Morgunblaðið - 12.12.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
3
Banaslys
á Hnífs-
dalsvegi
BANASLYS varð á veKÍnum
milli ísafjarðar og Ilnífsdals
aðfararnótt sl. sunnudags er
bifreið fór út af veginum við
svonefndan Götuhalla.
Lögreglunni á ísafirði var til-
kynnt um slysið ,kl. 0L05
aðfararnótt sunnudagsins ok
hélt hún þegar á staðinn með
sjúkrabifreið.
Hafði bifreiðin farið út af
veginum en í henni voru þrír
farþegar auk ökumanns. Voru
þeir allir fluttir í sjúkrahúsið á
ísafirði og er þangað var komið
var farþeginn er hafði setið í
framsæti bílsins látinn. Annar
farþeginn er hafði setið í aftur-
sætinu var mikið slasaður og var
hann um nóttina fluttur með
sjúkraflugvél til Reykjavíkur.
Ökumaður og hinn farþeginn er
sat í aftursætinu slösuðust minna
og fengu að fara heim síðdegis á
sunnudeginum. Farþeginn sem
lézt hét Gautur Ágúst Úlfarsson,
Sólgötu 8, ísafirði, fæddur 2. nóv.
1961.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði
hafa nú orðið 6 banaslys á
þessum vegi milli ísafjarðar og
Hnífsdals og taldi hún líklegt að
orsök slyssins nú væri að
sprungið hefði á einum hjólbarða
bílsins.
Nýju lögin um erfða-
fjárskatt eru mistök
— segir Húseigendafélag Reykjavíkur
HÚSEIGENDAFÉLAG Reykjavík-
ur hefur ritað félagsmálaráðuneyti
bréf þar sem vakin er athygli þess
„á þeim mistökum sem áttu sér stað
við síðustu breytingu á lögum um
erfðafjárskatt og því mikla mis-
rétti sem sú lagabreyting hefur í
för með sér“, eins og segir í
bréfinu.
Segir jafnframt, að ný lög um
erfðafjárskatt er tóku gildi sl.
Frumvarp lagt
fram á Alþingi:
Utflutnmgslán á
gjaldeyrisgrundvelli
LAGT hefur verið fram á
Alþingi frumvarp til laga um
breytingar á lögum Seðla-
banka íslands þar sem ein
málsgrein bætist við gildandi
lög. — Þar segir m.a., að
Seðlabankanum sé heimilt að
endurkaupa af innláns-
stofnunum lán vegna út-
flutningsframleiðslu, sem
framleiðendur og út-
flytjendur stofna til við þær,
með þeim kjörum, að endur-
greiðsla höfuðstóls og vaxta
sé háð breytingum á gengi
ákveðins erlends gjaldeyris,
breytingu á meðalgengi
íslenzkrar krónu eða höfuð-
stóll greindur í ákveðnum
erlendum gjaldeyri.
Ennfremur segir, að sé höfuð-
stóll greindur í ákveðnum
erlendum gjaldeyri, skuli innláns-
stofnun greiða lántaka lánsfé í
íslenzkum krónum miðað við
kaupgengi hins erlenda gjaldeyris
á lántökudegi. Seðlabankinn
ákveður vexti af lánum þessum svo
og öll önnur lánskjör og skal tekið
mið af lánskjörum erlendis.
í athugasemdum með frum-
varpinu segir að af hálfu ríkis-
stjórnarinnar og framleiðenda hafi
verið lögð áherzla á það að lán til
útflutningsframleiðslu verði með
hagstæðari vaxtakjörum, þannig
að framleiðendur búi við líkan hlut
í lánskjörum og erlendir sam-
keppnisaðilar. Ein leið til að gera
þetta kleift sé, að lán til fram-
leiðslunnar verði á gjaldeyris-
grundvelli og vextir sambærilegir
við það, sem er á erlendum
lánamarkaði.
Heimild lagasetningar þessarar
til Seðlabakans varðar birgðalán
og útflutningslán vegna út-
flutningsframleiðslu. Lántakar,
framleiðendur og útflutnings-
aðilar skipta í þessu tilfelli við
innlánsstofnun en lánin eru síðan
endurseld Seðlabanka samkvæmt
afurðalánareglum hans á ábyrgð
viðskiptabankans.
sumar hafi átt sér þann aðdraganda,
að ekki sé víst að frumvarpshöfund-
ar hafi gert sér grein fyrir að
fasteignamat myndi margfaldast.
Nýtt mat hafði tekið gildi um
áramótin 1976—1977, fimmfaldað,
og enn hafi orðið 33—34% hækkun í
ársbyrjun ’78 og nú hefur verið
boðuð 42% meðaltalshækkun frá
næstu áramótum. I bréfi Húseig-
endafélagsins segir síðan:
Hækkun erfðafjárskattsins af
fasteignum sl. sumar voru því
greinileg mistök og engan veginn
ætlun löggjafans ef litið er til
athugasemda við frumvarpið að
lögum nr. 46/1978. Þar segir að með
frumvarpinu sé ekki stefnt að
neinum grunvallarbreytingum á
gildándi erfðafjárskattsreglum
fremur en gert var með lögum 1972.
Síðan er tekið dæmi um erfðafjár-
skatt og miðað við 4 herbergja íbúð
sem börn erfi, en erfðafjárskattur
fer hækkandi eftir því sem erfingjar
eru fjarskyldari. Sú íbúð sé metin á
rumar 14 milljónir í ársbyrjun 1978
og hefði erfðafjárskattur fyrir
breytinguna numið kr. 170 þúsund-
um en eftir breytinguna kr.
1.294.000. Eftir hið nýja fasteigna-
mat um næstu áramót hækkar mat
íbúðarinnar í um 20 milljónir og
hækkar því erfðafjárskatturinn í
rúmar 1.800 þúsund krónur.
Páil S. Pálsson, formaður Húseig-
endafélags Reykjavíkur, sagði í
samtali við Mbl. að hér væri
greinilega um mistök að ræða er
leiðrétta þyrfti.
Mannréttinda-
yfirlýsing SÞ
30 ára
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna minntist í gær hátíð-
iega 30. afmælis mannréttinda-
yfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna. sem samþykkt var 10.
desember 1948.
Á fundinum flutti Benedikt
Gröndal utanríkisráðherra sam-
eiginlegt ávarp fyrir hönda allra
Norðurlandanna og Kurt Wald-
heim aðalritari SÞ afhenti friðar-
verðlaun Sameinuðu þjóðanna til
átta félagasamtaka og ein-
staklinga.
Góð loðnu-
veiði í tvo
daga en síð-
an bræla
ALLGÓÐ loðnuveiði var um
helgina eftir nokkurra daga
brælu. Veiðin tvo síðustu daga
var 5730 tonn hjá 16 bátum. í
gærkvöldi var aftur komin bræla
á miðunum 70—80 sjómflur norð-
ur af landinu og því óvíst hvort
flotanum tekst að ná hálfrar
milljón tonna markinu áður en
loðnuvciðibann skellur á n.k.
föstudag. Heildaraflinn er nú
orðinn rúm 495 þúsund tonn á
sumar og haustvertíðinni, að
sögn Andrésar Finnbogasonar
hjá Loðnunefnd.
Þessi skip tilkynntu Loðnunefnd
afla á sunnudag og mánudag:
Huginn 560, Hilmir 500, Hákon
750, Hrafn 500, Skírnir 340, Gísli
Árni 520, Sæberg 100, Gullberg
280, Keflvíkingur 350, Magnús 300,
Gígja 350, Loftur Baldvinsson 400,
Óskar Halldórsson 50, Rauðsey
330, Skarðsvík 320, Ársæll 80.
LJOMA
jólaleikur
350.000 króna verðlaun
Sendu smellið svar og reyndu að vinna til
Ljóma verðlaunanna fyrir jól!
Þú þarft aðeins að svara eftirfarandi
spurningu:
HVERS VEGNA HEFUR LJÓMA VERIÐ
LANG MEST SELDA SMJÖRLÍKIÐ Á
ÍSLANDI UNDANFARNA ÁRATUGI?
I. VERÐLAUN — TVÖ-HUNDRUÐ-ÞÚSUND KRONUR
II. VERÐLAUN — EITT-HUNDRAÐ-ÞUSUND KRONUR
III. VERÐLAUN — FIMMTIU-ÞUSUND KRÓNUR
Sendu svar þitt — í bundnu máli eóa
óbundnu — merkt: Jólaleikur Ljóma,
pósthólf: 5251, deild a,105 Reykjavík.
Svarið verður aó hafa borist okkur
þann 18. desember 1978.
smjörlíki hf.