Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978 13 Pétur G. Gdðmundsson Pétur G. Guðmundsson og upphaf Samtaka alþýðu Hjá Bókaútgáfunni IÐUNNI er komin út bók sem ber heitið Pétur G. Guðmundsson og upphaf sam- taka alþýðu. Haraldur Jóhanns- son hefur skráð efni bókarinnar og fylgir frásögn Þorsteins, sonar Péturs G. Guðmundssonar. Á f.vrsta skeiði verkalýðshreyfingar- innar vann Pétur G. Guðmundsson bókbindari manna ötullegast að stofnun landssambands verkalýðs- félaga og stjórnmálasamtaka þeirra, framboði þeirra í kosning- um og útgáfu blaöa á þeirra vegum. Jafnframt varð hann fyrstur hérlendra manna til að hefja skipulega fræðslu um jafnaðarstefnuna. Pétur var einn stofnenda Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar 1906 og var formaður þess nokkur ár. Hann var kjörinn fyrsti bæjarfull- trúi verkamanna i Reykjavík 1910, var ritstjóri Alþýðublaðsins gamla 1906—1907 og Verkamannablaðs 1913—1914. Þá var hann forgöngu- maður að stofnun Bókbindara- félags íslands 1906. Bókin er 218 blaðsíður. Prent- stofa Guðmundar Jóhannssonar annaðist setningu en Prentsmiðja Árna Valdimarssonar prentaði. Bókin er bundin á Bókbandsstof- unni Arnarfelli. Ryklaus heimili með nýju Philips ryksugunni! Gúmmíhöggvari (stuöari). I sem varnar skemmdum i rekist ryksugan í. Þægilegt handfang. 850 W mótor. Einstaklega þægilegt grip með innbyggðum sogstilli og mæli, sem sýnir þegar ' ryksugupokinn er fullur. Stillanlegur sogkraftur. Nýja Philips ryksugan sameinar hvoru tveggja, fallegt útlit og alla kosti góðrar ryksugu. 850 W mótor myndar sterkan sogkraft, þéttar slöngur og samskeyti sjá um að allur sog- krafturinn nýtist. Nýjung frá Philips er stykkiö, er tengir barkann við ryksuguna. Það snýst 360° og kemur í veg fyrir að slangan snúi upp á sig eða ryksugan velti við átak. Þrátt fyrir mikiö afl hinnar nýju ryksugu kemur manni á óvart hve hljóðiát hún er. Stór hjól gera ryksuguna einkar lipra í snúningum, auk þess sem hún er sérlega fyrir- feröalítil í geymslu. Skipting á rykpokum er mjög auðveld. Rofi Inndregin snura. Snuningstengi eru nýjung hjá Philips. Barkinn snýst hring eftir hring án þess PHILIPS Meöal 6 fylgihluta er stór ryksuguhaus, sem hægt er að stilla eftir því hvort ryksuguð eru teppi eða gólf. að ryksugan hreyfist. Philips býður upp á 4 mismunandi gerðir af ryksugum, sem henta baBði fyrir heimili og vinnustaði. PHILIPS heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Ævintýraland barnanna Nú eru komin út á tveim hljómplötum 4 vinsælustu ævintýri Grimmsbræöra Hans og Gréta, Mjallhvít, fíauöhetta og Öskubuska. Flytjendur eru þau Bessi Bjarnason, Margrét Guömundsdóttir, Elfa Gísla- dóttir, SigurÖur Sigurjónsson og Gísli Alfreösson sem einnig leikstýrir. Þetta er jólagjöfin fyrir yngri kynslóöina Verö á plötum og kassettum aöeins kr. 8900- Utgefandi FALKIN N* dreifingarsími 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.