Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978 17 öllum kvikmyndahúsunum í Reykjavík eða 3—4 milljónum á ári hjá hverju bíói. Þetta er einskorðað við kvikmyndahúsa- reksturinn, leggst alveg aukalega á hann því að auðvitað borga kvikmyndahúsin í Reykjavík svo alla aðra skatta og skyldur sem hver önnur fyrirtæki." — Hafa þessar skattálögur ein- hver áhrif á rekstur kvikmynda- húsanna? „Þær gera okkur að minnsta kosti ekki auðveldara fyrir. Miða- verðið hér á landi er meira en helmingi lægra en í 'flestum nágrannalöndum okkar og engu að síður fáum við ekki nema 62% af því sem inn kemur, svo að það hlýtur hver maður að sjá að reksturinn er í járnum. I Dan- mörku er miðaverðið 20—30 Dkr. eða 1300—1400 kr. íslenzkar, svo að þarna munar verulega. Skatt- heimta af því tagi sem við megum búa við er hins vegar óþekkt hjá t.d. kvikmyndahúsum á hinum Norðurlöndunum, þar sem við þekkjum til.“ — En er það ekki yfirlýst stefna kvikmyndahúsanna hér að halda miðaverðinu niðri til að halda þessari miklu aðsókn sem hér er í samanburði við það sem gerist og gengur í nágrannalöndunum. „Jú, auðvitað. Hér eru kvik- myndahúsin eins konar „den fattige mans snaps“ og þau eiga líka að vera það, því að helztu viðskiptavinir okkar eru ungt fólk, fólk með ekki alltof mikla peninga handa á milli. Við erum þess vegna mjög á varðbergi að hafa miða- verðið ekki hærra en svo að það sé þjóðfélagi stafi af bíóunum. Það má ekki nefna hér dópista án þess að kvikmyndunum sé ekki kennt um hvernig fór fyrir honum og því haldið fram að bíóin afsiði þjóð- ina. Þetta á sér ekki neina stoð í veruleikanum. Kvikmyndir er menningartæki, þar sem allar listgreinar eru komnar saman á einum stað, og í langflestum tilfellum þroskandi og holl skemmtun. Það er að vísu árátta hjá sumum að hallmæla kvik- myndum sem eru fyrst og fremst dægradvöl, en það skyldu menn þó ekki gera — það getur stundum verið gott í þessu streitusamfélagi að flýja hversdagsleikann stutta stund með því lifa sig inn í skemmtilega eða spennandi kvik- mynd. En það er líka annar þáttur sem snýr að unglingunum. Hvernig héldu menn að umlitis væri í þessari borg til dæmis á Hallæris- planinu á kvöldin ef ekki væru kvikmyndahúsin til að húsa þessa 5—7 þúsund unglinga, sem þar hafast við á hverju kvöldi. — Hvernig eru samskipti kvik- myndahúsanna við kvikmyndaeft- iríitið? „Það hefur aldrei verið neitt stríð milli okkar og kvikmyndaeft- irlitsins eins og sumir virðast halda. Hins vegar erum við á margan hátt mjög ósáttir við starfsemi kvikmyndaeftirlitsins, einkum með tilliti til þess að nú er ýmislegt sýnt athugasemdalaust í sjónvarpi sem okkur yrði gert að banna innan 16 ára, svo sem síðasti þáttur Gæfu eða gjörvu- vel viðráðanlegt fyrir allan al- menning. Hér er líka bíómiðaverð- ið inni í vísitölunni, en engu að síður þykjumst við vita að fáir aöilar nauði minna í verðlags- stjóra um hækkanir — svo varkár- ir erum við í þessu efni.“ — Þið eruð einlægt gagnrýndir fyrir val ykkar á myndum fyrir börn. „Já, það er alveg rétt. Gallinn er bara sá að okkur er ómögulegt að finna allar þessar barnamyndir sem alltaf er verið að tala um. Það er svo sáralítið gert af svona myndum fyrir börn. Svíar hafa verið þar framarlega og einnig Bretar, og við höfum lagt allt kapp á að fá þessar myndir hingað til sýningar. Það hefur hins vegar ekki alltaf gefizt sérlega vel — því að margar þessara mynda höfða lítið til barna hér. Þeim finnst þær hreinlega leiðinlegar og sækja ekki þessar myndir. Nýlegt dæmi um þetta er mynd sem Tónabíó keypti, söngvamynd eftir sögunni um Tom Sawyer, og menn héldu að mundi fjalla í kramið hjá allri fjölskyld- unni og ekki sízt hinum ungu áheyrendum. Það reyndist hins vegar öðru nær. Annars er það þannig að við höfum það á tilfinningunni að sumir ætli að allt illt í þessu leika hér fyrir nokkru. Þarna er iðulega verulegt misræmi á milli. Svo er þess að gæta að við höfum sett okkar töluvert strangar reglur sjálfir, eins konar óskráð lög, um það sem við sýnum eða sýnum ekki, og t.d. hafa forráðamenn kvikmyndahúsanna hér aldrei lagt sig að ntarki eftir þessum klám- myndum sem t.d. vaða uppi alls staðar á Norðurlöndunum nema helzt í Noregi. Þá kemur það einnig iðulega fyrir að við setjum sjálfir aldursmörk á kvikmyndir án þess að kvikmyndaeftirlitið komi þar nærri. — En ef ég skil ykkur rétt þá eru það fremur hinir opinberu álögur sem þið viljið losna undan en að þið viljið fá lagfæringar á verðlagsmálum ykkar. „Já, við vildum losna við ýmsa af þessum sköttum og skyldum. Við teljum okkur halda uppi menning- arstarfsemi, og að það verði að taka tillit til þess. Sérstaklega er okkur þó þyrnir í augum þetta sætagjald, því að það er hrein vitleysa — sérskattur á kvik- myndahús á þessum eina stað á landinu, já, öllum heiminum — það máttu bóka — og meðal annarra orða vill ekki borgarráð færa einhver rök fyrir þessari innheimtu. áalla 542 432 57-1 433 535 5111 5100 3304 370 322 368 584 581 T«o. innlskór Kr. 550 herra 5.800 542 harra 2.250 432 herra 050 571 döm u 1.050 433 dömu 050 535 dömu 2.750 5111 dömu 2.250 5100 dömu 2.250 3304 dömu 3.800 370 dömu 1.500 322 döm u 3.500 308 barna 1.850 504 barna 1.250 581 (með lösku) barna 2.500 Austurstræti 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.