Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
Kína:
Kröfugerð um lýð
ræði færist í vöxt
II«n>f Kong -11. desember - AP
\P —símam\ nd.
VENUS — Myndin er unnin úr merkjum sem borizt hafa frá mælitækjum um borð í Pioneer-geimfari
Bandaríkjamanna. sem nú hrinKsólar á braut umhverfis Venus. Yfirborð Venusar er hulið þykkri þoku eða
mistri.
Rannsóknir á Venusi:
Kenningum um myndun
sólkerfisins kollvarpad
Muuntain \ iew. Kaliforníii.
Veggspjöld þar sem kraf-
izt er aukins lýðræðis og
stjórnmálaumbóta í Kína
birtast nú í æ fleiri borgum
og verður kröfugerðin sífellt
skorinorðari. Eru sjórn-
málaskýrendur þeirrar
skoðunar að slíkum sjónar
miðum vaxi nú mjög fylgi
meðal almennings í Kína, en
á einu spjaldinu í Wuhan
kemur fram sú fáheyrða
krafa að sett verði á fót
félagsvísindastofnun, sem
verði óháð hinu opinbera.
brír málmiðnaðarmenn
undirrita þessa kröfugerð,
og segja þeir meðal annars,
að tímabært sé að taka
þjóðfélagsrannsóknir úr
höndum fámennrar valda-
klíku. enda sé nauðsynlegt
að vísindastörf á sviði hag-
fræði, lögfræði, sagnfræði
og stjórnmála meðal annars
séu ekki einskorðuð við
fulltrúa hins opinbera.
Málmiðnaðarmennirnir skora á
„ungt, heiðvirt fólk með sjálfstæð-
ar skoðanir" að ganga til liðs við
sig og vinna að því að koma á
laggirnar slíkri stofnun.
Þá bar það til tíðinda í Peking í
gær, að spjald á „lýðræðisveggn-
um“, sem er við fjölförnustu götu
borgarinnar, var rifið niður, en
þar skoraði „mannréttindanefnd-
Þögul
mótmæli
Moskvu, Vatikaninu, 11. desember,
ReuterAP
Sovéskir andófsmenn minntust
í gær mannréttindadags Samein-
uðu Þjóðanna (SÞ) með mótmæla-
stöðu á Pushkin-torgi í miðborg
Moskvu.
Um 30—40 andófsmenn tóku
þátt í aðgerðunum í nístandi
kulda árla á sunnudag. Stóðu
andófsmennirnir þögulir í fimm
minútur á torginu.
Yelena Bonner, eiginkona
Andrei Sakharovs, sagði við
fréttamenn að hermenn og
óeinkennisklæddir lögreglumenn
hefðu handtekið um 20 andófs-
menn í sambandi við aðgerðirnar,
en margir þeirra hefðu verið látnir
lausir úr haldi síðar um daginn.
í bréfi til Kurt Waldheims
framkvæmdastjóra SÞ, sem birt
var í Vatikaninu í dag, segist
Jóhannes Páll páfi annar vera
hryggur og óhress með stöðu
mannréttindamála í heiminum í
dag.
1977 — Spencer Churchill
barónessa, ekkja Sir Winston
Churchills, andaðist 92 ára
gömul.
1971 — Fundur Nixons og
Pompidous um gjaldeyrismál á
Azoreyjum.
1970 — Bretar lýsa yfir
neyðarástandi vegna orku-
skorts.
1909 — Grikkir segja sig úr
Evrópuráðinu.
1894 — Japanir gera innrás í
Kóreu.
1887 — Bretar, Austurríkis-
menn og ítalir semja um óbreytt
ástand á Miðjarðarhafi — Tyrk-
ir biðja vesturveldin að miðla
málum í deilum sínum við
Rússa.
1870 — Konstantínópel-ráð-
stefnan um deilur Tyrkja og
Rússa hefst.
in“ á Jimmy Carter Bandaríkja-
forseta að beita sér fyrir því að
mannréttindi verði virt í Kína.
Hávaðasamur miðaldra maður
tætti niður spjaldið og lýsti því
yfir að það væri frá sovézkum
undirróðursöflum komið. Varð
uppi fótur og fit þegar spjaldinu
var svipt af veggnum. Kom lögr-
egla á vettvang, en óspektunum
lauk án þess að hún þyrfti að hafa
frekari afskipti af málinu.
Veður
víða um heim
Akurayrí 6 alskýjaó
Amsterdam 13 skýjaó
Apena 14 heiðskirt
Barcelona 13 poka
Berlín 5 rigning
Brussel 10 heióskírt
Chicago -12 snjókoma
Frankfurt 8 skýjað
Genf 4 skýjað
Helsinki -9 heióskírt
Jerúsalem 11 skýjaó
Jóhannesarb. 24 léttskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjaó
Lissabon 18 rigning
London 14 heiðskírt
Los Angeles 23 heiðskírt
Madríd 18 rigning
Malaga 15 alskýjað
Mallorca 17 skýjaö
Miami 25 skýjað
Moskva -8 léttskýjaö
New York -1 heiöskírt
Ósló -11 skýjað
París 16 skýjað
Reykjavík 9 alskýjað
Rio De Janeiro 30 skýjað
Rómaborg 16 heiðskírt
Stokkhólmur -2 skýjað
Tel Aviv 17 skýjað
Tókýó 9 skýjað
Vancouver 6 rigning
Vínarborg 10 rigning
Mál Thorpes:
r
Minehead, Englandi,
11. desember — AP Reuter.
LÖGFRÆÐINGUR brezka stjórn-
málamannsins Jeremy Thorpe hóf í
dag vörn í máli skjólstæðings síns
og hélt þá m.a. fram, að allt málið á
hendur Thorpe væri byggt á fram-
burði lygara sem væri andlega
afbrigðilegur en þar átti hann við
Nörman Scott, fyrrverandi fyrir-
sætu.
Lögfræðingurinn, sir David
1804 — Spánverjar segja
Bretum stríð á hendur.
1792 — Beethoven greiðir
Haydn 60 kr. fyrir fyrsta
tónlistartíma sinn.
1742 — Frakkar hörfa frá
Prag og snúa aftur til Frakk-
lands.
1677 - Friðrik Vilhjálmur I
af Brandenborg tekur Stettin —
Kristján V bíður ósigur fyrir
Svíum við Kassel.
1642 — Tasman finnur Nýja
Sjáland.
Afmæli dagsinst Anna Dana-
drottning (1574—1619) —
Gustave Flaubert, franskur rit-
höfundur (1821 — 1880) John
Osborne, brezkur leikritahöund-
ur (1929----) — Frank Sinatra,
bandarískur söngvar (1915---)
— EMward G. Robinson, banda-
rískur leikari (1893—1973).
Innientt F. Skúli Magnússon
11. drsnnlxT. AP.
VÍSINDAMENN banda-
rísku geimvísindastofnun-
arinnar sögðu í dag að
nýjustu upplýsingar úr
rannsóknum á reikistjörn-
unni Venusi bentu til þess,
að nauðsyn væri á að
endurskoða frá grunni all-
ar kenningar um myndun
sólkerfisins.
Upplýsingarnar, sem borist hafa
frá Pioneer-geimförum, sem ýmist
eru á braut um Venus eða lentu á
plánetunni fyrir helgina, hafa
komið vísindamönnunum mjög á
óvart, en þær benda til þess að
Napley, lagði til við dómara málsins
að þeir ákvæðu að Thorpe hefði ekki
til neinna saka að svara. Hann
veittist einnig harkalega að brezkum
blöðum, sem hann sagði hafa greitt
vitnum í málinu gífurlegar fjárhæðir
fyrir sögur sínar.
Búist er við því að dómarar
málsins skeri úr um það á miðviku-
dagsmorgun hvort Thorpe og þrír
menn aðrir sem riðnir eru við málið
skuli sóttir til saka eður ei.
1711 — Rafljós kveikt í fyrsta
sinn á íslandi í trésmiðju
Jóhannesar Reykdals í Hafnar-
firði 1914 — Björgunin við
Látrabjarg 1947 — „Herjólfur"
kemur til Eyja 1959 — F.
Magnús Stefánsson (Örn Arnar-
son) 1884 — Einar Ól. Sveinsson
1899 — Björn Jónsson stofnar
prentsmiðjufélag á Akureyri
1849 — Tilskipun konungs um
stofnun barnaskóla í Reykjavík
1860 — I). Erlendur pr. Hannes-
son í Gufudal 1813.
Orð dagsinsi Eins og ástatt er
í þjóðfélaginu er stundum
ómögulegt að komast hjá yfir-
læti og fordild — W. M.
Thaekeray — enskur rithöfund-
ur (1811-1863).
Venus sé mynduð úr öðrum efnum
en Jörðin.
Þannig sýna fyrstu mælingar,
að í gufuhvolfi Venusar er hlutfall
lofttegundarinnar Argon-36 um
eitt hundrað sinnum meira en í
gufuhvolfi Jarðarinnar og Marz.
Þetta efni er þeim eiginleikum háð
að það myndast ekki eftir myndun
reikistjörnunnar, og þar af leið-
andi ætti magn þess í gufuhvolfi
Venusar að öllum líkindum að
vera mjög svipað því sem er í
gufuhvolfi Jarðarinnar og gufu-
hvolfi Marz, ef myndun þessara
Vevey — 11. desember — AP — Reuter
FLÓTTAMENNIRNIR tveir, sem
ákærðir eru um að hafa stolið
jarðneskum leifum Chaplins í
Sviss í marz sl. hafa látið að því
liggja fyrir rétti að þriðji maður-
inn hafi verið í vitorði með þeim.
Hinir ákærðu, scm eru frá
Póllandi og Búlgaríu, segjast
hafa ra nt líkinu í von um að geta
kúgað fé út úr fjölskyldu
Chaplins og komizt þannig yfir
hluta „gífurlegra auðæfa“
hennar.
Svo virðist sem Pólverjinn,
Wardas að nafni, hafi lagt á ráðin
og skipulagt glæpinn, en lög-
fræðingur Chaplin-fjölskyldunnar
átti margsinnis orðastað við hann
í síma meðan á fjárkúgunartil-
raununum stóð. Segir lögfræðing-
urinn Wardas hafa verið hinn
alúðlegasta utan einu sinni er
hann hafði í hótunum og sagði það
ekki vandaverk að hæfa yngstu
börn Chaplins á 400 metra færi
með byssu, sem hann hefði lagt sér
til.
Abu Dhabi. 11. descmber — Reuter.
OLÍURÁÐHERRAR frá Araba
rikjunum eru nú flestir komnir
til Abu Dhabi, en þar hefst á
morgun, þriðjudag, fundur ara-
biskra oliuframleiðslurikja. Talið
er að ráðherrarnir muni á næstu
dögum reyna að taka sameigin-
lega afstöðu til verðhækkunar á
olíu.
reikistjarna hefði orðið með sama
hætti.
Þessar upplýsingar benda til
þess að annað hvort sé Venus til
orðin úr öðrum efnum en aðrar
reikistjörnur sólkerfisins, eða að
myndun Venusar hafi borið að
með öðrum hætti en á við um
aðrar reikistjörnur sólkerfisins.
„Þetta þýðir alla vega, að við
verðum að endurskoða algjörlega
allar kenningar vísindanna um
myndun innri reikistjarna sólkerf-
isins,“ sagði einn vísindamann-
anna í dag.
Wardas krafðist fyrst 600
þúsund dala greiðslu fyrir að skila
líkinu, en smálækkaði síðan
kröfuna og sættist loks á 50
þúsund dali. Hann fékk þá peninga
aldrei í hendur, enda var það
aldrei ætlun fjölskyldunnar að
reiða fram lausnargjald, en Ward-
as var handtekinn í símaklefa þar
sem hann var að tala við lög-
fræðinginn 16. maí sl. Haft var
eftir ekkjunni að ekki kæmi til
greina að greiða lausnargjald, því
að „maðurinn minn er í paradís og
í hjarta mínu og það er það sem
máli skiptir".
Geraldine Chaplin sagði í dag að
líkstuldurinn hefði verið fjölskyld-
unni þungbær reynsla, ekki sízt
þar sem haft hefði verið í hótunum
um að vinna tveimur yngstu
systkinunum mein ef lausnargjald
yrði ekki greitt.
Dómur verður kveðinn upp í
málinu á fimmtudaginn og eiga
hinir ákærðu yfir höfði sér sjö og
háfs árs fangelsi.
Næstkomandi laugardag hefst
svo fundur allra aðildarríkja að
samtökum olíuframleiðenda,
OPEC, en á þeim fundi verður
endanlega ákveðið hversu mikil
olíuverðhækkunin verður um
næstu áramót. Innan samtakanna
ríkir ágreiningur um hversu rnikil
þessi verðhækkun skuli verða.
Akæra á morgun?
C haplin-m álið:
Gengur þriðji vit-
orðsmaðurinn laus?
Olíuráðherrar
saf nast saman