Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978 47 Begin í Osló: Friðarsáttmáli verður gerður ðsló. 11. dosumlx r. \I* — Huutur. MENAHEM Begi, forsætisráðherra ísraels, hélt heimleiðis frá Osló í dag með sinn hluta friðar- verðlauna Nóbels, og á fundi með fréttamönnum skömmu fyrir brottförina sagðist Begin trúaður á að Israelsmenn og. Egyptar myndu gera með sér friðarsáttmála jafnvel þó að það yrði ekki fyrir 17. desember næstkomandi eins og gert var ráð fyrir í samkomulaginu í Camp David. Begin sagði, að af hálfu ísraelsmanna væri hægt að undirrita friðarsáttmála nú þegár, en málið strandaði á því að Egyptar væru ófáanlegir til að fallast á uppkast Israels- manna að friðarsáttmála. For- sætisráðherrann sagðist vera fús til að hitta Anwar Sadat forseta Egypta að máli hvenær sem væri ef það gæti á einhvern hátt leyst þau vandkvæði sem komið hafa upp í friðarvið- ræðum landanna. Þegar Begin og fulltrúi Sadats, sem var fjarverandi, tóku við friðarverðlaunum Nóbels við hátíðlega athöfn í Akershuskastala í gær fluttu þeir þakkarávarp. Þar kom fram að báðir leiðtogarnir myndu leggja sig alla fram til að reyna að koma á varanlegum friði í Miðausturlöndum. Af hálfu Israelsmanna og Egypta var því neitað að Begin og Sayed Morai, fulltrúi Sadats við veitingu Nóbelsverð- launanna, hefðu átt með sér fundi meðan á dvöl þeirra í Ósló stóð. Sagt var að þeir hefðu aðeins hitzt óformlega þegar afhending verðlaunanna fór fram. Hópur manna stóð fyrir utan Akershus-kastala meðan á at- höfninnni innan veggja kastalans stóð. Þar voru saman komnir stuðningsmenn við mál- stað Palestínu-Araba og höfðu margir atað sig rauðri málningu og hlekkjað sig við girðingu við kastalann. Allir draugar elska jiddisku Nóbelsverðlaun afhent í Stokkhólmi í gœr Stokkhúlmi. 11. d<,». 1 ?>7S frá Onnu Hjarnadóttur. frúttamanni Mhl. KONUNGUR Svíþjóðar afhenti Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði, bókmenntum og hagfræði 9 verðlaunahöfum við hátiðlega athöfn í Konserthúsinu í Stokkhólmi á sunnudag. 1700 manns voru viðstaddir athöfnina. Fyrir miðju sviðinu stóð brjóstmynd af Alfred Nobel. Hún var skreytt bláum dúk og gulum blómum, sem var gjöf frá Sanremo á Ítalíu, en Nobel lézt þar í borg 10. des. 1896. Á sviðinu sátu auk Nóbels- verðlaunahafanna og konungsfjölskyldunnar full- trúar þeirra stofnana, sem tilnefna Nóbelsverðlauna- hafana hverju sinni. Formenn Nóbelsnefndanna kynntu verðlaunahafa hvern af öðrum og báðu þá um að taka við verðlaununum, heiðursskjali og gullpeningi, úr hendi konungs. Peningaverðlaunin sóttu þeir í dag í Nóbelsstofnun- ina. Prófessor Sune Bergström, formaður stjórnar Nóbelsstofn- unarinnar, bauð gesti velkomna og Fílharmoníuhljómsvet Stokkhólms lék tónlist sérstak- lega valda með tilliti til þjóð- ernis verðlaunahafanna. I veizlu að verðlaunaaf- hendingunni lokinni fluttu verðlaunahafarnir þakkarræður sínar. Herbert A. Simon talaði á sænsku, en mesta athygli vakti ræða rithöfundarins Isaak Bashevis Singer, sem gaf skýringu á því, hvers vegna hann skrifar sögur sínar á jiddisku. „Allir draugar elska jiddisku, þess vegna skrifa ég á því ódeyjandi máli. Þúsundir jiddiskra líka munu rísa upp á uppstigningardegi og spyrja hvort ekki séu einhverjar nýjar jiddiskar bækur að lesa.“ Að borðhaldinu loknu var stiginn dans og heiðursgestun- um gafst tækifæri til að eiga orðaskipti við konungsfjölskyld- una. Þúsundir votta Goldu Meir virðingu sína Jerúsalem — 11. desember — AP SYRGJENDUR dreif í dag að Knesset, en í anddyri þinghúss- Timman og Miles efstir Amsterdam, 11. desember — Reuter. STÓRMEISTARARNIR Jan Timman frá Hollandi og Tony Miles frá Bretlandi eru nú efstir og jafnir á svæðamótinu í skák í Amsterdam. Að loknum 12 um- ferðum af 14 hafa Timman og Miles hlotið níu vinninga, en Englendingurinn Michael Stean er á hælum þeirra með 8,5 vinninga. ins hefur kista Goldu Meir staðið frá því klukkan tíu í morgun, og hafa tugþúsundir þegar vóttað hinum látna stjórnmálaskörungi virðingu sína. Pólk kom til Jerúsalem með langferðabílum alls staðar að úr landinu en meðal þeirra fyrstu sem komu til þinghússins voru ættingjar hinnar látnu, nánir vinir og forseti landsins, Yitzhak Navon. Golda Meir verður lögð til hinztu hvílu í heiðursgrafreit á Herzl-fjalli á morgun, við hlið Levi Eshkols, sem var fyrirrennari hennar í forsætisráðherraembætti. Guðmundur Guðjónsson er orðinn sérfræðingur í Sigfúsi, eins og góður maður orðaði það. Það syngur enginn lögin hans Fúsa af eins miklum næmleika og ástúð og Guðmundur Guðjónsson gerir. Enda eru þeir góðir vinir og þekkja hverja taug í hvoru öðrum. Þessi nýja plata þeirra er ákaflega falleg og ber vott um þann styrk, sem þessir menn veita hvor öðrum í túlkun tónlistarinnar. Fagra veröld er falleg og vönduð hljómplata. Einnig er ný og endur- bætt útgáfa af sönglögum Sigfúsar Halldórssonar komin út. Sönglögin hafa ekki feng- ist í nokkurn tíma og er hér bætt úr brýnni þörf og annast Steinar h.f. dreif- ingu ásamt plötunni. slainorhf Sími 28155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.