn. Sjöfn sagði, að samþykkt hefði verið, að borgarmálaráð Alþýðuflokksins yrði framvegis mun virkara en verið hefði, og þar færu fram umræður um stefnu flokksins í einstökum málum, það er að borgarmálaráð verði hinn eiginlegi vettvangur stefnumótun- ar borgarfulltrúa Alþýðuflokksins. Treysti því að þetta komi ekki fyrir aftur © - segir Sigur jón Pétursson INNLENT — ÉG tel eftir þá fundi sem haldnir hafa verið í borgarmála- ráðum flokkanna þá megi vera hægt að treysta því að svona komi ekki fyrir aftur og samstarfið haldi áfram, enda lít ég á þetta sem einstakan atburð, sagði Sigur- jón Pétursson forseti borgar- stjórnar 4 samtali við Mbl. í gærkvöldi er hann var spurður um hvort afgreiðsla sorphirðugjalds- ins í borgarstjórn hefði nokkur áhrif á samstarf flokkanna. Alþýðuflokkurinn: Setti flokksstjórnin þing- flokknum stólinn fyrir dymar? FLOKKSSTJÓRN Alþýðuflokksins átti engan þátt í' ákvörðunum þingflokks Álþýðuflokksins um stuðning við efnahagsaðgerðirnar 1. desember s.l., segir Sigurður E. Guðmundsson fiokksstjórnarmaður í Alþýðuflokknum í grein í Dag- blaðinu í gær og tekur jafnframt fram að framvegis muni flokks- stjórnin starfa með þingflokknum að þessum málum. í greininni segir Sigurður orðrétt: „Því verður ekki neitað, að Ólafur Jóhannesson er einna klókastur stjórnmálaforingja nú um stundir, a.m.k. þegar honum tekst „bezt“ upp. Þegar 1. desember-slagurinn var yfirstaðinn stóð hans eigin þing- ílokkur uppi eins og flón, en þingflokkur Alþýðuflokksins var kominn út í horn og stóð þar með uppréttar hendur. Því miður kom flokksstjórn Alþýðuflokksins hvergi nærri þeim leik sem hér var leikinn og ber þess vegna enga ábyrgð á því sem gerðist, en ekki dugar það til að betur verði við hann unað. Hér eftir mun því þingflokkurinn njóta þeirr- ar reynslu, styrks og trausts, sem fyrir hendi er í flokksstjórninni. Saman munu þessir aðilar leggja á ráð um það, á næstu vikum, hvernig Alþýðuflokkurinn megi á nýjan leik ná í sínar hendur frumkvæðinu í baráttunni gegn verðbólgunni og fyrir betra og réttlátara samfélagi.“ Lokaorð greinar Sigurðar eru þessi: „Geti Alþýðuflokkurinn ekki rekið erindi sitt í ríkisstjórninni með sómasamlegum hætti er eins gott að hann hafi sig á brott úr henni, hvort sem það er honum að kenna eða samstarfsflokkum hans. Sú spurning hlýtur þess vegna einmitt að vera hið mikilvæga verkefni flokksstjórnar hans á næstu vikum.“ Peningum stolið úr tveimur ibúðum UM helgina var hrotizt inn í tvær íbúðir í Reykjavík og stolið peningum. Fyrst var brotist inn á Freyjugötu 11 og stolið þaðan 70—80 þúsundum en síðan var brotist inn á Þórsgötu 18 og stolið þaðan 80—90 þúsund krónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.